Morgunblaðið - 18.09.2001, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 18.09.2001, Qupperneq 36
UMRÆÐAN 36 ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í síðastliðnum kosn- ingum til Stúdentaráðs lagði Vaka megin- áherslu á þrjá mála- flokka. Þeir voru að- gerðaáætlun sem kallast „4 í mánuði“, fjölskyldumál og hús- næðismál háskólans og stúdenta auk hinna hefðbundnu mála- flokka. Víða er pottur brot- inn í húsnæðismálum háskólans og þekkir undirrituð þann vanda vel, enda líffræðinemi. Líffræðinemar hafa verið í bráðabirgða- húsnæði í þrjá áratugi, en von er á nýju húsnæði innan tíðar. Vaka fagnar nýjum stúdentagarði Félagsstofnun stúdenta hefur nú fengið leyfi fyrir byggingu nýs stúd- entagarðs. Fyrirhugaður stúdenta- garður verður sá stærsti til þessa. Vaka fagnar því að til standi að reisa nýjan stúdentagarð, enda er ástand- ið á leigumarkaði mjög slæmt, ekki síst fyrir efnaminna fólk, eins og námsmenn. Veruleg þörf er á því að stytta biðlista á stúdentagörðum. Nýjasti stúdentagarðurinn mun standa á Eggertsgötu 24. 124 ein- staklingsíbúðir verða í húsinu en auk þess verður þar til húsa kjörbúð. Vaka fagnar því að kjörbúð verði í húsinu en engin kjör- búð er á háskólasvæð- inu enn sem komið er. Það gefur augaleið að það er mikil vöntun á kjörbúð í námunda við stúdentagarðana og til mikilla hagsbóta fyrir námsmenn að loks bjóð- ist stúdentum að versla í kjörbúð sem verður hjá stúdentagörðunum. Nýr veitingastaður í Stúdentaheimilinu Vaka lagði enn frem- ur á það mikla áherslu í síðastliðnum kosningum að úrval yrði aukið á kaffistofum háskólasvæðisins. Há- skóli Íslands er stærsti vinnustaður landsins og furðulegt að ekki sé meira vöruúrval og lengri afgreiðslu- tími þar en raun ber vitni. Við fyrstu sýn virðist úrval á kaffi- stofunum ekki sérstakt hagsmuna- mál stúdenta en þegar litið er til þess að margir nemendur dvelja í skól- anum allan daginn og versla við kaffistofurnar á hverjum degi horfir málið öðruvísi við. Vaka lagði á það áherslu að stúd- entar hefðu kost á heitum mat í há- deginu og að reglulega yrði boðið upp á nýjungar á kaffistofunum. Þessu stefnumáli Vöku er nú kom- ið í höfn. Veitingastaðurinn Delí verður opnaður í Stúdentaheimilinu um næstu mánaðamót og því eiga stúdentar kost á heitum mat næsta vetur. Vitaskuld væri ánægjulegt ef fleiri staðir fylgdu í kjölfarið þannig að stúdentar gætu valið, hver eftir sínum smekk. Betur má ef duga skal Það er ánægjulegt að jákvæðar fregnir berist stúdentum í upphafi skólaárs. Von er á nýjum og stórum stúdentagarði og nýr veitingastaður í Stúdentaheimilinu hefur verið opn- aður. Vaka fagnar þessum tíðindum enda leggur félagið eins og fyrr segir mikla áherslu á húsnæðismál háskól- ans sem og stúdenta. En betur má ef duga skal og mun Vaka halda áfram að beita sér fyrir því að uppbyggingu stúdentagarða verði hraðað. Stúdentagarðarnir eiga að geta orðið að miðdepli háskólasamfé- lagsins. Vaka vill hraða uppbygg- ingu stúdentagarða Ásdís Rósa Þórðardóttir Höfundur er líffræðinemi og situr í Stúdentaráði fyrir Vöku. Stúdentar Vaka fagnar því að til standi að reisa nýjan stúdentagarð, segir Ásdís Rósa Þórðardótt- ir, enda er ástandið á leigumarkaði mjög slæmt, ekki síst fyrir efnaminna fólk eins og námsmenn. HINN 6. september sl. skilaði umboðsmaður Alþingis áliti er varð- ar Lánasjóð íslenskra námsmanna. Málið lýtur að beiðni um undan- þágu frá endurgreiðslu af námsláni. Niðurstaða hans fékkst eftir tæpa tuttugu mánuði, en það var í janúar 2000 að Stúdentaráð Háskóla Ís- lands leitaði til hans vegna tiltekins úrskurðar LÍN. Efnislega var nið- urstaða