Morgunblaðið - 11.08.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAGA Simons Alberts Norling sem
var sænskur að uppruna, en bjó
lengst af hér á landi hefur verið af-
komendum hans mikil ráðgáta og
eru nýjar upplýsingar um ferðir
hans og afdrif í upphafi síðustu ald-
ar, enn að koma í ljós.
Norling hvarf sporlaust frá bæn-
um Hede í Härjedalen í Svíþjóð árið
1908. Hafði hann farið í vöruskipta-
leiðangur ásamt fjölda samferða-
manna, en kom aldrei aftur og
fengu kona hans Gertrud Norling
og dóttir þeirra, aldrei skýringu á
því hvað um hann hefði orðið.
Spunnust sögusagnir þess efnis að
hann hefði farist á skútu á leið til
Íslands. Árið 1917 var hann úr-
skurðaður látinn, enda hafði ekkert
spurst til hans í níu ár. Raunin var
hins vegar sú að hann lifði til 78 ára
aldurs, en hann lést árið 1957 á
Þingeyri við Dýrafjörð.
Vitjaði leiðis afa síns á
Þingeyri sumarið 1999
Frá því var sagt í Morgunblaðinu
í ágúst árið 1999 að Alf Hedstrom,
dóttursonur Norling, hefði komið
til Þingeyrar ásamt Lenu konu
sinni til að vitja leiðis afa síns. Alf
hafði alla tíð haft mikinn áhuga á
að afla sér vitneskju um afa sinn
sem hvarf með svo dularfullum
hætti.
Þegar hjónin komu til Íslands
höfðu þau hjónin nýlega uppgötvað
að hann hefði sest að hér á landi og
búið lengst af á Þingeyri. Komust
þau á snoðir um þetta eftir að Alf
skrifaði í Velvakanda Morgunblaðs-
ins þar sem hann bað þá sem kynnu
að hafa upplýsingar um Norling að
hafa við sig samband. Meðal þeirra
sem það gerðu var Ólafur Ágústs-
son sem bjó á Þingeyri og þekkti
Norling. Hann sagði þeim að talið
væri að Norling hefði komið hingað
til lands upp úr 1920, búið víða um
land, en sest að á Þingeyri árið
1937. Ennfremur að hann hefði
aldrei kvænst hér á landi og enginn
hefði vitað til þess að hann ætti fjöl-
skyldu í Svíþjóð.
Sérstök athöfn var haldin í
kirkjugarðinum á Þingeyri þar sem
Alf lagði stein á leiði afa síns.
Hvarf einnig sporlaust frá
konu og börnum í Noregi
En sögunni lauk ekki þarna því
skömmu eftir ferðina hingað til
lands sumarið 1999, komust Alf og
Lena að því að Norling hefði haft
viðkomu í Bergen í Noregi áður en
hann kom til Íslands, eignast þar
konu og með henni tvíburadætur.
Þetta mun hafa verið rétt eftir að
hann hvarf frá Svíþjóð árið 1908 og
var hann í Bergen í tvö til þrjú ár,
en þá hvarf hann sporlaust á ný.
Ólafur Ágústsson hefur verið í sam-
bandi við Alf og Lenu síðan þau
voru hér og segir hann það að von-
um hafa verið þeim merkileg upp-
götvun að finna ættingja sína í Nor-
egi og bæta þessu broti inn í
söguna.
„Þau fóru til Bergen strax þarna
um haustið og hittu þetta fólk, það
er að segja afkomendur tvíbura-
systranna. Þau voru afskaplega
glöð að hitta þarna ættingja sína og
hafa verið í miklu og góðu sam-
bandi við þau síðan. Dóttir ann-
arrar systurinnar, Bente Menger,
kom svo hingað til lands nýverið
ásamt manni sínum og tveimur
börnum og fóru þau í einskonar
pílagrímsför til að vitja slóða Norl-
ings,“ segir Ólafur.
Afkomendur í Noregi vissu
hvorki um fortíð hans né afdrif
Ólafur segir að afkomendur
Norlings í Bergen hafi ekkert vitað
um fortíð hans í Svíþjóð. Það hafi
því komið þeim algjörlega í opna
skjöldu að heyra af því að hann
hefði átt konu og barn í Svíþjóð áð-
ur en hann kom til Noregs og svo
horfið frá þeirri konu og því barni
eins og hann hvarf frá þeim í Nor-
egi. Um afdrif hans eftir að hann
hvarf frá Noregi vissu þau ekki
heldur.
