Morgunblaðið - 01.08.2001, Page 42
MINNINGAR
42 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Elsku besta amma
„lamma“ mín, eins og
ég hef alltaf kallað þig
frá því ég var lítil, frá
því við bjuggum allar
á Holtsgötunni ég, þú
og mamma, frá því ég fæddist 21.
maí 1984, daginn eftir að þú varðst
sextug, já, þú fékkst mig svo sann-
arlega í afmælisgjöf, meira að
segja tókst þú á móti mér í þennan
heim og hefur átt mig síðan og átt
mig enn, allavega munt þú ávallt
eiga stóran stað í hjarta mínu því
þar óx rót sem hefur vaxið og vax-
ið ár eftir ár og orðið að rótum
sem aldrei verða reyttar. Já, ég
man eftir því þegar við vorum á
Holtsgötunni nr 21 þegar þú fórst
út í búð og keyptir handa okkur
kók í gleri, lakkrísrör og Öldu-
súkkulaði og leigðir mynd handa
mér, já, það var Disney-mynd með
Andrési Önd og Mikka Mús, og
alltaf þegar ég og mamma komum
í vinnuna til þín á Nýja-kökuhúsið
og ég hljóp alltaf inn fyrir og fékk
mér kransaköku og appelsínusvala
og þegar ég fékk köku hjá þér á
Holtsgötunni sagði ég alltaf
„amma ninna“ og það þýddi amma
vinna, þá komstu stundum með
kökur og svoleiðis úr vinnunni. Og
manstu líka þegar ég og mamma
vorum fluttar á Vesturgötu 21.
Þegar ég var þriggja ára og og var
búin að fá bleika og svarta þríhjól-
ið sem þú gafst mér, eins og allt
annað, þá komst mín sko á milli
staða og ætlaði sko til hennar
ömmu minnar og hjólaði til þín
niður á Holtsgötu. Já, það var allt-
af svo gott að koma til þín, t.d. ef
ég var veik og kom til þín þá batn-
aði mér alltaf strax. Og þegar þú
fluttir í Ofanleitið nr. 17 náðum við
að flytja allt dótið inn á einum degi
og um kvöldið þegar við ætluðum á
Hard Rock var svo skrýtinn lásinn
á útidyrahurðinni að pabbi varð
MARÍA
PÁLSDÓTTIR
✝ María Pálsdóttirfæddist 20. maí
1924 í Reykjavík.
Hún lést í Landspít-
alanum við Hring-
braut 11. júlí síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Dómkirkjunni í
Reykjavík 20. júlí.
eftir að reyna að læsa
og tókst það loksins
með trikkinu. Og þá
fórum við líka oft í
Kringluna og alltaf
þegar við vorum bún-
ar að rölta nóg um
fórum við alltaf á
Léttir réttir þar sem
báðar Siggurnar voru
að vinna og Sigga
dökkhærða alveg
dýrkaði þig, enda vor-
uð þið nú orðnar góð-
ar vinkonur. Ég man
nú eftir því þegar þú
fórst í Tékk-kristal og
keyptir handa henni lyklakippu
með S inni í svona lítilli krist-
alkúlu. Og þegar við fengum okkur
elsku köttinn okkar Daisý sem
varð svo vinsæl í hverfinu að allir
krakkarnir þóttust eiga hana og
hún fór í Kringluna og í Borg-
arleikhúsið og lék á sýningu. Hún
fór bara ekkert af sviðinu og svo
var hringt í þig og þakkað fyrir
hana og hún var alltaf að veiða fyr-
ir þig og kom með poka og allar
tegundir af hönskum og þú sagðir
eitt sinn við hana að koma með
hanskann á hina höndina og jú jú
hún kom með hann, þessa fínu leð-
urhanska og þegar Helgi var
stundum að gera at í okkur og
þóttist bara vera vinur hennar
Daisýar og var að spyrja eftir
henni. Og alltaf kom ég til þín fyr-
ir jólin að skreyta og pakka inn
gjöfum fyrir þig. Það var alltaf svo
gaman hjá okkur og dúlla okkur
saman og horfa á sjónvarpið á
sakamálamyndir og spjalla saman
um hitt og þetta, alla heima og
geima. Og svo hlakkaði ég svo til
að fá bílprófið og geta farið með
þig á rúntinn og í búðir og út á
land, svona að ferðast aðeins og
skoða. Já og svo núna þegar ég fór
til Danmerkur þá komum við til
þín ég, mamma, Ási og pabbi um
kvöldið sem við fórum að kveðja
þig ég og Ási eða reyndar ég og þá
fékk ég pening hjá þér og plokk-
fisk svo það var víst kveðjustundin
okkar og seinasta máltíðin sem ég
fékk hjá þér var víst góður plokk-
fiskur að hætti Maríu Páls þótt
mig hefði nú aldrei grunað það
væri okkar seinasti tími saman. Já,
elsku amma mín, þú hefur alltaf
verið mér svo góð og skemmtileg,
þú ert svo falleg og sterk kona, svo
gáfuð og sniðug með stórt hjarta
(ekki skrýtið að þú hafir verið kos-
in snædrottning Reykjavíkur) og
þú varst með svo mjúkar og hlýjar
hendur og ef þær voru kaldar
sagðir þú eitt sinn við mig að ef
maður væri með kaldar hendur
væri maður með gott hjarta. Þú
ert alveg guðdómleg, svo sérstök
og æðislegur karakter, þú ert kona
sem allir elska. Já, amma mín, al-
veg ómetanleg, þér verðuyr varla
lýst með orðum, alveg einstök. Sú
besta amma sem hægt er að hugsa
sér, sú heimsins besta og ekki bara
það heldur mín besta vinkona,
æskuvinkona, trúnaðarvinkona og
elilífðarvinkona. Að hafa þekkt þig
og að vera komin af þér er gjöf
sem mun lifa með mér allt mitt líf
og líka seinna þegar ég kem upp
til þín þá mun ég sko faðma þig að
mér og knúsa þig og kyssa því ég
elska þig og hef alltaf gert og mun
alltaf gera. Elsku María amma
mín, já, það er búið að vera sárt að
missa þig héðan frá okkur.
