Morgunblaðið - 31.08.2001, Síða 40
MINNINGAR
40 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Halldór Guðna-son fæddist í
Þverdal í Aðalvík 12.
júlí 1917. Hann lést á
heimili sínu á Lind-
argötu 64, 22. ágúst
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Guðni
Ísleifsson, f. 5. febrú-
ar 1875, d. 2. apríl
1949, bóndi í Þverdal
frá 1917 til dánar-
dags, og Veronika
Borgarsdóttir, f. 2.
nóv. 1880, d. 13. apríl
1966.
Halldór var fyrir
búi með móður sinni í Þverdal
1948–1952. Systkini Halldórs eru:
Þórunn Friðriksdóttir, f. 12.
febrúar 1909, d. 26. desember
1997. Pálína Guðnadóttir, f. 15.
september 1921. Fósturdóttir
þeirra hjóna var Sigrún Guð-
laugsdóttir, f. 6. júní 1925, og
fóstursonur Marteinn Árnason, f.
1936.
Halldór átti einn
son með Þóru Ara-
dóttur, f. 8. október
1927. Hann er Ari
Reynir Halldórsson,
f. 25. júní 1954.
Kona hans er Guð-
laug Eygló Elliða-
dóttir, f. 10. júní
1956. Börn þeirra
eru: Viðar Arason, f.
30. okt. 1982, og Atli
Valur Arason, f. 20.
júní 1988.
Eftir að Halldór
flutti til Reykjavíkur
var hann kaupmað-
ur til 1969, en þá gerðist hann
dyravörður við Barnaskóla
Garðahrepps. 1971 var hann ráð-
inn dyravörður og baðvörður við
Árbæjarskóla og starfaði þar til
1987, er hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Útför Halldórs fer fram frá
Laugarneskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Ævisól föður míns er hnigin til við-
ar. Pabbi sem ólst upp við fráfærur og
túna- og engjaslátt með orfi og ljá,
vinnuhætti sem eru okkur nútíma-
fólki mjög svo framandi. Pabbi var
mikill gleðimaður og ljúfmenni í allri
umgengni, við vini, ættingja og sam-
starfsfólk. Hann ferðaðist víða, bæði
innanlands og erlendis, en mest
fannst honum alltaf til um að fara til
Aðalvíkur. En úr Aðalvík fluttist þú
burt með ömmu og Massa haustið
1952, ásamt annarri fjölskyldu, og þar
með lagðist byggð alfarið niður í
Sléttuhreppi.
Það var því stór stund í fyrra, er við
fórum feðgarnir ásamt afastrákunum
Viðari og Atla Vali til Aðalvíkur. Þú
varst svo stoltur að sýna þeim sveit-
ina þína, sem hugur þinn leitaði ávallt
til. Þú varst vakinn og sofinn yfir vel-
ferð afastrákanna þinna, enda er
missir þeirra mikill, en öll getum við
huggað okkur við það að þú stendur
beinn, frammi fyrir skapara þínum,
nú er ævistarfi þínu er lokið.
Og við kveðjum þig í hinsta sinn,
elsku pabbi, tengdapabbi og afi.
Hafðu þökk fyrir allt.
Guð geymi þig.
Ari Reynir.
Halldór Guðnason, fyrverandi
kaupmaður, fæddist í Þverdal í Að-
aldal norður í Ísafjarðarsýslu og ólst
þar upp. Hann stundaði nám við
bændaskólann á Hólum og lauk það-
an búfræðiprófi.
Halldór hélt bú með móður sinni
eftir lát föður síns til 1952 er hann
flutti til Reykjavíkur. Hann var þá
síðasti ábúandinn í Sléttuhreppi áður
en hreppurinn lagðist í eyði. Aðalvík-
in var honum alltaf í fersku minni og
fór hann þó nokkrar ferðirnar þangað
eftir að hann fluttist til Reykjavíkur.
