Morgunblaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Vædderen og Sæbjörg
koma í dag. Mánafoss,
Örfirisey og Helgafell
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Hrafn fór á veiðar í gær.
Hvilvtenni kom í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 14
bingó.
Árskógar 4. Bingó kl.
13.30. Kl. 13–16.30 er
smíðastofan opin. Allar
upplýsingar í síma 535-
2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 bað, kl. 9–12 bók-
band, kl. 9–16 handa-
vinna og fótaaðgerð,
kl.13–16 spilað í sal og
glerlist. Opið hús
fimmtudaginn 4. okt. kl.
19–21. Ágústa Sigrún
Ágústsdóttir syngur lög
af geisladiski föður síns.
Upplestur og dans. Allir
velkomnir. María Mar-
teinsdóttir fótaaðgerða-
fræðingur byrjar 1. okt.
Pantanir í s. 691-0659.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á þriðju-
dögum og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og fönd-
ur. Jóga á föstudögum
kl. 13.30. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Tíma-
pöntun í fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566-8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–12
aðstoð við bað, kl. 9–
16.45 er hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 9 er
handavinnustofan opn-
uð.
Félagsstarfið Furugerði
1 Kl. 9 er aðstoð við bað,
smíðar og útskurður, kl.
14 kynnir Ágústa
Ágústsdóttir geisladisk-
inn „Hittumst heil“ með
lögum eftir Ágúst Pét-
ursson.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8 (Gjá-
bakka) kl. 20.30. Haust-
litaferð. Farið verður í
haustlitaferð þriðjudag-
inn 2. október ef veður
leyfir. Farið verður frá
Gjábakka kl. 13 og Gull-
smára kl. 13.15. Boðið
uppá kaffi í ferðinni.
Þátttökulistar í Gjá-
bakka, sími 554 3400, og
Gullsmára, sími 564
5260. Skráið ykkur sem
fyrst.
Ferðanefnd.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 bað,
kl. 10 hársnyrting, kl.
10–12 er verslunin opin,
kl. 13 „opið hús“, spilað á
spil.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Myndlist kl. 13, brids kl.
13.30 og pútt á vellinum
hjá Hrafnistu kl. 14. Í
kvöld verður dansleikur
kl. 20.30. Caprí tríó leik-
ur fyrir dansi. Að-
göngumiði gildir sem
happdrættismiði. Á
morgun er ganga kl. 10.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga kl. 10–
13. Matur í hádeginu.
Fræðslunefnd FEB efn-
ir til heimsóknar og
fræðslukynningar hjá
Íslenskri erfðagreiningu
í dag, föstudag. Brottför
frá Ásgarði í Glæsibæ
kl. 14. Skrifstofa félags-
ins er flutt að Faxafeni
12, sama símanúmer og
áður. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði í
Glæsibæ. Upplýsingar
og skráning í ferðir og
námskeið á skrifstofu
FEB kl. 10–16, s. 588-
2111.
Félag eldri borgara
Garðabæ. Kór aldraðra í
Garðabæ vantar bæði
kven- og karlaraddir.
Æfingar mánudaga kl.
17. Upplýsingar í síma
565-6424.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Leshringur á
Bókasafni Garðabæjar
byrjar 1. okt. kl. 10.30.
Bútasaumur byrjar 3.
okt. kl. 16 í Garðaskóla.
Leshringur á Bókasafni
Álftaness byrjar 10. okt.
kl. 15. Nánari upplýs-
ingar á www.fag.is. Sími
565 6622.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
myndlist og rósamálun á
tré, kl. 9–13 hárgreiðsla,
kl. 9.30 gönguhópur, kl.
14. brids.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 eru vinnu-
stofur opnar, frá hádegi
er spilasalur opinn,
föstudaginn 28. sept. kl.
16: „Leitað í sandinn“.
Dagskrá vegna útkomu
bókar Ólafs Kr. Þórð-
arsonar, m.a. upplestur,
Gerðubergskórinn
syngur ljóð Ólafs við lag
Kára Friðrikssonar kór-
stjóra og félagar úr Tón-
horninu leika létt lög.
