Morgunblaðið - 01.08.2001, Page 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 49
NÚ ER rætt um að framseldir
verði til Haag tveir króatískir
hershöfðingjar sem grunaðir eru
um stríðsglæpi. Viðkomandi menn
eru að sögn taldir þjóðhetjur í sínu
landi. Það minnir á að William
Calley var á sínum tíma nánast tal-
inn þjóðhetja í Bandaríkjunum og
Nixon forseti tók hann persónu-
lega undir sinn verndarvæng.
Samt var þarna um að ræða mann
sem talinn var sekur um alvarleg-
ustu stríðsglæpi, fjöldamorðin í
My Lai. Í Þýzkalandi nazismans
var Horst Wessel hafinn til
skýjanna sem hetja eftir dauða
sinn. Sennilega velur hver þjóð sér
á hverjum tíma þær hetjur sem
henni eru samboðnar!
Telford Taylor sem var aðal-
ákærandi af hálfu Bandaríkja-
manna í Nürnberg skrifaði bókina
„Nürnberg and Vietnam: An Am-
erican Tragedy “. Mörgum væri
hollt að lesa þá bók. Þar talar
Taylor um að Bandaríkin vanræki
að læra þær lexíur sem þau heimti
að aðrir læri. Tímaritið Time sagði
á sínum tíma um ábyrgðina á fyr-
irmælunum um blóðbaðið í My Lai,
að hún byrji hjá Calley og endi hjá
Johnson, æðsta manni Bandaríkja-
hers. Fulbright, öldungadeildar-
maður og formaður utanríkismála-
nefndarinnar, kvað hina ábyrgu
vera hershöfðingjana Westmore-
land og Abrams og forsetana John-
son og Nixon. Hvað var gert í mál-
unum? Nákvæmlega ekkert og þar
við situr!
Ádeila Roberts A. Tafts, öld-
ungadeildarmanns frá Ohio, á
stríðsglæparéttarhöldin í Nürn-
berg er talin hafa spillt mjög fyrir
áður vænlegum möguleikum hans
til að verða valinn frambjóðandi
republikana til forsetakjörs 1948.
Taft var sonur fyrrverandi forseta
og hafði lengi stefnt að forseta-
embættinu. Hann trúði því að
frelsi einstaklingsins væri til þess
að hann hugsaði sjálfstætt.
Taft flutti ræðu 6. október 1946
sem hann kallaði „Jafnrétti fyrir
lögunum“ og þar sagði hann:
„Málaferli sigurvegarans á hendur
hinum sigruðu geta aldrei verið
óhlutdræg, hversu vandlega sem
þau eru vafin réttarfari að formi
til.“
Hann sagði ennfremur „að um-
rædd málaferli þjónuðu tilgangi
stjórnarstefnu en ekki réttlæti og
slíkt ætti lítið skylt við engilsax-
neska arfleifð.“ Ræðan virkaði sem
sprengja á tímum þar sem millj-
ónir manna hrópuðu fyrst og
fremst eftir hefnd. Taft var út-
hrópaður og átti sér ekki viðreisn-
ar von. En hann var ekki að verja
nazista-forkólfana eins og sumir
héldu eða einangrunar-stefnuna
eins og jafnvel enn fleiri héldu.
Hann var einfaldlega að verja það
sem hann áleit vera hefðbundinn
skilning Ameríku-manna á lögum
og rétti.
Hann var málsvari þingræðis-
legra stjórnskipunarlaga og ein-
staklingshyggju í lífi og stjórnar-
fari og hikaði ekki við að tala út frá
sannfæringu sinni. Frá hans sjón-
armiði var réttlætið í húfi og allt
annað voru smámunir.
Robert A. Taft varð aldrei for-
seti Bandaríkjanna. Kannski varð
hann það ekki vegna þess að hann
var trúr sinni sannfæringu. Að
minni hyggju er slík trúmennska
meiri vegsemd en að gegna valda-
miklu embætti. Um allan heim er
þörf fyrir menn sem hafa réttsýni
og sannleika að leiðarljósi og
standa á sannfæringu sinni. En
slíkir menn eru yfirleitt ekki í
valdastólunum. Það þekkir al-
menningur flestra landa og víða af
biturri reynslu.
Það virðist líka víða erfitt að
greina á milli hver er ærlegur og
hver er þjófur, hver er stríðs-
glæpamaður og hver er þjóðhetja?
