Morgunblaðið - 11.08.2001, Side 22
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRESKIR fylgjendur stofnfrumu-
rannsókna voru þeirrar skoðunar að
ákvörðun Bush um að veita opinbert
fé til stofnfrumurannsókna innan
ákveðinna marka hafi verið mála-
miðlun. „Hann veitti eins varfærn-
islegt samþykki við stofnfrumurann-
sóknum og hann mögulega gat. Ég
er viss um að hann hefur kannað
málið vandlega, en þetta er svolítið
eins og engin ákvörðun,“ sagði Juliet
Tizzard, framkvæmdastjóri rann-
sóknarhópsins Progress Education
Trust í London. Hópurinn tók þátt í
því að fá breska þingið til að sam-
þykkja fyrr á þessu ári heimild til
stofnfrumurannsókna.
Talsmenn breska stjórnmála-
flokksins Prolife Alliance kváðust
vonsviknir yfir ákvörðun Bush
„vegna þess að þetta málefni varðar
skilyrðislausa virðingu fyrir upphafi
mannslífs, og snýst ekki um mála-
miðlun“.
Í Þýskalandi fögnuðu andstæðing-
ar rannsóknanna ákvörðun Banda-
ríkjaforseta. „Hann hefur sett áköf-
ustu fylgismönnum tilrauna með
fólk og tilrauna á fólki stólinn fyrir
dyrnar,“ sagði Jörg-Dietrich Hoppe,
forseti stærstu læknasamtaka lands-
ins. „Þetta er klárt bann frá Banda-
ríkjunum.“
Stofnfrumur til lækninga
Stofnfrumur eru eins konar
grunnfrumur sem hægt er að láta
þroskast og verða að hvaða vef eða
frumu í líkamanum sem verkast vill.
Vísindamenn vonast til að geta, með
því að rækta þessar frumur á rann-
sóknarstofum, látið þær verða að til
dæmis nýrna-, hjarta- eða jafnvel
heilavef. Slíka vefi verði síðan hægt
að nota til að lækna sjúkdóma á borð
við Alzheimer, og að jafnvel yrði
mögulegt að þetta kæmi í staðinn
fyrir hefðbundnar líffæraígræðslur.
Hægt er að ná stofnfrumum úr
mannafósturvísum sem falla til við
frjósemisaðgerðir eða fóstureyðing-
ar. Þegar stofnfrumurnar hafa verið
einangraðar er hægt að rækta þær á
rannsóknarstofum og geyma þær og
nota síðar. Hver og ein stofnfrumu-
uppspretta, sem fengin er úr einum
fósturvísi, kallast stofnfrumulína.
Með því að fjölfalda, eða klóna,
fósturvísa beinlínis í þeim tilgangi að
fá úr þeim stofnfrumur væri hægt að
tryggja betur að stöðugar birgðir
væru til af stofnfrumum. Með þeim
hætti gæti einn fósturvísir orðið
uppspretta þúsunda stofnfrumna.
Þetta ferli, sem nefnt hefur verið
klónun í lækningalegum tilgangi, er
leyft í Bretlandi, en samkvæmt
ákvörðun Bush verður þetta ekki
leyfilegt í Bandaríkjunum.
Glatað tækifæri
Tizzard, hjá Progress Education
Trust, sagði að með niðurstöðu Bush
hefði glatast tækifæri til að hraða
framförum á sviði stofnfrumurann-
sókna. Bandaríkin setja meiri fjár-
muni en nokkur önnur þjóð í heim-
inum í vísindarannsóknir. „Það var
ótrúlegt hversu vel rannsóknir
gengu á genamengi mannsins.
[Bandaríkjamenn] settu gífurlega
peninga í það og þokuðu því veru-
lega hratt fram.“
Hoppe, hjá þýsku læknasamtök-
unum, sagði að með ákvörðun Bush
hefðu ríkisstjórnir í Bandaríkjunum
og Evrópu færst nær í afstöðunni í
þessu máli. Níu af fimmtán aðild-
arríkjum Evrópusambandsins hafa
bannað stofnfrumurannsóknir á
fósturvísum.
Girolamo Sirchia, heilbrigðisráð-
herra Ítalíu, sagði í viðtali við blaðið
Corriere della Sera að ákvörðun
Bush hentaði ekki fyrir Ítalíu.
