Morgunblaðið - 18.09.2001, Side 52
DAGBÓK
52 ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
ÞAÐ hafa eflaust vaknað ótalspurningar í huga fólks um
allan heim í kjölfar árásar hryðju-
verkamanna á Bandaríkin fyrir
réttri viku. Árásin hefur verið köll-
uð stríðsyfirlýsing og jafnvel hafa
erlendir fjölmiðlar tekið svo djúpt
í árinni að segja að heimsstyrjöld
sé skollin á. Sú spurning sem
margir spyrja sig þessa dagana er
hvernig þetta óhjákvæmilega stríð
verður háð, en ljóst er að það
verður ólíkt öllum öðrum styrjöld-
um sem mannkynið hefur mátt
þola.
x x x
ÓVINURINN að þessu sinni erekki þjóð eða þjóðabandalag
heldur alþjóðlegt net samtaka
hryðjuverkamanna frá ýmsum
þjóðlöndum sem örugglega mun
reynast erfitt að festa hendur á og
uppræta. Bandaríkin hafa hins
vegar sett sér það markmið að
gera einmitt það og hefur Bush
forseti sagt að vakinn hafi verið
sofandi risi sem muni hefna sín
grimmilega. Tekur hann sér þá í
munn ummæli japansks hershöfð-
ingja frá því árásin var gerð á
Perluhöfn, en í þeirri árás féllu
færri Bandaríkjamenn en í árás-
unum á New York og Washington
hinn 11. september síðastliðinn.
Þegar þetta er skrifað bendir allt
til þess að Afganistan verði vett-
vangur hernaðarátaka á næstunni
en allt eins er víst að átakasvæðin
eigi eftir að verða fleiri á komandi
misserum.
Fjöldi þjóða hefur lýst stuðningi
við Bandaríkin í þeirri baráttu sem
framundan er og við blasir að sú
heimsmynd sem menn hafa talið
sig búa við hefur splundrast og
enginn veit hvað framtíðin ber í
skauti sér. Þegar eru farin að
koma fram ýmis áhrif sem óhjá-
kvæmilega snerta hinn almenna
borgara þegar fram líða stundir.
Olíuverð fer hækkandi, flugsam-
göngur dragast saman vegna ótta
við hryðjuverk og samdráttar hef-
ur orðið vart í ferðaþjónustu.
Þannig mætti eflaust lengi telja
áfram. Þau efnahagslegu áhrif sem
hryðjuverkin í Bandaríkjunum og
afleiðingar þeirra munu hafa um
allan heim eru sennilega þau áhrif
sem hinn almenni heimsborgari á
eftir að finna hvað mest fyrir. En
hin hugarfarslegu og sálrænu áhrif
eru og verða einnig mikil. Margir
sem upplifðu þær tilfinningar sem
bærðust í brjósti manna um allan
heim þegar Kennedy forseti
Bandaríkjanna var myrtur haustið
1963 segjast finna fyrir svipuðum
tilfinningum nú. Einhver öryggis-
strengur hefur brostið.
x x x
EINN af kunningjum Víkverja,sem starfar í fjármálaheim-
inum, segir ýmsar spurningar við-
skiptalegs eðlis hafa vaknað í huga
sér í kjölfar árásarinnar á Tví-
buraturnana í New York. Meðal
þeirra sé spurningin um það hvort
menn hafi einblínt of mikið á notk-
un tölvutækninnar í viðskiptum.
Þau séu nú óðum að þróast í þá átt
að verða pappírslaus með öllu og
rafræn skráning að verða allsráð-
andi. Eigendur hlutabréfa og
skuldabréfa til dæmis hafi þannig
ekkert áþreifanlegt í höndunum
sem sannar eignarréttinn ef hin
rafrænu gögn eyðast. Að sjálf-
sögðu sé svo um hnútana búið að
slíkt eigi ekki að geta gerst, en at-
burðir líðandi stundar veki óneit-
anlega þær spurningar hvort á það
sé treystandi. Veltir kunninginn
því nú fyrir sér hvort ekki hafi
verið farið of geyst í þessu efni, en
Ísland sé þarna í fararbroddi.
