Morgunblaðið - 11.08.2001, Blaðsíða 26
LISTIR
26 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ELDAVÉLINA ÞÍNA
SELDU OKKUR
Suðurlandsbraut 16 • 108 Rvk • Sími 5880500
Við sendum þér nýju eldavélina og sækjum
þá gömlu þér að kostnaðarlausu
(aðeins á höfuðborgarsvæðinu)
Nýja vélin heim að dyrum
Við tökum gömlu eldavélina þína upp í, ef þú kaupir nýja eldavél af okkur á meðan
birgðir endast. Útlit, aldur eða ástand skiptir engu máli.
Keramik helluborð og
ofn saman í pakka
Fjölvirkur blástursofn
Undir- og yfirhiti
Grill og grillteinn
Stálofn með keramik
helluborði og blæstri
Undir- og yfirhiti
Grill
Geymsluhólf
HxBxD: 85x49,5x60 cm.
Fjölvirkur blástursofn
Undir- og yfirhiti
Grill og grillteinn
Tímaklukka
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
U
pp
ítö
kuverð
KR.
10.000
U
pp
ítö
kuverð
KR.
15.000
U
pp
ítö
kuverð
KR.
15.000
50 cm
Verð áður 42.900
Gamla vélin uppí -10.000
Þú greiðir stgr. kr. 32.900
Verð áður 84.900
Gamla vélin uppí -15.000
Þú greiðir stgr. kr. 69.900
Verð áður 64.900
Gamla vélin uppí -15.000
Þú greiðir stgr. kr. 49.900
Verð áður 42.900
Gamla vélin uppí -10.000
Þú greiðir stgr. kr. 32.900
Eldavél
U
pp
ítö
kuverð
KR.
10.000
U
pp
ítö
kuverð
KR.
15.000
U
pp
ítö
kuverð
KR.
15.000
Fjölvirkur blástursofn
Undir- og yfirhiti
Grill
Geymsluhólf
HxBxD: 85x59,5x60 cm.
Eldavél með blæstri
Stálklædd eldavél með
keramik hellub. og blæstri
ZANUSSI
Fjölvirkur blástursofn
Undir- og yfirhiti + grill
Stækkanlegar hellur
Geymsluhólf
HxBxD: 85x59,5x60 cm.
Verð áður 89.900
Gamla vélin uppí -15.000
Þú greiðir stgr. kr. 74.900
Hvít eldavél með keramik
helluborði og blæstri
ZANUSSI
Fjölvirkur blástursofn
Undir- og yfirhiti
Grill
Geymsluhólf
HxBxD: 85x59,5x60 cm.
Verð áður 84.900
Gamla vélin uppí -15.000
Þú greiðir stgr. kr. 69.900
Stálofn með blæstri
GUÐNÝ Rósa Ingimarsdóttir
býður áhorfendum á sýningu sinni
á Hlemmi í lítið ferðalag á milli
nokkurra augnablika, eins og svo
fallega er að orði komist á vefsíðu
gallerísins. Þessi lýsing á vel við
andrúmsloftið sem ríkir á sýning-
unni en þar má sjá persónuleg
verk þar sem listamaðurinn vinnur
úr eigin tilfinningaheimi og reynslu
og leyfir okkur að upplifa með sér.
Ferðalagið byrjar í fremri sal
gallerísins með ljósmynd af sam-
ansaumuðum nafla í grænleitri
sjúkrahússbirtu. Gegnt henni er
ljóðrænn texti á vegg: „Sofðu í
huga mér ég þreytist.“ Hér er ver-
ið að lýsa hugarástandi manneskju,
líklegast listakonunnar. Verkið er
sett fram á mjög hógværan hátt,
ritað smáum stöfum í augnhæð. Í
aftari sal heldur ferðin áfram og
nýtir Guðný sér ýmsa miðla fyrir
list sína. Fyrst ber að geta lítilla
dropateljara með agnarsmáum
hekluðum hettum og húfum, fest-
um upp með títuprjónum. Húfurn-
ar eru ljósbláar og húðlitaðar og
hver dropateljari minnir á lítið
barn. Næst er eina verk sýning-
arinnar sem ber titil, en það heitir
Overture blue, eða blár forleikur.
Á sjúkrahússgrænum palli liggur
samanbrotinn barnaullarbolur sem
ekki er allur þar sem hann er séð-
ur. Þegar hann er brotinn í sundur
sést að auk gata fyrir höfuð og
hendur er skurðarlaga gat í maga-
stað sem kallast á við verkið við
hliðina, ljósmyndir af maga á
skurðarborði. Búið er að setja sótt-
hreinsiefni á magann líkt og verið
sé að undirbúa skurðaðgerð og
dettur manni í hug keisaraskurður
þegar horft er á verkið í samhengi
við ullarbolsverkið. Í salnum eru
tvö önnur textílverk, tilraunaglös,
myndband og ljósmynd sem hengd
er upp undir loft sýningarrýmisins.
