Morgunblaðið - 11.08.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MERKAR nýjungar sem flýtt gætu
greiningu og aukið batahorfur
þeirra sem fá lungnakrabbamein
hafa verið kynntar á alþjóðlegri
ráðstefnu í Reykjavík um forvarnir
og greiningu lungnakrabbameins. Í
máli sérfræðinga á ráðstefnunni
kom einnig fram að leita ætti skipu-
lega að lungnakrabbameini meðal
áhættuhópa á svipaðan hátt og gert
er með annað krabbamein. Ráð-
stefnan hófst á Grand hóteli
Reykjavík sl. miðvikudag og stend-
ur fram yfir helgi. Að ráðstefnunni
standa opin samtök lækna og sér-
fræðinga, „International Associa-
tion for the Study of Lung Cancer“
(IASLC), en félagar í þeim eru um
1.500 talsins í 60 löndum.
Í máli Heine Hansen, prófessors í
læknavísindum við Kaupmanna-
hafnarháskóla og eins helsta sér-
fræðings heims í krabbameins-
lækningum, og Höllu Skúladóttur,
eins skipuleggjenda ráðstefnunnar
fyrir hönd dönsku Krabbameins-
samtakanna, kom fram að ráðstefn-
una sætu um 150 læknar og sér-
fræðingar, en samtökin stæðu að
fjölda rannsókna auk ráðstefna um
margvísleg málefni er sneru að
lungnakrabbameini. Ráðstefnuna í
Reykjavík segja þau eina af þeim
stærri sem samtökin standa fyrir.
Framfarir í greiningu
krabbameins
Fred R. Hirch, gestaprófessor
við Miðstöð krabbameinsrannsókna
við Colorado-háskóla, er helsti
skipuleggjandi ráðstefnunnar.
Hann segir framþróun í frumgrein-
ingu lungnakrabba helsta á tveimur
sviðum. Í Bandaríkjunum og Japan,
auk nokkurra Evrópuríkja, segir
hann að farið sé að beita nýrri tölvu-
sneiðmyndatækni til að greina
lungnakrabba. Þessi tækni geri
læknum kleift sjá myndun æxla og
aðrar breytingar mun fyrr en ella
og af meiri nákvæmni. Þá segist
hann vænta mjög mikils af rann-
sóknum á hráka- eða munnvatns-
sýnum en í þeim megi greina breyt-
ingar á sameindastigi í erfðaefni
frumna sem bent gætu til krabba-
meinsmyndunar. Hann segir þróun
greiningartækni í þessum geira þó
skemur á veg komna en sneið-
myndatæknina.
Tölvusneiðmyndir
bornar saman
Claudia Henschke, prófessor í
geislalæknisfræði við læknadeild
Cornell-háskóla og helsti frum-
kvöðull nýtingar tölvusneiðmynda-
tækni við greiningu á lungna-
krabba, sagði að öll nýrri
sneiðmyndatæki mætti nýta til að
greina lungnakrabbamein og hún
væri tilbúin til að greiða götu
hverra þeirra íslensku lækna sem
hefðu áhuga á að kynna sér þessa
nýju tækni. „Með þessari tækni má
finna æxli allt niður í hálfan sentí-
metra að stærð en hingað til hefur
með hefðbundinni röntgentækni í
besta falli mátt finna æxli sem eru
einn sentímetri að stærð,“ sagði
hún og tiltók að við aðferðina væri
notuð minni geislun en almennt við
sneiðmyndatökur og samsvaraði
hún venjulegum röntgenmyndatök-
um. Þróun rannsókna af þessu tagi
segir hún hafa hafist árið 1992 og að
tækninni hafi verið beitt við krabba-
meinsleit í fólki alla tíð síðan 1993.
Árið 1999 hafi svo fyrstu rannsókn-
arniðurstöður verið birtar. Síðan þá
segir hún að útbreiðsla tækninnar
hafi verið mikil í Bandaríkjunum og
hún sé nú notuð víða og að staðaldri.
Í Japan segir hún að hafi átt sér
stað svipaðar tilraunir og tækninni
sé einnig beitt þar. Þá hafi þó nokk-
ur ríki Evrópu tekið að nota sneið-
myndatökur til að leita skipulega að
lungnakrabbameini.
Batahorfur stórauknar
„Sérstakri tækni er beitt þegar
færanlegu borði er rennt í gegnum
sneiðmyndatækið, en það tekur inn-
an við 20 sekúndur. Þannig er tekin
þrívíddarmynd af líkamanum. Svo
eru bornar saman breytingar sem
hafa orðið á milli ára. Með þessu
móti er hægt að greina krabbamein
á frumstigi miklum mun fyrr en áð-
ur,“ sagði Claudia Henschke og til-
tók að greina mætti allt að 80 af
hundraði tilfella lungnakrabba-
meins á byrjunarstigi, en áður hefði
sú tala einungis numið 10 prósent-
um. „Þetta er eins og að taka pýra-
mída og snúa honum á haus,“ sagði
hún. Þá segir hún að tæknina megi
jafnvel þróa enn frekar til að greina
fleiri sjúkdóma og krabbamein.
