Morgunblaðið - 18.09.2001, Qupperneq 25
ERLENT
Sími 594 6000
LOFTPRESSUR
sem ræður ríkjum í stærstum hluta
landsins og kennt er um að hafa stað-
ið að baki tilræðinu gegn Massood,
„Ljóninu frá Pansjír“, en hann sat
frá 1992 í ríkisstjórn sem talibanar
hröktu frá Kabúl árið 1996.
Við útför Massoods voru hryðju-
verkaárásirnar á Bandaríkin for-
dæmd, sem líkur benda til að sádi-
arabíski útlaginn Osama bin Laden
hafi verið upphafsmaður að, en hann
dvelur í skjóli talibanastjórnarinnar
í Afganistan. Sögðu fylgismenn
Massoods að bin Laden hefði einnig
átt þátt í banatilræðinu gegn honum.
ÞÚSUNDIR fylgismanna afganska
stjórnarandstöðuforingjans Ahmeds
Shah Massood fylgdu honum til
grafar í heimaþorpi hans í Pasjír-
dalnum í Hindu Kush-fjallgarðinum
í Norður-Afganistan á sunnudag.
Massood lézt úr sárum sem hann
hlaut í sjálfsmorðtilræði sem honum
var veitt hinn 9. september sl. Segja
talsmenn stjórnarandstöðunnar að
hann hafi látizt á laugardag, en aðrar
heimildir fullyrtu að hann hefði and-
azt fyrr í síðustu viku.
Þátttakendur í útförinni hrópuðu
vígorð gegn talibanahreyfingunni,
Massood borinn til
grafar í Afganistan
Reuters
Frá útförinni á sunnudag.
Í SKOTBARDÖGUM á Vestur-
bakkanum og Gazasvæðinu í gær
lézt einn Palestínumaður og 15 særð-
ust, þar á meðal 5 drengir. Fjórir ísr-
aelskir hermenn særðust í átökun-
um, sem brutust út þrátt fyrir
mikinn þrýsting m.a. af hálfu Banda-
ríkjastjórnar að vopnahléi verði
komið á. Í átökum nærri bænum
Ramallah lentu fallbyssuskot úr ísr-
aelskum skriðdreka á mosku, palest-
ínsku barnaheimili og sjúkrabíl, að
því er vitni greindu frá. Yasser Ara-
fat, leiðtogi Palestínumanna, sagðist
í gær hafa gefið út „skýr fyrirmæli
um undanbragðalaust vopnahlé“.
Átök á Vest-
urbakka
Jerúsalem. AP.
SKÆRULIÐAR tamíla á Sri Lanka
gerðu á sunnudag sjálfsmorðsárás á
liðsflutningaskip stjórnarhersins,
með þeim afleiðingum að 11 her-
menn létu lífið. Tíu manna varð-
skipsáhafnar og skips þeirra var
saknað en 58 hermenn særðust í
árásinni, eftir því sem varnarmála-
ráðuneyti Sri Lanka greindi frá í
gær. Uppreisnarmenn tamíla kváðu
10 liðsmenn þeirra hafa fallið.
Var bæði flughernum og flotanum
beitt til að hrinda árásinni, sem var
gerð með þeim hætti að um 20
gúmmíbátum hlöðnum sprengiefni
var siglt að liðsflutningaskipinu.
Tamílar
gera sjálfs-
morðsárás
ÁSTRÖLSK stjórnvöld fóru að lög-
um er þau neituðu að taka á land 433
hælisleitendur, sem norska gáma-
skipið Tampa bjargaði úr hafsnauð
fyrir þremur vikum. Úrskurðaði al-
ríkisdómstóll Ástralíu þetta í gær.
Fullskipaður alríkisrétturinn
hnekkti þar með fyrri úrskurði sem
einn dómari hafði kveðið upp í mál-
inu. Lögmenn stjórnarinnar sögðu
flóttafólkið hafa fyrirgert rétti sínum
til að fá hæli í Ástralíu er það þving-
aði áhöfn Tampa til að sigla með þá
til hinnar áströlsku Jólaeyjar í stað
þess að skila þeim aftur til Indón-
esíu, þaðan sem þeir höfðu lagt upp.
Stjórnin fór
að lögum
Canberra. AP.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 25
♦ ♦ ♦