Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Forsvarsmenn framsækinna fyrirtækja segja skoðun sína og greina
frá reynslu sinni af gæðastjórnun með ISO 9000
Hvað er að græða
á gæðastjórnun?
Ráðstefna fyrir stjórnendur í fyrirtækjum föstudaginn 12. október nk.
Guðrún Ragnarsdóttir formaður Stjórnvísi, félags um framsækna stjórnun.Fundarstjóri:
iso@si.is
Bergsteinn Einarsson
Helgi Jóhannesson
Sigurjón Pétursson
Kjartan J. Kárason
Davíð Lúðvíksson
varaformaður Staðlaráðs Íslands
og stjórnarformaður Vottunar hf.
forstjóri Sets hf.
framkvæmdastjóri Vottunar hf.
forstjóri VKS hf.
framkvæmdastjóri
Norðurmjólkur ehf.
Framsögumenn:
í matvælaiðnaði
í byggingariðnaði
í upplýsingatækni
Staður: Salurinn
Stund: 8:45 - 11:30
Rafræn þátttökuskráning
Tónlistarhúsi Kópavogs, Hamraborg 6
föstudaginn 12. október
Sendið nafn og starfsheiti ásamt heiti
fyrirtækis og kennitölu á netfangið
fyrir 12. október nk. Þátttökugjald er
5.000 krónur. Innifalin ráðstefnugögn
og veitingar í fundarhléi.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna eru veittar í síma 520-7150.
Opinber fyrirlestur
Þorvaldar Gylfasonar, prófessors,
fyrir almenning miðvikudaginn
10. október kl. 16.15
Miðvikudaginn 10. október næstkomandi kl. 16.15 flytur
Þorvaldur Gylfason, prófessor, opinberan fyrirlestur fyrir al-
menning í Lögbergi, stofu 101. Heiti fyrirlestursins er: „Móð-
ir Náttúra: Menntar hún börnin sín? Eflir hún vöxt og við-
gang?“
Fyrirlesturinn er í tengslum við 60 ára afmæli deildarinnar
sem er á þessu ári.
Í fyrirlestrinum verður til dæmis spurt: Er það tilviljun, að
þjóðir, sem eiga olíulindir, búa yfirleitt við minni hagvöxt en
þær þjóðir, sem eiga engar olíulindir? Með fyrirlestrinum
verða sýndar fjölmargar skýringamyndir.
Að loknum fyrirlestrinum verða umræður og fyrirspurnir
undir stjórn Ágústar Einarssonar, prófessors, forseta Við-
skipta- og hagfræðideildar.
Fyrirlesturinn er öllum opinn
Viðskipta- og hagfræðideild
1941-2001
Kennsla í viðskiptafræði og hagfræði á Íslandi í 60 ár
H
AMILL segir ljóst að
menn hafi gert tölu-
vert af mistökum í
stefnumótun vegna
rafrænna viðskipta á
liðnum árum og kannski þau helst að
margir hafi ætlað sér að afla mikils
fjölda nýrra viðskiptavina í gegnum
Netið og græða mikið á stuttum
tíma. Þetta hafi sjaldnast gengið eft-
ir og menn hafi því verið að end-
urmeta stöðuna og læra af fyrri mis-
tökum.
Hver er meginboðskapur þinn til
þeirra sem vilja ná árangri í rafræn-
um viðskiptum?
„Meginboðskapur minn er ævin-
lega sá sami, þ.e. að minna menn á
þá staðreynd að viðskiptavinur hljóti
að vera í öndvegi. Það gilda í reynd
engin önnur lögmál um rafræn við-
skipti en önnur viðskipti, ætli menn
sér að ná árangri hljóta menn að
verða að uppfylla þarfir viðskipta-
vinanna. Ég tel að mikilvægasta
verkefni stjórnenda fyrirtækjanna í
sambandi við rafræn viðskipti sé að
þróa, hanna og hrinda í framkvæmd
viðskiptaáætlunum sem mæta þess-
um þörfum. Þetta á bæði við um raf-
ræn viðskipti á milli fyrirtækja og
fyrirtækja og einstaklinga.
