Morgunblaðið - 01.08.2001, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 31
maður lífeyrissjóðs, sem
ræddi við, sagðist ekki enn
annfærður um ágæti þess
eigi meirihluta í álverinu.
etja spurningarmerki við
issjóða í svo áhættusömum
bóginn vilji lífeyrissjóðirn-
nda í uppbyggingu íslensks
lífsnauðsynlegt sé að jafna
a greina í atvinnulífinu og
naðar. Slíkt geti verið gulls
enndu efnahagslífi.
andi benti á að lífeyrissjóð-
til vill farið sömu leið og
jarðargöngin á sínum tíma.
litið á fjárfestingu í göng-
sem of áhættusama og því
áhættufjárfestar fjármagn-
ra í upphafi. Þegar svo
erið komin á göngin, þau
aðist öryggiskröfur og sýnt
lífeyrissjóðirnir lagt fram
ert endurfjármögnun þann-
eru flestir tilbúnir að skoða
linn, ekki síst þar sem vitað
efnahagslífi veitir ekki af
ármagns, ekki síst erlends
k þess sem atvinnulíf á
ður í ofvæni eftir áhrifum
grar uppbyggingar og raun
ist formaður stjórnar Sam-
sjóðsins (SL), Hallgrímur
lja það vera ábyrgðarhluta
ta lífeyrissjóðs landsins að
þátt í að kanna kosti fyr-
s í Reyðarfirði sem fjárfest-
tjórnarformaður Lífeyris-
rmanna hefur hins vegar
un stjórnar LSR sé athygl-
sagðist raunar skilja málið
þannig að LSR hefði efasemdir um að
skoða málið. „Það finnst mér vera ábyrgð-
arhluti. Svona stór dæmi verður að skoða
ofan í kjölinn og taka svo afstöðu,“ sagði
hann og benti um leið á að framkvæmda-
stjóri SL sé að kanna þessi mál fyrir hönd
sjóðsins, en engin ákvörðun hafi verið tek-
in um að vera með eða vera ekki með.
Frekar en aðrir lífeyrissjóðir hefðu gert.
Magnús L. Sveinsson, stjórnarformað-
ur LV, sagði hins vegar að starfshópnum
væri fyrst og fremst ætlað að afla gagna
til að stjórnin geti betur áttað sig á því
hvort um sé að ræða fýsilegan fjárfesting-
arkost. Starfshópurinn ætti ekki að taka
neinar ákvarðanir, enda sé slíkt í verka-
hring stjórnanna.
Uppnám vegna skilyrða Norsk
Hydro um aðild að Reyðaráli
Áhrifamikill forystumaður í stórum líf-
eyrissjóði, sem Morgunblaðið ræddi við,
sagði að afstaða Ögmundar og framganga
hans í fjölmiðlum að undanförnu væri ef
til vill engin tilviljun. Gerði hann því skóna
að með kröfum sínum um frekari upplýs-
ingar og staðhæfingum um að málið væri
þannig vaxið að enn væri ekki unnt að
taka neinar ákvarðanir, væri Ögmundur
að reyna að kalla fram frekari upplýsingar
um samkomulag íslenskra stjórnvalda og
Hæfis við Norsk Hydro. Meðal annars um
þau skilyrði sem Hydro hefur sett fyrir
þátttöku sinni í Reyðarálsverkefninu,
enda byði fleirum en honum í grun að þau
skilyrði væru þess eðlis að mörgum fjár-
festum þætti nánast óaðgengileg.
Sjálfur segist Ögmundur vilja fá allt
upp á borðið í þessum efnum og aðeins
þannig verði hægt að meta málið á fagleg-
an hátt.
„Ég hef heyrt orðróm um einhverjar
undarlegar skuldbindingar íslenskra
stjórnvalda gagnvart Norsk Hydro og að
sama skapi undarleg skilyrði norska fyr-
irtækisins fyrir þátttöku í þessu verkefni,“
sagði hann við Morgunblaðið.
