Morgunblaðið - 31.08.2001, Side 1

Morgunblaðið - 31.08.2001, Side 1
197. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 31. ÁGÚST 2001 NIKOLAY Soltys, maðurinn, sem ætlað er að hafi myrt eiginkonu sína og fimm aðra ættingja, var handtek- inn í gær eftir að bróðir hans sagði til hans, en hans hafði verið leitað í tíu daga. Soltys var á heimili móður sinn- ar þegar tugir lögreglumanna réðust þar inn og fannst hann undir skrif- borði. Hann var berfættur og illa klæddur og höfðu lögreglumennirnir á orði að hann hefði eins getað verið að fela sig úti á akri, svo illa til fara var hann. Soltys veitti ekki neina mót- spyrnu þegar lögreglumennirnir tóku hann höndum. Bróðir hans, sem var í heimsókn hjá móður þeirra, sá Soltys bregða fyrir og flúði með móðurina og fjóra aðra fjölskyldumeðlimi á brott. Hann hringdi svo í neyðarlínuna og tilkynnti lögreglunni um ferðir bróð- ur síns. Það er því ljóst að enginn ætt- ingjanna hélt hlífiskildi yfir Soltys. Á bréfmiða sem fannst í bíl Soltys sagðist hann hafa myrt fólkið vegna þess að það hefði tjáð sig um mál sem honum fannst að ættu ekki að fara hátt. Bíllinn fannst við pappakassa sem geymdi lík sonar Soltys. Sacramento Morðing- inn hand- tekinn Citrus Heights, Kalifornía. AP. ÞRÍR féllu og tugir særðust í óvenju hörðum bardögum í Ísrael í gær. Tveir Palestínumenn féllu og 30 særðust í skotbardögum við ísr- aelska hermenn í bænum Hebron og á fleiri stöðum á Vesturbakkanum og Gaza. Þá var ísraelskur hermaður skotinn til bana af grímuklæddum manni í bænum Naalin þar sem hann sat á veitingastað. Hæst setti með- limur Lýðræðissinnuðu frelsishreyf- ingar Palestínumanna (DFLP) á Vesturbakkanum, Khayis Abu Leila, slapp lifandi þegar Ísraelsher gerði eldflaugaárás á heimili hans seint í gærkvöld. DFLP hefur lýst ábyrgð á hendur sér vegna árásar á herbúðir Ísraelshers á laugardag. Meðan á þessu stóð var ástandið tiltölulega rólegt í bænum Beit Jalla, en utan- ríkisráðherra Ísraels, Shimon Peres, og leiðtogi palestínsku heimastjórn- arinnar, Yasser Arafat, náðu í fyrra- dag samkomulagi um að ísraelskir hermenn yfirgæfu bæinn. Peres hef- ur barist fyrir því að endanlegu vopnahléi verði komið á í þrepum, og að hafist verði handa á þeim svæðum þar sem áhrif Arafats eru mest. Byssum beint að starfsmönnum SÞ Bílalest á vegum Sameinuðu þjóð- anna (SÞ) sem var á leið um Gaza- svæðið var stöðvuð af ísraelskum skriðdrekum nærri bænum Rafah. Peter Hansen, yfirmaður hjálpar- stofnunar SÞ, gekk í átt að hermönn- unum og vildi ræða við yfirmann þeirra. Einn hermaðurinn kallaði þá til hans: „Snúðu umsvifalaust við eða við munum skjóta.“ Fallbyssu skrið- drekans var svo snúið að Hansen og fleiri skriðdrekar óku að bílalestinni. Eftir nokkurt þóf fengu Hansen og félagar að halda för sinni áfram. Hansen sagði við fréttamenn sem ferðast með honum að tilgangur hersins væri að hræða sig. Ísraelskir hermenn við landamær- in að Líbanon voru við öllu búnir í gær, enda var óttast að Hezbollah- skæruliðar gerðu harðar árásir á búðir Ísraelshers á svæðinu. Skæru- liðarnir skutu nokkrum sinnum að ísraelskum herflugvélum sem flugu yfir S-Líbanon í gær, en þegar blaðið fór í prentun hafði ekkert markvert gerst á jörðu niðri. Um miðjan septembermánuð verður arftaki Mustafa Zibri, sem féll í eldflaugaárás Ísraelshers á mánudag, kjörinn netkosningu. Sjö- tíu og sjö meðlimir miðstjórnar Þjóð- frelsishreyfingarinnar (PF) kjósa. Óvenju harðir bardagar Beit Jalla, Jerúsalem, Rafah. AP, AFP. Ísraelskir hermenn beindu byss- um sínum að starfsmanni SÞ Í NÝJU tilbrigði við svokallað „raunveruleikasjónvarp“ hefur tyrknesk sjónvarpsstöð nú hafið útsendingar á framhaldsþætti, þar sem tvenn millistéttarhjón í Istan- búl keppast um að sýna hvort þau geti lifað af opinberum lágmarks- taxtalaunum sem svara til 84 Bandaríkjadala eða 8.300 ís- lenzkra króna á mánuði. Engin Ozden, einn keppend- anna, leggur það á sig að ganga í fjóra klukkutíma á dag úr sjón- varpsstúdíóinu til vinnu sinnar til þess að spara strætisvagnafar- gjaldið, sem er 500.000 tyrkneskar lírur, andvirði 35 króna. Keppinautar hans, Hikmet og Suzan Kocaibrahimoglu, borða hrökkbrauð og sitja undir ljósa- staur á kvöldin til að spara raf- magn. Þau hafa hvort um sig lést um 9 kg frá því þáttaröðin hófst um mánaðamótin síðustu. Suzan Kocaibrahimoglu hefur ekki unnt sér þess að nota svitalyktareyði allan mánuðinn. „Það er útilokað að lifa af þess- um peningum,“ segir hún. „Þetta eru eins konar pyntingar.