umboðsmanns að úrskurð- urinn hefði ekki verið í samræmi við lög. Álitið vekur spurningar, m.a. hvort það sé hlutverk umboðs- manns að varpa fram nýjum lög- skýringum í þágu lögfræðinnar sem fræðigreinar? Svarið er nei, enda ekki í þágu þeirra einstaklinga sem til umboðsmanns leita. Umboðs- maður á fyrst og fremst að vera embættismaður. Álit sem eru fræði- mannstilraunir valda réttaróvissu og óskilvirkni. Ýmsir hafa ekki átt- að sig á hlutverki umboðsmanns Al- þingis, en það væri fyrst alvarlegt mál ef embættið sjálft misskildi hlutverk sitt. Fræðimannstilraunir? Einu lögin sem umboðsmaður vitnar til í framangreindu áliti eru lögin um LÍN, nánar tiltekið 8. grein laganna. Með þessari laga- grein fær stjórn LÍN heimild til að veita undanþágu frá endurgreiðslu náms- lána. Það er álit um- boðsmanns að laga- ákvæðið feli í sér fyrirmæli um undan- þágu. Samkvæmt „hefð- bundinni lögfræði“ eða „lögfræði á manna- máli“ er útilokað að lagaákvæði sem hljóð- ar svo: „Stjórn sjóðs- ins er heimilt að veita undanþágu frá árlegri endurgreiðslu … “ geti þýtt að stjórninni beri að veita undan- þáguna. Samkvæmt orðanna hljóðan er það á valdi stjórnvalds sem fær heimild, hvort hún er nýtt eða ekki. Ráðherra sem fær heimild til að setja reglugerð á grundvelli tiltekinna laga hefur það til dæmis á sínu valdi hvort hann nýtir þá heimild eða ekki. Ekki brot á jafnræðisreglu Í því tilviki sem hér um ræðir hefur stjórn LÍN ákveðið að nýta umrædda lagaheimild í samræmi við reglugerð og úthlutunarreglur. Umboðsmaður heldur því ekki fram að úrskurður stjórnar stangist á við þessar reglur. Hann fullyrðir held- ur ekki að úrskurður- inn sé brot á jafnræð- isreglu og fari gegn niðurstöðu stjórnar- innar í sambærilegum málum. Hann heldur því á hinn bóginn fram að stjórnin brjóti lög vegna þess að hún framkvæmir ekki und- anþáguákvæðið að hans skapi. Hann telur að vinnuregla sem stjórnin vitnar til við afgreiðslu málsins stangist á við lögin. Í staðinn fyrir skýra og ótvíræða reglu telur hann að lánasjóðnum beri „að leggja hlutlægt mat á fjár- hagslega hagi umsækjandans og taka afstöðu til þess hvort fjárhag- urinn sé með þeim hætti að rétt sé að veita undanþágu … “ Hvernig er hægt að halda þessu fram þegar ekkert í lögum, reglugerð eða út- hlutunarreglum sjóðsins skyldar stjórnina til að veita undanþáguna? Skýrar reglur Stjórn LÍN hefur nálgast heim- ildir til undanþágna af varfærni og túlkað lagaákvæði um undanþágur frá endurgreiðslu námslána þröngt, m.a. vegna þess að í lögum um sjóð- inn er ákveðin föst afborgun náms- lána sem allir skulu greiða án tillits til tekna. Afstaða stjórnarinnar hef- ur verið sú, að skilyrði undanþágu frá fastri afborgun sé, að aðstæður lánþega séu þannig að hann geti ekki haft stjórn á þeim, t.d. vegna veikinda, atvinnuleysis eða örorku. Stjórn sjóðsins hefur leitast við að setja sér skýrar og ótvíræðar vinnureglur. Jafnframt hefur stefna hennar verið að einfalda regluverk LÍN og fækka undanþágum, m.a. vegna óska frá námsmönnum sem kvarta gjarnan yfir því hvað reglu- verkið sé flókið og óaðgengilegt. Stefna stjórnarinnar hefur verið að fækka tilvikum sem kalla á einstak- lingsbundið mat til að gera regl- urnar aðgengilegri, draga úr líkum á mistökum og tryggja jafnræði í málsmeðferð, þ.e. að sambærileg mál fái sambærilega afgreiðslu. Vönduð málsmeðferð Lögfræðingur sjóðsins yfirfór af- greiðsluna sem er tilefni þessara skrifa. Eftir að hún var kærð til málskotsnefndar var málið yfirfarið af þeim þremur lögfræðingum sem eiga sæti í nefndinni. Nefndin er sjálfstætt stjórnvald sem hefur starfað frá 1997 í þeim eina tilgangi að