VIÐ Íslendingar erum það
vellesnir að við hengjum
ekki bakara fyrir smið.
Einn og annar hortittur er
samt inn á milli, til að
mynda, ef einn hundseig-
andi hirðir ekki eftir hund-
inn sinn gjalda aðrir hunds-
eigendur fyrir það. Þeir fá
ekki bónus.
Við Íslendingar erum á
leiðinni inn í fjölmenning-
arþjóðfélag, þar á hver út-
lendingur sem er, hverrar
þjóðar sem er, hvaða litar-
háttar eða trúar, að geta
gengið um stræti borgar-
innar, án þess að verða fyr-
ir aðkasti, hafi einhver af
hans kynþætti gjört skelfi-
legt verk. Það erlenda fólk
sem leyfð hefur verið land-
vist á ekki að vera huldu-
fólk, felubörn, af ótta um líf
sitt og sinna, hvort sem
þetta fólk er svart, brúnt,
gult eða annarrar trúar (við
Íslendingar erum almennt
trúræknir í dánarminning-
um).
Frelsi, eins og lýðveldis-
þjóðir kalla það, er frjáls-
borin hugsun mannsins.
Hún íhugar allar hliðar
málsins áður en hún tekur
ákvörðun.
P.S. Ég lýsi furðu minni
á, hvers vegna bandaríska
sendiráðið óskaði ekki líka
eftir nafnnúmeri og heim-
ilisfangi þeirra, sem í sann-
leika vottuðu samúð með
þeim, sem eiga um sárt að
binda vegna voðaverksins.
Hér heita margir Jón
Jónsson og svo framvegis.
Guðrún Jakobsen,
Bergstaðastræti 34.
Verndum Ísland
AÐ undanförnu hefur verið
rætt um að virkja hér á
landi og bæta samgöngur.
Ísland er fallegasta land í
öllum heiminum og það
hreinasta sem til er. Virkj-
anir og stóriðja eins og ál-
ver eru alveg óþörf og
skapa mikla mengun og háa
skatta. Íslendingar ættu
frekar að einbeita sér að
tækninni og tölvumálum.
Samgöngumál eru einnig
ofarlega á baugi og finnst
mér að koma ætti á lestar-
samgöngum til að bæta um-
ferð og losa okkur við rútu-
bíla og flutningabíla úr
umferðinni. Eins vil ég
koma því að að þjóðinni ber
skylda til að taka vel á móti
innflytjendum sem setjast
að hér á landi. Verndum Ís-
land og eyðileggjum ekki
landið okkar, höldum því
eins og guð skapaði það.
Arna Sveinsdóttir.
Dýrahald
Ugla er týnd
UGLA er eins árs gömul
grábröndótt og hvít læða,
sem týndist miðvikudaginn
12. september í Blikanesi í
Garðabæ. Hún er mjög blíð
og kelin og líkur eru á að
hún hafi læðst inn í hús. Ef
einhver kannast við kisu
vinsamlegast hafið sam-
band við Árna (896 8186)
eða Sigrúnu (694 8186).
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Vel lesin
þjóð
VELVAKANDA barst bréf frá Kristínu A. Bjarkadóttur
þar sem henni þótti miður að sjá að ljóðið Dísir vorsins
eftir Bjarka Árnason var ekki rétt í Velvakanda sunnu-
daginn 2. september sl. og er því ljóðið birt hér eins og
það er frá hendi höfundar.
Dísir vorsins
Bráðum anda vorsins dísir djúpt og rótt
dagarnir þeir lengjast nóttin flýr
lofgjörð syngja fuglarnir af ljóðagnótt
loftsins ilmur seiðir hreinn og nýr.
Höfuð hneigja blómin móti blíðri sól
blundar silfur dögg á gleym mér ei
tilfinningar allar þær sem ástin ól
eiga griðarstað hjá sumarþey.
Þá skulum við koma út í kvöldgeisla flóð
kyrrð og friður signa okkar fund
sestu hjá mér vina mín svo saklaus og góð
sælunnar við njótum þessa stund.
Geisla fákar leika sér um loftin blá
lognöldurnar kveða brúðarlag
enginn skuggi fellur okkar ástir á
eftir þennn fagra sumardag.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Arn-
arfell, Norwegian Sun
og Goðafoss koma í dag.