Ég kynntist Halldóri fyrst þegar
hann bjó á Suðurlandsbrautinni. Þá
var stundum glatt á hjalla.
Fyrst man ég þó eftir kakóveislu
sem við stöllurnar fórum í og meira
segja pönsur með rjóma og fleiri voru
nú boðin líka. Ég kveð þig nú með
þökk fyrir að hafa fengið að kynnast
þér.
Þú varst öllum góður og tókst öll-
um vel sem komu til þín. Gott hjarta-
lag og hreinskilni einkenndi þig.
Börnunum mínum varstu sérstaklega
góður.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Reynir, Eygló, Viðar og Atli
Valur. Guð styrki ykkur.
Nína, Ævar og börn.
Það var á miðvikudagsmorgun.
Mamma og pabbi bönkuðu á dyrnar
heima. Ég fann strax að eitthvað
hafði komið fyrir. Það sem ég hafði
kviðið fyrir í mörg ár hafði gerst. Afi
var dáinn. Það má segja að ég hafi
ekki tekið því jafnilla og ég hélt að ég
myndi gera. Alveg síðan þú byrjaðir
að vera veikur fyrir hjartanuhef ég
verið að velta því fyrir mér hvar ég
yrði og hvernig ég myndi taka því. Ég
held, afi, að við séum báðir jafnsterkir
í okkur og höfum því alltaf vitað að
þetta myndi gerast fyrr eða seinna.
Þú munt alltaf vera stærsti partur í
hjarta mínu og Atla því þú lifðir fyrir
okkur og gerðir allt fyrir okkur. Ég
mun aldrei gleyma því, afi, þegar þú
sagðir við mig að ég væri alltaf vel-
kominn til þín, sama hvað ég hefði
gert, enda vissi ég það líka að ég gat
alltaf leitað til þín, sama hvað vanda-
málið væri og alltaf hjálpaðir þú mér.
Ég get lofað þér því, afi, að ég mun
fara aftur til Aðalvíkur og klára að
skoða hana alla. Ég man þegar við
vorum þar og það var svo kalt að ég
gat varla sofnað og þú varst með
áhyggjur af því alla nóttina. Þú varst
alltaf að spyrja hvort ég vildi ekki fá
teppið þitt og ég sagði að ég væri fínn.
Svo vaknaði ég frosinn, ég vildi sko
ekki að afa yrði kalt.
Þú varst alltaf svo góður við alla,
sama hver það var, þú vildir alltaf
hjálpa öllum og ég efast ekki um að ég
hafi lært það af þér. Og ekki vantaði
stuðið í þig eins og þegar þú lást á
spítalanum og við Hjörtur komum að
heimsækja þig og þú skildir ekki al-
veg hvernig þú ættir að vera með
heyrnartólin og þegar þú heyrðir í
tónlistinni fórstu að sveifla höndun-
um og ég og Hjörtur gátum ekki hætt
að hlæja. Það er eitt það fyndnasta
sem ég hef séð lengi.
Það er svo margt sem ég lærði af
þér og mun aldrei gleyma. En það er
svo margt sem ég gæti skrifað um þig
að það mundi fylla heila bók því líf þitt
var svo fjölskrúðugt og og litríkt. En í
staðinn ætla ég að halda minningun-
um um besta afa í heimi fyrir sjálfan
mig.
Ég veit þú ert á himnum í Guðs
vernd og þú munt ávallt fylgja okkur
bræðrunum hvert sem við förum og
andi þinn mun verja okkur og styrkja.
Bless, afi, ég mun ávallt elska þig.
Viðar.
HALLDÓR
GUÐNASON
✝ María JúlíanaSveinsdóttir
fæddist á Flateyri 14.
febrúar árið 1915.
Hún lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 24. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Sveinn
Sigurðsson, bakara-
meistari á Flateyri og
síðar útvegsbóndi í
Arnardal við Skutuls-
fjörð, f. 10.6. 1888, d.
