Morgunblaðið - 18.09.2001, Page 1
212. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 18. SEPTEMBER 2001
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í gær að hann vildi ná sádi-
arabíska útlaganum Osama bin Lad-
en „dauðum eða lifandi“ vegna árás-
anna á Bandaríkin sem talið er að
hafi kostað meira en 5.500 manns líf-
ið.
Bush kvaðst sannfærður um að
Bandaríkin myndu fara með sigur af
hólmi í baráttunni gegn hermdar-
verkum en varaði við því að hún
kynni að kosta fleiri Bandaríkja-
menn lífið. Hann kvaðst vera fullviss
um að hersveitir Bandaríkjanna
væru tilbúnar að „verja frelsið hvað
sem það kostar“.
Stjórnvöld í Pakistan sendu í gær
hátt setta embættismenn til Afgan-
istans til að vara stjórn talibana við
því að árásir yrðu gerðar á landið ef
hún féllist ekki á að framselja bin
Laden til Bandaríkjanna. Heimildar-
maður í her Pakistans sagði að pak-
istönsku embættismennirnir hefðu
sagt talibönum að árásirnar kynnu
að hefjast um helgina.
Æðsti leiðtogi talibana, múllah
Mohammed Omar, sagði eftir fund
með pakistönsku embættismönnun-
um að ráð íslamskra klerka og fræði-
manna ætti að koma saman í Kabúl í
dag til að ákveða örlög bin Ladens.
CNN-sjónvarpið hafði eftir heimild-
armönnum sínum að ólíklegt væri að
ráðið ákvæði að framselja bin Laden.
Stjórn Pakistans hefur lofað
Bandaríkjastjórn „fullri samvinnu“
ákveði hún að gera árásir á Afganist-
an. Þúsundir pakistanskra múslíma
mótmæltu þessari ákvörðun, kveiktu
í bandarískum fánum, hrópuðu víg-
orð til stuðnings bin Laden og sögð-
ust ætla að berjast með talibönum.
Tugir þúsunda flýja úr
afgönskum borgum
Mikil spenna er við landamæri
Pakistans og Afganistans. Pakistan-
ar hafa lokað landamærunum, bann-
að flutninga á öllum vörum nema
matvælum, og meinað afgönsku
flóttafólki að fara til Pakistans.
Stjórn talibana lokaði lofthelgi
Afganistans og fréttastofan Reuters
hafði eftir höfuðsmanni í her Pakist-
ans að talibanar hefðu flutt miklar
vopnabirgðir, m.a. flugskeyti, að
landamærunum. Heimildarmaður-
inn sagði að her Pakistans hefði
fjölgað hermönnum sínum við landa-
mærin en talsmaður hersins neitaði
því.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna skýrði frá því í gær að um
helmingur íbúa afgönsku borgarinn-
ar Kandahar, eða 100.000 manns,
hefði flúið borgina af ótta við að
Bandaríkjamenn hygðust gera árás-
ir á hana. Aðalaðsetur bin Ladens er
í Kandahar.
Tugir þúsunda manna hafa flúið
úr öðrum borgum í Afganistan og
nokkrir embættismenn talibana hafa
sent fjölskyldur sínar frá Kabúl.
Bandaríska alríkislögreglan, FBI,
skýrði frá því í gær að hún vildi yf-
irheyra meira en 170 manns í
tengslum við rannsóknina á árásun-
um. Fjórir menn hafa verið fluttir til
yfirheyrslu í New York þar sem tveir
aðrir hafa verið hnepptir í gæslu-
varðhald sem mikilvæg vitni. Dóm-
arar hafa heimilað að tvö vitni til við-
bótar verði handtekin. Yfirvöld hafa
ekki viljað veita upplýsingar um
vitnin.
Metlækkun á
Dow Jones
Bandaríkjastjórn óskaði eftir því í
gær að Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unin (IAEA) gerði ráðstafanir til
þess að hindra að efni í kjarnavopn
kæmust í hendur hermdarverka-
manna. Beiðnin er rakin til þess að
skýrt hefur verið frá því að bin Lad-
en hafi reynt að kaupa auðgað úran
til að búa til kjarnorkusprengju á
síðasta áratug.