Ljósmyndin sýnir listakonuna í
einhverskonar gjörningi að taka af
sér þunnan andlitsham. Það má
túlka sem löngun listakonunnar til
að endurfæðast og kallast ljós-
myndin á við verkið með dropatelj-
urunum, börnin, og nágræna birt-
una í ljósmyndinni af naflanum
samansaumaða, en það verk minnir
óneitanlega á návist dauðans.
Myndbandsverkið er afar fínlegt
og stillt og sýnir skuggaspil á
maga. Hér er magi listakonunnar
enn á ferð og skuggaspilið kemur
frá hlut sem ungt barn hennar
leikur sér með. Myndavélin er kyrr
en við sjáum magann bifast og
skuggann hreyfast sem gerir verk-
ið ákaflega spennandi. Framsetn-
ing myndbandsins er það eina við
sýninguna sem betur mætti fara,
en að tefla því fram í litlu sjón-
varpi úti á gólfi er of ódýr lausn og
ekki eins vönduð og annað á sýn-
ingunni.
Titill sýningarinnar, „Tognuð
tunga“, er ráðgáta: Listakonunni
er hugsanlega tregt tungu að
hræra enda gefur hún sýningar-
gestum fáa vegvísa um sýninguna
en lætur þess í stað verkin túlka
tilfinningar sínar.
Háfleygum texta eftir Gauthier
Hubert, er ætlað að fylgja sýning-
unni úr hlaði en á honum er lítið að
græða. Sýningin fjallar um kven-
lega reynslu og þá einkum um fæð-
inguna og samband móður og
barns. Þó um hana megi nota lýs-
ingarorð eins og tilfinningaleg,
kvenleg, fínleg, viðkvæm og nost-
ursamleg finnur maður undir niðri
fyrir skrýtinni spennu, ógn eða
jafnvel hrolli. Guðnýju Rósu tekst í
þessari vel heppnuðu sýningu að
spila á fínustu taugar sínar og
áhorfandans með afar vönduðum
hætti.
Vel heppnað
ferðalag
MYNDLIST
G a l l e r í H l e m m u r
Opið fimmtudaga - sunnudaga
frá kl. 14-18. Til 12. ágúst.
BLÖNDUÐ TÆKNI
GUÐNÝ RÓSA
INGIMARSDÓTTIR
Þóroddur Bjarnason
Morgunblaðið/Þóroddur Bjarnason
Eitt af verkum á sýningunni í galleri@hlemmur.is.
SAMLEIKUR á básúnu og orgel
er ekki algengur, enda eru fá verk til
fyrir þessa samskipan hljóðfæra.
Samt var básúnan eitt af aðalhljóm-
sveitarhljóðfærunum um aldamótin
1600 og þá þegar til í ýmsum stærð-
um. Vöntun á sérstaklega sömdum
verkum fyrir þessa samsetningu, hef-
ur leitt til þess, að básúnistar hafa
umritað ýmis verk og á tónleikum
Helga Hrafns Jónssonar og Harðar
Áskelssonar, sem haldnir voru í Hall-
grímskirkju sunnudaginn 5. ágúst
voru þrjú viðfangsefnanna umritanir,
tvær kóral útfærslur eftir J.S. Bach,
sónata eftir Pregolesi og auk þess var
sóló-sellósvíta nr 2, eftir J.S. Bach,
eitt af meginviðfangsefnum básúnu-
leikarans unga.
Tónleikarnir hófust á Slá þú hjart-
ans hörpustrengi, úr kantötu nr. 157,
síðar var Vakna Sínons verðir kalla,
úr kantötu nr. 140 og lék básúnan sál-
mastefið. Á milli kóralanna var umrit-
uð tríósónata eftir Pegolesi í F-dúr,
sem verkaði á köflum nokkuð þung-
lamalega fyri básúnuna.
Athyglisverðasta verkið var sóló-
svita nr. 2, fyrir selló, eftir J.S. Bach,
Helgi Hrafn lék þetta margslungna
verk og erfiða verk utan að og sýndi
svo ekki verður um villst að hér er á
ferðinni efnilegur básúnuleikari, að
ekki sé meira sagt. þrír fyrstu kafl-
arnir (Prelude, Allemande og Cour-
ante) byggjast á sístreymandi tónferli
er gera miklar kröfur til hljóðfæra-
leikarans í að halda utan um hljóm-
skipan og tónferli tónmálsins, þannig
að tematísk framvindan verði skýr.
Þetta kom að mörgu leyti vel út, Tví-
röddunin í sarabördunni og fyrri
meúettinum var nokkuð sniðuglega
útfærð, þó að þar munaði mestu á um-
ritun og frumgerð. Seinni menútett-
inn kom fallega út og sama má segja
um lokakaflann „gikkinn“. Helgi
Hrafn lék þetta erfiða verk af miklu
öryggi og á sannfærandi máta.