Allir velkomnir. Allar
veitingar í veitingabúð
Gerðubergs. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband,
kl. 9.15 rammavefnaður.
Gullsmári Gullsmára 13.
Glerlistahópur kl. 10.
Gleðigjafarnir syngja í
Gullsmára kl. 14.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9 handa-
vinna, bútasaumur, kl.
10–12 pútt, kl. 11–12
leikfimi og spurt og
spjallað. Kynning á
vetrarferðum í dag kl.
14. Árni Norðfjörð
skemmtanastjóri kynnir
haust- og vetrarferðir á
vegum ferðaskrifstof-
unnar Sólar. Árni mun
einnig spila nokkur lög á
harmónikku. Happ-
drætti gildir sem þátt-
taka í ferð. Kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
bað, leikfimi og postulín,
kl. 12.30 postulín. Fót-
snyrting og hársnyrting.
Haustferð.
Farið verður í haustferð
miðvikudaginn 3. okt. nk.
Lagt verður af stað
frá VR-húsinu með við-
komu á Sléttuvegi kl.
13.30. Ekið um Heið-
mörk og farið í heimsókn
að Jaðri. Gvend-
arbrunnar skoðaðir og
þar verða kaffiveitingar.
Skráning fer fram á
skrifstofunni í Hvassa-
leiti og í síma 588-9335.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 10–11 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 10–11 kánt-
rídans, kl. 11–12 stepp,
kl. 9.15–14.30 handa-
vinna, kl. 13.30 sungið
við flygilinn, kl. 14.30
kaffi og dansað í aðalsal.
Helgistund fimmtudag-
inn 4. október kl. 10.30 í
umsjón séra Hjálmars
Jónssonar dóm-
kirkjuprests, kór Fé-
lagsstarfs aldraðra syng-
ur undir stjórn
Sigurbjargar P. Hólm-
grímsd. Ath.! Nýtt á
Vesturgötu 7. Leirmótun
hefst í október, kennt
verður á fimmtudögum
kl. 17–20. Leiðbeinandi
Hafdís Benediktsdóttir,
upplýsingar og skráning
í síma 562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 leikfimi og fótaað-
gerðir, kl. 12.30 leir-
mótun, kl.13.30 bingó.
Háteigskirkja, aldraðir.
Samvera í Setrinu kl. 13–
15. Söngur með Jónu,
vöfflur með kaffinu.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt Húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16–25 ára) að mæta með
börnin sín á laug-
ardögum kl.15–17 á
Geysi, Kakóbar, Að-
alstræti 2 (Gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Slysavarnadeild kvenna
í Reykjavík. Fundur og
óvissuferð laugardaginn
29. sept., mæting kl.
11.30 í Höllubúð. Boðið
upp á léttan hádegismat.
Lagt af stað í óvissuferð-
ina kl. 13.
Söngvinir – kór aldraðra
í Kópavogi mun hefja
vetrarstarfið 1. október.
Söngæfing verður mánu-
daginn l. okt. og hefst kl.
17.15 í Gjábakka. Mæt-
um öll með bros á vör!
Í dag er föstudagur 28. september,
271. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Svo segir Drottinn: Varðveitið
réttinn og gjörið það, sem rétt er,
því að hjálpræði mitt er í nánd
og réttlæti mitt birtist bráðlega.
(Jes. 56, 16.)
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 baggi, 4 þrífa, 7 hluta, 8
niðurinn, 9 brotleg, 11
húsleifar, 13 nagli, 14
hyggja, 15 greinilegur,
17 skoðun, 20 bókstafur,
22 var fastur við, 23 skyn-
færin, 24 kona, 25 búa
nesti.
LÓÐRÉTT:
1 sleppa naumlega, 2 af-
rennsli, 3 sæti, 4 kná, 5
seint, 6 hagnaður, 10
skorturinn, 12 hreinn, 13
gyðja, 15 hamingjan, 16
rotnunarlyktin, 18 vind-
leysu, 19 kvarssteinn, 20
hlífa, 21 heiti.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 þrælmenni, 8 eimur, 9 innbú, 10 kyn, 11 tauta,
13 skaða, 15 gangs, 18 útlit, 21 kær, 22 matta, 23 ildið, 24
æðikollur.
