Morgunblaðið - 01.08.2001, Page 44
VERSLUNARMANNAHELGIN
44 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Álfaborgarséns 2001
Í Borgarfirði eystri á „Álfaborgar-
séns 2001“ verður mikið um að vera
og margir dagskrárliðir. Að kvöldi
föstudags verður svokallað hagyrð-
ingakvöld og verða veitt verðlaun
fyrir bestu vísuna sem berst úr sal
um ákveðið mál sem hefur farið hátt í
fjölmiðlum undanfarið. Fer sögum af
því að á hagyrðingakvöldinu verði
saman komið það sem kalla mætti
„landsliðið“ í þeim fræðum að berja
saman vísur. Haldnir verða danleikir
föstudags-, laugardags-, og sunnu-
dagskvöld með hljómsveitunum
Kross-field drengjakórnum ásamt
Valmari Väljaots, Nefndinni og
Kvöldgestum Jónasar sólstrandar-
gæja. Þá verða ævintýraferðir fyrir
yngri kynslóðina, knattspyrnumót,
útimarkaður, söngkeppni, mynda- og
listmunasýningar, grillveislur og
fleira. Inn á hátíðina kostar ekki neitt
og eins verður ókeypis á tjaldstæðin,
en selt verður inn á dansleikina.
Neistaflug í Neskaupstað
Að venju verða hátíðahöld í Nes-
kaupstað undir heitinu Neistaflug.
Þar verður margt til skemmtunar
fyrir alla fjölskylduna auk fjölda tón-
listaratriða, starfrækt verður ka-
jakaleiga og hestamannafélagið Blær
sér um að teyma undir börnum.
Barnahátíðin verður mjög glæsileg
með Þá Gunna og Felix í broddi fylk-
ingar, Götuleikhús Austurlands,
Margrét Eir og Kjartan Valdimars,
ásamt Jóhönnu Guðrúnu, og þáttum
úr Dýrunum í Hálsaskógi. Töframað-
urinn Mighty Garret verður á staðn-
um og þar að auki leiktæki og hús-
dýragarður, svo eitthvað sé nefnt. Þá
verður félag eldri borgara með opið
hús og handverkssýningu. Þess má
einnig geta að um 40 Færeyingar
verða í heimsókn í bænum um
helgina frá vinabæ Neskaupstaðar,
Sandavogi. Fjöldi tónlistarmanna
kemur fram um helgina, jafnt yfir
daginn og á dansleikjum. Þar má
nefna hljómsveitirnar Buttercup,
Todmobile og Spútnik sem og hinn
óviðjafnanlega Tónatitring Blús-
klúbbsins Brjáns. Enginn aðgangs-
eyrir er innheimtur á Neistaflugið og
aðeins selt inn á dansleiki sem eru
innandyra þannig að það gerist vart
hagstæðara fyrir fjölskyldur að gera
sér glaðan dag um verslunarmanna-
helgi, segja aðstandendur hátíðar-
innar. Frítt er í tjaldstæði sem og á
alla dagskrárliði.
Ein með öllu á Akureyri
„Ein með öllu“ nefnist fjölskylduhá-
tíð sem efnt verður til á Akureyri um
verslunarmannahelgina en að henni
standa hagsmunaaðilar í ferðaþjón-
ustu og verslun með fulltingi Akur-
eyrarbæjar. Að sögn forsvarsmanna
hátíðarinnar er markmiðið að halda
alvöru fjölskylduhátíð þar sem allir
aldurshópar geta fundið fjölbreytta
skemmtun og afþreyingu við sitt
hæfi. Yfir miðjan daginn verður
skipulögð skemmtidagskrá í mið-
bænum. Þar má nefna fjöllistahóp,
brúðuleikhús og tónlistaratriði af
ýmsum toga, m.a. hljómsveitirnar
Skítamóral og Greifana. Þegar
kvölda tekur taka við veitinga- og
skemmtistaðir og leika þar margar
vinsælustu hljómsveitir landsins. Í
KA-heimilinu verða unglingadans-
leikir öll kvöldin með landsþekkum
hljómsveitum á borð við Skítamóral,
Sálina hans Jóns míns og Greifana.
