Morgunblaðið - 31.08.2001, Side 30

Morgunblaðið - 31.08.2001, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÍSLENDINGAR hafa tilmargra ára neytt mun meiraaf lambakjöti en aðrar þjóðir,en þetta hefur verið að breyt- ast því neysla á kjúklingum og svínakjöti hefur aukist ár frá ári. Flest bendir til að neysla okkar á kjöti eigi eftir að verða líkari því sem gerist meðal nágrannaþjóða okkar. Allt bendir því til að veruleg- ir vaxtarmöguleikar séu í kjúk- linga- og svínarækt á næstu árum. Þetta virðist a.m.k. vera mat stærstu framleiðendanna á þessum markaði sem standa nú í miklum fjárfestingum. Þegar fjallað er um framleiðslu og sölu á kjúklingum og svínum er nauðsynlegt að hafa í huga að þessi framleiðsla býr við allt aðrar að- stæður en hefðbundin búvörufram- leiðsla. Fyrir það fyrsta njóta kjúklinga- og svínakjötsframleiðendur ekki beinna styrkja úr ríkissjóði eins og sauðfjárbændur og kúabændur gera. Ekki er þó hægt að tala um að framleiðendur njóti engrar verndar því að stjórnvöld hafa búið svo um hnútana að nær enginn innflutning- ur er á kjúklingum og svínakjöti. Það er einnig nauðsynlegt að hafa í huga að aðstæður framleiðenda í kjúklinga- og svínarækt annars vegar og sauðfjárframleiðenda hins vegar eru mjög ólíkar. Á síðasta ári voru framleidd um 9.700 tonn af kindakjöti og það gerðu um 2.800 bændur. Um 30 svínabændur fram- leiddu aftur á móti tæplega 5.000 tonn af svínakjöti í fyrra og 10–15 kjúklingabændur framleiddu rúm- lega 3.200 tonn af kjúklingum. Raunar eru tveir aðilar, Braut- arholtsbúið og Vallárbúið, komnir með fast að 70% af svínakjötsmark- aðinum og tveir aðilar, Reykjagarð- ur og Móakjúklingar, eru með um 80% af kjúklingamarkaðinum. Á síðustu árum hefur orðið veruleg samþjöppun í framleiðslu á svínum og kjúklingum. Búum hefur fækk- að, sérstaklega í svínarækt, og stærstu búin hafa stækkað mikið. Neysla á kjúklingum hefur aukist mikið Afkoma í kjúklingarækt batnaði mikið fyrir nokkrum árum þegar stjórnvöld heimiluðu sölu á ófrosn- um kjúklingum. Við það jókst salan mjög mikið. Árið 1996 voru fram- leidd 1.700 tonn af kjúklingum, en í fyrra nam framleiðslan 3.200 tonn- um og flest bendir til að framleiðsl- an í ár verði ekki undir 3.400 tonn- um. Neysluaukningin á síðasta ári var 10%, en aukningin 1997, 1998 og 1999 var enn meiri. Ástæðan fyrir því að stjórnvöld leyfðu ekki sölu á ferskum kjúklingi fyrr en 1997 var ótti við smit af völdum salmonellu og kamphýló- bakter. Vel gekk að halda salmon- ellusmiti niðri en kamphýlóbakter- sýkingum fjölgaði hins vegar mikið. Á miðju ári 1999 komu fram í fjöl- miðlum ásakanir um skort á hrein- læti hjá Reykjagarði, en þar hafði greinst kamphýlóbaktersýking í kjúklingum. Þetta hafði mikil áhrif á rekstur Reykjagarðs, sem er stærsti einstaki framleiðandi kjúk- linga á landinu. Umræða um kamphýlósýkingar hafði einnig um- talsverð áhrif á kjúklingaræktina í heild. Það dró tímabundið úr sölu og verð lækkaði. Við bættist að Reykjagarður varð fyrir talsverðu tjóni í fyrra í jarðskjálftunum á Suðurlandi. Bæði varð fyrirtækið fyrir beinu tjóni á eignum og eins höfðu skjálftarnir þau áhrif að framleiðslan varð ekki eins mikil og hún hefði annars orðið. Þessi tvö