Staðreyndin er sú að með tilkomu
rafrænna viðskipta hafa bæði fyr-
irtækin og neytendur farið að krefj-
ast hraðari afhendingar, betri og
ódýrari vöru og þjónustu sem er
sniðin að þeirra þörfum. Svarið við
þessu er að veita viðskiptalausnir
sem byggjast á skiptingu viðskipta-
vinanna í sérhópa og reyna síðan að
koma til móts við hvern hóp fyrir
sig, meðal annars í viðmóti á vefsíð-
um. Menn mega þó ekki heldur
gleyma þeim sannindum að verð-
mætir viðskiptavinir, sem einatt eru
ekki hlutfallslega margir, skila oft
mestu af hagnaði hvers fyrirtækis,
það er oft talað um 20/80-regluna í
þessu sambandi, þ.e. að 20% af við-
skiptavinunum skili 80% af tekjun-
um.
Hvað með þá áherslu sem margir
hafa lagt á að afla nýrra viðskipta-
vina með rafrænum viðskiptum?
Í hefðbundnum markaðsfræðum
læra menn það að það sé miklu
kostnaðarsamara að afla nýrra við-
skiptavina en að halda í núverandi
viðskiptavini. Þetta gildir einnig í
rafrænum viðskiptum. Tryggir við-
skiptavinir skila fyrirtækjunum
meira en nýir þegar til lengdar læt-
ur. Nota má rafræn viðskipti með
markvissum hætti til þess að halda
betur í núverandi viðskiptavini og
treysta sambandið við verðmætustu
viðskiptavinina. Og með rafrænum
viðskiptum skapast einnig tækifæri
til þess að draga úr viðskiptakostn-
aði við þá viðskiptavini sem minnstu
skila.
Um rafræn viðskipti má segja að
grundvallarþættirnir séu í reynd
frekar einfaldir en að hrinda þeim í
framkvæmd í raunveruleikanum er
hins vegar flóknara mál.
Að mínu mati eru fyrirtæki bæði í
Bretlandi og hér á Íslandi komin
nokkuð áleiðis í að tileinka sér raf-
ræn viðskipti en það mun þó vænt-
anlega taka þau tvö til þrjú ár til við-
bótar að ná góðum tökum á
rafrænum viðskiptum. En vil ég
taka fram að menn verða aldrei út-
lærðir á þessu sviði.
Hvað með Bandaríkjamenn, eru
þeir komnir lengra áleiðis en Evr-
ópubúar?
Ég er ekki viss um það. Flestar
rannsóknir sýna að evrópsk fyrir-
tæki séu eftirbátar þeirra banda-
rísku í rafrænum viðskiptum. Það
flækir hins vegar málið að það er
alltaf verið að bera saman stór
bandarísk fyrirtæki við fremur lítil
evrópsk. Ég held að ef menn horfa
til meðalstórra bandarískra fyrir-
tækja þá standi þau í reynd ekki
framar en þau evrópsku.
Hvað tækifæri felast í rafrænum
viðskiptum fyrir smærri hagkerfi á
borð við Ísland?
Hvað framtíðina snertir sé ég
bæði tækifæri og ógnanir fyrir lönd
á borð við Ísland eða Skotland.
Tækifærin felast í því að ef menn
stunda rafræn viðskipti með mark-
vissum hætti getur það opnað
smærri fyrirtækjum betri aðgang að
alþjóðlegum mörkuðum. Ógnunin
liggur aftur á móti í því að verða eft-
irbátur annarra á þessu sviði. Eins
er rétt að benda á það sem hefur
verið að gerast hjá þeim þjóðum
sem eru að nálgast vestrænu ríkin,
eins og í Asíu og Austur-Evrópu:
þau líta á Netið sem tæki til þess að
ná með hraðari hætti sömu lífsgæð-
um og vestrænu þjóðirnar. Þessi
hagkerfi búa við lægri framleiðslu-
kostnað en vestrænu ríkin og þegar
þau fara að nota sér Netið til þess að
komast inn á alþjóðlega markaði í
ríkari mæli geta þau vissulega orðið
ógn við fyrirtæki eins og hér á Ís-
landi.