„Báðar eiginkonur hans áttu það
sammerkt að tala aldrei um hvarf
hans og segja bæði Alf og Bente að
óvíst sé hvort þær hafi nokkuð vit-
að um ástæður þess að hann hvarf,
en hafi þær vitað eitthvað létu þær
ekkert uppi,“ segir Ólafur.
Nú er svo komið að litlar líkur
eru taldar á því að fleira komi í ljós
um afdrif Norling. Þó eru enn um
tíu ár sem ekki hefur verið gerð
grein fyrir, það er að segja frá 1910
til 1920, sem eru árin milli þess sem
hann hvarf frá Noregi og þangað til
að talið er að hann hafi komið til Ís-
lands. Ólafur segir að Alf og Lena
séu þó orðin mjög sátt við þann ár-
angur sem leit þeirra hafi borið
þótt enn vanti einhver púsl í spilið,
en það sé hreinlega í anda þessa
máls að yfir því hvíli áfram einhver
ögn af dulúð.
Einkennileg saga Alberts Norling sem hvarf sporlaust í Svíþjóð árið 1908
Fór tvisvar
frá konu og
börnum
Bente Manger, dótturdóttir Norling, heimsótti Ísland ásamt eiginmanni
sínum Paul og börnum þeirra Jens og Thoru.
SKIPTAR skoðanir eru um hvort sá
sem veitir leyfi til framkvæmda við
Kárahnjúkavirkjun sé bundinn af
endanlegum úrskurði um mat á um-
hverfisáhrifum. Í 16. grein laga um
mat á umhverfisáhrifum segir að
þegar leyfi er veitt fyrir matsskyldri
framkvæmd skuli leyfisveitandi taka
tillit til úrskurðar um umhverfismat.
Magnús Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, segir
að verið sé að skoða þetta álitaefni í
ráðuneytinu en meiri líkur séu á að
fylgja verði endanlegum úrskurði um
mat á umhverfisáhrifum fram-
kvæmdarinnar við útgáfu fram-
kvæmdaleyfis. Sigurður Líndal, fyrr-
verandi lagaprófessor, segir hins
vegar að í þessu tilfelli hafi Alþingi
endanlegt ákvörðunarvald.
Alvarlegir gallar taldir
á ákvæði laganna
Aðalheiður Jóhannsdóttir, lög-
fræðingur og sérfræðingur í um-
hverfisrétti, sagði í viðtali við Morg-
unblaðið um síðustu helgi að
réttaróvissa væri uppi vegna alvar-
legra galla á ákvæði laganna um mat
á umhverfisáhrifum sem fjallar um
úrskurði Skipulagsstofnunar. Breyta
þurfi lögunum svo raunveruleg
ábyrgð á því hvort fallist er á fram-
kvæmd eða lagst gegn henni sé ótví-
rætt hjá leyfisveitanda framkvæmda.
Þegar sjónarmið Aðalheiðar voru
borin undir Magnús sagði hann orða-
lag 16. greinar laganna, um að leyf-
isveitandi framkvæmda skuli taka til-
lit til úrskurðar um mat á
umhverfisáhrifum, vera túlkunarat-
riði.
,,Við erum að skoða þetta í ráðu-
neytinu. Það hefur ekki reynt á þetta
í máli af þessu tagi. Okkur sýnist
fljótt á litið að ýmislegt bendi til þess
að fylgja verði endanlegum úrskurði
um mat á umhverfisáhrifum við út-
gáfu framkvæmdaleyfis. Það eru
auðvitað álitaefni uppi í þessu sam-
bandi, en ég get nefnt sem dæmi að í
27. grein skipulags- og byggingarlag-
anna er beinlínis vikið að því að
meiriháttar framkvæmdir sem áhrif
hafa á umhverfið og breyta ásýnd
þess, svo sem breyting lands með
jarðvegi og efnistöku, skuli vera í
samræmi við skipulagsáætlanir og
úrskurð um mat á umhverfisáhrifum
þar sem það á við,“ sagði hann.
