Morgunblaðið - 18.09.2001, Page 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ráðstefna um starfsmannaráðningar
Ráðningar
morgundagsins
HINN 20. septem-ber heldur Mann-auðslína IMG
ráðstefnu á Grand Hóteli
og hefst hún klukkan 9 ár-
degis og lýkur klukkan
13. Undir Mannauðslínu
heyrir Mannafl, Liðsauki
og Vinna.is. Ingibjörg Óð-
insdóttir, ráðgjafi í starfs-
mannaráðningu hjá
Mannafli, hefur haft um-
sjón með undirbúningi
ráðstefnunnar. Hún var
spurð hvað þarna ætti að
fjalla um.
„Yfirskrift ráðstefn-
unnar er Ráðningar
morgundagsins. Síbreyti-
legur vinnumarkaður
kallar á nýjar og nýjar að-
ferðir við að finna og ráða
hæft starfsfólk. Sú að-
ferðafræði sem er notuð í dag
gæti verið úrelt á morgun. Á ráð-
stefnunni verður fjallað um allt
það nýjasta sem er að gerast í
starfsmannaráðningum úti í
heimi og rætt um þær breytingar
sem orðið hafa á vinnumarkaði
hér og hvernig fyrirtæki í ólíku
starfsumhverfi hafa tekist á við
þær.“
– Hverjir halda fyrirlestra?
„Við köllum til þrjá erlenda
fyrirlesara sem hver um sig er
sérhæfður á sínu sviði. Fyrstan
ber að nefna Petri Kujala sem
kemur frá StepStone sem er
mjög þekkt alþjóðlegt fyrirtæki
sem sérhæfir sig í starfsmanna-
ráðningum á Netinu. Hann ætlar
að fjalla um evrópska vinnu-
markaðinn, nýjar og hefðbundn-
ar leiðir til að ráða fólk og net-
ráðningar og áhrif þeirra.
Morten Lunde kemur frá Horton
International sem er ráðgjafar-
fyrirtæki sem starfar í fjörutíu
löndum og sérhæfir sig í stjórn-
endaleit og stjórnunarráðgjöf.
Hann ræðir um hvernig eigendur
og stjórnendur fyrirtækja geta
þróað fyrirtæki sín þannig að þau
standi undir framtíðarkröfum
mannauðsins og hvernig stjórn-
endur geta tekist á við það að
finna og laða að besta fólkið.
Loks talar Rudi Myrvang frá
SHL sem að sérhæfir sig í gerð
sálfræðilegra mælitækja tengdra
vinnuumhverfinu. SHL býður
upp á áreiðanleg og réttmæt próf
og ráðgjöf til að auðvelda ákvarð-
anatöku á sviði ráðninga og
starfsþróunar. Það fyrirtæki
starfar í yfir fjörutíu löndum og
eru mælitæki þeirra notuð á yfir
þrjátíu tungmálum. Rudi fjallar
um aukið gildi þess að nota próf
við ráðningar og hvernig best sé
að nota þau til að ná sem mestum
árangri við val á starfsfólki.“
– Eru ráðningamál að breytast
mikið núna hér?
„Já, vinnumarkaðurinn hefur
tekið breytingum á þann veg að
núna er meira framboð af hæfu
fólki en verið hefur lengi. Við
þessu þarf að bregðast.
Markmið ráðstefnunn-
ar er að auðvelda fyr-
irtækjum að takast á
við þessar breytingar.“
– Verða íslenskir
fyrirlesarar?
„Já, það koma þrír íslenskir
fyrirlesarar fram á ráðstefnunni
frá fyrirtækjum sem eru í ólíkum
rekstri. Þeir fjalla m.a. um
hvernig þeir hafa brugðist við
breyttum vinnumarkaði. Hvort
ímynd fyrirtækja hefur áhrif á
áhuga fólks á að starfa hjá fyr-
irtækinu og hvort ráðningar við
opinber fyrirtæki eru frábrugðn-
ar hinum. Erna Arnardóttir,
starfsmannastjóri Huga, fjallar
um hvernig tölvugeirinn hefur
tekið breytingum með auknu
framboði af hæfu fólki. Margrét
Guðmundsdóttir frá Skeljungi
fjallar um áhrif ímyndar fyrir-
tækja á ráðningar. Birgir Björn
Sigurjónsson, skrifstofustjóri á
starfmannaskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins, ræðir um ráðning-
ar í opinbera geiranum. Gísli
Marteinn Baldursson verður ráð-
stefnustjóri hjá okkur.“
– Verða umræður um fyrir-
lestrana?
