Morgunblaðið - 11.08.2001, Blaðsíða 24
ERLENT
24 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÆSTKOMANDI mánudag heldur Fídel
Kastró, forseti Kúbu, upp á 75 ára afmælið.
Kastró hefur verið einræðisherra á Kúbu
samfleytt í 42 ár og í forsetatíð hans hafa 10
menn gegnt embætti forseta Bandaríkjanna.
Séreinkenni einræðisherrans, grænn ein-
kennisbúningur, græn húfa og gránandi al-
skegg, hafa gert hann að einum auðþekkt-
asta manni heims.
Óvinir Kastrós hafa haldið því fram í
meira en áratug að hann eigi við heilsubrest
að stríða og hafa reynt að koma af stað upp-
lognum orðrómi um að forsetinn þjáist af
hjartabilun, krabbameini í blöðruhálskirtli
og Parkinsonsveiki. Kastró segist þó sjálfur
vera við hestaheilsu. Hann er sagður stunda
æfingar reglulega, forðast vindla og drekka
áfengi í hófi.
Forsetinn hefur tilnefnt bróður sinn, varn-
armálaráðherrann Raúl Kastró, sem vænt-
anlegan arftaka. Raúl er talinn meiri harð-
línumaður en Kastró sjálfur en er sagður
tilbúinn til að gera meiri tilraunir með breyt-
ingar á efnahagskerfi Kúbu en bróðir hans.
Svo lengi sem þær breytingar eru innan hins
sósíalíska ramma. Þrátt fyrir að Raúl þyki
ekki búa yfir jafn miklum persónutöfrum og
Fídel nýtur hann mikils fylgis innan hersins.
Farinn að láta á sjá
Fíedel Kastró varð fyrir því áfalli í júní á
þessu ári að hníga niður er hann hélt ræðu í
beinni sjónvarpsútsendingu á Havana. At-
vikið vakti mikla athygli fjölmiðla og skyndi-
lega fór heimurinn að ímynda sér Kúbu án
Kastrós. Aðstoðarmenn forsetans sögðu yf-
irliðið hafa stafað af of mikilli áreynslu og
hann sendi óvinum sínum sjálfur þau skila-
boð að það enn væri of snemmt að fagna.
Þrátt fyrir það var það mál manna að
Kastró hefði verið fölari og sveittari en
venjulega er hann fór hinn 27. júlí sl. fyrir
göngu sem Kúbverjar fara ár hvert til að
halda upp á afmæli byltingarinnar. Hann
virtist auk þess haltra lítið eitt.
Kastró getur þó enn haldið ræður klukku-
stundum saman þótt hann þurfi nú á minn-
isblöðum að halda. Þá heldur hann enn at-
hygli hrifinna hlustenda með bröndurum,
fordæmingum, skömmum og lofi. Í upphafi
ræðuflutningsins virðist Kastró oft gamall
og hrumur en kraftur færist í ræðurnar er á
líður og hann lyftir fingri á loft til að leggja
áherslu á orð sín. Í ræðum sínum þylur hann
iðulega upp tölur um háa fæðingartíðni og
fjölda lækna á íbúa til að sýna fram á vel-
gengni byltingarinnar. Og ræður hans enda
oftar en ekki á því að hann hrópar: „Föð-
urlandsást eða dauði! Sósíalismi eða dauði!
Við munum sigra!“
Kastró leiddi fyrst uppreisn á Kúbu árið
1953 og aðra árið 1956. Báðar enduðu þær
með hörmungum. Eftir síðari uppreisnina
lét þáverandi einræðisherra, Fulgencio Bat-
ista, útvarpa því að Kastró væri látinn. En
Batista flúði land eftir þriðju uppreisnina
sem Kastró leiddi á nýársdag árið 1959. Viku
síðar gengu Kastró og liðsmenn hans sig-
urreifir inn í Havana.
„Bauð Bandaríkjunum birginn
og lifði fall Sovétríkjanna“
„Þegar Kastró lítur yfir farinn veg hlýtur
hann að líta á það sem afrek að hafa komist
yfir allar þær hindranir sem örlögin hafa bú-
ið honum,“ sagði Wayne Smith, sem var
starfsmaður í sendiráði Bandaríkjanna í Ha-
vana á sjötta áratugnum, í viðtali við frétta-
stofu AP. „Hann var upphafsmaður bylting-
arinnar, hann bauð Bandaríkjunum birginn
og hann lifði fall Sovétríkjanna,“ sagði hann.
Paradís verkamannsins gekk þó ekki upp
á Kúbu frekar en í öðrum kommúnistaríkj-
um. Áætlunarbúskapur leiddi til langvinns
skorts og matarskömmtunar. Það var þagg-
að niður í andófsmönnum og fjölmiðlum var
stjórnað.