áföll, kamphýlósmitið og jarðskjálftarnir, áttu mikinn þátt í því að tap varð á rekstri Reykja- garðs í fyrra. Samkeppni Móa og Reykja- garðs um að byggja sláturhús Reykjagarður hefur í allmörg ár rekið kjúklingasláturhús á Hellu þar sem slátrað var kjúklingum frá fyrirtækinu og fleiri framleiðend- um. Nauðsynlegt var talið að fara út í endurbætur á húsinu og höfðu eig- endur Reykjagarðs áformað að setja á fót nýtt kjúklingasláturhús í Borgarnesi í húsi sem áður hýsti Mjólkursamlag Borgfirðinga. Raunar gekk Reykjagarður frá kaupum á húsinu í ársbyrjun 2000 og jafnframt tilkynnti Bjarni Ás- geir Jónsson, eigandi Reykjagarðs, að fyrirtækið áformaði að byggja upp nýja útungunarstöð í Borgar- firði. Reykjagarður hafði frá árinu 1988 slátrað kjúklingum fyrir Móakjúklinga í Mosfellsbæ. Bjarni Ásgeir segir að þegar hann tók ákvörðun um að flytja slátrun upp í Borgarnes hafi ekkert legið fyrir um hvort þar yrði slátrað kjúkling- um frá Móum. Óformleg samtöl fóru á milli hans og Kristins Gylfa Jónssonar, stjórnarformanns Móakjúklings, um samstarf um slátrun. Hugmyndir þeirra um upp- byggingu á nýju sláturhúsi fóru hins vegar ekki saman. Móabúið hafði verið að auka markaðshlut- deild sína og svo fór að Móakjúk- lingur réðst í byggingu nýs slátur- húss í Mosfellsbæ. Framkvæmdir hófust í ágúst í fyrra og var húsið tekið formlega í notkun í júlí í sum- ar. Húsið, sem er 5 þúsund fermetr- ar að stærð, er búið fullkomnum tækjum og getur afkastað miklu meiru en sláturhús Reykjagarðs á Hellu. Ljóst má vera að þessi eigenda Móakjúklings að nýtt sláturhús, sem kos milljónir, var djörf. Fyr Reykjagarður ætlaði sér a sláturhús í Borgarnesi og ilar, Íslandsfugl á Dalvík um svipað leyti að þeir æ að hefja framleiðslu og by nýju sláturhúsi. Þegar fyrir lá að tveir að að byggja sláturhús og að f an var aukin samkeppn Bjarni Ásgeir, eigandi garðs, sem hefur verið öflu ilinn í kjúklingarækt í mö hætta við að byggja slá Borgarnesi. Í framhaldi a hann ákvörðun um að se tækið. Hann valdi þann k þessum tímapunkti freka hella sér í miklar fjárfest harða samkeppni sem e fyrir hvernig myndi enda. Sláturhús Móa kost 700 milljónir Samkeppnisaðilar Móak segja að sláturhúsið í Mosf alltof stórt og dýrt og að þ lokað að rekstur þess ge upp. Í fréttatilkynningu, s var út þegar sláturhúsið formlega í notkun, segir a húsið afkasti 2.500 kjúkl klukkustund. Það þýðir að er hægt að slátra 20.000 kjú á dag ef það er keyrt í 8 samanburðar má geta þes urhús Reykjagarðs gat 1.200–1.500 kjúklingum á stund. Meðan þar var slát lingum fyrir Reykjagarð kjúkling var þar að jafnað um 40.000 kjúklingum á vik Miðað við markaðs Móakjúklinga í dag er fy innan við átta klukkutíma vikuframleiðslu kjúkling Kristinn Gylfi sagði í sa Morgunblaðið að afkastag stöðvarinnar væri ekki mi en sláturhúss Ísfugls í M eða hins nýja sláturhúss fugls á Dalvík. Þessi slátur öll með minnstu sláturlí hægt væri að fá á marka Móastöð væri hins vega kjötvinnsla, kælikerfi, dr starfsmannaaðstaða en í hi irtækjunum enda væri stærra fyrirtæki að ræð sagði að þegar ákvörðun v um að reisa Móastöðina he lagðar fram ítarlegar reks anir sem sýndu jákvæð stöðu. Menn yrðu í þessu s að hafa í huga að Móakj hefði