En í rauninni ertu ekkert farin
heldur ert bara hérna hjá okkur
öllum og í okkur og nú færðu líka
að hitta þá sem þú varst búin að
missa á þinni lífsleið, t.d. mömmu
þína og pabba, ömmur þínar og afa
og Benna afa minn og manninn
þinn og vini þína og vinkonur og
marga fleiri sem eru eflaust æð-
islega ánægð að hitta þig og hafa
þig hjá sér og Guðsríki og engl-
arnir ljóma af hamingju og gleði
og góðri orku af að fá þig og þú
munt sjálf verða fallegasti engill á
himnum. Og hefur alltaf verið al-
gjör dýrlingur og engill í þér og
þessa bæn kenndir þú mér:
Ó Jesús bróðir besti,
og barnavinur mesti,
æ breið þú blessun þína,
á barnæskuna mína.
Og alltaf þegar ég fer með hana
er hún ætluð þér og ég mun hitta
þig í draumum mínum og koma
seinna til þín og hitta þig en nú
ertu komin á betri stað og getur
nú líka ferðast um eins og þú vilt,
sem þú hafðir svo gaman af. Og
verið hjá Guði og öllum englunum
og hjá mér og öllum þeim sem þú
vilt og nú þakka ég þér allan tíma
sem við áttum saman og býð þig
bara velkomna í Guðsríki fyrir
þína hönd. Þúsund og milljón koss-
ar.
Þín eina
Birgitta Ben.
Hún Tóta er dáin.
Fyrst kom söknuður
og sorg, en líka léttir,
því síðustu vikur og
mánuðir hafa ekki ver-
ið það sem við hefðum
kosið fyrir Tótu. En
Tótu líður vel núna. Ég sit hér og
hugsa um hvað á ég að skrifa,
hverju á að sleppa, því þó ekki sé
langt síðan við Tóta kynntumst er
margs að minnast.
Við kynntumst er hún og tengda-
pabbi minn, Gunnar Helgason, fóru
að vera saman. Hún varð fljótt ein
af fjölskyldunni. Því Tóta var hrein
og bein og kom til dyranna eins og
hún var klædd.
Tóta vildi öllum vel og vildi ekk-
ert þras og engan óþarfa misskiln-
ing, sem kom oft í ljós. Ef það leið
vika á milli heimsókna hringdi hún
og spurði hvort við værum í fýlu,
því þau væru það ekki! Eitt sinn var
ákveðið að taka okkur hjónakornin í
bridge-kennslu. Það lá mikil eftir-
vænting í loftinu, því Tótu fannst
gaman að spila, rétt eins og tengda-
pabba. Þegar stressið var að ná tök-
um á nemendunum sagði Tóta:
„Það má ekki gera þetta of alvar-
legt, það á að hafa gaman af þessu,
blessaður leyfum þeim að spila
sögnina og ekki segja svona hátt.“
En keppnismaðurinn í hópnum gat
ekki slakað á, svo áður en spilin
flugu út um allt stakk Tóta upp á
því að spila vist, því það væri svo
gaman. Svo bridge-kennslan var
lögð á hilluna. Strákar spiluðu á
mótu stelpum og allir héldu góða
skapinu.
Tóta sá oft spaugilegu hliðarnar á
svo mörgu og oft á undan okkur
hinum. Þá hló hún svo mikið að hún
gat ekki sagt okkur hvað það var
sem var svona afskaplega fyndið.
Oft kom það ekki að sök því hún
smitaði okkur með hlátri sínum svo
við gátum hlegið með. Svo þegar
róaðist kom skýringin og þá gátum
ÞÓRA
ÓLAFSDÓTTIR
✝ Þóra Ólafsdóttirfæddist 7. júlí
1923. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 15. júlí
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Grafarvogs-
kirkju 19. júlí.
við hlegið aftur.
