Morgunblaðið - 11.08.2001, Page 47
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 47
FRÉTTIR
Í dag, 11. ágúst, er
Vigdís Ferdinandsdótt-
ir vinkona mín 80 ára.
Hún dvelst nú á Nátt-
úrulækningahælinu í
Hveragerði í fallegu og
kyrrlátu umhverfi
laufgaðra trjá og garða
og er þar að ná sér eftir
mjaðmagrindarbrot.
Það er oft gaman að
tala við hana Vigdísi,
hún er fjölfróð, fylgist
svo vel með öllu, man
vel liðna tíð. Hún er
borinn og barnfæddur
Reykvíkingur og þekkti
vel Reykjavík á fyrri áratugum 20
aldarinnar. Vigdís er ein þeirra sem
mikla ekki fyrir sér erfiðleikana. Hún
hefur lengst af ævinnar haft vindinn í
fangið en hin síðari ár hafa verið
henni léttari þó varla sé hægt að tala
um meðvind. Nú þegar hún þerrar
svitann af enni sér eftir mörg hand-
tök og andstreymi liðinna ára lætur
hún oft hugann reika um slóðir minn-
inganna og umhverfi uppvaxtarár-
anna. Þá koma eðlisþættir Vigdísar
vel fram, traust minni, þekking á
mönnum og málefnum, greind henn-
ar og heilbrigt lífsviðhorf.
Vigdís Ferdinandsdóttir er fædd
11. ágúst 1921 í Reykjavík. Foreldrar
hennar voru Ferdinand Róbert Ei-
ríksson skósmíðameistari og kona
hans, Magnea Ólafsdóttir. Ferdinand
var eldri Reykvíkingum að góðu
kunnur, hann rak skósmíðaverkstæði
í borginni í 60 ár, þar af hálfa öld á
Hverfisgötu 43. Umsvif hans voru
talsverð, hann hafði um tíma 5 lær-
linga og heimilið var vel stætt á þess
tíma mælikvarða.
Magnea var fædd á Ólafsvöllum á
Skeiðum og meðal systkina hennar
má nefna Sigurjón Ólafsson mynd-
höggvara, Guðna sem stofnaði og rak
Ingólfsapótek og síðar Heildversl-
unina G. Ólafsson og Gísla föður Er-
lings leikara.
Vigdís ólst upp í Reykjavík og var
elst sjö systkina og eina stúlkan. Hún
var 7 ára þegar 6. systkinið fæddist.
Systkini hennar eru: Gunnar Óli,
lengi járnsmiður hjá Sindra, Eiríkur
Róbert skósmíðameistari, Árni Gret-
ar heildsali, Gísli skósmíðameistari,
Jón Júlíus, teiknikennari og mynd-
listarmaður, sem nú er látinn, og
Ferdinand búfræðingur, nú forstöðu-
maður Arnarholts. Það gefur auga
leið að umönnun og uppeldi bræðr-
anna hefur lent mjög á Vigdísi sem
var elst og eina systirin. Fjölskyldu-
tengsl voru sterk og móðurbræður
Vigdísar dvöldust oft á heimili for-
eldra hennar þegar þeir voru í bæn-
um. Eins og geta má nærri héldu þeir
mikið upp á þessa fallegu, glaðlegu
og greindu frænku sína. Vigdís lauk
prófi frá Verslunarskólanum 1939.
Hún var óvenjulega glæsileg ung
stúlka sem sjá má á myndum frá
þessum árum og reyndar ber hún það
með sér enn þrátt fyrir háan aldur.
VIGDÍS FERDINANDSDÓTTIR
Vigdís hefur alla ævi
verið listhneigð og
skemmti á verslunar-
skólaárunum stundum
sem eftirherma, Vigdís
eftirherma stóð á aug-
lýsingaskiltum
skemmtikvölda í skól-
anum. Á skólaárum
Vigdísar og fyrstu ár-
unum eftir að hún lauk
prófi var hér kreppa og
atvinnuleysi. Vigdís
vann fyrstu árin ýmis
skrifstofustörf og sjö ár
vann hún í atvinnu- og
samgönguráðuneytinu.