Auk þess verða ýmsir sérstakir við-
burðir þessa helgi, m.a. teygjustökk,
gókart, leiktæki fyrir yngstu börnin,
stórbrotin flugeldasýning og margt
fleira. Ekki verður selt inn á hátíðina
sem slíka en kaupa má gistingu á
tjaldstæðum sem eru á þremur stöð-
um í bænum. Gjaldið miðast við
komudag og frítt verður fyrir tólf ára
og yngri. Á miðvikudegi eða fimmtu-
degi er gjaldið 3.000 krónur en lækk-
ar svo í 2.500 á föstudag, 2.000 á laug-
ardegi og endar á sunnudegi í 1.000
krónum. Ekki er rukkað gjald í
tengslum við uppákomur og dagskrá
hátíðarinnar en fólk borgar sig sjálft
inn á böll á svæðinu.
Element 01 danshátíð á Akureyri
Á Akureyri fer einnig fram danshátíð
skyld „Einni með öllu“ sem fram-
kvæmdahópurinn Núna stendur fyr-
ir undir heitinu Element 01. Hópur-
inn samanstendur af einstaklingum
sem staðið hafa fyrir fjölda klúbba-
kvölda og tónleika undanfarin ár
(m.a. undir merkjum Rými, Skýjum
ofar, Breakbeat.is og Atóm). Ætlun-
in er að bjóða upp á öfluga og fjöl-
breytta dagskrá á næturklúbbnum
Madhouse (Óðsmannshúsi) í Hafnar-
stræti (Göngugötunni) Akureyri alla
helgina. Meðal þeirra sem spila á
Element 01 eru DJ Panik (Move-
ment – UK), Exos (Thule/Force Inc),
DJ Reynir (Electroncia Radio X) og
DJ Margeir (Thomsen/Sweet Beat).
Helgarpassi á Element 01 kostar
2.500 krónur og veitir forgang í röð.
Miðaverð á hvert einstakt kvöld er
1.000 krónur en aldurstakmark er 18
ár. Frekari upplýsingar má finna á
www.nulleinn.is.
Kántríhátíðin á Skagaströnd
Kántríhátíðin á Skagaströnd er nú
haldin í níunda sinn. Það verður fjöl-
margt til skemmtunar og má þar
nefna hljómsveitirnar Trigger með
þá Helga Björnsson og Magnús
Kjartansson innanborðs, Lukkulák-
ana og Hallbjörn Hjartarson,
Sweety, Buttercup, Gos og Hot’n
sveet og Helgu Möller. Dansleikir
verða öll kvöldin í Kántríbæ og
Félagsheimilinu Fellsborg auk þess
sem dansað verður á palli á hátíð-
arsvæðinu. Hægt verður að fara í
sjóstangaveiði, útsýnissiglingu,
ferðast með hestvagni og leigja sér
hest til útreiðartúra og taka þátt í
kraftakeppni. Tívolí verður á Skaga-
strönd alla Kántríhátíðina og
skemmtidagskrá fyrir börnin. Sett
verður upp Kántrí tónlistardagskrá
ásamt kántrídönsum á laugardags-
kvöldið og einnig verða tónleikar
með Buttercup og Sweety á sunnu-
dagskvöldið. Jóhann Örn Ólafsson er
fastagestur á Kántríhátíð og kennir
hann fólki tökin á kántrídansi. Einn
af stærstu liðum hátíðarinnar er
Gospelmessan eftir hádegið á sunnu-
deginum, en þar kemur fram fimmtíu
manna gospelkór ásamt Páli Rósin-
krans og Ardísi Víkingsdóttur.
Stjórnandi kórsins er Óskar Einars-
son. Að lokum skal geta þess að úti-
markaður er árviss á Kántríhátíð og
ekki má gleyma varðeldi og glæsi-
legri flugeldasýningu að kvöldi
sunnudags. Verð inn á svæðið á
mann menn verður 2.400 krónur en
ókeypis fyrir þá sem fæddir eru 1987
og síðar.
Brekkusöngur og gleði á þjóðhátíð
Að sögn forsvarsmanna þjóðhátíðar í
Eyjum stefnir í þrusuþjóðhátíð þar
sem Sóldögg, Á móti sól og Land og
synir spila á stóra sviðinu og Gildran
á litla sviðinu. Hátíðin er með föstu
sniði og hápunktarnir að vanda
brennan, flugeldasýningin og
brekkusöngurinn sem Árni Johnsen
stýrir. Hátíðin hefur verið að sækja í
sig veðrið hvað barnaefni varðar og
er ætlunina að vera með vandaða
barnadagskrá á daginn. Á kvöldin
tekur svo við glæsileg kvöldvaka.