Meðan Sovétríkin voru við lýði hafði Kúba
næga uppsprettu matar og eldsneytis. Þá
sendu Kúbverjar lækna til Suður-Ameríku
og herlið til Afríku. En þegar að því kom að
Sovétríkin liðuðust í sundur árið 1991 hætti
Kúba stuðningi við erlendan stríðsrekstur
og Kastró sneri sér að því að vinna bug á
verulegri efnahagskreppu heima fyrir. Efna-
hagslegur bati hefur þó verið hægur og erf-
iður og hefur viðskiptabann Bandaríkja-
manna tafið þar fyrir. Draumar um
jafnréttisstefnu hafa þurft að víkja fyrir
raunveruleika hins almenna Kúbverja, en
margir Kúbverjar eru um afkomu sína háðir
aðgengi að Bandaríkjadollar í gegnum ferða-
mannaiðnaðinn eða ættingja í útlegð. Rík-
isstjórn Bush Bandaríkjaforseta hefur lýst
því yfir að hún muni ekki slaka á viðskipta-
banninu á Kúbu fyrr en þar verða haldnar
frjálsar kosningar og pólitískum föngum
sleppt. En þeir eru í hundraðatali í kúb-
verskum fangelsum að því er mannréttinda-
samtök segja.
Íbúar Kúbu fylkja sér þó enn um leiðtoga
sinn eins og kom berlega í ljós í máli Elians
Gonzales, sjö ára drengs sem var bjargað
undan strönd Flórída árið 1999. Baráttuna
fyrir því að drengurinn yrði sendur aftur
heim til Kúbu leiddu ríkisreknir fjölmiðlar
og kallaði Kastró þá „byltingarherdeild í
broddi fylkingar“.
Nú heyr Kastró það sem hann kallar
„hugmyndafræðilega baráttu“, mótmæli
gegn stefnu Bandaríkjastjórnar í málefnum
Kúbu. Og um hverja helgi heldur Raúl
Kastró fjöldafundi til að mótmæla stefnu
Bandaríkjanna.
Afmælisbarnið ætlar á næstu dögum að
ferðast til Venesúela til fundar við Hugo
Chavez, forseta landsins. Utanríkisráðherra
Kúbu, Felipe Perez Roque, sagði þó líklegt
að Kastró biði með ferðina þar til hann hefði
lokið við að blása á kertin á afmælistertunni
sinni.
Fídel Kastró
vígreifur á 75
ára afmælinu
AP
Fídel Kastró, forseti Kúbu, lyftir hér
fingri orðum sínum til áherslu, er hann
flytur eina af sínum löngu ræðum í Kuala
Lumpur fyrr í sumar.
Havana. AP.
BANDARÍSKAR og brezkar her-
þotur gerðu sprengjuárásir á þrjár
stöðvar Írakshers í Suður-Írak í
gær. Voru árásirnar svar við síaukn-
um tilraunum Íraka til að beita loft-
varnavopnum til að skjóta niður
flugvélar bandamanna á eftirlitsflugi
yfir flugbannssvæðinu svokallaða.
Þetta voru öflugustu árásir sem
efnt hefur verið til á skotmörk í Írak
frá því í febrúarmánuði.
Samkvæmt upplýsingum tals-
manns bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins tóku um 20 bandarískar og
brezkar árásarþotur og 30 stuðn-
ingsflugvélar þátt í árásinni. Banda-
rísku vélarnar héldu að sögn annars
talsmanns upp í árásina frá flugmóð-
urskipinu USS Enterprise, sem statt
er í Persaflóa, og frá herflugvöllum á
svæðinu. Svo virtist sem sumar
stuðningsvélarnar hefðu verið send-
ar frá herstöðvum í Sádi-Arabíu.
Fjarskiptamiðstöð, skotpallur
og radarstöð hæfð
Hæfð voru fjarskiptamiðstöð
Írakshers, loftvarnaflaugaskotpallur
og langdræg radarstöð, en öll þessi
skotmörk eru liðir í loftvarnakerfi
Íraks, að sögn Pentagon-talsmanns-
ins Steves Campbells.
Talsmenn Hvíta hússins sögðu
árásina „reglubundna“ en þó um-
fangsmeiri en venjulega.
„Þessi árás var hóflegt svar til að
vernda flugmenn okkar og flugvélar
gegn aðgerðum Íraka sem gerast æ
alvarlegri,“ sagði Tom Lantos, þing-
maður demókrata sem á sæti í utan-
ríkismáladeild fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings. „Það er því miður
svo að hvorki er Saddam Hussein á
förum né getum við það,“ sagði
hann.
Sprengjuárásir á írask-
ar loftvarnastöðvar
Svar við
ögrunum
Íraka
Washington. AP.