Þeirri kenningu hefur verið fleygt í hópi
áhrifamanna í lífeyrissjóðunum að í gildi
sé einhvers konar leynisamningur milli ís-
lenskra stjórnvalda og Norsk Hydro um
ótímabundna aðkomu norska fyrirtækis-
ins að mikilsverðum þáttum í rekstri ál-
fyrirtækisins í Reyðarfirði. Þannig sé nán-
ast kveðið á um yfirráð Hydro Aluminium
yfir tækniuppbyggingu álversins, hráefn-
iskaupum, markaðsstarfi og útflutningi.
Þetta allt saman án þess að Hydro eigi
meirihluta í fyrirtækinu. Eftir standi ís-
lenskir fjárfestar, þeirra á meðal lífeyr-
issjóðirnir, sem eigendur meirihluta
hlutafjár en þó nánast valdalausir um fjöl-
marga stoðþætti í rekstrinum.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
voru mál ekki svo langt komin að um væri
að ræða samkomulag um þessi atriði.
Hins vegar væri kominn á skilningur – og
hann m.a. verið að einhverju leyti skjal-
festur í sameiginlegum yfirlýsingum –
beggja aðila í þessum efnum og því hafi
Norsk Hydro gengið út frá því sem vísu að
þannig yrði háttað tengslum þess og
Reyðaráls hf.
Það var ekki fyrr en fulltrúum lífeyr-
issjóðanna og fleiri mögulegum fjárfest-
um varð þetta samkomulag ljóst, að renna
fóru tvær grímur á forráðamenn Hæfis.
Þeir virðast ekki hafa áttað sig á því
hversu málið væri eldfimt fyrr en þá og
létu Norsk Hydro þegar vita af þessum
blendnu viðbrögðum að heiman. Sátu Geir
A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri
Hæfis, og Erlendur Magnússon frá Ís-
landsbanka og stjórnarformaður Hæfis-
fund með Hydro í Ósló fyrir um hálfum
mánuði þar sem hart mun hafa verið deilt
um þennan þátt samstarfsins og fleiri.
Samkomulag varð ekki á þessum fundi,
enda sögðust yfirmenn Hydro í þeirri trú
að þessi þáttur væntanlegs samstarfs hafi
nánast verið frágenginn og aldrei verið í
raun neinn ágreiningur um. Því kæmi kú-
vending í svo veigamiklu máli nú, á loka-
stigum samningagerðarinnar, þeim afar
spánskt fyrir sjónir.
Svo viðkvæmt mátu forráðamenn Hæf-
is ástandið eftir þennan fund að afráðið
var að senda forstjóra Þjóðhagsstofnunar,
Þórð Friðjónsson, út til Óslóar nokkrum
dögum síðar til enn frekari fundahalda.
Þórður hefur ekki einasta verið formaður
viðræðunefndar um stóriðjumál heldur
var hann einnig ráðuneytisstjóri í iðnaðar-
ráðuneytinu þegar þreifingar hófust við
Norsk Hydro í ráðherratíð Finns Ingólfs-
sonar.
Þórður staðfesti í samtali við Morgun-
blaðið að hann hefði farið til Ósló til við-
ræðna við Norsk Hydro en hann vildi ekk-
ert upplýsa um efni eða gang þeirra
viðræðna.
Geir A. Gunnlaugsson sagði hins vegar
ljóst og nauðsynlegt að hafa í huga að ekki
liggi fyrir endanlegir samningar við
Hydro um alla þætti væntanlegrar sam-
vinnu. Um þau mál sem standi enn út af
borðinu sé verið að semja þessar vikurnar.