Prófessor Henschke segir þó enn
nokkra óvissu ríkjandi um hversu
miklu betri batahorfurnar séu hjá
fólki þar sem krabbameinið er
greint þetta miklu fyrr en segir útlit
fyrir að horfur á fullum bata fari úr
því að vera 10 af hundraði sjúklinga
og nái allt að helmingi. „Ef horft er
til batahorfa í brjóstakrabba,
krabbameini í blöðruhálskirtli og
ristilkrabba eru horfurnar 50 til 80
prósent og ástæða er til að ætla að
hlutfallið í lungnakrabbameini verði
svipað,“ sagði hún.
Alþjóðleg ráðstefna sérfræðinga á sviði lungnakrabbameins
Líkur á bata aukast um-
talsvert með nýrri tækni
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Fred R. Hirch, Halla Skúladóttir og Heine Hansen á ráðstefnu sér-
fræðinga á sviði lungnakrabbameins í gær.
GUÐMUNDUR Guðmundsson, for-
stöðumaður hjá Búnaðarbankanum-
Verðbréf og starfandi stjórnarfor-
maður Reykjagarðs, segist reikna
með að Reykjagarður verði boðinn til
sölu síðar í þessum mánuði en bank-
inn á fyrirtækið sem stendur. Krist-
inn Gylfi Jónsson, stjórnarformaður
Móa og dótturfélags þess, Ferskra
kjúklinga, segir að fyrirtækið hafi
áhuga á að sameinast eða jafnvel
kaupa Reykjagarð. Jóhannes Gunn-
arsson, formaður Neytendasamtak-
anna, segir hins vegar að þá yrði til of
stór aðili á kjúklingamarkaðnum og
trúir ekki að samkeppnisyfirvöld
myndu heimila slíka sameiningu.
Guðmundur segir að um misskiln-
ing sé að ræða að Reykjagarður sé að
sameinast Móum eða Ferskum kjúk-
lingum.
„Við erum með Reykjagarð í sölu
og erum að vinna að lýsingu á félag-
inu svo við getum kynnt það fyrir til-
vonandi fjárfestum. Ég reikna með
að salan verði sett formlega í gang
síðar í þessum mánuði. Hvað varðar
hugsanlega sameiningarkosti þá
verðum við væntanlega búnir að selja
fyrirtækið áður en til slíks kynni að
koma en við verðum auðvitað að
skoða vandlega hvernig okkar hags-
munum er best komið fyrir.“
Reiknar með að fyrirtækið
verði selt í mörgum hlutum
Aðspurður sagðist Guðmundur
frekar eiga von á því að Reykjagarð-
ur yrði seldur í mörgum hlutum held-
ur en í einu lagi.
Varðandi flutning slátrunar og
pökkunar á kjúklingum í Móastöðina
sagði hann: „Verið er að snúa við
verktakasamningum. Undanfarin 13
ár hafa Móar og Ferskir kjúklingar
slátrað í stöðinni okkar á Hellu eða
þangað til þeir reistu Móastöðina.
Húsið á Hellu er orðið lélegt og
þarfnast endurnýjunar. Móastöðin
bauð okkur hagstætt verð fyrir slátr-
un og því var ákveðið að hún færðist
þangað.
Við erum því að vinna að lækkun á
framleiðslukostnaði sem þarf klár-
lega að gera og þetta er skref á þeirri
leið.“
Sameining skynsamleg
Kristinn Gylfi segir það vera til
skoðunar að Ferskir kjúklingar sam-
einist eða kaupi Reykjagarð.
„Búnaðarbankinn á Reykjagarð í
dag og það hefur engin sala eða sam-
eining farið fram en við höfum áhuga
á að láta reyna á það hvort sameining
geti farið fram. Þá myndum við síðan
fara í lokahlutafjárútboð og fjölga
eigendum. Við teljum sameiningu
þessara fyrirtækja skynsamlega til
að ná fram aukinni hagræðingu í
kjúklingageiranum, sem er nauðsyn-
legt til að ná fram aukinni hagræð-
ingu til lækkunar á verði til neytenda
á komandi misserum. Hvort það
verði sameining eða að Reykjagarð-
ur yrði þá rekið sem dótturfélag
verður að koma í ljós.“
Sérðu fram á að þessar hugmyndir
komist í framkvæmd á komandi
misserum?
