Morgunblaðið - 01.08.2001, Síða 27
EF Sofia Coppola ætlar að hasla
sér völl á kvikmyndasviðinu, bend-
ir allt til þess að athafnasvæðið
verði aftan við tökuvélarnar. Faðir
hennar, Francis Ford, reyndi á
leikhæfileika stúlkunnar í Guðföð-
urnum 3., með lítt minnisstæðum
árangri. Í frumrauninni Virgin
Suicides, kemur hinsvegar í ljós
ótvíræð geta á leikstjórnar- og
handritunarsviðinu. Afraksturinn
er metnaðarfullt og vandvirknis-
legt verk með mýmörgum, vel unn-
um og vitrænum þáttum í handriti
og stjórn og skemmtilegri áherslu
á vigtarmikil smáatriði, þótt heild-
aráhrifin séu blendin.
Sofia byggir Virgin Suicides á
samnefndri bók sem kom út
snemma á 10. áratugnum og vakti
talsvert umtal og athygli. Bak-
grunnurinn er úthverfi Detroit um
miðjan áttunda áratuginn, þegar
unglingar bjuggu almennt við auk-
ið frelsi eftir sviptingarnar á þeim
sjöunda. Virgin Suicides er sögð í
afturhvörfum, sögumaður (Gio-
vanni Riblisi), rifjar upp draum-
kenndar minningar af fimm, ljós-
hærðum og laglegum systrum sem
heilluðu þá, félagana í hverfinu,
upp úr skónum – uns draumarnir
breyttust í martröð.
Lux (Kirsten Dunst), er elst
Bishopsystranna, dætra íhalds-
samra foreldra (James Woods,
Kathleen Turner), sem voka eins
og gammar yfir hópnum. Einkum
er það móðirin sem reynir að gæta
velferðar dætranna, svífst einskis
við að halda þeim frá samneyti við
jafnaldra sína utan veggja heim-
ilisins. Hún er móðursjúkur, of-
sóknaróður siðgæðisvörður, sem
að endingu steypir fjölskyldu sinni
í glötun. Pabbinn er litlaus
menntamaður, geðlurða sem forð-
ast að standa á eigin fótum eða í
vegi fyrir ráðríki konu sinnar.
Engu breytir þótt yngsta dóttirin
fremji sjálfsmorð, að því er virðist
af andlegum áföllum uppeldisins.
Strákarnir, grannar þeirra, eru
hrifnir af þessum leyndardóms-
fullu og fallegu systrum og þar að
kemur að foringja þeirra, kvenna-
gullinu Trip (Josh Hartnett), tekst
að leysa systurnar úr álögum eina
kvöldstund, með þeim ægilegu af-
leiðingum sem titillinn greinir frá.
Atburðarásin til þess tíma er um-
fjöllunarefni myndarinnar, orsakir
atburðanna og afleiðingarnar
verða þeim eilíft umhugsunarefni.
Að mörgu leyti athyglisverð
mynd, sem Sofia hefur greinilega
nostrað við og slípað eftir fremsta
megni og umhyggjusemin skilar
sér best í hárréttu leikaravali og
vandvirknislegu yfirbragði. Þó
kemur þessi átakanlega raunasaga
lítið við mann, leikstjóranum/hand-
ritshöfundinum tekst ekki að koma
áhorfandanum í nána snertingu,
hvorki við óhamingjusama fjöl-
skylduna né strákana. Megingall-
inn er sá, að aðstæðurnar eru of
ótrúverðugar til að það geti tekist.
Slíkur múr sem Bishopfrúin og
mannleysan hennar, byggja utan
um skírlífi dætranna, er nánast
vísindaskáldsögulegur á tímum
Bee Gees, Kiss og diskósins. Þá
ætti öllu, nokkurn veginn óbrjál-
uðu fólki, að vera ljóst að bak við
þvílíka fangelsisveggi býr aðeins
ógæfa, slík siðgæðislöggæsla kall-
ar aðeins á skelfingu. Þótt hún geti
vonandi aldrei orðið jafn hræðileg
og hér er lýst.
Forvitnilegt verður að sjá hvort
Sofia fær annað tækifæri, þá velur
hún sér vonandi meðfærilegra efni
sem skilur meira eftir sig en nokk-
ur, fínlega unnin augnablik og óað-
finnanleg endurgerð genginna
tíma. Vonandi laðar hún einnig
fram jafn góðan leik og raun ber
vitni hjá leikurunum. Josh Hart-
nett, sem var furðu brattur í Pearl
Harbor, miðað við allar aðstæður,
sýnir hér að sú frammistaða var
ekki tilviljun. Ber höfuð og herðar
yfir flesta leikarana, val hans í
hlutverkið sýnir góða dómgreind
hjá Sofiu. Kirsten Dunst slær einn-
ig á rétta strengi, og við öðru er
ekki að búast af atvinnumönnum
eins og Woods og Turner, sem
bregðast ekki frekar en fyrri dag-
inn, þótt hlutverkin séu talsvert
ólík þeim sem við eigum að venjast
úr þeirri áttinni.