„Já, í lok hvers fyrirlesturs er
ráðstefnugestum gefinn kostur á
að spyrja fyrirlesara um erindið
og eigum við von á að þar skapist
skemmtilegar umræður um nútíð
og framtíð starfsmannamála sem
allir þeir sem ráða starfsfólk
ættu að vera þátttakendur í.“
– Hver er markhópur ráð-
stefnunnar?
„Allir þeir sem ráða starfsfólk
inn í fyrirtæki og þegar hafa
margir starfsmannastjórar og
framkvæmdastjórar fyrirtækja
skráð sig. Ráðstefnan er öllum
opin.“
– Eru próf af því tagi sem þú
nefndir áðan mikið notuð við
ráðningar á Íslandi?
„Þau hafa verið notuð hjá
Mannauðslínu IMG í einhvern
tíma en við höfum verið að þróa
prófin og bæta og komum í fram-
tíðinni til með að bjóða upp á sér-
hæfð próf sem henta í hverju til-
viki fyrir sig. Má þar nefna
persónuleikapróf sem
oft er lagt fyrir stjórn-
endur eða fólk sem
ráða á inn í stjórnun-
arstöður, bæði við ný-
ráðningar og við
starfsþróun. Einnig
bjóðum við upp á tungumálapróf,
tölvupróf og önnur sérhæfð próf.
Segja má í stuttu máli að notkun
svona prófa sé að aukast þar sem
breyttur vinnumarkaður kallar á
nýjar aðferðir við að finna hæf-
asta einstaklinginn. Það eru ekki
endilega prófgráður sem skera
úr um hve hæft fólk er til tiltek-
inna starfa. Þessi próf geta
þrengt þann hóp einstaklinga
sem koma til greina hverju sinni.
Ingibjörg Óðinsdóttir
Ingibjörg Óðinsdóttir fæddist í
Reykjavík hinn 19. janúar 1966.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla Íslands 1986 og
tók BSc-próf í fjölmiðlafræði frá
Ohio University í Athens í
Bandaríkjunum. Hún starfaði
sem blaðamaður við DV en hefur
unnið við starfsmannaráðningar
frá 1997, nú hjá Mannafli. Ingi-
björg er gift Lárusi Elíassyni
sem er með masterspróf í véla-
fræði og MBA. Þau eiga þrjú
börn.
Breyttur
vinnumark-
aður kallar á
nýjar aðferðir
KVIKMYNDAFÉLAGIÐ Umbi sf.
vinnur um þessar mundir að gerð
kvikmyndar um íslensku sauð-
kindina. Guðný Halldórsdóttir, for-
svarsmaður félagsins, segir að í
myndinni verði leitast við að sýna
hve mikilvægu hlutverki sauðkind-
in hefur gegnt fyrir þjóðina allt frá
landnámsöld. Án sauðkindarinnar
hefði þjóðin ekki lifað í þessu landi,
segir Guðný. Hún segir að of nei-
kvæð umræða sé hjá mörgum um
þessa mikilvægu skepnu og þeirri
umræðu þurfi að snúa til betri veg-
ar.
Tekin verða upp margs konar
vinnubrögð sem tengjast sauð-
fjárbúskap og framleiðslu á því sem
sauðkindin gefur af sér. Guðný og
kvikmyndatökulið hennar var að
taka upp atriði frá fjallferð Hruna-
manna nú á dögunum þegar sauðfé
af afréttinum var smalað til
byggða. Gert er ráð fyrir að lengd
myndarinnar verði um klst. Ætl-
unin er að sýna myndina í sjónvarpi
og skólum landsins.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Guðný Halldórsdóttir og myndatökulið hennar við afréttarhlið á Hrunamannaafrétti.