16.12. 1972, og seinni
kona hans, Hólmfríð-
ur S. Kristjánsdóttir,
f. á Flateyri 5.11. 1890, d. 17.11.
1961. Hálfsystir Maríu var Viktoría
Júlía Sveinsdóttir, f. 13.5. 1913, d.
26.4. 2001, hún var dóttir Viktoríu
Júlíu Ólafsdóttur, fyrri konu Sveins
er lést 26.10. 1913. Systkini Maríu
eru: Sigurður farmaður, f. 17.9.
1916, d. 10.11. 1944, Kristján Bjarni
stýrimaður, f. 15.11. 1917, d. 18.12.
1991, Halldóra hjúkrunarfræðing-
meistara frá Auðnum í Laxárdal, f.
19. febrúar 1909, foreldrar hans
voru Hildur Benediktsdóttir og Jón
Pétursson, bændur á Auðnum. Þór-
ólfur dvelur nú á heimili aldraðra í
Sunnuhlíð í Kópavogi.
Fyrir hjónaband átti María son-
inn Stefán Árnason, f. 31.1. 1938, d.
6.7. 1979, faðir hans var Árni Þor-
bergsson frá Geitaskarði í Austur-
Húnavatnssýslu. Börn Maríu og
Þórólfs eru: 1) Hólmfríður Þórólfs-
dóttir, f. 2.6. 1948, maki Björn
Brekkan Karlsson, sonur þeirra er
Björn Brekkan, börn Björns og
stjúpbörn Hólmfríðar eru Einar
Sigurður og Þóra Karen. 2) Sverrir
Örn Þórólfsson, f. 16.07.1950, maki
Þórdís Gissurardóttir, börn þeirra
eru: Aron Reyr, Ragnheiður María,
sonur hennar er Alexander, og
Sverrir Örn, stjúpsonur Sverris og
sonur Þórdísar er Ívan Burkni.
María vann í tíu ár við umönnun
barna á Kópavogshæli, eða þar til
hún lét af störfum vegna aldurs.
Hún söng með Pólýfónkórnum um
14 ára skeið undir stjórn dr. Ró-
berts A. Ottóssonar og með kirkju-
kór Kópavogskirkju í um 20 ár.
Útför Maríu fer fram frá Kópa-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
ur, f. 29.9. 1919, d.
19.12. 1985, Anna Guð-
rún húsmóðir, f. 2.4.
1921, d. 30.12. 1971,
Ólafía Steinunn, hjúkr-
unarfræðingur og ljós-
móðir, f. 4.9. 1928, d.
25.7. 1997, Þorgerður
húsmóðir f. 4.5. 1930,
og Unnur Kolbrún
rannsóknarmaður f.
28.4. 1934. Áður eign-
aðist Sveinn soninn
Pálma Svein með Sig-
rúnu Jónsdóttur frá
Súðavík.
María ólst upp í Arn-
ardal og stundaði þar nám og störf
við heimili foreldra sinna og á Ísa-
firði þar sem hún naut einnig
kennslu í orgelleik. Hún fór í
Kvennaskólann á Blönduósi vetur-
inn 1933–1934. Eftir það nam hún
og vann við matreiðslu í Reykjavík
og víðar til fjölda ára.
Hinn 7. nóvember 1947 giftist
María Þórólfi Jónssyni, byggingar-
Blessuð vertu, baugalín.
Blíður Jesús gæti þín,
elskulega móðir mín;
mælir það hún dóttir þín.
(Ágústína J. Eyjólfsdóttir.)
Elsku mamma mín, hvíl þú í Guðs
friði.
Hólmfríður.
Við andlát Maríu frænku okkar
hrannast upp minningar frá langri og
ánægjulegri samferð. Meðal fyrstu
æskuminninga er ferð frá heimili okk-
ar í Hnífsdal með afa og ömmu til að
heimsækja frændfólkið í Arnardal.