Martröð draumadísa
Systurnar í Virgin Suicides.
KVIKMYNDIR
H á s k ó l a b í ó
Leikstjóri: Sofia Coppola. Handrits-
höfundur: Sofia Coppola, byggt á
skáldsögu Jeffreys Eugenides. Tón-
skáld: Richard Biggs. Kvikmynda-
tökustjóri: Edward Lachman. Aðal-
leikendur: James Woods, Kathleen
Turner, Kirsten Dunst, Josh Hart-
nett, Danny De Vito, Scott Glenn.
Sýningartími 95 mín. Bandarísk.
Paramount Classics. 2000.
Virgin Suicides 1 ⁄2
Sæbjörn Valdimarsson
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 27
Kr.922.900
FZS600
Útsalan
Kringlunni
(við hliðina á Nýkaup)
í fullum gangi
VELDUR hver á heldur. Jap-
anskir morgnar, heimildarmynd
Jónasar Knútssonar, er laufléttur
samanburður á Japan og Íslandi,
tveimur þjóðum í sitt hvoru heims-
horninu í austri og vestri. Þvert á
skoðanir flestra þeirra sem maður
hefur heyrt, séð og lesið fór ekki
mikið fyrir þeim vegg, sumir segja
hyldýpi, í mynd Jónasar, sem að-
skilur austræna og vestræna
menningu og daglegar lífsvenjur.
Ágætur maður, að mig minnir
James Clavell, lýsir þeim andstæð-
um á þann veg að maður þurfi að
búa í sjö ár í Japan – til að komast
að því einu að verða aldrei annað
en útlendingur í því fjarlæga landi.
Sem til skamms tíma, eða allt að
niðurlægingu stríðslokanna, og
síðar sigri Japans á vesturlöndum
í rafeindaiðnaði, bílaframleiðslu,
ofl., notuðu miður gott orð yfir út-
lendinga almennt.
Jónas bregður sjónum sínum á
tengsl og viðhorf þessara framandi
þjóðfélaga með því að ræða við
fjölmarga aðila sem kynnst hafa
báðum löndunum. Margt af því
ágæta fólki hafði lítið annað að
segja en lítt upplýsandi yfirborðs-
hjal, aðrir brugðu upp skemmti-
legum og fræðandi skissum sem
segja meira en mörg orð, líkt og
Ólafur B. Thors með dæmisöguna
af Canon-vélinni, Hrafn Gunn-
laugsson kom með lunkna sögu af
brúðkaupi þar sem gjörólíkir
menningarheimarnir fléttuðust
saman, svona eins og olía og vatn,
en rúmuðust þó í hnotskurninni og
Berglind Jónsdóttir var einkar
skilmerkileg.
Viðmælendur komu flestir inn á
það aga- og virðingarleysi sem
plagar íslenskt þjóðfélag en er á
hinn bóginn eitt af aðalsmerkjum
Japanskrar menningar. Á því
sviði, sem flestum öðrum, getum
við margt lært af andfætlingum
okkar í austri. Áberandi andstæð-
ur er einnig að finna í sambúð-
arforminu þar sem japanskar
konur hverfa gjarnan af vinnu-
markaðnum þegar þær giftast og
barneignir utan hjónabandsins eru
nánast óþekkt fyrirbrigði. Illa
væri komið fyrir hinni íslensku
þjóð ef konur tækju upp á slíkum
óvanda!
Þótt hún segi í rauninni ekki
margt og sýni okkur aðeins mjúku
hliðina á japönsku mannlífi þar
sem í blóð borin, hefðbundin kurt-
eisi ræður ríkjum, og aðeins sýnd
átakanlega hliðin á átökunum í síð-
ari heimsstyrjöld (hvergi getið
grimmdarinnar sem einkennir hina
hliðina á yeninu), skila Japanskir
morgnar sinni huggulegu úttekt á
viðeigandi, snyrtilegan hátt, eins
og til var ætlast.
Sínatra og samúræinn
RÚV
S J Ó N V A R P
Umsjón, stjórn upptöku, klipping:
Jónas Knútsson. Kvikmyndataka:
Jónas Knútsson, Halldór Árni
Sveinsson. Hljóð: Halldór Árni
Sveinsson. Framleiðandi: Jónas
Knútsson, í samvinnu við Japansk-
íslenska félagið og Kvikmyndasjóð
2001. Sjónvarpið, júlí 2001.
JAPANSKIR MORGNAR
Sæbjörn Valdimarsson
Gullsmiðir
Verð
frá kr. 30.875,-stgr.