“ En þátturinn lýsir þeim raun- veruleika sem hundruð þúsunda tyrkneskra fjölskyldna takast á við dag hvern – að reyna að láta enda ná saman af launum sem rýrna stöðugt vegna gengissigs lírunnar. Keppni í fátækt Istanbúl. AP. GENGI evrunnar, sameiginlegrar myntar 12 aðildarríkja Evrópusam- bandsins (ESB), styrktist örlítið eft- ir að seðlabanki Evrópu (ECB) lækkaði vexti í annað skipti á þessu ári. Gengi evrunnar gagnvart Bandaríkjadal hækkaði úr 0,9090 í 0,9129 eftir að ECB tilkynnti um 0,25% vaxtalækkun bankans, en vextir eru nú 4,25%. Fjárfestar hresstust einnig við þau ummæli for- stjóra bankans, Wim Duisenbergs, að vaxtalækkunin hefði verið mögu- leg vegna minnkandi hættu á verð- bólgu, en viðurkenndi einnig að yf- irmenn ECB hefðu vanmetið vandræði þau er bandarískt efna- hagslíf á við að etja. Sagði hann að sterkari evra myndi minnka verð- bólguhættuna enn frekar og spáði hann því að stöðugleiki í verðlagi væri ekki langt undan. Fjármálasér- fræðingar sögðust vonsviknir yfir því að Duisenberg skyldi ekki ræða um langtímaáætlanir bankans en sögðust búast við því að bankinn lækkaði vexti enn frekar tæki efna- hagslíf svæðisins ekki við sér á næstu mánuðum. Horfur ekki góðar Hagfræðingar benda á að horfur í efnahagsmálum í Evrópusamband- inu séu ennþá heldur dökkar og að ekki megi búast við of miklum ár- angri af vaxtalækkun gærdagsins. „Menn bjuggust við lækkun og þess vegna verða áhrif hennar ekki eins mikil og ella,“ sagði hagfræðingur við Deutsche Bank í Frankfurt. Fyrr í þessum mánuði viður- kenndi bankinn að spá hans um 2– 2,5% hagvöxt á Evrusvæðinu væri fullbjartsýn og að horfur væru mun dekkri. Duisenberg neitaði þó að tjá sig um þetta mál á fréttamannafundi í gær. Vaxtastjórnun er helsta tæki seðlabanka heimsins til að hafa áhrif á efnahagslíf viðkomandi svæða. Með því að hækka vexti á út- og inn- lánum hvetja bankarnir til þess að fólk leggi fé sitt til hliðar og taki síð- ur lán og er það gert til að slá á verð- bólgu. Lækki bankar vexti hvetja þeir almenning til að taka lán og nota fé til fjárfestingar og neyslu og er það gert til að glæða efnahaginn lífi. Verðbólga á evru-svæðinu virðist vera í rénun, en hún náði hámarki í maímánuði þegar hún mældist 3,4%. Helstu ástæður verðbólgunnar voru hækkandi verð á orku og matvælum, en hækkandi gengi á evrunni gagn- vart Bandaríkjadal ætti að leiða til lækkunar á eldsneytisverði á evru- svæðinu. Gengi evrunnar hefur hækkað um meira en tíu prósent síð- an í júlí og spá margir sérfræðingar því að sú þróun muni halda áfram. Duisenberg sagðist í gær vera mjög ánægður með gengi evrunnar. Fjármálasérfræðingar um vaxtalækkun Evrópubankans Spá frekari lækkun Frankfurt, London. AP, AFP. AP Wim Duisenberg hleypti í gær af stokkunum kynningarherferð fyrir nýja evrumynt sem fer í almenna dreifingu um næstu áramót. LÍTIL stúlka á A-Tímor bíður ásamt foreldrum sínum fyrir utan kjörstað í bænum Manatuto, um 40 km austan við höfuðborgina Dili. Í gær fóru fram fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í landinu, en kosið er til stjórnlagaþings sem fær það hlutverk að semja stjórnarskrá fyr- ir ríkið. Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) hafa farið með stjórn landsins frá árinu 1999, eða eftir að íbúar þess ákváðu í þjóðaratkvæðagreiðslu að segja sig úr lögum við Indónesíu og stofna sjálfstætt ríki. Í kjölfar at- kvæðagreiðslunnar 1999 fylgdu miklar óeirðir þegar stuðnings- menn Indónesíustjórnar gengu ber- serksgang og réðust á fólk og fast- eignir. Umboð SÞ rennur út 31. janúar 2002 og er vonast til þess að þá muni innfæddir geta tekið við stjórnartaumunum. Reuters Kosningar á A-Tímor

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.