Þeir sem vilja meiri gleði geta að
sjálfsögðu mætt á fimmtudegi en þá
fer hið frábæra húkkaraball fram í
Týsheimilinu. Þjóðhátíð Vestmanna-
eyja hefur í gegnum árin verið
stærsta úthátíðin um verslunar-
mannahelgina og þar segja forsvars-
menn að ganga megi að gæðunum og
fjörinu vísu. Þetta er í fimmta sinn
sem ÍBV heldur hátíðina og kostar í
ár 7.500 krónur inn á hátíðina. Börn
yngri en 14 ára og ellilífeyrisþegar fá
ókeypis aðgang og á sunnudeginum
lækkar aðgangseyririnn í 3.000 krón-
ur.
Útitónleikar á Eldborg
Eldborg er vel í sveit sett og þykir
veðursæll staður, segja mótshaldar-
ar og búast við fjölmennum og vel
heppnuðum útitónleikum um versl-
unarmannahelgina. Fjórar af allra
vinsælustu hljómsveitum landsins
síðustu áratugi hafa verði ráðnar til
Eldborgar sem aðalhljómsveitir, en
það eru Stuðmenn, Skítamórall, Ný
Dönsk og Greifarnir. Þá hafa einnig
boðað komu sína stórsveitirnar Sól-
dögg, Buttercup og Írafár auk
tveggja spánnýrra sveita sem notið
hafa hylli hjá unga fólkinu en það eru
sveitirnar Í svörtum fötum og nýlið-
arnir í Út-rás. Jafnframt hafa gleði-
sveitirnar Lúdó og Stefán og Geir-
fuglarnir ákveðið að slást í hópinn til
að skemmta gestum Eldborgar. Veit-
ingasala verður á svæðinu og haft að
leiðarljósi að veitingaverð verði sam-
bærilegt við almennt verð verslana
og veitingastaða. Rík áhersla verður
lögð á öryggismál á hátíðinni og fer
sýslumannsembættið í Stykkishólmi
með löggæslu en um gæslu á svæð-
inu sér björgunarsveitin Berserkir í
Stykkishólmi. Á Eldborg verður
einnig læknavakt stýrt af unglækn-
um af Landspítalanum og jafnframt
verða Stígamót með móttöku og að-
stöðu. Einungis eitt verð er inn á
Hátíðahöld víða um land um verslunarmannahelgina 2001
Eitthvað fyrir alla
5$ "&
3"" ! %&
C" " 0!%&
3$ '""$:1"&
> &!1%01"&! "% %&
!%&$:&
; %#1*&%&
> &!1% 0!1"&!+
+&"*&%&
$: &
B$ !"%, "%&;""&#$
;!"" &*2
D # 1 ("
D )
6%2"*&%&
>" 2
&'$ "&< 2+&
* !
23!
4 5 5
Um helgina stefnir
í fjölskylduvæna
skemmtan víða um land
og margir vilja fá til sín
góða gesti. Það er ekki
seinna vænna fyrir þá
sem ætla að leggja land
undir fót um versl-
unarmannahelgina að
fara að gera upp hug
sinn og verða hér á eftir
nefndir helstu staðir þar
sem dagskrár verður
að vænta.
„FERÐAFÉLAG Íslands efnir til sérstakrar
göngudagskrár í Þórsmörk um versl-
unarmannahelgina. Dagskráin er hugsuð fyrir
fjölskylduna og verður farið í gönguferðir út
frá skála, bæði stuttar og aðrar heldur lengri.
Göngumöguleikar eru um það bil óþrjótandi
og landslag og náttúra öll með því fegursta
sem sést. Í þessu umhverfi ætlar FÍ að bjóða
til gönguferða í ýmsar áttir, meðal valkosta
má nefna Valahnúk og Þórsmerkurrana,
Gluggahelli, Tindafjallahring, Goðaland og
margt fleira.
Verði er mjög í hóf stillt því félagar í FÍ
borga aðeins 6.900 krónur en aðrir 7.600.
Innifalið er m.a. ein grillmáltíð. Auk göngu-
ferða er stefnt að kvöldvökum og ljúfri
stemmningu og nauðsynlegt að þátttakendur
séu tilbúnir að leggja sitt af mörkum.
Mikilvægt er að bóka þátttöku tímanlega á
skrifstofu FÍ,“ segir í fréttatilkynningu frá
FÍ.
Verslunarmannahelgi í Þórsmörk