Lóðrétt: 2 remmu, 3 lurka, 4 efins, 5 nenna, 6 tekt, 7
húfa, 12 tog, 13 kát, 15 góma, 16 notið, 17 skark, 18 úrill,
19 lyddu, 20 tuða.
Fyrirspurn
Á SAMA tíma og RÚV er að
berjast við fjárhagsvanda
gefa þeir eftir til eftirlauna-
þega 20% af afnotagjöldun-
um en Landssíminn sem
mokar inn milljörðum til
ríkisins gleymir afslættin-
um til eftirlaunaþega. Regl-
an er sú að RÚV gerir þetta
sjálfvirkt þegar viðkomandi
er orðinn 67 ára gamall en
Landssíminn ætlast til þess
að eftirlaunaþeginn sendi
þeim skilaboð um að hann sé
orðinn 67 ára gamall. Bæði
þessi fyrirtæki hafa hingað
til verið í eigu ríkisins. Hver
er skýringin á þessu?
Eftirlaunaþegi.
Ástkæra íslenskan
MEGAS verðlaunaður og
Bubbi með fyrirlestra í skól-
um.
Húsmóðir í Bolungarvík.
Dýrahald
Gulur og loðinn
köttur í óskilum
GULUR, loðinn köttur með
hvítar loppur fannst á Blóm-
vangi í Hafnarfirði sl. laug-
ardag. Þeir sem kannast við
kisa hafi samband í síma
565-1943.
Angórukanína
í óskilum
ANGÓRUKANÍNA fannst
í Seljahverfi þriðjudag 21.
sept. Uppl. í síma 557-3248.
Tapað/fundið
Óskilamunir
Karlmannshettuúlpa með
prjónahúfu og ullarbelg-
vettlingum í vösum fannst í
bíl frá Erlingi á Eyrar-
bakka. Ennfremur fannst
barnarúllukragapeysa og
ullarfingravettlingur í
Tungnaréttum. Uppl. í s.
486-8896.
Kvengleraugu
týndust
KVENGLERAUGU, tví-
skipt með blárri og glærri
umgjörð týndust sl. föstu-
dag. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 557-4181.
Silfurkross í óskilum
Lítill og fallegur silfur-
kross fannst við Digranes-
veg í vor, á svæðinu milli
pósthússins og blindra-
bókasafnsins. Upplýsing-
ar í s. 588-6838 eftir kl. 14.
Golfjakki týndist
GOLFJAKKI, blár með
grænu stykki á ermum,
týndist líklega fyrir
tveimur vikum. Skilvís
finnandi hafi samband við
Soffíu í síma 862-8347.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
Í SÍÐUSTU viku birtist í Velvak-anda bréf frá „Íslendingi“, sem
furðaði sig á því að í nýju vegabréf-
unum skyldu litir þjóðfánans í
skjaldarmerkinu vera vitlausir, blár,
rauður og grár í stað blás, rauðs og
hvíts. Spurði bréfritari hvort fána-
lögin ættu ekki að koma í veg fyrir
svona vitleysu. Það rifjaðist upp fyr-
ir Víkverja að í forsetaúrskurði um
skjaldarmerkið frá 17. júní 1944 er
einmitt skýrt kveðið á um að þar
skuli fánalitirnir vera aðrir en í
þjóðfánanum sjálfum: „Skjaldar-
merki Íslands er silfurlitur kross í
heiðbláum feldi með eldrauðum
krossi innan í silfurlita krossinum.“
Þar höfum við það svart á hvítu; það
sem „Íslendingi“ sýnist grátt í vega-
bréfinu, á að vera silfurlitt. Ekki
veit Víkverji hins vegar hvers vegna
ákveðið var á sínum tíma að hafa
silfurlitan kross í skjaldarmerkinu á
sínum tíma, í stað hvíta krossins í
þjóðfánanum.
x x x
FRÉTTIR um að hryðjuverka-menn hafi sýnt áhuga á áburð-
ar- og eiturdreifingarflugvélum í
Bandaríkjunum með það í huga að
ástunda efna- eða sýklavopnahernað
gegn almenningi, hljóta að vekja
ugg með fólki. Í Bandaríkjunum
hafa þessar flugvélar verið kyrrsett-
ar og lögregluvörður settur um þær.