Unnið að gerð heimildarmynd-
ar um íslensku sauðkindina
Hrunamannahreppi. Morgunblaðið.
OPINBER heimsókn forseta Ís-
lands, Ólafs Ragnars Grímssonar, til
Grikklands hefst í dag.
Hann mun eiga fund með forseta
Grikklands, Constantinos Stephano-
poulos, fyrir hádegi í dag en að þeim
tíma loknum halda þeir sameiginleg-
an blaðamannafund í forsetahöllinni í
Aþenu. Þá mun forsetinn funda með
forseta gríska þingsins, Apostolos
Kaklamanis.
Eftir hádegi mun forseti Íslands
heimsækja miðbæjarmatvörumark-
að Aþenu en þar verður kynning á ís-
lenskum sjávarafurðum á vegum
Sölusambands íslenskra fiskfram-
leiðenda – SÍF.
Síðdegis verður forsetinn síðan við
opnun á sýningu sem helguð er Hall-
dór K. Laxness í menningarmiðstöð
Aþenu. Mun forsetinn opna sýn-
inguna formlega með ávarpi og af-
henda borgarstjóra Aþenu bókagjöf
að því búnu.
Hittir stjórnmálaleiðtoga
Síðla dags fundar forseti Íslands
og föruneyti, þ.á m. Sólveig Péturs-
dóttir dóms- og kirkjumálaráðherra
með leiðtoga stjórnarandstöðunnar á
Grikklandi, K. Karamanlis. Einnig
funda þau með aðalritara gríska
kommúnistaflokksins, A. Papariga
og með formanni Bandalagsflokks-
ins, N. Constantopoulos. Að auki
mun Sólveig Pétursdóttir eiga fund
með samstarfsráðherra sínum í
Grikklandi.
Í kvöld heldur forseti Grikklands
hátíðarkvöldverð í forsetahöllinni til
heiðurs forseta Íslands.
20 manna föruneyti
Dagskrá forseta Íslands er einnig
þéttskipuð á morgun. Þá mun hann
m.a. eiga fund með íslenskum og
grískum viðskiptaaðilum í Grikk-
landi, borgarstjóra Aþenuborgar, D.
Avramopoulos og forsætisráðherra
Grikklands, Constantinos Simitis.
Með Ólafi Ragnari Grímssyni í för
er auk heitkonu hans, Dorrit Mouss-
aieff, 20 manna fylgdarlið. Það eru:
Sólveig Pétursdóttir dóms- og
kirkjumálaráðherra, Þorsteinn Páls-
son, sendiherra Íslands í Grikklandi,
og Ingibjörg Rafnar, eiginkona hans,
Sverrir Haukur Gunnlaugsson, ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytisins,
og Guðný Aðalsteinsdóttir, eiginkona
hans, Stefán Lárus Stefánsson for-
setaritari og Guðrún Bryndís Harð-
ardóttir, eiginkona hans, Örnólfur
Thorsson, sérstakur ráðgjafi forseta
Íslands, og Margrét Þóra Gunnars-
dóttir, eiginkona hans, Vigdís
Bjarnadóttir, deildarstjóri á skrif-
stofu forseta, og Ragna Þórhallsdótt-
ir, deildarstjóri á skrifstofu forseta.
Þá eru með í för Ingvi Hrafn Ósk-
arsson, aðstoðarmaður dóms- og
kirkjumálaráðherra, og Aðalheiður
Inga Þorsteinsdóttir, eiginkona hans,
Hannes Heimisson, skrifstofustjóri
upplýsinga- og menningarmálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins, Halldór
Guðmundsson, formaður stjórnar
Listahátíðar Reykjavíkur og for-
stjóri Eddu-útgáfu og miðlunar, og
Anna V. Gunnarsdóttir, eiginkona
hans, Sigurður A. Magnússon, rithöf-
undur og varaformaður Grikklands-
vinafélagsins Hellas, Constantin
Lyberopoulos, aðalræðismaður Ís-
lands í Grikklandi, Emilía Kofoed-
Hansen vararæðismaður og Sturla
Birgisson matreiðslumeistari.
Forseti Íslands í opinberri
heimsókn í Grikklandi