Árið 1941 kynntist Vigdís bandarísk-
um lækni af frönskum ættum, Har-
vey Georg Tousignant, og hafði það
mikil áhrif á lífshlaup hennar. Þau
Vigdís trúlofuðust en fengu ekki að
giftast. Harvey læknir var sendur til
Írlands áður en Harvey sonur hans
fæddist. Eftir stríðið hittust þau Vig-
dís í Washington DC en lentu í alvar-
legu bílslysi. Harvey var sendur á
hersjúkrahús en Vigdís á almennt
sjúkrahús og leiðir skildi. Þau héldu
þó alltaf tengslum og læknirinn
reyndist Vigdísi vel. Harvey
Georgsson er einn af mínum bestu
vinum og Vigdísi móður hans kynnt-
ist ég fyrst þegar við Harvey fórum
að setjast að tafli. Fáir munu þeir
skákmenn íslenskir sem ekki þekkja
Harvey Georgsson. Um tíma var
hann einn af sterkustu skákmönnum
Íslendinga og varð t.d. Reykjavíkur-
meistari 1972, tefldi í landsliðsflokki
og tók þátt í alþjóðlegum skákmót-
um. Jóhann Þórir Jónsson, sá mikli
frömuður skáklistarinnar á Íslandi,
lýsti því yfir í skáktímaritinu að Har-
vey væri vinsælasti skákmaður á
okkar landi. Harvey hefur reynst
móður sinni hjálparhella en örlögin
höguðu því þannig að uppvaxtarár
hans urðu bæði honum og móður
hans erfið.
Þriggja ára gamall smitaðist Harv-
ey af berklum, fyrst í rist. Sex ára
gamall fékk hann berkla í mjaðma-
grind og var þá lagður inn á sjúkra-
hús. Í tvö ár lá hann á sjúkrahúsinu í
gipsi á hægri fæti frá tám upp að
mitti. Síðar tóku berklarnir sig aftur
upp og lá Harvey aftur í gipsi í tvö ár
frá 10 ára til 12 ára aldurs. Lengi hef
ég þekkt Harvey Georgsson en aldrei
heyrt hann kvarta vegna þessarar
sjúkrasögu sinnar. Einhvern tíma
þegar þetta tímabil ævi hans barst í
tal svaraði hann „Ég held margir hafi
lent í verra.“ Það er karlmannlegt
svar manns sem missti stóran hluta
æsku sinnar og skólagöngu vegna
veikinda.
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um það að þessi ár hafa ekki verið
þeim mæðginum auðveld. Vigdís var
einstæð móðir og vann úti og aðstoð
þjóðfélagsins var minni en nú er.
Stundum finnst mér í samræðum og
orðavali Vigdís bera þess merki að
hún hefur staðið lengst af þar sem
öldurótið er mikið. Hún vílar ekki allt
fyrir sér og ósjálfrátt kemur þá oft
fyrir hugskotssjónir sjómaður sem
siglt hefur lengi um úfinn sæ.
Þegar Harvey var 13 ára giftist
Vigdís Ragnari Frímannssyni, sjó-
manni, og eignaðist með honum tvo
syni, Róbert og Ragnar Frímann.
Þau skildu eftir átta ára sambúð.
Í rúman áratug bjó ég í sama húsi
og Vigdís. Ég hafði ekki verið þar
lengi þegar ég áttaði mig á því að
húsfélagið í stigahúsinu var Vigdís.