„Hlutskipti hans er annað en okk-
ar,“ sagði Sirchia í viðtalinu, sem
tekið var áður en Bush tilkynnti
ákvörðun sína. „Helmingur Ítala er
andvígur tilraunum með fósturvísa,
og ég fæ ekki séð hvers vegna við
ættum að ganga gegn vilja meiri-
hluta landsmanna þegar aðrar leiðir
eru færar.“
Falwell sáttur
Svo virtist sem ákvörðun Bush
hafi fallið bæði fylgismönnum hans
og andstæðingum heimafyrir í
Bandaríkjunum vel í geð. Miðju-
menn fögnuðu því að hann skyldi
veita opinbert fé til rannsóknanna
og íhaldsmenn fögnuðu þeim tak-
mörkunum sem forsetinn þó setti.
Í pólitísku tilliti virtist sem Bush
hefði tekist að koma í veg fyrir alls-
herjaruppreisn meðal íhaldssöm-
ustu stuðningsmanna sinna og sumir
hörðustu andstæðingar stofnfrumu-
rannsókna lýstu sig reiðubúna til að
fara sömu leið og forsetinn í málinu.
„Ég er sáttur við það sem ég
heyrði [forsetann] segja í kvöld,“
sagði sjónvarpspredikarinn Jerry
Falwell, einn helsti leiðtogi trúaðra
hægrimanna. Andstæðingar fóstur-
eyðinga voru einnig ánægðir. „For-
setinn stóð sig vel í kvöld,“ sagði
James Dobson, forseti samtakanna
Áhersla á fjölskylduna.
Mörg bandarísk dagblöð lýstu því
yfir í gær að ákvörðun forsetans
hefði verið góð. Sagði blaðið USA
Today, eitt útbreiddasta dagblaðið í
landinu, að ákvörðun forsetans hefði
verið „skynsamleg“. Sömu afstöðu
tók Dallas Morning News, sem gefið
er út í Texas, heimaríki forsetans.
Chicago Tribune sagði forsetann
hafa tekið skref í rétta átt. The New
York Times sagði aftur á móti að
takmarkanir þær sem settar hefðu
verið við rannsóknum væru svo
strangar að þær kynnu í raun að
jafngilda banni.
Blendin viðbrögð við
ákvörðun Bush forseta
AP
John Ball, sem greindist með Parkinsonsveiki árið 1983, fylgist með George W. Bush Bandaríkjaforseta í sjón-
varpsávarpi tilkynna ákvörðun sína um opinbera fjárveitingu til stofnfrumurannsókna.
London, New York, Washington. AP, AFP.
Sú ákvörðun George W.
Bush Bandaríkja-
forseta, að ríkið kosti
einungis rannsóknir á
stofnfrumubirgðum sem
fyrir liggja á rannsókn-
arstofum, virðist hvorki
hafa uppfyllt allar vonir
evrópskra fylgjenda
stofnfrumurannsókna
né andstæðinga þeirra.
UM 100 manns hafa verið
handteknir í Bandaríkjunum
vegna rannsóknar á stærsta
barnakláms-
hring, sem um
getur. Var for-
sprakki hans
dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi sl.
mánudag og
eiginkona hans í
14 ára fangelsi.
Rannsóknin
hófst fyrir
tveimur árum
og beindist þá að fyrirtæki í
Texas, Landslide Productions,
sem var í eigu hjónanna Thom-
as og Janice Reedy. Reyndist
það vera miðstöð mikils barna-
klámshrings en sjálfum klám-
síðunum var stjórnað frá Rúss-
landi og Indónesíu. Í ljós kom,
að tekjur fyrirtækisins voru
allt að 140 millj. ísl. kr. á mán-
uði en þær voru áskriftargjald
250.000 manna víða um heim.
Þau Reedy-hjónin héldu eftir
40% teknanna en sendu 60% til
samstarfsmanna erlendis.
Myndefnið var meðal annars
kynferðisleg misnotkun á
börnum, allt niður í fjögurra
ára aldur.
Það varðar við lög að hafa
undir höndum barnaklám og
hefur bandaríska lögreglan
þegar haft uppi á mörgum
þeirra, sem voru áskrifendur
að klámsíðunum.
Ólöglegir
innflytjendur
handteknir
SPÆNSKA lögreglan handtók
í fyrrinótt 289 manns, sem
reyndu að komast í land á
Spáni með ólöglegum hætti.
Var meirihluti fólksins í fjórum
gúmmíbátum en 55 í vélbáti.
Rak hann raunar fyrir veðri og
vindum þegar að var komið
vegna vélarbilunar. Flest var
fólkið frá Marokkó og verður
það allt flutt aftur til síns
heima. Ekki hafa áður jafn
margir ólöglegir innflytjendur
reynt að taka land á Suður-
Spáni á þessu ári.
Ábyrgðust
guðlega
ávöxtun
FYRRVERANDI bókhaldari í
kristnum sértrúarsöfnuði í
Bandaríkjunum var í gær
dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir
sinn þátt í að svíkja milljarða
króna út úr auðtrúa fólki. Hafa
þá alls fimm leiðtogar safnað-
arins verið dæmdir en þeir
buðust til að ávaxta annarra
manna fé og ábyrgðust, að Guð
almáttugur myndi tvöfalda það
á skömmum tíma.