„Ég vona það en ég vil árétta að
þetta eru hugmyndir og það eina sem
hefur gerst er það að Reykjagarður
hefur flutt slátrun og pökkun á kjúk-
lingum frá Hellu yfir í Móastöðina í
Mosfellsbæ. Það er í sjálfu sér engin
breyting miðað við hvernig hlutirnir
hafa verið síðastliðin 13 ár.“
Spurður um hvort markaðshlut-
deild fyrirtækjanna yrði ekki of mikil
sagði Kristinn:
„Það eru nýir stórir aðilar að koma
inn á markaðinn og einnig er kjúk-
lingamarkaðurinn allur að stækka
þannig að þó svo að markaðshlut-
deild þessara fyrirtækja hafi verið
mikil þá teljum við að heildarhlut-
deild fyrirtækjanna komi til með að
minnka á komandi misserum.“
Efar að samkeppnisyfirvöld
myndu heimila sameiningu
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir að á síð-
ustu árum hafi verið fákeppnisþróun
í kjúklingaframleiðslu. „Mér líst ekki
á sameiningu þessara fyrirtækja og
trúi því ekki að samkeppnisyfirvöld
myndu heimila hana.“
Jóhannes segir að ef fækka eigi
þeim aðilum sem eru á kjúklinga-
markaðnum í dag þá þurfi að opna
landið meira. „Ef það á að koma á
fyrirtækjum sem eru með um 70-80%
markaðshlutdeild á kjúklingamark-
aðnum þá verður að heimila innflutn-
ing á kjúklingum án tolla. Annað er
ekki hægt að bjóða íslenskum neyt-
endum og reyndar er verð á kjúkling-
um hér á landi ekki hagstætt fyrir
neytendur.“
Eigendur Ferskra kjúklinga vilja kaupa Reykjagarð
Reykjagarður boðinn
til sölu í þessum mánuði
Fákeppni á mark-
aðnum, segir for-
maður Neytenda-
samtakanna
LANDHELGISGÆSLAN og björg-
unarsveit varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli komu saman til æfinga í
ytri höfninni í Keflavík í gær. Til-
gangur æfingarinnar var að sveit-
irnar gætu skipst á hugmyndum og
aðferðum og stillt saman strengi
sína. Meðal þess sem var æft var
björgun úr sjó.
Olaf Holm, majór hjá varnarlið-
inu, segir að Bandaríkjamönnum
þyki mikið koma til Landhelg-
isgæslunnar og að Bandaríkjamenn
geti mikið lært af þeim um björg-
unarstörf við erfiðar aðstæður.
Holm segir að varnarliðsmenn hafi
litið á þetta sem frábært tækifæri
til að læra nýjar aðferðir við björg-
un, sem og að styrkja tengslin við
íslenska starfsbræður sína. „Þegar
við förum saman í aðgerð er það
okkur báðum í hag ef við vitum
hvað hinn aðilinn er fær um að
gera,“ sagði Holm.
Morgunblaðið/Billi
Æfðu björgun úr sjó
NÝLEGA hafa verið gerðar tvær
skoðanakannanir á viðhorfi lands-
manna gagnvart Kárahnjúkavirkj-
un þar sem niðurstöðurnar eru
mjög svipaðar.
Fyrri könnunina gerði Gallup
fyrir Landsvirkjun í byrjun júní sl.
þar sem rúm 40% aðspurðra sögð-
ust hlynntir virkjuninni, rúm 23%
voru hvorki hlynnt né andvíg en
36% lýstu yfir andstöðu við virkj-
unina.
Eftir að úrskurður Skipulags-
stofnunar lá fyrir gerði DV könn-
un í byrjun vikunnar þar sem tæp
40% aðspurðra sögðust vera fylgj-
andi Kárahnjúkavirkjun, tæp 35%
voru henni andvíg og rúm 25%
voru óákveðin eða svöruðu ekki
spurningunni.
Gallup spurði jafnframt um
þekkingu fólks á áformum um
byggingu virkjunarinnar þar sem
rúm 42% sögðust lítið vita, 29%
nokkuð, 22% sögðust ekkert vita
og 6% töldu sig vita mikið til virkj-
unaráformanna.
Kannanir um
Kárahnjúkavirkjun
Samhljóða
fyrir og
eftir
úrskurð
BÍLVELTA varð á Mývatnsheiði í
gærdag. Að sögn lögreglunnar á
Húsavík slapp ökumaður, sem var
einn í bílnum, með skrámur og hafa
bílbeltin bjargað því hversu vel hann
slapp. Bíllinn er mikið skemmdur.
Bílvelta á
Mývatnsheiði
♦ ♦ ♦