„Það liggur fyrir að Íslendingar vilja til
lengri tíma litið hafa meira að segja um
eignarhlut sinn og framleiðslu fyrirtæk-
isins. Hins vegar er jafnljóst að til
skemmri tíma litið verða að liggja fyrir
samningar um sölu á málminum og útveg-
un hráefnis. Án þess er ekki hægt að fjár-
magna álverksmiðjuna,“ segir hann.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur nokkuð þokast í átt til lausnar máls-
ins eftir fund Þórðar ytra og gætir nú
meiri bjartsýni á að lending náist í þessu
máli heldur en fyrr í mánuðinum þegar
ýmsir tóku svo djúpt í árinni að segja
Reyðarálsverkefnið allt í uppnámi vegna
málsins. Hitt fer ekki á milli mála að ís-
lenskir fjárfestar eru ekki tilbúnir að fall-
ast á nánast ótakmarkað og ótímabundið
samstarf við Norsk Hydro miðað við
óbreytt eignarhlut í Reyðaráli. Einhvers
staðar þarna á miðri leið verða aðilar
málsins að mætast. Líklegast er talið að
lausnin felist í því að Norsk Hydro sjái um
þessi fjögur aðalatriði, þ.e. tækniupp-
byggingu, hráefni, markaðsmál og út-
flutning, á ákveðnu fjármögn-
unartímabili, þetta 15 ár, en
síðan verði eigendum fyrir-
tækisins frjálst að semja upp
á nýtt um einhverja þætti, t.d.
um uppbyggingu framleiðslu-
línunnar. Það verði þó aldrei
gert með því að efna til beinnar sam-
keppni á einhverjum sérsviða Hydro Al-
uminium.
Einn viðmælandi blaðsins sagði að í
ljósi þessarar „uppákomu“, eins og hann
orðaði það, mætti draga þá ályktun að
Hæfi hafi of seint tekið fulltrúa lífeyris-
sjóðanna inn í viðræðurnar og kynnt þeim
alla þætti málsins. „Þeir eiga að fjárfesta
fyrir tugi milljarða og ráða stórum hluta
fyrirtækisins. Samt eru þeir fyrst nú að
átta sig á einstökum þáttum verkefnis-
ins,“ sagði hann.
Geir A. Gunnlaugsson segir að enginn
geti búist við því að samningaviðræður um
jafnviðamikil mál gangi alltaf fyrir sig eins
og í sögu. Miklu fremur megi líkja leiðinni
við holóttan íslenskan fjallveg sem sé erf-
iður yfirferðar enda þótt flestir komist á
endanum leiðar sinnar.
„Ég get bara sagt að það er enn verið að
takast á um ýmis atriði. Þetta er allt sam-
an enn í eðlilegum farvegi og ég hef
ástæðu til að vera bjartsýnn.“
Aðspurður um skýringar á þátttöku
Þjóðhagsstofustjóra í viðræðum ytra á
síðustu dögum sagði Geir: „Þórður hefur
lengi verið þátttakandi í þessum viðræð-
um fyrir hönd iðnaðarráðherra. Þó að
hann ræði við stjórnendur Hydro á fundi
nú, þarf það ekki að vera neitt óeðlilegt,
heldur aðeins hluti af því að verið sé að
leita lausna.“
Stefnt að erindi um fjármögnun
til lánastofnana í september
Á kynningarfundi Hæfis með fulltrúum
lífeyrissjóðanna á Hótel Sögu í byrjun
júní lýstu Hæfismenn því yfir að þeir von-
uðust eftir skýrum vísbendingum um vilja
lífeyrissjóðanna til Reyðarálsverkefnisins
fyrir lok júlí.
Þessi frestur er nú liðinn og ekkert ból-
ar á formlegri afstöðu lífeyrissjóðanna.
Geir A. Gunnlaugsson segir að vonir um
skýrar vísbendingar fyrir júlílok hafi verið
óraunhæfar og í ljós hafi komið að lífeyr-
issjóðirnir þyrftu rýmri tíma til að meta
þennan fjárfestingarkost.
„Á fundinum töluðum við um júlílok en
það er ekkert aðalatriði heldur hitt að líf-
eyrissjóðirnir komi að málinu og geri á því
nokkurs konar frummat. Ég veit ekki bet-
ur en að þetta verkefni sé í fullri vinnslu
hjá þessum aðilum og innan skamms vit-
um við frekar hvernig landið liggur. Þá
getum við sent formleg erindi til banka og
leitað eftir tilboði í fjármögnun. Við
stefnum enn að því að af því geti orðið í
september,“ segir hann.
Ögmundur Jónasson, formaður stjórn-
ar LSR, hefur upplýst í fjölmiðlum að á
kynningarfundinum á Hótel Sögu hafi
þetta verið orðað þannig að vilji lífeyris-
sjóðanna gagnvart þessu verkefni þyrfti
að liggja fyrir í sumar, helst fyrir júlílok,
en loforðin yrðu síðan innheimt um ára-
mótin.