Hún var allt í öllu, skipulagði fram-
kvæmdir og viðhald, tók ákvarðanir
og sá um hússjóðinn. Hún ein þekkti
sögu viðhalds hússins og til hennar
var leitað ef upplýsinga var þörf. Ófá
kvöld skaust ég niður á hæðina fyrir
neðan og tók skák við Harvey. Alltaf
var mér tekið jafnvel og Vigdís hitaði
ævinlega handa mér kaffi, þótt
stundum væri orðið áliðið. Þessar
ánægjustundir koma oft upp í huga
mér og vel skynjaði ég að þarna átti
ég góða vini. Ævinlega hafði Vigdís
eitthvað að segja um ástand þjóð-
mála eða helstu atburði líðandi
stundar. Vigdís hefur sterka réttlæt-
iskennd og skoðanir sínar segir hún
óhikað og oftast umbúðalaust. Hún
er margfróð og minnið sterkt. Hún er
hjálpsöm og telur ekki eftir sér að
gera viðvik fyrir kunningjana. Hún
er trygglynd og tekur óhikað málstað
vina sinna. Upplagið er gott og góða
heimanfylgju hefur hún haft úr for-
eldrahúsum bæði frá erfðum og upp-
eldi. Hún hefur yndi af listum og
nefni ég í því sambandi höggmynda-
list sem hún hefur kynnst vel af
tengslum sínum við Sigurjón Ólafs-
son, móðurbróður sinn, myndlist og
tónlist. Ég held að það hafi verið
skrifaðar bækur um ómerkari örlög
en hennar Vigdísar. Þessi greinda,
heiðvirða og góða kona hefur tekist á
við erfiðleika og mótvind án þess að
láta það buga sig. Örlög manna eru á
ýmsa lund. Segir ekki Davíð einhvers
staðar: „Sá faðmar ekki gæfuna grá-
hærða og feiga, sem gengur út úr log-
unum einn með hreinan skjöld.“ Ég
held að Vigdís Ferdinandsdóttir geti
mætt áttatíu árunum með heiðríkju í
huga. Hún hefur innt sitt hlutverk vel
af hendi, skilað sínu ævistarfi, eign-
ast marga vini sem meta hana mikils.
Ég minnist með þakklæti ánægju-
stunda í Gnoðarvoginum með kaffi-
bollann í hendinni, taflmennina fyrir
framan mig hlustandi á Vigdísi rifja
upp liðna tíma af glöggskyggni og
fróðleik.
Þessari vinkonu minni sendi ég
bestu vinarkveðjur á 80 ára afmæli
hennar með von um að hún nái sér að
fullu og megi enn eiga ánægjurík
æviár. Þá koma mér í hug orð skálds-
ins og bið þess að í þeim megi fyrir
Vigdísi felast nokkur sannleikur:
„Bak við þyrna og þrautir
þar eru sléttar brautir
og grasivaxnar gróðurlautir.“
Guðm. G. Þórarinsson.
STJÓRN Blaðamannafélgs Íslands
hefur sent frá sér ályktun þar sem
lýst er hneykslun á framgöngu lög-
regluþjóna við eftirlit með mótmæl-
um vegna kjaramála sjómanna í
Reykjavíkurhöfn nýverið.
„Lögreglan hindraði þar enn og
aftur blaðamenn við störf og braut
stjórnarskrárvernduð réttindi
þeirra, m.a. með því að taka fyrir
linsu á ljósmyndavél, sem er hvort
tveggja ofbeldisverknaður og lög-
brot.
BÍ krefst þess að lögreglan í
Reykjavík biðji hlutaðeigandi ljós-
myndara afsökunar og tryggi að ósv-
inna af þessu tagi endurtaki sig ekki.
Því miður virðist ljóst af síendur-
teknum atburðum af þessu tagi sem
lögregluþjónar séu almennt skeyt-
ingarlausir um réttindi og þýðingu
fjölmiðla. Stjórn BÍ hefur þungar
áhyggjur af því að framkoma lög-
reglu í garð blaðamanna batni ekki
þrátt fyrir fögur fyrirheit af hálfu
lögreglumanna um að bæta sam-
skiptin.