skera úr um hvort úrskurðir stjórnar LÍN séu í samræmi við ákvæði laga og reglugerða. Úr- skurðir hennar eru rökstuddir og endanlegir á stjórnsýslustigi. Í des- ember 1999 staðfesti málskots- nefndin úrskurð stjórnar LÍN. Í meðferð málsins hefur ekkert komið fram sem bendir til að af- greiðslan yrði önnur þó að byggt væri á niðurstöðu umboðsmanns og háfræðilegum lagaskýringum hans. Þannig benti stjórnin sérstaklega á það við afgreiðslu málsins að ekki lægju fyrir nein gögn í þá veru að aðstæður umsækjanda hindruðu hann í að stunda vinnu eða nám. Jafnframt var umsækjandanum bent á að hann gæti fengið málið endurupptekið hefði niðurstaðan byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum. Sú staðreynd að nýj- ar upplýsingar gætu breytt afstöðu stjórnarinnar var síðan áréttuð tveimur mánuðum síðar í umsögn til málskotsnefndar. Í hvorugt skiptið var brugðist við þessum ábendingum. Skrif Morgunblaðsins Fyrirsögn þessarar greinar, „Til hvers er umboðsmaður Alþingis?“, er hin sama og leiðara Morgun- blaðsins laugardaginn 15. septem- ber sl. Í honum er vitnað til reglna Alþingis þar sem m.a. segir: „Hlut- verk umboðsmanns Alþingis er að gæta þess að stjórnvöld virði rétt einstaklinga og samtaka þeirra. Hann hefur í því skyni eftirlit með því að jafnræði sé virt í stjórnsýslu- störfum og að stjórnsýsla sé að öðru leyti í samræmi við lög og góða stjórnsýsluhætti.“ Þetta er mikil- vægt hlutverk sem standa ber vörð um. Jafnframt þarf umboðsmaður að fara vel með það vald sem hon- um er fengið. Það er ekki hlutverk hans að setja fram nýjar lögfræðikenningar og stofna með þeim hætti til deilna og réttaróvissu. Það er ekki hlut- verk umboðsmanns að kalla eftir flóknari reglum og auknu fé- lagslegu tilliti. Það er pólitík sem hann á ekki að blanda sér í. Það hefur verið stefna LÍN að einfalda og skýra regluverk sjóðsins og treysta þannig réttaröryggi. Að- gengilegar reglur eru best til þess fallnar að tryggja jafnræði og skil- virka framkvæmd. LÍN myndi til dæmis seint líðast að taka sér 20 mánuði til að afgreiða eitt erindi. Til hvers er umboðs- maður Alþingis? Gunnar I. Birgisson LÍN Aðgengilegar reglur eru best til þess fallnar, seg- ir Gunnar I. Birgisson, að tryggja jafnræði og skilvirka framkvæmd. Höfundur er stjórnarformaður LÍN. Fjögur frábær fyrirtæki 1. Gamalgróið og mjög þekkt veitingahús sem allir þekkja og hafa borðaða og skemmt sér á. Þrír salir. Mikið af föstum samböndum og mjög góð velta og afkoma. Mikið notað fyrir veislur, jólahlað- borð og þorrablót. Sérstakur staður og sami eigandi í áraraðir. 2. Bjórkrá í hjarta Reykjavíkur. Sæti fyrir tæpl. 200. Selur að mestu bjór, einnig gefa kassarnir mikið. Góð aðstaða — öll leyfi. 3. Lítil og falleg blómabúð, sem er með mikið úrval af sérstökum og fallegum gjafavörum. Einstaklega vel staðsett á besta stað í borginni. Laus strax. Mjög gott verð og góð velta. 4. Gömul hárgreiðslustofa, sem verið er að taka upp og endurnýja. Mjög mikið að gera, enda í góðu og þekktu hverfi. Miklar bókanir langt fram í tímann. 5 stólar. Höfum kaupanda að stórri matvöruheildverslun. Höfum kaupanda að smærri plastverksmiðjum. Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur á hverjum tíma. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.         JARÐVATNSBARKAR Stærðir 50—100 mm Lengd rúllu 50 m Tilvalið þar sem ræsa þarf fram land. Vara sem vinnur með þér, auðveld í meðhöndlun. Ármúla 21, sími 533 2020 Stærðir 50—80 og 100 mm. Lengd rúllu 50 mtr. Tilvalið þar sem ræsa þarf fram land. Vara sem vinnur með þér, auðveld í meðhöndlun. Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.