Morgunblaðið - 09.10.2001, Síða 55

Morgunblaðið - 09.10.2001, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 55 betra en nýtt Sýnd kl. 6 og 8.  Kvikmyndir.com Nýr og glæsilegur salur Sýnd kl.10.Sýnd kl. 6, 8 og 10. Það þarf þorpara til að negla þjóf. Frábær gamanmynd með stórleikurunum Martin Lawrence og Danny DeVito Sprenghlægileg mynd frá sama manni og færði okkur Airplane og Naked Gun myndirnar. Hér fara á kostum Rowan Atkinson, hinn eini sanni Mr. Bean, og John Cleese, úr Monty Python, ásamt fleiri frábærum leikurum. Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10.15. Vit 268Sýnd kl. 8 og 10. Vit 269  Kvikmyndir.com  Rás 2  Mbl Með sama genginu MAGNAÐ BÍÓ Sýnd. 5.30, 8 og 10.30. Hrikalega flott ævintýramynd með hinum sjóðheita og sexý Heath Ledger (Patriot). Hugrakkar hetjur, fallegar meyjar, brjálaðar bardagasenur og geggjað grín. Búðu þig undir pottþétta skemmtun! Cool Movie of the Summer! Rolling Stone Magazine Hann Rokkar feitt! Það þarf þorpara til að negla þjóf. Frábær gamanmynd með stórleikurunum Martin Lawrence og Danny DeVito Sýnd. 6, 8 og 10. S k r á n i n g e r í s í m a 5 6 5 - 9 5 0 0 Ertu undir pressu? Það er hægt að létta á pressunni hratt, örugglega og með einföldum hætti. Aðferðin dugir ævilangt við allt nám og öll störf! Komdu á hraðlestrarnámskeið - strax. Síðasta námskeið ársins hefst 25. október. Síðasta hraðlestrarnámskeiðið... HRAÐLESTRARSKÓLINN w w w. h r a d l e s t r a r s k o l i n n . i s Sýnd kl. 10. Vit270 Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 245Sýnd kl. 8. X-ið Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 269 Í KVÖLD kl. 19.30 verður frum- sýnd ný íslensk þáttaröð á Stöð 2. Ber hún heitið Sjálfstætt fólk og er í umsjón hins góðkunna dag- skrárgerðarmanns Jóns Ársæls Þórðarsonar. „Þetta eru vikulegir þættir; hálftímalangir, þar sem við tökum fyrir valinkunna Íslendinga sem flestir ef ekki allir landsmenn þekkja,“ útskýrir Jón. „Við reynum að bregða upp ann- arri mynd af þessum einstakling- um en þeir gefa venjulega af sér í fjölmiðlunum. Ég tek á með fólki, fer í róður með mönnum, hjálpa því á skrifstofunni eða úti í bíl- skúr. Stundum fer ég líka til ná- grannanna eða vinanna til að njósna um viðkomandi.“ Jón segir hugmyndina að þátt- unum hafa verið að malla í pott- unum í þó nokkuð langan tíma. „Á hverjum tíma eru alltaf ein- hverjir sem eru mikið í fjölmiðl- unum en við fáum gjarnan sömu myndina af þessu fólki,“ segir Jón. „Mig hefur því oft langað til að hnýsast bak við tjöldin ef svo mætti að orði komast. Ég hef fund- ið að ef maður lendir í heyskap með fólki; rær til fiskjar með því eða lendir í því að skipta um dekk með þingmanni þá kemur oft í ljós annar maður en ég þekkti í frétt- unum sem ég hef verið að vinna.“ Jón segir að vel hafi gengið að vinna þættina; og í fyrstu tveimur þáttunum verði Friðrik Þór Frið- riksson og Vigdís Finnbogadóttir heimsótt. „Ég stalst heim til Friðriks án þess að hann vissi af því og ég þreif húsið og bjó um. Lagðist svo til svefns og var sofandi í rúminu eins og Mjallhvít þegar dvergarnir komu heim.“ Jón segir að Friðrik hafi tekið þessu mjög ljúfmannlega. „Hann var mjög ánægður með að það væri búið að þrífa. Ég held að það hafi fyrst og fremst verið það!