Víkverji veltir því fyrir sér hvort
ekki þurfi að grípa til ráðstafana hér
á landi, t.d. að setja einu áburð-
arflugvél Íslendinga, Pál Sveinsson,
í sérstaka gæzlu. En kannski er
Páll, sem er af gerðinni Douglas
DC-3 og telst orðið til flugminja, of
fornfálegur til að hryðjuverkamenn
geti auðveldlega rænt honum og
notað til myrkraverka. Aldrei er þó
of varlega farið.
x x x
STARFSMANNASTEFNA Ikeaí Danmörku hefur vakið mikla
athygli þar í landi að undanförnu.
Ikea ákvað nýlega að hætta að bjóða
starfsfólki í jólahlaðborð, því að það
væri kristinn siður, sem gæti móðg-
að t.d. múslima í hópi starfsmanna.
Þá ætlar fyrirtækið ekki að gefa
neinar afmælisgjafir, því að það
gæti móðgað votta Jehóva og það
mun ekki heldur gefa brúðkaups-
gjafir, því að með því er gefið í skyn
að það sé eitthvað fínna að vera gift-
ur en í sambúð eða bara einhleypur.
Ikea í Danmörku ætlar vissulega að
halda áfram að halda veizlur og gefa
starfsfólki gjafir, en það á að vera á
„hlutlausum“ dögum.
x x x
ÞESSI ákvörðun Ikea hlýtur aðvekja fólk til umhugsunar um
það hvort kasta þurfi gömlum hefð-
um fyrir róða til þess að geta skap-
að jafnrétti meðal þjóðernis-, trúar-
og samfélagshópa. Víkverja finnst
að það yrði harla flatneskjulegt ef
fyrirtæki hættu að halda í heiðri
gamlar hefðir á borð við það að
vinnufélagarnir fari saman í jóla-
hlaðborð – sú hefð á sér reyndar
miklu dýpri rætur í Danmörku en á
Íslandi. Er ekki nær að í fyrirtækj-
um, þar sem starfar fólk af mismun-
andi uppruna, fái starfsmenn að
kynnast ólíkum hefðum og venjum
fólks af mismunandi þjóðerni og
trúarbrögðum, þannig að ýtt sé
undir fjölbreytnina í stað þess að
búa til fábreytta menningarflat-
neskju?
NÚ er sá tími þegar
haustuppskeran ætti að
vera komin í hús hjá
flestum bændum og
garðyrkjuáhugamönn-
um. Í nokkuð mörg ár
hef ég leigt land hjá
Garðlöndum Reykjavík-
urborgar í Skammadal
til að rækta kartöflur og
fleira og þó að arðsemin
sé ekki mikil þá er
ánægjan því meiri af
þessu dútli mínu. Þarna
blasa við kartöflugarðar
og smáhýsi þar sem fólk
er búið að setja niður
alls konar garðagræn-
meti og skrautblóm en
því miður virðast ein-
hverjir ökuþórar úr
nærliggjandi byggðum
hafa einstaka ánægju af
því að koma þarna upp
eftir, pikka upp kart-
öflur og ræna og rupla
rabarbara og rófum,
eins og segir í vísunni.
Hvernig stendur á því að
fólk getur ekki séð þetta
smáræði sem við erum
að rækta þarna upp frá í
friði? Ég er með all-
stóran kartöflugarð og
fallegan rabarbara og
það er hending ef þetta
fær að vera í friði tvö ár
í röð. Ef
svona er kom-
ið fyrir fólki,
að það þurfi
að stunda það
að keyra
marga kíló-
metra til að
ræna upp-
skeru af rab-
arbara og
kartöflum sem getur nú
varla talist dýr matur,
ja, þá held ég að fá-
tæktin sé orðin meiri
en almenningur gerir
sér grein fyrir og við
ættum að fara að koma
upp súpueldhúsum við
dyr næstu stórmarkaða
til að hjálpa þessu
hungraða fólki.
Virðingarfyllst,
Eyrún Ragnarsdóttir.
Ræna og rupla rabarbara og rófum
Morgunblaðið/Þorkell