Morgunblaðið - 28.09.2001, Side 44
FÓLK Í FRÉTTUM
44 FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GÖMLU vinirnir Paul McCartney og
Ringo Starr undirbúa nú stjörnum
prýdda tónleika ætlaða til að safna fé
handa fórnarlömbum árásanna á
Bandaríkin. Tónleikarnir munu fara
fram í Madison Square Garden 20.
október og tekur Sir Paul sérstaklega
beinan þátt í skipulagningu þeirra.
Hann vinnur nú hörðum höndum við
að fá í lið með sér stjörnur til að koma
fram og auk Ringos eru Mick Jagger
og Neil Young svo gott sem búnir að
samþykkja að vera með. Madison-
garðurinn tekur „einungis“ 18 þúsund
gesti og því má búast við því að mið-
inn muni kosta dágóðan skilding, svo
að nægilega mikið safnist nú í sarp-
inn.
Stjörnurnar keppast nú við að láta
fé af hendi rakna til þeirra sem urðu
fyrir barðinu á hryðjuverkunum.
Eins og kunnugt er söfnuðust 150
milljónir dala, 15 milljarðar króna, í
sjónvarpssöfnuninni á föstudaginn
var og nú stendur til að gefa út geisla-
disk með tónlistinni úr þættinum.
Einstaklingar hafa líka lagt sitt af
mörkum með beinu fjárframlagi,
t.a.m. gaf Julia Roberts 2 milljónir
dala, 200 milljónir króna, og Sandra
Bullock 1 milljón dala, 100 milljónir.
Angelina Jolie gaf aftur á móti afg-
önskum flóttamönnum 2 milljónir
dala.
Styrktartónleikar
Stjörnufans
í Madison-
garði
Paul McCartney
McCartneys
!
"""
#$%&'()'%*+&&,-*+$&,.
IRO Á ÍSLANDI, Loftkastalinn, kl. 20.
fös 28/9, lau 29/9 kl. 16 barnasýning
lau 29/9, sun 30/9 kl. 20 síðasta sýning
Miðasala er í síma 552 3000, virka daga
kl. 12-16, um helgar frá kl. 16 og fram að
sýningu.
& -!6
#
%6
7 - &"
#
%/
2 -+
%6
+ - /
%6
/ -%&
%6
@ - %7
%/
6 -!"
%6
%" - !%
%6
%% -* !+
!"
%! - !@
%/
!
C#
( *%2 %6
- -
( %" %6
!"##$%&&
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
e. Halldór Laxness
í leikgerð Sveins Einarssonar
FRUMSÝNING Í KVÖLD: kl. 20:00 UPPSELT
2. sýning su. 30. sept kl. 20 - UPPSELT
3. sýning fim 4. okt kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
4. sýning fö 5. okt. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
5. sýning lau 13. okt kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
6. sýning su 14. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI
7. sýning fi 18. okt kl. 20 - LAUS SÆTI
8. sýning fö 19. okt kl. 20 - LAUS SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 29. sept. kl. 20 - ÖRFFÁ SÆTI
Lau 6. okt, kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fö 12. okt. kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 20. okt. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
FÖ26. okt kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau 3. nov kl. 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eva Ensler
Lau 29. sept kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Su 30. sept kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI 50. sýning
Fi 4. okt kl. 20 - UPPSELT
Fö. 5. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 6. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fi 11. okt kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau 13. okt kl. 20 - LAUS SÆTI
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Lau 29. sept kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 6. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
Fim11. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
Fö 12. okt. 20 - LAUS SÆTI
ATH. AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
Stóra svið
Litla svið
3. hæðin
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Munið áskriftarkortin
Sölunni lýkur um helgina
VERTU MEÐ Í VETUR!!!
Haustfundur - Málþing - Námskeið
Bandalag íslenskra leikfélaga heldur haustfund
í Félagsheimili Kópavogs dagana 29. og 30. september 2001.
Fundurinn verður settur kl. 9.00 laugardaginn 29. september.
Í tengslum við fundinn verður haldið stutt námskeið í stjórnun
leikfélaga föstudagskvöldið 28. september kl. 20.00
og málþing um Leikstjórn í áhugaleikhúsi
laugardaginn 29. september kl. 14.00.
Málþing - Leikstjórn í áhugaleikhúsi
Setning: Einar Rafn Haraldsson, formaður Bandalagsins.
Frummælendur:
1. Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri.
2. Guðjón Sigvaldason, leikstjóri.
3. Þorgeir Tryggvason, áhugaleikhúsmaður.
4. Pétur Einarsson, tilnefndur af Félagi leikstjóra á Íslandi.
Fyrirspurnir og umræður á eftir sem allir eru hvattir til að taka þátt
í. Málþingið er öllum opið og kostar ekkert inn.
Nánari upplýsingar í síma 551 6974 eða á www.leiklist.is
www.leiklist.is
/
%7
%7
%7E(D F
!%
%7
/
%+
!@
%7
!@
%+
STAÐFEST hefur verið að breska
strákasveitin Five sé hætt störfum
en orðrómur þess efnis hefur verið
lífseigur. Sveitin tilkynnti þessa
ákvörðun samtímis á MTV og
heimasíðu sinni Fiveworld
(www.fiveworld.com) í gær. Að
sögn meðlima ákváðu þeir að
hætta á toppnum, fremur en að
norpa í lægri þrepum vinsældalist-
anna á næstu árum. Þeir félagar
neituðu því að endalokin væru
vegna innbyrðis rifrilda en í yf-
irlýsingu sagði Jason „J“ Brown:
„Við elskum hver annan heitar en
nokkru sinni og við viljum ekki að
aðdáendur okkar verði sorgmædd-
ir“. Ritchie Neville sagði aftur á
móti að gærdagurinn hefði verið
„næsterfiðasti dagur í sögu sveit-
arinnar. Sá erfiðasti var er um-
boðsmaðurinn okkar, Bob, lést.“
Sögusagnir um að Five væru
komnir að leiðarlokum í hörðum
heimi popptónlistar hófust er Sean
Conlon var hvergi sjáanlegur við
gerð myndbandsins við lagið
„Let’s Dance“. Opinbera skýringin
var sú að hann hefði verið veikur.
Fleiri atvik, til þess fallin að
skekja stoðir þessa vinsæla stráka-
bands, hafa þó átt sér stað að und-
anförnu. Innbyrðis átök hafa t.d.
ávallt verið fylgifiskur sveitarinnar
þó meðlimir hafi statt og stöðugt
lýst því yfir að allt væri það á
vinalegu nótunum og ennfremur
voru Jason „J“ Brown og Ritchie
Neville handteknir á dögunum fyr-
ir drykkjulæti og gert að mæta
fyrir rétt. Scott Robinson átti svo
barn fyrir stuttu með kærustunni
og hafði lýst því yfir að hann hefði
hug á að eyða meiri tíma með
þeim.
Five, eða 5ive, var hugarfóstur
sömu manna og skópu Spice Girls
og voru meðlimirnir valdir úr hópi
3.000 umsækjenda. Sveitin gaf út
þrjár plötur 5ive: The Album
(1998), Invincible (1999) og sú nýj-
asta, Kingsize, kom út fyrir stuttu.
Partíinu lokið
Five var ein vinsælasta strákasveit heims á meðan hún starfaði.
Strákasveitin Five hættir störfum