Morgunblaðið - 31.08.2001, Qupperneq 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 43
HEIMSMEISTARAMÓTINU í
marble er nú lokið í Royan, Frakk-
landi. Kristján Ólafur Hauksson
Íslandsmeistari keppti fyrir Ís-
lands hönd og lenti hann í 7. sæti.
Marble er franskur kúluleikur
sem felst í því að skjóta lítilli gler-
kúlu með fingrunum eftir tilbúinni
sandbraut. Í brautinni eru ýmsar
erfiðar þrautir, s.s. brekkur, brýr,
göng o.fl. Sá sem fyrstur klárar
allar þrautirnar og kemst á braut-
arenda vinnur keppnina.
Nánari upplýsingar er að finna
á heimasíðu keppninnar,
http://www.worldmarbles.com.
Íslandsmeistaramótið í marble fór
fram í júní sl. í Fjölskyldugarð-
inum í Laugardalnum og vann
Kristján það mót. Í verðlaun fékk
hann m.a. fría ferð á heimsmeist-
aramótið í Royan.
Kristján Ólafur Jónsson í þann
mund að klára fyrstu þrautina.
Lenti í 7.
sæti á
heimsmeist-
aramóti
NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK
Íslands hyggjast kæra úrskurð
Skipulagsstofnunar um Kárahnjúka-
virkjun til staðfestingar. Þá krefjast
þau þess að umhverfisráðherra víki
sæti í kærumálinu vegna vanhæfis til
meðferðar málsins.
Samtökin rökstyðja kröfur sínar
með athugasemdum sem þau sendu
með bréfi til Skipulagsstofnunar í
júní s.l. Meginkrafan er sú að úr-
skurður Skipulagsstofnunar verði
staðfestur. Enn fremur gera sam-
tökin kröfu um að þeim verði gefinn
kostur á að tjá sig um kærur og fylgi-
gögn sem kunna að berast umhverf-
isráðuneytinu. Náttúruverndarsam-
tökin áskilji sér rétt til að koma að
frekari kröfum, rökstuðningi og
gögnum að fengnum umbeðnum
kærum og fylgigögnum. Með þessu
móti hyggist samtökin tryggja rétt-
arstöðu sína vegna væntanlegrar
kæru Landsvirkjunar og fleiri aðila.
Kæra til stað-
festingar
Náttúruverndarsamtök
Íslands um úrskurð
Skipulagsstofnunar
ÚTIVIST fer n.k. laugardag í tvær
dagsferðir í Borgarfjörð. Annars
vegar er um að ræða 8. ferð í fjalla-
syrpu Útivistar þar sem ekið er á
Kaldadal og gengið á grágrýtis-
dyngjuna Ok. Hins vegar skoðunar-
ferð þar sem farið er að hraunhell-
inum Víðgelmi, einum stærsta
hraunhelli í heimi. Þá verður m.a.
farið að Húsafelli, Hraunfossum og
víðar. Brottför er frá BSÍ kl. 8. Verð
er 2.900 kr. f. félaga og 3.200 kr. fyrir
aðra og hellaskoðunin kostar 800 kr.
Dagsferðir í
Borgarfjörð
♦ ♦ ♦
ÍÞRÓTTIR
Merking breyttist
Í yfirlýsingu Friðriks Þórs Guð-
mundssonar, Jóns Ólafs Skarphéð-
inssonar og Hilmars F. Foss misrit-
aðist eitt orð þannig að merking
setningarinnar breyttist. Í máls-
grein blaðsins stóð:
„Allar líkur eru á að rannsóknar-
nefnd flugslysa hafi ekki hlustað á
þessar upptökur nema á slys-
stundu...“
Þarna sagði í sendum texta:
„Allar líkur eru á að
Rannsóknarnefnd flugslysa hafi
ekki hlustað á þessar upptökur
nema að slysstundu...“ – þ.e. hætt
hlustun eftir kall flugmanns flugvél-
arinnar TF-GTI um að flugvélin
hefði ofrisið og því hafi rannsókn-
arnefndin ekki hlustað lengur á
upptökurnar en að þeirri stundu.
Setning féll niður
Í frétt sem birtist í Morgun-
blaðinu sl. miðvikudag um fjarnám í
náms- og starfsráðgjöf datt síðari
hluti einnar setningar niður og fyrri
hluti annarrar setningar út þannig
að samhengi tapast og ekki kemur
fram hverjir fjármagna námið.
Rétt er setningin „Í þetta fyrsta
sinn hófu 19 nemar nám í náms- og
starfsráðgjöf og stefna þeir ýmist
að því að sinna námsráðgjöf í skól-
um eða starfsráðgjöf á vinnumiðl-
unum. Námið er fjármagnað af
Vinnumálastofnun og menntamála-
ráðuneyti.
Hárgreiðslusýning
Í frétt sem birtist í Morgun-
blaðinu í gær um sýningu á hár-
greiðslu frá gömlum tíma var ekki
rétt sagt frá hverjir eru í samvinnu
með skipuleggjendum sýningarinn-
ar. Það eru Grindavíkurbær, Spari-
sjóður Grindavíkur, Hitaveita Suð-
urnesja og fleiri.
LEIÐRÉTT