Hlutabréfamarkaðirnir í New
York voru opnaðir í gær í fyrsta sinn
eftir árásirnar fyrir viku. Dow Jon-
es-vísitalan lækkaði um 7,12% og 685
stig, sem er mesta lækkun á einum
degi frá upphafi, þótt bandaríski
seðlabankinn hefði lækkað stýrivexti
um hálft prósentustig. NASDAQ-
vísitalan lækkaði um 6,82%.
Gengi hlutabréfa í móðurfyrirtæki
American Airlines lækkaði um 40%
og í United Airlines um 43,2%.
Hermdarverkamennirnir rændu
fjórum farþegavélum í eigu þessara
flugfélaga til að gera árásirnar fyrir
viku.
Bush Bandaríkjaforseti kveðst vilja ná bin Laden „dauðum eða lifandi“
Klerkaráð ákveður
örlög bin Ladens
Washington. AP, AFP.
AP
Bandarískir þjóðvarðliðar skoða skilríki manna sem starfa í fjármálahverfinu á Manhattan. Hlutabréfamark-
aðirnir í New York voru opnaðir í gær í fyrsta sinn frá árásinni á World Trade Center í vikunni sem leið.
Árásin á Bandaríkin/22–24
Hlutabréf lækka/19
KAUPHALLIRNAR í Frank-
furt og Mílanó hafa hafið
rannsókn á grunsamlegum
viðskiptum
með hluta-
bréf, sem
hugsanlega
kunna að
tengjast
hryðju-
verkunum í
Bandaríkj-
unum í vik-
unni sem
leið.
Orðróm-
ur hefur verið um, að Osama
bin Laden hafi ætlað sér að
græða fé á hryðjuverkunum
með verðbréfaviðskiptum,
einkum í tryggingafélögum.
Hefur gengi sumra stórra
endurtryggingafélaga lækkað
allnokkuð vegna hryðjuverk-
anna enda bíður það þeirra að
greiða miklar bætur.
Ítalska blaðið Corriere
della Sera hafði í gær eftir
heimildamönnum innan
ítölsku leyniþjónustunnar, að
bin Laden hefði notað verð-
bréfafyrirtæki í Mílanó sem
millilið, en það hefur ekki ver-
ið staðfest.
Rannsóknin nú beinist eink-
um að viðskiptum með bréf í
þýska endurtryggingafélaginu
Munich Re, því svissneska
Swiss Re og því franska AXA.
Reyndi
bin Laden
að hagn-
ast á
ódæðinu?
Frankfurt. AP, AFP.
Osama
bin Laden
FIMM manns fórust í gærmorgun
þegar skólabíll rakst á timburflutn-
ingabíl nálægt Sundsvall í Svíþjóð.
Að minnsta kosti 36 börn á aldrinum
13–16 ára voru í skólabílnum og fjög-
ur þeirra létu lífið. Ökumaður skóla-
bílsins lést einnig.
Sjö skólabörn og ökumaður flutn-
ingabílsins slösuðust alvarlega,
þeirra á meðal þrjú börn sem urðu
fyrir höfuðmeiðslum. Meira en 25
börn til viðbótar voru flutt á sjúkra-
hús með minniháttar meiðsli.
Ekki var vitað í gær hvað olli slys-
inu. Óstaðfestar fregnir hermdu að
áreksturinn hefði orðið eftir að
sprakk á flutningabílnum.
Börnin voru á leið í grunnskóla ná-
lægt Sundsvall þegar slysið varð um
30 km vestur af bænum. Það tók
björgunarmenn tvo tíma að ná börn-
unum út úr skólabílnum.
Skólabörn far-
ast í árekstri
AP
Sænskir björgunarmenn bera eitt fórnarlambanna af slysstað.
Stokkhólmi. AP, AFP.