Dröfn, Wolgastern,
Vædderen og Selfoss
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Bit-
land fer í dag, Selfoss
kemur í dag
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Mannamót
Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1, og Hæð-
argarður 31. Farin
verður haustlitaferð í
Bása við Þórsmörk 27.
sept. ef veður leyfir.
Hafa verður með sér
nesti til dagsins, hlý föt
og góða skó. Leið-
sögumaður: Helga Jörg-
ensen. Lagt af stað frá
Norðurbrún 1 kl. 8.30 og
síðan teknir farþegar í
Furugerði og Hæð-
argarði. Skráning í
Norðurbrún í síma 568-
6960, Furugerði í síma
553-6040 og í Hæð-
argarði í síma 568-3132.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bókband og öskjugerð,
kl. 13–16.30 opin smíða-
stofa, kl. 10–16 pútt-
völlur opinn. Allar upp-
lýsingar í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 tré-
skurður, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 10–11.30 sund,
kl. 13–16 leirlist. Haust-
litaferð verður þriðju-
daginn 25. september kl.
13. Ekið um Kjós-
arskarð til Þingvalla.
Farið um Grafning og
Línuveg heim. Kaffi-
hlaðborð í Nesbúð,
skráning og greiðsla í
síma 568-5052 eigi síðar
en þriðjudaginn 18. sept.
María Marteinsdóttir
fótaaðgerðafræðingur
byrjar 1. okt. Pantanir í
síma 691-0659.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–12
aðstoð við böðun, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan
opin, kl. 10–11 sam-
verustund, kl.14 fé-
lagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Saumar og brids kl.
13.30. Púttað á vellinum
við Hrafnistu kl. 14.
Lokafundur fyrir þátt-
takendur í Pragferðina
verður miðvikud. 19.
sept. kl. 13. Opið hús
verður fimmtudaginn 20.
sept. og verður þá m.a.
kynnt dagskrá vetr-
arins.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15–
13.45 bókabíll.
Garðabær. Opið hús í
Kirkjuhvoli í dag kl 13–
16. Spilað og spjallað.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Þriðjudagur
kl. 13 málun, 13.30 tré-
skurður, 13.30 spilað í
Kirkjuhvoli, brids, vist,
lomber og tafl. Miðviku-
dagur kl. 11.15 leikfimi,
kl. 13 leikfimi. Fimmtu-
dagur kl. 9.45 boccia, kl.
10 keramik, Fótaað-
gerðastofa opin 9–14. Á
næstunni: Haustferð
Kvenfélagsins 19. sept.
kl. 13.30. Snyrti-
námskeið byrjar 25.
sept. kl. 9. Spænska
hefst 27. sept. kl. 12.15.
Leshringur á Bókasafni
Garðabæjar byrjar 1.
okt. kl. 10.30. Bútasaum-
ur byrjar 3. okt. kl. 16 í
Garðaskóla. Leshringur
á Bókasafni Álftaness
byrjar 10. okt. kl. 15.
Nánar www.fag.is. Sími
565 6622.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 handavinnustofa
opin, leiðbeinandi á
staðnum frá kl. 10–17,
kl. 9.30 glerlist, kl. 9.05
og 9.50 leikfimi, þriðju-
dagsganga fer frá Gjá-
bakka kl. 14, kl. 17.15
kínversk leikfimi. Kl. 13
enskuhópur, kl. 14
boccia, kl. 16.30 og 17.15
kínversk leikfimi. (ath 2
hópar)
Hvassaleiti 56–58. Kl 9
leikfimi, kl. 13 handa-
vinna.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 10–
11 boccia, kl. 11–12 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð í Bónus, kl. 13–
17 hárgreiðsla, kl. 13
myndlist.
Háteigskirkja eldri
borgarar á morgun mið-
vikudag fyrirbænastund
kl. 11, súpa í Setrinu kl.
12, spil kl. 13–15.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10–11
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla. Leirnámskeið
hefst fimmtudaginn 4.
október, frá kl. 10–15.
Innritun stendur yfir,
takmarkaður fjöldi.