Í fyrra var mér til dæmis boðið til
Litháens og tók ég þar meðal annars
þátt í að móta stefnu stjórnar Lithá-
ens í rafrænum viðskiptum fyrir
landið. Stjórnvöld þar ætla að styðja
mjög rækilega við fyrirtæki svo að
þau geti tileinkað sér rafræn við-
skipti enda telja þau að það muni
styrkja mjög stöðu landsins á al-
þjóðlegum mörkuðum. Það má því
fastlega gera ráð fyrir harðari sam-
keppni frá löndum á borð við Lithá-
en. Það getur verið hættulegt að
dragast aftur úr og það gildir bæði
fyrir fyrirtækin og þjóðirnar.“
Hættulegt að dragast aftur úr
Dr. Jim Hamill er forstjóri alþjóðaráðgjafarfyrir-
tækisins Catalyse International og sérfræðingur í
stefnumótun í netviðskiptum. Hamill hefur verið
lektor í alþjóðaviðskiptum við Strathclyde-háskól-
ann í Glasgow auk þess sem hann hefur haldið fyr-
irlestra víða um heim. Arnór Gísli Ólafsson hlust-
aði á fyrirlestur Hamills og hitti hann að máli á
markaðsviku ÍMARK.
arnorg@mbl.is
Hraðari afhendingar krafist
með tilkomu rafrænna viðskipta
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Jim Hamill: „Meginboðskapur minn er ævinlega sá sami, þ.e. að minna
menn á þá staðreynd að viðskiptavinur hljóti alltaf að vera í öndvegi.“
Á ÞESSU ári eru 15 ár frá því að
Gæðastjórnunarfélag Íslands var
stofnað og við þessi tímamót hefur
verið tekin sú ákvörðun að festa í
sessi þróun félagsins á undanförnum
árum með því að skipta um nafn. Í
fréttatilkynningu kemur fram að
þetta mikilvæga skref sé í samræmi
við það sem önnur fagfélög á Norð-
urlöndunum og í Norður-Evrópu
hafa verið að gera.
„Stjórnvísi er félag sem miðlar
þekkingu um stjórnun og árangurs-
ríkar aðferðir. Frá því að félagið var
stofnað hafa aðferðir og hugmynda-
fræði gæðastjórnunar náð að festa
sig í sessi á meðal íslenskra félaga og
stofnana. Það er ekki alltaf sem hug-
takið gæðastjórnun er notað sem
hattur á þá starfsemi en grunnhugs-
unin er til staðar. Þetta er mjög já-
kvæð þróun en á sama tíma hefur at-
hygli manna beinst í aðrar áttir eins
og til starfsþróunarmála, umhverfis-
og öryggismála og loks til ýmissa
nýrra aðferða sem hafa verið að líta
dagsins ljós á undanförnum árum.
Sama þróun hefur átt sér stað í um-
ræðu innan félagsins og síðan 1997
hefur hlutverk félagsins náð til allra
þátta stjórnunar. Félagsmenn eru
700 en þeir eru almennt fulltrúar
fyrirtækja eða stofnana sinna ,“ seg-
ir í tilkynningunni.
Gæðastjórn-
unarfélagið
verður
Stjórnvísi
HLUTABRÉF Landssíma Íslands
voru skráð á Tilboðsmarkað Verð-
bréfaþings í gær og voru fern við-
skipti með bréf félagsins fyrir 1.700
þúsund krónur á genginu 6,1. Út-
gefnir hlutir í Landssíma Íslands eru
alls 7.036.445.469 krónur að nafn-
virði.
Auðkenni Landssímans í við-
skiptakerfi Verbréfaþings verður
SIMI. ISIN-númer hlutabréfanna er
IS0000005452. Félagið verður tekið
inn í vísitölu upplýsingatækni 11.
október næstkomandi.
Hlutabréf
Símans á
Tilboðsmarkað
♦ ♦ ♦