Getur sami maðurinn verið
hvorttveggja í senn stríðsglæpa-
maður og þjóðhetja? Í slíku tilfelli
hlýtur sá maður að bera þjóð sinni
vitni með verkum sínum og við-
komandi þjóð verður þá að bera
ábyrgð á sínum manni.
Adolf Eichmann sagði á sínum
tíma, að hann hefði aðeins útvegað
vörubílana. Pinochet segir kannski
að hann hafi bara útvegað flugvél-
arnar sem flugu með fórnarlömbin
út yfir Kyrrahafið og vörpuðu
þeim út. Eichmann var tekinn af
lífi en Pinochet var sleppt. Sá fyrr-
nefndi var undirböðull og verkfæri,
sá síðarnefndi er yfirböðull sem
gengur enn laus. En Carla Del
Ponte og hennar starfslið hefur
sýnilega ekki áhuga á Pinochet.
Hann hefur ekki framið stríðs-
glæpi samkvæmt forritinu sem
unnið er eftir, ekki fremur en
NATO í árásunum á Júgóslavíu
1999. Þar er ekki talin þörf að
rannsaka neitt. Hagsmunir Vest-
urlanda eru auðvitað aldrei tryggð-
ir með glæpum – eða getur það
verið? Milosevic er hins vegar allt
annað mál, enda mun saksókn
gegn honum vera kórrétt eftir
þeim pólitísku fyrirmælum sem að
baki liggja.
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21,
Skagaströnd.
Enn um stríðsglæpi
Frá Rúnari Kristjánssyni:
OFT sjáum við, sem lesum Morg-
unblaðið daglega, auglýst eftir
týndum köttum, merktum sem
ómerktum. Tekið er þá fram að
þeirra sé sárt saknað og undrast
víst fáir, nema kannske þeir sem er
í nöp við alla ketti. Ég hef ekki
kynnst neinumsem er hlutlaus í af-
stöðu sinni til kattanna. Ég hef
lengi haft mætur á þessum dýrum
því að þau eru vinaleg og heim-
ilisleg, nudda sér upp að manni og
mala ánægjulega þegar þeim er
strokið.
Þegar köttur týnist er sorg á
heimilinu. Gamall og góður vinur er
horfinn. Stundum er dýrið einhvers
staðar innilokað, hefur stokkið inn
um glugga og kemst síðan ekki út.
Líður síðan auman dauða, sveltur í
hel. Er aumt til þess að vita. Þess
vegna er fólk beðið að athuga skúra
og geymslur því að þar kynni að
leynast köttur sem þangað hefði
ratað í leit sinni að skúta í óveðri
eða af ótta við eitthvað utanaðkom-
andi. Danir sögðu mér að sá væri
munur á ketti og hundi að kötturinn
væri bundinn staðnum en hundur-
inn manninum.
Oft er ekið yfir ketti á hraðbraut-
um. Þeir eru ekki nógu skjótir í för
til að komast undan þessum vél-
knúnu farartækjum. Nýlega var ek-
ið yfir kött kunningja míns. Gerðist
það á Ægisíðu þar sem er tvístefna.
Bílstjórinn, sem yfir köttinn ók, svo
að hann beið bana af, lét eigandann
vita vegna þess að kötturinn var vel
merktur. Virðist lágmarkskrafa að
slíkt sé gert. Heimilisketti á að
merkja vel svo að hægt sé að koma
þeim til síns heima við tækifæri.
Stundum bjargar Kattholt þessum
týndu heimilisdýrum og sé þeim
innileg þökk fyrir. Ég hef komið í
Kattholt og dáist ég að umhirðu
dýranna á þeim stað. Kattavina-
félagið er líknarfélag sem efla þarf
sem mest má verða.
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON,
Hjarðarhaga 28,
Reykjavík.
Keyrt var yfir
köttinn þinn
Frá Auðunni Braga Sveinssyni:
Morgunblaðið/Ómar
Netsalan ehf.
Garðatorgi 3, 210 Garðabæ
Sími 544 4210/565 6241
Fax 544 4211
Opnunartími
Virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 10-14
Tilboð Tilboð
Víking Epic 1706 á aðeins kr. 599.000. .
Lokasala
á þessu
verði
sem kemur
ekki aftur
ATH! Eigum til örfá útlitsgölluð
fellihýsi sem seld verða með
miklum afslætti.