Morgunblaðið - 18.09.2001, Page 23

Morgunblaðið - 18.09.2001, Page 23
ÁRÁSIN Á BANDARÍKIN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 23 hafa gefið upp alla von. Ekki tókst að stækka opið, reykurinn varð stöðugt þykkari og meira kæfandi, vinur minn og félagi hans gátu ekki hafst þarna við öllu lengur. „Farðu bara,“ sagði vinnufélaginn við vin minn. „Ég á sjálfur stór börn, þau hljóta að þola þetta. Þú átt lítil börn sem þarfnast þín.“ Hann vætti jakkann með vatni og rétti fólkinu í lyftunni og vinur minn sá hann ekki aftur. Við vorum 20-30 mínútur á leiðinni niður og þótt ótrúlegt megi heita gekk þetta allt vel og skipulega fyrir sig. Hvenær sem einhver virtist ætla að missa stjórn á sér tóku nokkrir sig til og róuðu hann. „Við megum ekki missa stjórn á okkur, við megum ekki missa stjórn á okkur. Fát getur gert út af við okkur,“ sögðum við. Þegar við komumst út undir bert loft starði ég til jarðar – og nú er ég feginn því. Vinur minn sagði mér síð- ar að svæðið umhverfis turninn hefði minnt á upphafsatriðið í kvikmynd- inni Björgun óbreytt Ryans. Þarna voru útlimir sem rifnað höfðu af, handleggir og fætur, skór með fót innan í, það eina sem eftir var af lík- inu, hvarvetna voru einnig persónu- legir munir sem nístu viðstadda inn að hjartarótum. Ég hljóp á brott og tók með mér slasaða manninn sem ég hafði hjálpað niður stigann. Við námum ekki staðar til að blása mæðinni fyrr en við vorum komnir góðan spöl frá húsinu.“ Luke segist hafa verið svo upptek- inn af því að komast á brott að hann hafi ekki tekið eftir fólkinu sem stökk í örvæntingu sinni út um glugga fremur en verða eldinum að bráð. Hann og maðurinn sem hann aðstoð- aði niður stigann skiptust á nafni og símanúmeri en í sömu andrá hrundi turninn. „Turn númer eitt hrundi og ég sá risastóran rykhnött byrja að mynd- ast. Í honum voru brot úr húsinu, milljónir af skrifstofuhlutum, asbest- brot – og ég fór að hlaupa. Hlaupa, bara hlaupa og hlaupa, eins og Forr- est Gump í kvikmyndinni. Sjálfur þjálfa ég mig með því að hlaupa tvisv- ar í viku og hef alltaf átt mér það óljósa og kannski kjánalega markmið að geta hlaupið vandkvæðalaust nokkra kílómetra á miklum hraða og nú var ég ánægður með þetta mark- mið. Ég hljóp upp Manhattan. Fram hjá öllum stöðunum sem maður les um í túristabæklingunum. SoHo, Greenwich Village, Chelsea. Ég staldraði ekki við fyrr en á 30. stræti. Þar hitti ég nokkra starfsfélaga frá stofnuninni fyrir utan litla kirkju. Við förum oft í dönsku sjómanna- kirkjuna í New York en ég er ekki það sem nefnt er trúaður maður. Samt virtist það alveg eðlilegt að við færum inn í kirkjuna og bæðum sam- an. Við báðum Guð að bjarga fólkinu í turninum. Hver fyrir sig bað Guð um að bjarga þeim sem við höfðum áhyggjur af, þeim sem við þekktum á efri hæðum hússins,“ segir Peter Luke.          !"# $#%&%'("(#)%' #$*+#!,%'                  -,' .-'#/%0     1%%%  ' 2,34', -%%(6#%73-( -,'' -78% .','' %9$#3!((( -#/%0 :!(((.%- -:-#; .9 3!(((73-( BANDARÍSK flugfélög hafa dreg- ið stórlega úr þjónustu sinni til að komast hjá gjaldþroti í kjölfar hryðjuverkanna. Hafa þrjú stærstu félögin fækkað áætlunarferðum um 20% og Continental-flugfélagið, það fimmta stærsta í Bandaríkj- unum, hefur sagt upp 12 þúsund manns. Eitt af minni félögunum, Midway Airlines, lagði upp laupana daginn eftir að hryðjuverkin voru framin. Orðrómur hefur heyrst um að félagið US Airways muni brátt verða lýst gjaldþrota, en félagið til- kynnti uppsagnir 11 þúsund starfs- manna í gærkvöldi. Verð á hlutabréfum í stærstu fé- lögunum hrundi þegar markaðir í New York voru opnaðir í gær- morgun. Bréfin í móðurfyrirtæki American-flugfélagsins, AMR Corp., lækkuðu um 42%, US Air- ways lækkaði um 44% og Delta um 46%. Félögin American og Northwest tilgreindu ekki hvað fyrirhugaður samdráttur í þjónustu myndi hafa áhrif á mörg störf hjá þeim. Hóp- urinn sem sagt hefur verið upp hjá Continental er um það bil einn fimmti af öllum starfsmönnum fé- lagsins, sem eru um 56 þúsund. „Þessar aðgerðir eru beinar af- leiðingar af núverandi og væntan- legum neikvæðum áhrifum sem hryðjuverkin í Bandaríkjunum hafa haft á eftirspurn eftir flugferðum, og af auknum kostnaði vegna stór- aukinna krafna um öryggisgæslu,“ sagði í yfirlýsingu sem gefin var út í höfuðstöðvum Continental í Houston um sl. helgi. Framkvæmdastjóri flugfélagsins, Gordon