Tótu þótti vænt um
dýr, þegar hún kom í
heimsókn tók Keli kisi
á móti henni eins og
hann gerir við alla
gesti, með misjöfnum
árangri þó. En Tóta
kunni að meta þessi
gæði og spjallaði við
hann og klappaði hon-
um og hló mikið að
Gunnari tengdapabba
sem lítið vildi með
Kela hafa. Enda fór
svo að Keli leitaði
meira til Tótu, því þar
átti hann von á klappi og spjalli.
Hún hafði yndi af hannyrðum og
hún saumaði í stóla, púða og dúka
þó lítið gerði hún hin síðari ár. Dúk-
arnir sem hún saumaði, já, sumir
voru hrein listaverk, hvítsaumur og
grunnar, kúnstverk ýmiss konar
sem fáir kunna í dag.
Eitt sinn spurði ég hana hvort
hún gæti sýnt eða kennt mér þenn-
an eða hinn sauminn, þá hló hún og
sagði að þetta hefði verið svo flókið
á sínum tíma, að hún gæti engan
veginn munað hvernig hún fór að. Í
stað þess gaf hún mér einn dúkinn
og sagði: Nú þarftu ekkert að
sauma svona.
Tóta hafði mikið gaman af tónlist,
spilaði á píanó og harmonikku og
söng með á góðum stundum. Oft
entist ekki veislustundin fyrir öll
óskalögin sem hún var beðin um að
spila. Stundum var gantast með að
annar í veislu yrði annaðkvöld svo
við næðum að klára. Flest allt kunni
hún og oft var nóg að raula laglín-
una á þeim lögum sem hún þekkti
ekki til að hún gæti spilað þau.
Við fylgdum Tótu síðasta spölinn
hinn 19. júlí síðastliðinn og lagðist
hún í sína hinstu hvílu við hlið
Laugu sinnar. Fyrir rúmum 2 árum
ræddum við um jarðarfarir eftir að
hafa verið í einni slíkri. Þá barst í
tal hvernig hver og einn vildi hafa
sína jarðarför. Ekki tala mikið um
mig, þegar ég er öll, ég vil hafa lif-
andi músík og mikið af henni, sagði
Tóta og henni varð að ósk sinni.
Það er margt sem rifjast upp á
kveðjustund. Eitt er víst að Tótu
verður saknað.
Blessuð sé minning hennar.
Helga og Gunnar Örn.
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
„Au pair“
í Bandaríkjunum
Íslensk fjölskylda í Maryland óskar eftir „au
pair“ til að gæta tveggja drengja (5 og 8 ára).
18 ára og eldri hringi í síma 866 1994.
Starfsmenn vantar
strax!
Vegna aukinna verkefna vantar starfsmenn
til starfa við eftirlit o.fl.
Í boði er:
Starfsþjálfun — góð laun. Yngri en 30 ára koma
ekki til greina.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist
til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „Starf —
1113“.
Varnir-Eftirlit er leiðandi fyrirtæki í meindýravörnum og -eftirliti.
Varnir-Eftirlit vinnur eftir HAACP (Gámes) staðli. Varnir-Eftirlit er
aðili að NPCA National Pest Control Association og NPLA National
Pest Technicians Association. Fagmenn að störfum. Vönduð vinnu-
brögð. Leitið ávallt eftir ráðgjöf fagmanna.
Yfirdýralæknir
Laus störf dýralækna
Auglýst eru laus til umsóknar eftirtalin störf
dýralækna.
Starf efirlitsdýralæknis við embætti héraðsdýra-
læknis í Skagafjarðar - og Eyjafjarðarumdæmi.
Staða sóttvarnardýralæknis.
Skriflegar umsóknir skulu sendar embætti yfir-
dýralæknis, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík.
Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um
menntun og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst nk.
Laun eftirlitsdýralækna og sóttvarnadýralæknis
eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra
við Dýralæknafélag Íslands.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa embættis
yfirdýralæknis í síma 560 9750.
Embætti yfirdýralæknis, 26. ágúst 2001.
Vaktformenn
og yfirvélstjóri
Útgerðarfyrirtækið Reyktal AS óskar eftir
metnaðarfullum einstaklingum til framtíð-
arstarfa á rækjufrystitogara. Æskilegt er
að vaktformenn hafi reynslu af vinnslu-
stjórn á rækjufrystitogara og séu vanir
netamenn. Ekki er gerð krafa um að vakt-
formenn séu með stýrimannsréttindi.
Gerð er krafa um að yfirvélstjórar hafi
lokið 4. stigi (VF II).
Viðkomandi þurfa að vera reglusamir og
búa yfir góðum samskiptahæfileikum.
Enskukunnátta er nauðsynleg.
Í boði eru störf hjá vaxandi fyrirtæki sem
gerir kröfur til starfsmanna sinna og
veitir þeim kjör til samræmis.
Umsóknir sendist með tölvupósti til
hjalmar@iec.is eða á faxnr. 588 7635.
Nánari upplýsingar veitir Hjálmar Vil-
hjálmsson í s. 588 7666.
Umsóknareyðublöð verða send þeim
sem óska.