Orgelsvíta nr. 2, eftir Clérambault,
er hljómborðsverk og þar í er frægur
Duo en þetta fallega verk, sem í raun
er samið fyrir mismunandi raddskip-
an t.d. flautur og krummhorn mjög
vel leikin af Herði Áskelssyni, Sin-
fónía úr Kantötu nr. 156, Ich steh mit
einem Fuss im Grabe, er upphaflega
ætluð fyrir óbó og tekin úr glötuðum
óbókonsert en jaðarþættir hans voru
notaðir í sembalkonsert, BWV 1056.
Næsta verk var umritun á flautusón-
ötu eftir Loeillet og voru bæði verkin
leikn af þokka.
Lokaverk tónleikanna var frum-
flutningur á verki eftir Huga Guð-
mundsson, sem hann nefnir Signing
og á verkið að vera táknrænt fyrir
krossmerkið, þá kristin manneskja
signir sig. Það er vandfundið í tónmáli
verksins, það sem minnir á þessa at-
höfn mannsins, en þó býr í því einhver
alvara og rósöm fegurð, sem er af
sama stofni og þegar einstaklingur
signir sig Guði sínum, til verndar sér
og sínum. Trítónus tónbil kemur við
sögu og á orgelið eru leiknir þéttir,
ómstríðir en fallegir hljómar, á móti
kyrrstæðu tónferli básúnuraddarinn-
ar og einng brá fyrir kontrapunktísk-
um vinnubrögðum. Allt þetta myndar
sannfærandi tónbálk, sem ber í sér al-
vöru og fegurð. þetta fallega verk var
sérlega vel flutt og það var auðheyrt á
básúnuhljóminum, að sköpun Huga
Guðmundssonar var flytjandanum
Helga Hrafni Jónssyni nálæg í hugs-
un og tilfinningu, en honum verður
eftir þennan konsert ætluð seta meðal
efnilegustu tónlistarmanna okkar Ís-
lendinga. Hörður Áskelsson átti sinn
þátt í þessum skemmtilegu tónleik-
um, með sérlega vönduðum undirleik
og fallegum flutningi á orgelsvítunni
eftir Clérambault.
Hugsun og tilfinning
Jón Ásgeirsson
TÓNLIST
H a l l g r í m s k i r k j a
Helgi Hrafn Jónsson og Hörður Ás-
kelsson fluttu verk eftir J.S. Bach,
Pergolesi, Clérambault, Loeillet og
frumfluttu verk eftir Huga Guð-
mundsson. Sunnud. 5. ágúst, 2001.
SAMLEIKUR Á BÁSÚNU
OG ORGEL
MYNDLISTAMAÐURINN
Díana Hrafnsdóttir hefur opnað
sína fyrstu einkasýningu og er
hún í Selinu, Gallerí Reykjavík,
Óðinsgötumegin. Sýningin ber yf-
irskriftina Undir niðri og eru
verkin tréristur unnar á þessu ári.
Díana útskrifaðist frá Listahá-
skóla Íslands, grafíkdeild, með
BA-gráðu vorið 2000. Í verkum
sínum fjallar Díana um einstak-
lingsbundna sýn manna sem teng-
ist eflaust tilfinningum, persónu-
leika og þroska hvers og eins svo
úr verður einhverskonar samspil.
Sýningin er opin virka daga kl.
13–18, laugardaga til kl. 16 og
stendur til 25. ágúst.
Undir niðri í Selinu
MYNDLISTARSÝNING
Helga Þorgils verður opnuð
í Listasafni Borgarness í
dag, laugardag, kl. 17. Sýn-
ingin ber yfirskriftina
Landslag og sýnir listamað-
urinn í fyrsta skipti á sínum
ferli landslagsmyndir ein-
vörðungu og er myndefnið
einkum sótt til náttúrufeg-
urðar Borgarfjarðar og
Dala. Elsta myndin á sýn-
ingunni er af Baulu í Borgarfirði frá
árinu 1988 en nýjustu verkin eru frá
þessu ári.
Helgi Þorgils hefur haldið fjölda
sýninga og eru mörg verk
eftir hann í eigu safna hér-
lendis og erlendis.
Myndir af verkum lista-
mannsins er að finna í
gagnagrunni Upplýsinga-
miðstöðvar myndlistar-
manna: http://www.umm.is/
sub.html.
Sýningin er opin þriðju-
daga- og fimmtudaga frá kl.
13–20 en alla aðra daga frá
kl. 13–18, fram til 25.
ágúst en að þeim tíma liðnum er
lokað um helgar. Sýningin stendur
til 7. september.
Landslag Helga
Þorgils í Borgarnesi
Helgi
Þorgils