verið í mikill sókn á m um. Framleiðslan hefði ve lega 1.000 tonn í fyrra o væri að því að framleiða 1.6 ár. Aðspurður neitaði Krist því alfarið að í forsend rekstri Móastöðvarinnar h reiknað með því að kjú Reykjagarðs yrði slátrað tækinu. „Móastöðin var fremst byggð með tilliti Móabúsins og með tilliti framtíðarplana sem við vor Hún skilar ágætu á þeim sem við lögðum upp með yrði að sjálfsögðu enn hag ef við tækjum einnig að okk un fyrir Reykjagarð,“ sag inn Gylfi. Sláturhúsið er í eigu La Það er ekki á allra v eigandi nýja kjúklingaslátu er ekki Móakjúklingar Landsafl, sem er fjárfest fasteignafélag í eigu Í aðalverktaka, Landsbank Samþjöppun og festingar eink kjúklingamark Stærstu framleiðendur kjúklinga og svína- kjöts hafa á síðustu árum staðið í miklum fjárfestingum. Samþjöppun hefur átt sér stað á markaðinum og ekki er útilokað að tvö fyrirtæki, sem eru með 80% af kjúk- lingamarkaðinum, sameinist. Egill Ólafs- son kannaði það sem hefur verið að gerast á þessum markaði, en á aðeins einu ári hafa verið byggð tvö kjúklingasláturhús fyrir tæpar 900 milljónir og endurbætur standa yfir á því þriðja. VANDI HEIMILISLAUSRA MENNINGARSÖGULEGT SLYS Íþróttahús og sundlaug við Hér-aðsskólann á Laugarvatni vorurifin fyrir skemmstu án þess að leitað væri álits húsafriðunarnefnd- ar, þótt þau hafi verið höfundarverk eins merkasta arkitekts Íslendinga, Guðjóns Samúelssonar, húsameist- ara ríkisins frá 1919–1950. Niðurrif þessara bygginga hefur vakið nokkra athygli enda höfðu þær ekki einungis byggingarsögulega þýð- ingu heldur voru þær einnig mikil- vægur þáttur í íþrótta- og mennta- sögu þjóðarinnar. Starfshópi á vegum menntamála- ráðuneytisins var falið að fjalla um framtíð þessara húsa og vekur nokkra eftirtekt að enginn arkitekt skuli hafa átt sæti í nefndinni. Það vekur einnig alvarlegar efasemdir um réttmæti þessara aðgerða að húsafriðunarnefnd skuli ekki hafa verið gert kunnugt um að rífa ætti húsin áður en hafist var handa við verkið. Lögformlega er ekki skylt að bera niðurrif á húsum sem byggð eru eftir 1918 undir húsafriðunar- nefnd, nema þau hafi verið friðuð af öðrum orsökum. Samt sem áður hef- ur tíðkast að leita álits nefndarinnar varðandi hús Guðjóns, sem og önnur hús með menningarsögulegt gildi. Haft er eftir Magnúsi Skúlasyni, framkvæmdastjóra húsafriðunar- nefndar ríkisins, í Morgunblaðinu í gær að „þótt menn hafi farið að lög- um þarna [beri] þeim einnig að gæta sín og fara varlega eins og í þessu tilfelli þegar menningarverðmæti eiga í hlut“. Hann bendir á að önnur hús eftir Guðjón Samúelsson, svo sem Sundhöllin í Reykjavík, Þjóð- leikhúsið og fleiri, séu ekki friðuð og um þau gildi sömu reglur og húsin á Laugarvatni þar sem þau séu byggð eftir 1918. Því er full ástæða til að taka undir þau orð Magnúsar að „sá möguleiki [sé] þó fyrir hendi að friða öll hús Guðjóns, sérstaklega ef hætta [sé] á að þau verði rifin, án þess að húsafriðunarnefnd sé kölluð til álits“. Erlingur Jóhannsson, skorar- stjóri íþróttaskorar Kennarahá- skóla Íslands, sem sæti átti í fyrr- nefndum starfshópi mennta- málaráðuneytisins, segir í frétt blaðsins í gær að allir þeir sem lögðu mat á íþróttahúsið hafi verið sam- mála um að „það