Farið var þangað á árabát, því engir
voru bílar eða vegir til slíkra ferða-
laga á þeim árum. Tilhlökkun okkar
var mikil. Þegar til Arnardals var
komið tóku Sveinn móðurbróðir okk-
ar og Hólmfríður kona hans á móti
okkur í fjörunni með myndarlega
barnahópinn, sem þá var kominn til
sögunnar. Þegar í land var komið lá
leiðin í Heimabæ, þar sem frændfólk
okkar bjó. Þar beið okkar rjúkandi
súkkulaði og alls konar góðgæti, enda
voru þau hjónin höfðingjar heim að
sækja. Sama hefur einnig komið
glöggt í ljós meðal afkomenda þeirra.
Í myndarlegum barnahópnum. Dótt-
irin Maja vakti strax athygli okkar
systranna, enda falleg, frjálsleg og
glaðleg.
Maja var nokkru eldri en við og lit-
um við til hennar með mikilli aðdáun í
heimsóknum hennar til afa okkar og
ömmu í Hnífsdal, þegar hún var orðin
stálpuð stúlka. Hún var fljót að til-
einka sér strauma tískunnar á hverj-
um tíma, kenndi okkur að púðra okk-
ur og mála. Satt að segja rak okkur í
rogastans þegar við uppgötvuðum hjá
henni hvað við vorum miklar sveitapí-
ur, fáfróðar um alla tísku og glæsi-
leika í klæðaburði. Ekki hvað síst var
það, þegar hún kom forfrömuð úr höf-
uðstaðnum í skóm með háum hælum,
í dragt og með hatt – sannkölluð hefð-
ardama. Dugnaður reisn og myndug-
leiki setti svip á allt hennar líf – hún
gerði allt með „stæl“.
Það lá í hlutarins eðli, þegar við
vorum allar giftar og fluttar til
Reykjavíkur að Maja tæki forystuna.
Hún lét sig ekki muna um að bjóða
öllum frændgarðinum í fínar veislur,
auk vina og frændfólks eiginmanns-
ins Þórólfs. Það var menningarbrag-
ur á þeim veislum og borð svignuðu
undan kræsingunum. Á stórafmælum
fékk hún góða listamenn til að
skemmta gestum sínum með flutningi
fagurrar tónlistar. Sjálf hafði hún
fengið í vöggugjöf listræna æð. Hún
hafði yndi af tónlist og lék sjálf á pí-
anó, þótt hún flíkaði því ekki. Í Fíl-
harmoníukórnum söng hún um árabil
undir stjórn dr. Róberts A. Ottósson-
ar, einnig í kór Kópavogskirkju. Hún
naut kórstarfsins af heilum hug. Hún
fékkst einnig við að mála og samdi
ljóð við hátíðleg tækifæri. Garðrækt
var sameiginlegt áhugamál Þórólfs
og hennar og oftar en einu sinni fengu
þau viðurkenningu fyrir garðinn sinn
við Þinghólsbrautina. Hann bar góð-
an vott um reisn og myndarskap í lífi
þeirra og starfi. Ótalin eru ógleym-
anleg ferðalög, sem flest voru að
þeirra undirlagi. Þá kom í ljós að Þór-
ólfur var manna fróðastur um flest
það er fyrir bar í náttúru Íslands,
hvort sem það voru fuglar himinsins,
fjöll, jarðlög, gróður eða bæir í dreifð-
um byggðum landsins. Hann gaf
ávallt góð og greið svör þegar spurt
var. Nokkrum sinnum lá leiðin í Lax-
árdalinn, en þangað á hann ættir að
rekja. Rennt var fyrir lax í perlu Að-
aldalsins. Þar voru þau hjónin á
heimavelli, vinir og ættingjar heim-
sóttir og við frædd um fornar slóðir.
Það voru ánægjustundir þegar komið
var á kvöldin á tjaldstað í þessum
ferðalögum. Maja söng ljóð róman-
tísku skáldanna okkar og Þórólfur
söng Bellmann, sem hann hafði mikl-
ar mætur á, enda var hann við nám í
Svíþjóð um árabil.