Fimm létust í
sprengingu
FIMM menn létu lífið er lítil
flugeldaverksmiðja sprakk í
loft upp skammt frá borginni
Braga í Norður-Portúgal í
gær. Um 40 slökkviliðsmenn
og áhafnir tveggja þyrlna
börðust í gær í við skógarelda,
sem kviknuðu við spreng-
inguna.
STUTT
Ævilangt
fangelsi
fyrir
barnaklám
Reedy-hjón
á leið úr
réttarsal.
SVÍÞJÓÐ gæti gerzt aðili að Efna-
hags- og myntbandalagi Evrópu
(EMU) og tekið upp evruna fyrir árið
2005 að því er haft er eftir Göran
Persson, forsætis-
ráðherra Svíþjóð-
ar, í blaðaviðtali í
gær.
Jafnaðar-
mannaflokkur
Perssons er fylgj-
andi því að Svíar
taki upp evruna en
hann vill láta kjósendur um að taka
lokaákvörðun um það í þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem ekki er reiknað
með að verði efnt til fyrr en eftir
næstu þingkosningar í september
2002.
„Snemma á næsta kjörtímabili
munum við gera mat á stöðunni. Í
kjölfar þess munum við taka ákvörð-
un um þjóðaratkvæðagreiðslu,“ tjáði
Persson dagblaðinu Finanstidningen.
Þetta mat sem Persson nefnir mun
að hans sögn miða að því að komast
að því hvort Svíþjóð uppfylli öll skil-
yrði fyrir inngöngu í EMU, sem Jafn-
aðarmannaflokk-
urinn hefur sett,
en þau snúa aðal-
lega að því að hag-
sveiflan og
launaþróun í Sví-
þjóð séu í takt við
það sem sé í gangi
í evru-löndunum
og að ríkisfjármálin standi vel. Pers-
son sagði að gangi það vel að skipta
gjaldmiðlum evru-landanna tólf út
fyrir evruna eftir næstu áramót muni
það hafa mikil áhrif á niðurstöðu
væntanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu
í Svíþjóð.
Í skoðanakönnun í júní sl. voru um
43% aðspurðra Svía mótfallnir EMU-
aðild, 31% fylgjandi og 26% óákveðn-
ir.
Svíar í EMU
fyrir 2005?
Stokkhólmi. AP.
ÞRJÁTÍU og átta óbreyttir borgar-
ar voru drepnir í fyrradag í Aceh-
héraði í Indónesíu en þar hefur verið
mjög ófriðlegt um langa hríð og of-
beldisverk tíð. Kenna stjórnarherinn
og skæruliðar, sem berjast fyrir
sjálfstæði héraðsins, hvorir öðrum
um. Megawati Sukarnoputri, forseti
Indónesíu, kynnti í gær nýja ríkis-
stjórn og hefur henni verið vel tekið.
Talsmaður Indónesíuhers sagði í
gær, að fólkinu, 38 manns, þar á
meðal þriggja ára gömlum dreng,
hefði verið stillt upp og það síðan
skotið á pálmaolíuplantekrunni þar
sem það vann. Sagði hann, að skæru-
liðarnir hefðu setið um fólkið er það
sótti launin sín og líklega myrt það
vegna þess, að það vildi ekki láta þau
af hendi. Einn foringi skæruliða
sagði, að þessu hefði verið öfugt far-
ið. Stjórnarhermenn hefðu skotið
fólkið vegna þess, að það vildi ekki
eða gat ekki sagt til skæruliðanna.
Atvinnumenn
í helstu embættum
Ný ríkisstjórn í Indónesíu sór
embættiseið sinn í gær og eru vonir
bundnar við, að henni takist að
greiða nokkuð úr efnahagsóreiðunni
í landinu. Eru öll helstu ráðherra-
embættin í höndum manna, sem hafa
reynslu úr atvinnu- og fjármálalíf-
inu, en stjórnmálamenn fengu þau
veigaminni. Megawati forseti skor-
aði á landa sína, sem eru 210 millj-
ónir að tölu, að styðja hina nýju
stjórn í glímu hennar við efnahags-
kreppuna. Við embættistökuna var
lögð á það áhersla, að komið yrði í
veg fyrir, að indónesíska ríkið klofn-
aði vegna sjálfstæðiskrafna héraða
eins og Aceh og Irian Jaya.
Tugir óbreyttra
borgara líflátnir
Banda, Jakarta. AFP.
Ófriðurinn í Aceh-héraði í Indónesíu