væri ónýtt og myndi ekki borga sig að gera við það“. Jafnframt segir hann að ósk menntamálaráðuneytisins hafi verið að húsin yrðu „annaðhvort endur- byggð eða rifin, og niðurstaðan varð að það var hagstæðara að rífa þau enda fengum við mjög gott tilboð í niðurrifið …“ Líklega þarf ekki að efast um að húsin á Laugarvatni hafi verið illa farin og það er slæmt til þess að vita að þau skuli hafa fallið í slíka nið- urníðslu. En burtséð frá slæmu ástandi bygginganna mætti ætla að hagkvæmnissjónarmið ein og sér réðu ekki úrslitum í þessu sambandi heldur sjónarmið tengd menningar- og byggingarsögulegum verðmæt- um. Þegar um slík verðmæti er að ræða er það tjón sem felst í niðurrifi að sjálfsögðu fullkomlega óbætan- legt. Í bók Harðar Ágústssonar um ís- lenska byggingararfleifð segist hann enga þjóð þekkja „sem er eins rúin byggingarsögulegum minjum og Íslendinga“, en hann telur síðan upp fjölmörg dæmi um hús sem rifin voru vegna skeytingarleysis og skorts á virðingu fyrir þeirri litlu byggingararfleifð sem þó er fyrir hendi. Hörður segir að þær friðun- aróskir sem þegar hafa verið settar fram hér á landi séu í raun nauðvörn og þótt „bent hafi verið á hús sem þykir nauðsynlegt að friða eða vernda er ekki þar með sagt að hin- um megi á glæ kasta. Við sérhvert gamalt hús þarf að beita nærfærni“, segir hann. Óskandi hefði verið að verk Guðjóns Samúelssonar á Laug- arvatni hefðu notið slíkrar nær- færni. Heimilislausir á landinu eru nú226 manns samkvæmt tölum kristilega líknarfélagsins Byrgisins og eru rúmlega 200 af þeim á höf- uðborgarsvæðinu. Steinunn Mar- inósdóttir, skrifstofustjóri Byrgis- ins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hún teldi að þessi tala væri síður en svo of há og sennilega væru enn fleiri heimilislausir. Það er þungt til þess að hugsa að á Íslandi sé fólk, sem þjóðfélagið hef- ur allt að því snúið baki við, fólk, sem ekki á í neitt hús að venda, hef- ur engin úrræði og lendir á götunni. Örlög þessa fólks eru ekki ofarlega í umræðunni á Íslandi. Daglega má lesa fréttir af fólki, sem verður heimilislaust erlendis, yfirleitt vegna náttúruhamfara eða styrj- alda. Hér á landi eru ekki slíkar að- stæður, hvorki af völdum náttúru né stríðs. Í fæstum tilfellum er vandinn því utanaðkomandi. Margar ástæð- ur geta legið að baki því að einstak- lingur verður heimilislaus. Steinunn Marinósdóttir nefnir að oft fari sam- an eiturlyf og geðsjúkdómar og seg- ir að ástandið í þjóðfélaginu sé geig- vænlegt. Íslenskt þjóðfélag er ekki þannig statt að það sé hægt að af- saka að einstaklingar, sem þurfa á læknisþjónustu að halda, fái hana ekki. Íslenskt þjóðfélag er ekki í þeim hremmingum að ekki sé hægt að rétta bágstöddustu íbúum lands- ins hjálparhönd. Eftir því sem samfélög verða stærri og fjölmennari eykst fjar- lægðin milli manna. Eymd náung- ans hættir að snerta þann, sem fram hjá gengur. Heimilisleysi verður eins og óafmáanlegur blettur á sam- félaginu – óhjákvæmilegur fylgi- fiskur. Við erum ekki komin á það stig í þessu landi smæðar og návígis að taka slíku sem sjálfsögðum hlut. Það þarf að grípa til úrræða sem fyrst og þar duga ekki bráðabirgða- lausnir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.