En mest og best af öllu er tryggðin
og vináttan sem þau hjónin veittu af
miklu örlæti. Fyrir það er nú þakkað
af heilum huga þegar leiðir skiljast.
Ekki yrðum við hissa þótt Maja biði í
varpa með hlaðið borð af kræsingum.
Far vel, elsku frænka – meira að
starfa Guðs um geim. Kveðjur og
þakkir frá frændgarðinum frá Hnífs-
dal.
Sigríður og Ólöf.
Gengin er á vit æðri máttarvalda
móðursystir mín, María Júlíana
Sveinsdóttir.
Mig langar til að minnast hennar í
fáum orðum vegna þess að mér fannst
ætíð mikið til hennar koma vegna
ræktarsemi hennar við fólk. Hún var
alltaf ákaflega hnarreist og höfðing-
leg í sjón og lund eins og hún átti vest-
firzkt kyn til. Eins var hún af þeirri
dásamlegu kynslóð sem tók ekki hóg-
vært „nei takk“ fyrir svar fyrr en all-
ar veitingar voru fullsmakkaðar hjá
henni, hverri kökusort gerð skil – og
skipti þá ekki nokkru máli hversu vel
eða illa haldinn þiggjandinn var.
Hún gekk ætíð undir nafninu Maja
frænka hjá okkur systkinunum. Ég
var ekki nema fimm ára smástelpa
þegar persóna hennar greyptist í
huga mér þar sem hún stjórnaði að-
sópsmikil fermingarveizlu systkina
minna Gunnhildar og Sveins (eins og
skemmtilegar myndskyggnur vitna
um)! En stjórn hennar fór ekki fram
undir neinum hortugmerkjum, held-
ur því sem einkenndi hennar per-
sónuleika sem var mikil hlýja, bros og
glettni en systkini hennar öll reyndar
hafa sama lundarfar. Ég get ekki sagt
að heimsóknir mínar á glæsilegt
heimili þeirra hjóna hafi verið margar
en hver stund gaf svo mikið að manni
fannst maður hafa verið þar daginn
áður. Alltaf var rólegt yfirbragð alls-
ráðandi og sérstaklega höfðinglegt –
og ekki fór maður út úr húsi án þess
að spila nokkur af uppáhaldslögum
þessarar góðu konu á píanóið hennar.
Hún vildi ætíð hafa hönd í bagga eða
gefa góð ráð þegar leið að stórveizlum
en alúð hennar og umhyggja komu í
ljós á fleiri sviðum. Eftir að ég eign-
aðist dreng fyrir sex árum hringdi
hún reglulega til að athuga hvernig
okkur liði og hrósið sem ég fékk ætíð
frá henni og drengurinn minn var
gott og eflandi vegna þess að maður
vissi að hún meinti hvert orð. Hún
minnti mann reyndar stundum á liðs-
stjóra sinnar ættarþví að hún vildi
veg og vanda fjölskyldu sinnar og fjöl-
skyldna systkina sinna sem mestan
og beztan og vitnaði oftar en ekki á
slíkum stundum til foreldra sinna og
Sigurðar afa síns og Halldóru ömmu
sinnar því ekki mátti ættfólk þeirra
undir nokkrum kringumstæðum
verða eftirbátar þeirra. Ég þakka þér
samfylgdina, Maja mín, og votta eig-
inmanni þínum, Þórólfi, börnum ykk-
ar, Sverri og Fríðu, og fjölskyldum
innilega samúð. Sömuleiðis votta ég
eftirlifandi yngstu systrum Maríu,
þeim Þorgerði og Unni Kolbrúnu,
samúð mína.
Kristín Björg Knútsdóttir.
MARÍA JÚLÍANA
SVEINSDÓTTIR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Traust persónuleg
alhliða útfararþjónusta.
Áratuga reynsla.
Símar 567 9110 & 893 8638
utfarir.is
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.