Álitaefni verði skoðuð við
endurskoðun laganna
Kæra má úrskurð Skipulagsstofn-
unar til umhverfisráðherra fyrir 5.
september og er úrskurður ráðherra
fullnaðarúrskurður á stjórnsýslu-
stigi. Engin kæra hafði þó enn borist
ráðuneytinu þegar rætt var við
Magnús.
,,Þótt við séum ekki komin að end-
anlegri niðurstöðu í málinu, því það
er að okkar dómi ekki alveg einfalt,
þá sýnist okkur ýmislegt frekar
benda til þess að endanlegur úr-
skurður um mat á umhverfisáhrifum
sé ekki bara leiðbeinandi heldur sé
hann endanlegur úrskurður,“ sagði
Magnús.
Aðspurður sagðist hann telja eðli-
legt að þetta álitaefni yrði skoðað
sérstaklega í þeirri endurskoðun lag-
anna sem fyrirhuguð er en þau kveða
á um að lögin beri að endurskoða fyr-
ir 1. janúar 2003.
Alþingi hefur endanlegt
ákvörðunarvald í þessu tilviki
Sigurður Líndal segir að fram-
kvæmdaraðili samkvæmt lögum um
mat á umhverfisáhrifum geti eftir at-
vikum verið ríki, sveitarfélag, stofn-
un og aðrir lögaðilar eða einstakling-
ar sem hyggjast hefja framkvæmd
sem lögin ná til.
Í þessu tilfelli, byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar, sé Landsvirkjun
framkvæmdaraðilinn, sem hafi látið
gera skýrslu um mat á umhverfis-
áhrifum hinnar fyrirhuguðu fram-
kvæmdar. Skipulagsstofnun hafi svo
farið yfir matsskýrsluna og kveðið
upp úrskurð skv. 11. grein en í ann-
arri málsgrein hennar segir að ,,í úr-
skurði Skipulagsstofnunar skal taka
ákvörðun um hvort: a. fallist er á við-
komandi framkvæmd, með eða án
skilyrða, eða b. lagst er gegn viðkom-
andi framkvæmd vegna umtals-
verðra umhverfisáhrifa“.
Sigurður bendir á að ef úrskurð-
urinn er svo kærður til umhverfis-
ráðherra skuli ráðherra, skv. 13.
grein, kveða upp rökstuddan úr-
skurð, sem sé fullnaðarúrskurður á
stjórnsýslustigi.
„Þegar þetta liggur allt saman fyr-
ir reynir á 16. grein um leyfi til fram-
kvæmda, en þar segir: „Óheimilt er
að gefa út leyfi fyrir matsskyldri
framkvæmd og starfsemi sem henni
fylgir fyrr en úrskurður um mat á
umhverfisáhrifum liggur fyrir og
skal leyfisveitandi taka tillit til hans.“
Samkvæmt skilgreiningum laganna
er leyfisveitandi lögbært yfirvald,
sem veitir leyfi til framkvæmda. Það
fer þá eftir einstökum lögum hvert
þetta lögbæra yfirvald er. Í þessu til-
felli fellur þetta leyfi undir 10. grein
orkulaga en þar segir að til þess að
reisa orkuver, stærra en 2000 kw,
þurfi leyfi Alþingis.
Þó að þarna sé um fullnaðarúr-
skurð á stjórnsýslustigi að ræða sé
ég ekki annað en yfir þessu sé Al-
þingi með sitt vald og það hafi þá
endanlegt ákvörðunarvald. Alþingi
hlýtur þarna að hafa síðasta orðið,
þannig að mér sýnist þetta ekki vera
neitt vandamál í þessu tilfelli. Ég lít
ekki svo á að Alþingi sé jafngildi
stjórnvalds í þessu sambandi. Alþingi
verður auðvitað að vinna málefnalega
og taka tillit til úrskurðarins, en það
merkir ekkert annað en að Alþingi
skoðar úrskurðinn og teflir þá vafa-
laust fram þeim rökum sem styðja
niðurstöðuna, hver svo sem hún verð-
ur. Mér finnst þetta því ekki vanda-
mál í sjálfu sér og engin réttaróvissa í
þessu tilfelli,“ segir Sigurður Líndal.