“. Ný þáttaröð á Stöð 2 Sjálfstætt fólk Jón Ársæll Þórðarson er um- sjónarmaður Sjálfstæðs fólks. STEFNUMÓT Undirtóna eru með ögn breyttu sniði í kvöld en þá mun Jakob Frímann Magnússon, JFM, eiga stefnumót við sjálfan sig. Þar mun hann leika lög af plötu sinni Special Treatment sem út kom upp- runalega í byrjun níunda áratugar- ins og hefur nú verið endurútgefin á geisladiski í fyrsta sinn en einnig mun hann leika lög af plötu sinni Made in Reykjavik sem út kom fyrr á árinu. Special Treatment „Þetta verða í raun tvöfaldir út- gáfutónleikar,“ segir Jakob. „Það verða valinkunnir spilarar með í för. Blásararnir Jóel Pálsson og Birkir Freyr Matthíasson verða þarna (en þeir léku báðir á Made in Reykja- vik), Georg Bjarnason, Jóhann Hjör- leifsson og Kristján Edelstein einn- ig. Svo er ekki útilokað að einhverjir gestir detti inn.“ Jakob segir að þetta verði í fyrsta skipti sem obbinn af efni kvöldsins verði frumfluttur á tónleikum. „Ég kynnti aldrei Special Treat- ment-plötuna hérlendis með tón- leikahaldi á sínum tíma en fór í stutt- ar tónleikaferðir um Ameríku og Evrópu í kjölfar útgáfunnar,“ segir Jakob. Special Treatment markaði að mörgu leyti tímamót er hún kom út. Hún var fyrsta plata Íslendings sem út kom í Bandaríkjunum og fékk dreifingu auk þess á Norðurlöndun- um, í Japan og í Malasíu. Að gerð hennar komu auk Jakobs fjölmargir af fremstu tónlistarmönnum Banda- ríkjanna, m.a. saxófónleikari Blues Brothers og L.A. Express, Tom Scott; saxófónleikari Rolling Stones, Earnie Watts og djassleikarinn Joe Farrell; gítarleikari Chick Corea, Carlos Rios; gítarleikari Doobie Brothers, Jeff Skunk Baxter; bassa- leikarinn Steve Anderson; ásláttar- meistari Weather Report, Manolo Badrena og svo má áfram telja. Sinfóníuhljómsveit undir stjórn Jeremy Lubbock leikur með í mörg- um laganna en upptökustjórn ann- aðist upptökustjóri Joni Mitchell til margra ára, Henry Lewy. „Það var nú bara þannig að ég var kallaður með stuttum fyrirvara á tónleikaferð með Long John Baldry um Norður-Ameríku,“ segir Jakob og segir frá tilurð þess að Special Treatment var gerð. „Sú ferð endaði í Los Angeles og þar sem ég var með Horft í roðann í farteskinu var ég kominn með tveggja plötu samning áður en ég vissi af um að gera tvær „instrumental“ plötur, eins og Horft í roðann er að hluta. Ég fékk prýði- legt svigrúm til að vinna plötuna og gat valið með mér laghenta sam- starfsmenn til verksins.“ Fleiri plötur Búast má við fleiri endurútgáfum á verkum Jakobs, t.d. á Carribean Rhapsody (Tvær systur), en titlar þessir hafa verið ófáanlegir um langa hríð. Jakob er svo að leggja drög að nýrri plötu; og má búast við að hún verði í svipuðum anda og Made in Reykjavik. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21.45 og fara fram á Gauki á Stöng. Bræðingshesturinn fer á hlemmiskeið Morgunblaðið/Golli Jakob Frímann Magnússon, stundum þekktur sem JFM. JFM á Stefnumóti www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10.10. Sýnd kl. 6. Sprenghlægileg mynd frá sama manni og færði okkur Airplane og Naked Gun myndirnar. Hér fara á kostum Rowan Atkinson, hinn eini sanni Mr. Bean, og John Cleese, úr Monty Python, ásamt fleiri frábærum leikurum. Kvikmyndir.com RadioX Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Stærsta grínmynd allra tíma! Frábær hasar og grínmynd sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum Stór fengur Tveir þjófar Hverjum er hægt að treysta Í glæpum áttu enga vini Robert De Niro fer hér á kostum í frábærri spennumynd ásamt Edward Norton sem er á hraðri leið með að verða einn besti leikari samtímans 4 stk. í pakka verð kr. 2.300. Kanna í stíl kr. 2.995. 5 mismunandi gerðir. PIPAR OG SALT Klapparstíg 44  Sími 562 3614 DARTINGTON GLÖS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.