Morgunblaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 53 DAGBÓK Árnað heilla 60 ÁRA afmæli. Sextug-ur er í dag, þriðju- daginn 18. september, Haukur Hannibalsson, starfsmaður Delta, Digra- nesheiði 34, Kópavogi. Hann og eiginkona hans, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, ætla að fagna þessum tíma- ótum í félagsheimilinu Gull- smára, Gullsmára 13, 2. nóv- ember nk. Haukur er að heiman í dag. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 28. júlí sl. í Mosfells- kirkju af séra Sigurði Arn- arsyni Ásdís Hannesdóttir og Jón Ólafur Halldórsson. Heimili þeirra er í Árbæ. Ljósm./Jón Ingi Sigvaldason LJÓÐABROT ÞÁ VAR ÉG UNGUR Hreppsómaga-hnokki hírðist inni á palli, ljós á húð og hár. Steig hjá lágum stokki stuttur brókarlalli, var svo vinafár. Líf hans var til fárra fiska metið. Furðanlegt, hvað strákurinn gat étið. Þú varst líknin, móðir mín, og mildin þín studdi mig fyrsta fetið. Mér varð margt að tárum, margt þó vekti kæti og hopp á hæli og tám. – Þá var ég ungur að árum. – „En þau bölvuð læti,“ rumdi ellin rám. Það var eins og enginn trúa vildi, að annað mat í barnsins heimi gildi. Flýði ég til þín, móðir mín, því mildin þín grát og gleði skildi. – – – Örn Arnarson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú ert alvörugefinn og íhug- ull með þroskaðan fegurð- arsmekk, sem fáir vita af sökum feimni þinnar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ættir að endurskoða af- stöðu þína til vinnu og sam- starfsmannanna. Þyki þér starfið ekki nógu krefjandi ættirðu að íhuga að skipta um starf. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hvað er að segja um sam- skipti þín og þinna nánustu? Ef þú ert ánægður með þau er allt í lagi, en viljirðu breytingar, drífðu þá í þeim. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú ert uppfullur af hug- myndum um hinar og þessar breytingar. Reyndu að koma einhverjum þeirra í verk í fullu samráði við vini og vandamenn. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ættir að setjast niður og íhuga aðeins þau auðæfi sem þú átt í systkinum og vinum. Það er hins vegar ekkert sjálfgefið að þú njótir þeirra. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er alltaf svo að nýir vinir koma með nýjar hugmyndir inn í líf þitt. Þótt freistandi séu skaltu ekki breyta til að óathuguðu máli. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú hefur látið reka á reið- anum með heilsu þína, en verður nú að taka þau mál föstum tökum. Rétt mat- aræði, útivist og hreyfing gera kraftaverk Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þótt þér gangi margt í hag- inn á yfirborðinu, máttu ekki gleyma þínum innri manni. Sinntu honum líka svo jafn- vægi ríki hið ytra og innra. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Hlustaðu á þær raddir sem berast frá fjarlægum stöð- um. Þó margt hljómi fram- andi getur þú ýmislegt lært, ef þú ert opinn og fordóma- laus. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hefðir gott af því að staldra aðeins við og velta framtíðinni fyrir þér. Þar skiptir mestu, að þú keppir að eigin takmarki en ekki annarra. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú ert aldrei of gamall til að læra. Láttu það hikstalaust eftir þér að leita meiri menntunar. Þér standa ýms- ar dyr opnar í þeim efnum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þótt annirnar séu miklar máttu ekki missa sjónar á því hver staðan er efnislega og andlega. Þessir þættir þurfa að vera í lagi til að þú sért það. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er eðlilegt að þér finnist að þér vegið, þegar grund- vallarskoðanir þínar eru dregnar í efa. En vertu opinn og varastu alla þröngsýni. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. KRISTJÁN Blöndal var einn af örfáum sagnhöfum sem tókst að búa til ellefu slagi í þremur gröndum suðurs, en spilið er frá sumarbridsi í Húnabúð á fimmtudaginn. Þátttaka var óvenju góð, 29 pör, og unnu Kristján og Hrólfur Hjaltason á rúmlega 62% skor. Norður ♠ 8762 ♥ 1095 ♦ Á82 ♣ K72 Vestur Austur ♠ D1093 ♠ K54 ♥ G74 ♥ K32 ♦ 5 ♦ D976 ♣ D10864 ♣ G95 Suður ♠ ÁG ♥ ÁD86 ♦ KG1043 ♣ Á3 Kristján og Hrólfur voru fljótir í þrjú grönd og vest- ur kom út með lítið lauf. Kristján tók slaginn heima með ás og hitti á að taka tígulás og svína gosa. En það var aðeins hálfur sigur, því austur átti fjórlit og að- eins ein innkoma eftir í blindum, sem Kristján vildi gjarnan nota til að svína líka í hjartalitnum. En hann fann snjalla lausn á samgangsvandanum þegar hann spilaði næst hjarta- áttu að heiman! Í reynd lét vestur lítið hjarta og áttan kostaði kónginn en það hefði engu breytt þótt vest- ur hefði tekið með gosa. Kristján hugðist þá nota síðustu innkomuna á lauf- kóng til að spila hjartatíu og svína. Ef austur leggur kónginn á tíuna verður nían innkoma sem nota má til að svína aftur í tígli. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson Staðan kom upp á Skákþingi Íslands, landsliðsflokki, sem lauk fyrir skömmu í Hafn- arfirði. Stórmeistarinn, Þröstur Þórhallsson (2.459), hafði hvítt gegn sitjandi Ís- landsmeistara, Jóni Viktori Gunnarssyni (2.404). 12. Re4! Frumkvæðið er kirfi- lega í höndum hvíts eftir þetta en úrslitin eru þó hvergi nærri ráðin. Fram- haldið varð: 12... .Be7 13. Rg5 h6 14. Rf3 Rc5 15. De3 Dc7 16. Kb1 Bb7 17. h4 b4 18. h5 a5 19. Bb5+! Bc6 20. Bxc5 Bxb5 21. Bxe7 Dxe7 22. Rd4 Bd7 23. g4 a4 24. f5 a3 25. b3 Hc8 26. Hhf1 Dg5 27. De1 Hc3 28. Re2 Hc8 29. Dxb4 exf5 30. gxf5 Bxf5 31. Rd4 Bd7 32. Rb5 Be6 33. Rd6+ Kd7 34. Rxf7 og svartur lagði niður vopnin. Skákin tefldist í heild sinni: 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 cxd4 8. Rxd4 Bc5 9. Dd2 Rxd4 10. Bxd4 a6 11. O-O-O b5 o.s.frv. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Árnað heilla Þessir duglegu drengir, Ævar Ingi Jóhannesson og Vil- hjálmur Ingi Ingólfsson, héldu nýlega hlutaveltu á Akureyri til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust 2.200 krónur. Morgunblaðið/Kristján STJÖRNUSPÁ mbl.is Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 23. júní sl. í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði af sr. Ein- ari Eyjólfssyni Inga Dóra Hrólfsdóttir og Axel Jóns- son.       Yazz - Cartise Hamraborg 7, sími 544 4406 Nýjar glæsilegar yfirhafnir Lágmarksverð Einnig dreifingaraðilar Rýmingarsala Á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050 Mikil verðlækkun Silki-damask — bómullar-satín Einnig tilbúin rúmfatnaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.