Morgunblaðið - 18.09.2001, Side 51

Morgunblaðið - 18.09.2001, Side 51
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 51 Tölvunámskeið á næstunni Hagnýtt tölvunám 1 60 kennslustundir 10. okt. - 5. nóv. kl. 8:30 - 12:00 mán, mið, fös Markvisst nám fyrir byrjendur. Venjuleg yfirferð. Kennt er: Windows, Word, Excel, Internet/Tölvupóstur Stök námskeið 10 - 20 kennslustundir Venjuleg yfirferð. • Excel 1 8. - 11. okt. kl. 13:00 -16:30 • PowerPoint 24. - 26. sept. kl. 17:30 - 21:00 • Word 1 24. - 27. sept. kl. 08:30 -12:00 Lært á laugardögum 10 kennslustundir kl. 09:00 – 17:00 Hraðnámskeið fyrir þá sem vilja nýta helgina til náms. • PowerPoint 6. okt. • Word 1 22. sept. • Excel 1 29. sept. Hádegismatur innifalinn. Internet og tölvupóstur 24. - 26.sept. kl. 08:30 - 12:00 Word 1 01. - 03. okt. kl. 08:30 - 12:00 Excel 1 8. - 10. okt. kl. 08:30 - 12:00 Ath! Skrá ning stend ur yfir Sérnámskeið fyrir félagsmenn Eflingar Horfðu til framtíðar Faxafeni 10 (Framtíð) · Sími 561 6699 tolvuskoli@tolvuskoli.is · www.tolvuskoli.is Kennsla í byrjenda- og framhalds- flokkum hefst dagana 17. til 22. september nk. 10 vikna námskeið. Stúlknaflokkur Íslandsmeistari kvenna, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, annast kennslu. Alþjóðlegir titilhafar annast alla kennslu. Kennt verður frá kl. 17.00 - 19.00 alla virka daga og frá kl. 11.00 - 12.30, 12.30-14.00 og 14.00-16.00 um helgar. Kennslubækur innifaldar í öllum flokkum. Nánari upplýsingar og skráning alla virka daga frá kl. 10.00-13.00 í síma 568 9141. Athugið systkinaafsláttinn Kórskóli Kvennakórs Reykjavíkur Við getum enn bætt við nokkrum konum í kórskólann. Kennsla hefst á morgun, miðvikudaginn 19. september, kl. 18 og er kennt einu sinni í viku í Ými, Skógarhlíð 20. Haustönn skólans stendur í 12 vikur og lýkur með tónleikum. Nánari upplýsingar og skráning er í síma 896 6468 og í Ými, efri hæð, kl. 18 á morgun, miðvikudag. Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri á síðustu sætunum til Costa del Sol, 27. september í 3 vikur. Þú bókar núna og 3 dögum fyrir brottför segjum við þér hvar þú gistir og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra okkar allan tímann. Verð kr. 49.985 Verð á mann miðað við hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug, gisting, skattar, 27. sept, 3 vikur. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 59.930 Verð á mann miðað við 2 í íbúð/stúdíó, 27. sept., 3 vikur. Skattar innifaldir. Aðeins 11 sæti Stökktu til Costa del Sol 27. sept. í 3 vikur frá kr. 49.985 RÚMLEGA 30 öku- menn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs um helgina og 6 vegna ölv- unar við akstur. Á föstudag var ekið á 12 ára stúlku, sem var að fara yfir gang- braut á reiðhjóli. Stúlkan hlaut al- varlega höfuðáverka, hálsmeiðsl og lærbrot. Lögreglu var tilkynnt um 15 innbrot um helgina, þar af flest í ökutæki, þar sem stolið var hljóm- tækjum. Bifreið var stolið í Breið- holti aðfaranótt föstudags og fannst mikið skemmd við skíða- brekku í hverfinu. Búið var að vinna miklar skemmdir á bif- reiðinni og fjarlægja alla hjól- barða. Lögreglan hefur til rannsóknar mál þar sem 34 ára kona reyndi að framvísa fölsuðum tékkaeyðublöð- um við að greiða fyrir eldsneyti. Hún reyndi einnig að greiða fyrir eldsneytið með eyðublöðum sem stolið var í innbroti. Brotist var inn á heimili í Graf- arvogi og þaðan stolið sjónvarpi. Aðfaranótt laugardags var brotist inn í verslun í Ármúla og stolið úr sjóðsvél. Brotist var inn í vöru- gáma við fyrirtæki á Tunguhálsi en óljóst er hvort einhverju hafi verið stolið. Farið var inn í fyr- irtæki í Síðumúla og stolið þaðan tölvum að miklu verðmæti. Þá tókst þremur piltum að stela skjá- varpa af listasýningu. Verið er að vinna úr upplýsingum um hugs- anlega gerendur í málinu. Tveir 17 ára piltar voru handteknir við inn- brotstilraun í lyfjabúð á Réttar- holtsvegi. Ekki var það eina lyfja- búðin sem brotist var inn í því brotin var rúða í lyfjabúð á Mel- haga en óljóst hvort einhverju var stolið og eins lyfjabúð við Hring- braut þar sem stolið var morfín- töflum. Þá var brotist inn í sölu- turn í Grafarvoginum og stolið hljómflutningstækjum og skemmd- ir unnar. Karlmaður var handtekinn eftir að slegið annan í andlitið aðfara- nótt laugardags. 19 ára piltur var handtekinn eftir að hafa skotið á 11 ára stúlku úr loftbyssu. Stúlkan hafði áverka á hendi eftir skotið. Nauðsynlegt er að fram komi að notkun slíkra vopna er ólögleg en því miður er algengt að þeim hafi verið smyglað til landsins. Treysta verður á að foreldrar brýni fyrir börnum sínum þær hættur sem fylgja slíkum vopnum. Úr dagbók lögreglunnar 14.–17. september Tíðindalítil helgi hjá lögreglunni NOKKRIR ungir piltar tóku sig til og gengu í hús í Borgarnesi og söfnuðu dósum og flöskum til styrktar knattspyrnudeild Skalla- gríms. Viðtökurnar fóru fram úr þeirra björtustu vonum og fylltu þeir marga svarta plastpoka. Eftir að hafa farið með þá Fjöliðjuna sem sér um að koma dóum og flösk- um í endurvinnslu lögðu þeir and- virðið að upphæð 7.096 kr. inn á reikning í eigu knattspyrnudeild- arinnar. Nökkvi G. Gylfason og Sig- ursteinn Orri Halfdánarson, fulltrúar söfnunarinnar, afhentu formanni knattspyrnudeildarinnar, Stefáni Loga Haraldssyni, kvitt- unina og sögðu við það tækifæri að þeir hefðu heyrt að deildin væri ekki nógu vel stödd fjárhagslega og vildu þeir leggja sitt af mörkum til að styrkja hana. Stefán þakkaði þeim stuðninginn og sagði að fram- takið sýndi dugnað og áhuga á að viðhalda öflugu starfi Skallagríms. Morgunblaðið/Guðrún Vala Styrktu knattspyrnu- deild Skallagríms Borgarnesi. Morgunblaðið.                                  MENNINGARMÁL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.