Vandamál geta komið upp
vegna annarra framkvæmda
Að hans sögn horfir málið öðruvísi
við og geta vandamál komið upp ef
um einhverjar aðrar framkvæmdir
er að ræða, t.d. vegna leyfis sem ráð-
herra orkumála veitir Landsvirkjun
til framkvæmda við minni virkjanir
o.fl., sem ekki falla undir 10. grein
orkulaga. Þá vaknar sú spurning, að
sögn Sigurðar, hvort ráðherra orku-
mála geti leyft framkvæmd ef um-
hverfisráðherra sem kveður upp
fullnaðarúrskurð um mat á umhverf-
isáhrifum hefur bannað hana.
,,Þarna eru tveir jafnsettir stjórn-
sýsluhafar þar sem annar hefur fulln-
aðarúrskurðarvald. Ég skil lögin
þannig að þegar þarna er komið sögu
gildi úrskurður umhverfisráðherra
því hann er fullnaðarúrskurður og
önnur stjórnvöld eru ekki yfir hann
sett. Hið sama yrði upp á teningnum
um aðra handhafa stjórnvalds.
Ég get verið sammála Aðalheiði
hvað þetta varðar, því það er nátt-
úrlega óeðlilegt að einn leyfisveitandi
sé bundinn af einhverjum ákvörðun-
um annars, sem byggir kannski á allt
öðrum forsendum.
Það er mjög mikilvægt að hafa
skýrar reglur á sviðum sem þessum
vegna þess að þarna er um umdeilt
mál að ræða og þá er alltaf hætta á
því að menn teygi lögin hver í sína
átt. Þess vegna er óheppilegt að hafa
þetta ekki alveg skýrt,“ segir Sigurð-
ur að lokum.
Ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytis um áhrif úrskurðar um Kárahnjúkavirkjun
Líklegt að fylgja
verði úrskurðinum
við útgáfu leyfis
Sigurður Líndal segir Alþingi hafa síðasta orðið
omfr@mbl.is
ÖLLUM starfsmönnum Skjávarps-
ins, tólf talsins, hefur verið sagt upp
störfum, en Íslenska sjónvarpsfélag-
ið, sem á og rekur Skjá Einn, hefur
keypt öll hlutabréf Gagnvirkrar
miðlunar í Skjávarpinu. Fyrir átti Ís-
lenska sjónvarpsfélagið helming
hlutafjár í Skjávarpinu. Kaupin fóru
fram í júní og fengu starfsmennirnir
uppsagnarbréf um síðustu mánaða-
mót. Sex þeirra starfa í höfuðstöðv-
um Skjávarpsins á Höfn í Horna-
firði, einn á Egilsstöðum, einn í
Hveragerði, tveir á Akranesi og
tveir í Reykjavík.
Árni Þór Vigfússon, sjónvarps-
stjóri Skjás Eins, segir að ekki sé bú-
ið að taka neinar ákvarðanir um
hvernig starfsemi Skjávarpsins
verði háttað í framtíðinni. Hann seg-
ir að starfsemin sé nú til endurskoð-
unar. „Ákveðið var að segja starfs-
fólkinu upp þar sem verið er að
endurskoða reksturinn. Það er verið
að skoða marga möguleika og það er
hugsanlegt að reksturinn haldi
áfram í óbreyttri mynd. Hvort sama
starfsfólk kemur að rekstrinum
verður þá að koma í ljós,“ segir Árni.
Skjár Einn nær nú til 64% þjóð-
arinnar, en dreifikerfi Skjávarpsins
nær til 230 þúsund íbúa, eða um 85%
landsmanna. Árni segir að verið sé
að vinna að því að koma útsending-
um Skjás Eins á alla þá 22 staði sem
dreifikerfi Skjávarpsins nær til.
Hann segir að ætlunin sé að klára
það verkefni á næstu misserum. „Við
vonum að það verði í haust, en ég hef
áður fengið upplýsingar um ákveðn-
ar dagsetningar sem hafa síðan ekki
staðist tæknilega svo ég vil helst
ekki gefa neina dagsetningu núna.
Við vinnum hörðum höndum að
þessu,“ segir Árni.
Starfs-
mönnum
Skjávarps
sagt upp