Bethune, vildi ekkert segja um það hvenær eða hvort fólkið yrði ráðið aftur til starfa. Sagði hann að félagið hefði tapað 30 milljónum dollara (um þrem millj- örðum króna) á dag síðan hryðju- verkin voru framin. Aðeins 55% af vélum félagsins séu aftur komnar í flug, og af þeim fljúgi flestar hálf- tómar. Jafnvel áður en farþegaþotunum var rænt fyrir viku og þeim flogið á World Trade Center og Pentagon höfðu fjármálaskýrendur spáð því að mikið tap yrði í flugrekstri vegna samdráttar í efnahagslífinu, og heyrðust nefndar tölurnar 2,5 til 3,5 milljarðar dollara. Var talið út- lit fyrir að þetta yrði versta ár í flugrekstri síðan mikill samdráttur varð í kjölfar Persaflóastríðsins 1991. En nú er talað um margfalt meira tap, allt að fjóra til sjö millj- arða dollara, því að farmiðasala hefur minnkað sökum þess að fólk er hrætt við að fljúga; vegna stöðv- unar alls flugs í tvo daga í síðustu viku; og vegna fækkunar ferða og aukins kostnaðar við herta örygg- isgæslu á flugvöllum. „Þetta verður versta ár sem við höfum nokk- urntíma upplifað,“ hafði The New York Times eftir Darryl Jenkins, framkvæmdastjóra rannsóknar- stofnunar í flugmálum við George Washington-háskóla í Washington. Án umfangsmikillar aðstoðar frá stjórnvöldum standa jafnvel stærstu flugfélögin í Bandaríkjun- um frammi fyrir gjaldþroti, að mati fjármálasérfræðinga. Þingið sam- þykkti um sl. helgi að veita 40 milljarða dollara til uppbyggingar eftir hryðjuverkin. Ekki er ljóst hversu mikið af þeirri fjárhæð kann að renna til flugrekenda, en fregnir herma að þingið kunni að veita 15 milljarða dollara til þeirra. Níu stærstu flugfélögin í Banda- ríkjunum hafa samtals tapað á bilinu 100 til 250 milljónum dollara á dag síðan bandarískri lofthelgi var lokað og síðan opnuð smám saman í kjölfar tilræðanna. Stærsta félagið, American, varð fyrst til að tilkynna um samdrátt í þjónustu, og mun hann verða um 20%. Félögin United og Delta, sem eru annað og þriðja stærsta, hafa tilkynnt um væntanlegan samdrátt, 20% og 25% af venjubundnum rekstri. Fjórða stærsta félagið, Northwest, mun draga úr þjónustu um 20%. Kevin C. Murphy, sem fylgist með flugmálum fyrir fjárfestinga- fyrirtækið Morgan Stanley Dean Witter, tjáði The New York Times að handbært fé flugfélaganna myndi ráða úrslitum á næstu vik- um og mánuðum, þegar þau þurfi að eyða meiru en þau afli, bara til að fá fólk til að fljúga með því að bjóða afsláttarfargjöld og herða ör- yggisgæslu. Sagði Murphy að móð- urfélög stóru félaganna Delta, United, Northwest og Continental ættu hvert um sig um einn milljarð handbæran, sem myndi duga til að halda þeim á floti um sinn. Hryðjuverkin hafa alvarlegar afleið- ingar fyrir bandarísk flugfélög AP Tvær vélar Continental-flugfélagsins á Bush-flugvelli í Houston. Samdráttur til að forðast gjaldþrot New York. AP. ÍSLAMSKIR hryðjuverkamenn með aðsetur í Bretlandi en undir stjórn Osamas bin Ladens lögðu á ráðin um hermdarverk í byggingu Evrópuþingsins í Strassborg í febr- úar síðastliðnum, að því er breska blaðið Daily Telegraph greindi frá á sunnudaginn. Sex manna hryðjuverkahópur sem bin Laden kostaði hugðist myrða alla 625 þingmenn Evrópuþingsins og fjölda embættismanna með því að dæla sarin-gasi inn í þinghúsið. Átti árásin að fara fram á þingfundinum 11. til 14. febrúar og verða sú fyrsta af árásum á þekktar byggingar í Evrópu. Að sögn Daily Telegraph störfuðu alsírskir hryðjuverkamenn með fé- lögum sínum í Mílanó og Frankfurt að þessum fyrirætlunum, en þær fóru út um þúfur þegar þýska lög- reglan kom upp um starfsemina í Frankfurt. Sexmenningarnir í Bret- landi voru síðan handteknir. Evrópuþingmennirnir fengu ekki að vita nákvæmlega um það í hverju áætlun hryðjuverkamannanna fólst, en þingmönnunum var sendur tölvu- póstur þar sem varað var við lélegri öryggisgæslu í þinghúsinu. Auðvelt í framleiðslu Auðvelt er að búa til sarin-gas, og er það 26 sinnum banvænna en blá- sýra. Það var búið til af nasistum í síðari heimsstyrjöld, er lyktarlaust og næstum ógerningur er að taka eftir því. Möguleikarnir á notkun þess komu vel í ljós þegar japanskur sértrúarsöfnuður notaði það til árás- ar í neðanjarðarlestarkerfi Tókýó- borgar í mars 1995 og 12 létust en um fimm þúsund fundu fyrir áhrifum gassins. Hugðu á gasárás á Evrópuþingið Reuters Frá Evrópuþinginu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.