Geir A. Gunnlaugsson segist ekki muna
hvernig þetta hafi nákvæmlega verið orð-
að á fundinum. Aðalatriðið sé að loka-
ákvörðun verði að liggja fyrir einhvern
tíma í janúar svo unnt sé að skera úr, af
eða á, þann 1. febrúar 2002.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa forsvarsmenn Hæfis lagt áherslu á
trúnað í samskiptum sínum við hugsan-
lega fjárfesta í Reyðarálsverkefninu. Slíkt
er vitaskuld ekki óþekkt í viðskiptaheim-
inum en nokkra athygli vekur að Hæfi
hefur farið þess á leit við framkvæmda-
stjóra lífeyrissjóðanna að þeir skrifi undir
yfirlýsingu um trúnað á ensku, sk. secrecy
agreement. Hefur sú krafa mælst illa fyrir
meðal fjárfestanna sem, sumir hverjir,
telja þetta merki um óþægilegt pukur.
Þannig hefur þessi beiðni fallið í grýttan
jarðveg meðal einstakra stjórnarmanna í
lífeyrissjóðunum sem bentu á að fram-
kvæmdastjórarnir bæru ekki ábyrgð á af-
stöðu sjóðanna til svo stórs verkefnis,
heldur stjórnarmennirnir. Það væru þeir
sem þyrftu að svara fyrir ákvarðanir sínar
gagnvart umbjóðendum sjóðanna, þ.e. líf-
eyriseigendum. Meðal annars þess vegna
mun enginn fulltrúi sjóðanna þegar hafa
undirritað þessa yfirlýsingu, hvað sem
síðar verður.
Geir A. Gunnlaugsson segir fullkom-
lega eðlilegt að einhvern tíma taki fyrir líf-
eyrissjóðina að koma að málinu og meta
það. Fulltrúar Hæfis hafi unnið að því að
útvega frekari upplýsingar sem óskað hef-
ur verið eftir og aðeins sé unnið í samræmi
við viðteknar venjur í alþjóð-
legum viðskiptum.
„Ég veit ekki annað en unn-
ið sé að þessum málum af full-
um krafti þessa dagana,“ segir
hann. „Ég á hins vegar ekki
von á því að þetta muni valda
nokkrum erfiðleikum, enda viðtekin venja
og í raun sjálfsögð í viðskiptum sem þess-
um. Mikilvægast er að þeir, sem koma til
með að taka stefnumótandi ákvarðanir í
þessu máli, fái aðgang að öllum þeim upp-
lýsingum sem þeir óska.“
Geir segir að í slíkum trúnaðarupplýs-
ingum geti verið fólgin talsverð verðmæti
og því hljóti að teljast eðlilegt að farið sé
með þær með gát.
„Fyrsta skrefið felst í því að þeir sem
sýna áhuga á verkefni fá ákveðnar grunn-
upplýsingar. Hafi þeir enn áhuga, eftir að
hafa kynnt sér þær, er eðlilegt að gengið
sé frá yfirlýsingu um trúnað og í fram-
haldi af því komi ótakmarkaður aðgangur
að gögnum og upplýsingum. Í því felst
ekki skuldbinding og áfram er hægt að
hætta við. Þetta er fyrst og fremst skuld-
binding um að meðhöndla þessar trúnað-
arupplýsingar á ákveðinn hátt,“ segir
Geir.
Grundartanga og byggingar álvers í Reyðarfirði enn á áætlun, en óvissuþættir enn margir
ingur hjá Norsk
ro vegna krafna
nskra fjárfesta
am er unnið að áformum um stórfellda uppbyggingu í stóriðju
á landi – á Norðurlandi og á Vesturlandi. Eins og fram kemur
ekt Björns Inga Hrafnssonar er leiðin að frekari álframleiðslu
kki bein og breið, heldur líkari holóttum íslenskum fjallvegi.
Morgunblaðið/Golli
Íslenskir fjár-
festar vilja
völd í samræmi
við eignarhlut
bingi@mbl.is