Stjórn BÍ bindur þó vonir við að
nefnd ríkislögreglustjóra um sam-
skipti lögreglu við fjölmiðla, sem BÍ
á aðild að, takist að koma á verklags-
og samskiptareglum fyrir lögreglu
sem blaðamenn geta unað við,“ segir
í ályktun Blaðamannafélagsins.
Stjórn Blaðamannafélags Íslands
ályktar um framgöngu lögreglu
Blaðamenn
hindraðir við
störf sín
GULA húsinu tjaldað heitir myndlist-
arsýning Maríu Pétursdóttur sem
hún opnar í dag, laugardag, kl. 14 í
Gula húsinu að Lindargötu 49.
Sýningin er innsetning með hljóði
en verkið byggir á viðtölum við þrjár
kynslóðir fólks sem þekkja sögu húss-
ins eða hafa dvalið þar í einhverri
mynd.
María Pétursdóttir útskrifaðist úr
fjöltæknideild MHÍ 1998 og er þetta
hennar þriðja einkasýning. Auk þess
hefur hún tekið þátt í samsýningum
hér heima og erlendis.
Sýningin stendur til 24. ágúst og er
opin mánudaga, miðvikudaga, föstu-
daga og sunnudaga frá kl. 14–18.
Þrjár kynslóðir
í Gula húsinu
NÚ stendur yfir sýning á leirverkum
Kristínar Sigfríðar Garðarsdóttur í
Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5.
Þetta er önnur einkasýning Kristínar.
Verkin eru úr postulíni steyptu í gifs-
mót, einnig handmótuð form úr
postulíni og grófum steinleir.
Kristín lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskóla Íslands 1997 og stund-
aði framhaldsnám við Danmarks De-
sign Skole í Kaupmannahöfn 1998–
1999. Hún hlaut á þessu ári lista-
mannalaun í sex mánuði úr Listasjóði.
Sýningin er opin virka daga kl. 11–
18, laugardaga kl. 11–16 til 29. ágúst.
Verk úr postul-
íni hjá Ófeigi
Haust- og vetr-
arlistarnir frá
Otto komnir
NÚ er Otto haust- og vetrarlistinn
kominn út, tæplega 1.400 blaðsíður
að stærð.
Vöruúrvalið í stóra listanum er
tískufatnaður á alla fjölskylduna í
öllum stærðum, vefnaðarvara og úr-
val af húsgögnum og borðbúnaði auk
margs konar gjafavöru. Sérlistarnir
eru nokkrir og þar er höfðað til
ákveðinna markhópa.
Eins og undanfarið verður einnig
boðið upp á listann á geisladiski fyrir
tölvur, en þar er hægt að fletta list-
anum síðu fyrir síðu. Á honum eru
einnig hreyfimyndir, þ.e. fyrirsæt-
urnar sýna fötin frá nokkrum hlið-
um.
Sérlistar sem Otto vörulistar
bjóða upp á: Klitzeklein, þar er með-
göngufatnaður, föt fyrir börn að 3ja
ára aldri, húsgögn.
Kidoki, föt á krakka 2ja til 6 ára.
Teens & Kids, föt á krakka 3ja til 16
ára. Ps. Company, nýjasta tíska fyrir
unga fólkið. Apart kvenfatnaður,
Chic & Charme, dömufatnaður, So
Bin Ich, föt fyrir konur í stórum
númerum, 40–58. Fair Lady, klass-
ísk og kvenleg föt í öllum stærðum.
Heine, tískufatnaður, húsgögn og
húsbúnaður.
Otto vörulistar eru með afgreiðslu
í Njarðarnesi 1 á Akureyri. Þess ber
að geta að Otto er með heimasíðu á
Netinu þar sem hægt er að fletta
listanum ásamt því að panta vörur og
lista. www.otto.is
♦ ♦ ♦