Upplýsingar í síma 568-
6960.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16
bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11–
12 leikfimi. kl. 13–16
spilamennska.
Hálfsdagsferð fimmtu-
daginn 27. sept. kl. 13.
Farið verður á sýningu á
útskurðarverkum eftir
Siggu á Grund sem tek-
ur á móti hópnum í sjón-
minjasafni Íslands í
Hafnarfirði. Ekið verður
til Krísuvíkur. Kaffiveit-
ingar í Bláa lóninu, skoð-
unarferð um Grindavík.
Leiðsögumaður Nanna
Kaaber, athugið tak-
markaður fjöldi, sækja
þarf farmiðana fyrir
þriðjudaginn 25. sept.
upplýsingar og skráning
í síma 562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
morgunstund og hand-
mennt, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 14 félagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svarað
í síma 552 6644 á fund-
artíma.
Eineltissamtökin. Fund-
ir á Túngötu 7, á þriðju-
dögum kl. 20.
ITC Irpa heldur fund í
kvöld kl. 20 í Hverafold
5. Allir velkomnir. Uppl.
gefur Pétur s: 699-5023.
ITC Fífa Kópavogi fund-
ur á morgun kl. 20.15–
22.15 í safnaðarheimili
Hjallakirkju. Allir vel-
komnir.
Kvenfélag Kópavogs
fundur fimmtudaginn
20. sept. kl. 20.30 í
Hamraborg 10.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Austfjörðum.
Á Seyðisfirði: hjá Birgi
Hallvarðssyni, Botnahlíð
14, s. 472-1173. Á Nes-
kaupstað: í blómabúð-
inni Laufskálanum,
Kristín Brynjarsdóttir,
Nesgötu 5, s. 477-1212.
Á Egilsstöðum: í
Blómabæ, Miðvangi, s.
471-2230. Á Reyðarfirði:
hjá Grétu Friðriksd.,
Brekkugötu 13, s. 474-
1177. Á Eskifirði: hjá
Aðalheiði Ingimundard.,
Bleikárshlíð 57, s. 476-
1223. Á Fáskrúðsfirði:
hjá Maríu Óskarsd.,
Hlíðargötu 26, s. 475-
1273. Á Hornafirði: hjá
Sigurgeir Helgasyni,
Hólabraut 1a, s. 478-
1653.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Skák kl. 13,
alkort kl. 13.30. Athugið
að skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sami
sími. Félagsstarfið verð-
ur áfram í Ásgarði. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum kl. 10-
12. Uppl. á skrifstofu
FEB kl. 10-16 í s. 588-
2111.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í síma
552-4440 frá kl 13-17.
Eftir kl. 17 s. 698-4426
Jón, 552-2862 Óskar eða
563-5304 Nína
Í dag er þriðjudagur 18. sept-
ember, 261. dagur ársins 2001.
Orð dagsins: Gæt því þess, að
ljósið í þér sé ekki myrkur. Sé því
líkami þinn allur bjartur og hvergi
myrkur í honum, verður hann
allur í birtu, eins og þegar lampi
lýsir á þig með loga sínum.
(Lúk. 11, 35.–37.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 orrustan, 8 viðurkenn-
ir, 9 ávinningur, 10 smá-
býli, 11 eiga við, 13
mannsnafns, 15 ræman,
18 mastur, 21 hress, 22
korgur, 23 frumeindar,
24 stöðuglynda.
LÓÐRÉTT:
2 hindri, 3 tilbiðja, 4 kátt,
5 beri, 6 fánýti, 7 jurt, 12
ferski, 14 vafi, 15 blýkúla,
16 kjálka, 17 tanginn, 18
hengingaról, 19 klúrt, 20
kvenfugl.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hlyns, 4 gumar, 7 peisa, 8 leynt, 9 púl, 11 röng,
13 átta, 14 eflir, 15 gust, 17 illt, 20 eta, 22 fersk, 23 und-
ur, 24 norni, 25 trauð.
Lóðrétt: 1 hopar, 2 ylinn, 3 skap, 4 gull, 5 meyrt, 6 rotna,
10 útlát, 12 get, 13 ári, 15 gufan, 16 súrar, 18 lydda, 19
tórað, 20 ekki, 21 autt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16