Morgunblaðið - 23.11.2001, Blaðsíða 30
LISTIR
30 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
%
& ' $
%
#$ $ (
$ $
'
&& ' #$
)*
&# + $
, -)*
&# .
, + $
, -)*
&# '
/
' $
0
-" / 01"
02
1
(#
#
12# +3#4
$1%
)
15 6 12,/ $
1" 17
28 7
#1/ -'
$
3
"1.
&
9& #1/ -'
$
1
(#
# 12# +3#4
$1%
1
(#
# 12# +3#4
$1%
,
1%:$ $
& ':
'; ##$
1/ -'
$
1+ %
&
& 1
#$ $
4
5 12'
#1'
#
15'#
<4 81/ -'
$
)
# =-$).$/ 01 23 $/&
)"/
1" 17
28 7
#1/ -'
$
3
"1.
&
9& #1/ -'
$
1+ %
&
& 1
#$ $
1.
&
9& #1/ -'
$
6
7 1 *' $$ >
1
&#$
8#
1/
#$6 & 1
#$ $
, 91 #+ 1 ?& #1/ -'
$
:
"12 #
' 1
#$ $
;
1.*@ 1/ -'
$
;
108+ $19
-$).$/!" 01 23!" !".!4 01 ,.1#.1! 5/,"
1
(#
#
12# +3#4
$1%
1
(#
# 12# +3#4
$1%
1
(#
# 12# +3#4
$1%
#
15'#
<4 81/ -'
$
3
# <
1A )
& $ )
&*&1/ -'
$
3 !.1
713( 1
8 4
#
16 ,
*12,/ $
.
11/ -'
$
1
(#
#
,= 12# +3#4
$1%
12 BC
5
#12,/ $
)
# =!)..% )'.# 01 6!. 5/,"
,
1%:$ $
& ':
'; ##$
1/ -'
$
1/ B# # 1
1/ B# # 1
5
1,
2 #1.
;
$
'!
1.'##012,/ $
1 1,
D$ D$ #10
, 7 1A# #$' A#
1'
E ;
, 1(
* $& 1/ -'
$
" #
13 =+ %2 #1
#$ $
5
.
#"
1F
&
'
& #1'
;
789
78 :; 8<
?;
$ & #
:
-GGH * #$
?;
$
$& #$?;
$ -#$ $
)
& E
& 8 :
# E
;
%
2 @ #
+
0;
$'; )$
:
+
0;
$D $
#
+
0;
$/
-' $
, -% +
+
, -%
1' .
*
, -)*
&# F
#$ .
*
)
# =-$).$/ 01 23 +=>
1F
$
%$#12,/ $
>
1F
2#1'
1'
#4 <16
7
1/
$
%& & 1/ -'
$
?
71' 3 $ # 1':0
$ )
# =5
#$?1," 01 ).,"#..#.1!"
)
15 6 12,/ $
4
5 12'
#1'
.' 1F*
F:&
12,/ $
8# " 1A
& 12,/ $
1
@ A16 ,
<12,/ $
B"
.: B
CDE#
#1 $
6 +
&&12,/ $
!"#"$"
%%
&'
Fram í sviðsljósið
– Endurminningar
Halldórs G.
Björnssonar er
rituð af Birni Inga
Hrafnssyni blaða-
manni.
Halldór settist
ungur í stjórn
Verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar og gerðist
brátt áhrifamaður á vettvangi verka-
lýðsbaráttunnar. Það var þó ekki fyrr
en starfsævinni virtist vera að ljúka
að hann kom fram í sviðsljósið.
Hann hefur m.a. leitt nýstofnað
Starfsgreinasamband fyrstu sporin
og unnið ötullega á vettvangi Alþýðu-
sambands Íslands.
Í kynningu segir m.a.: „Í þessari
bók segir hann opinskátt frá sam-
skiptum sínum við félagana í verka-
lýðshreyfingunni og fulltrúa atvinnu-
rekenda. Hann rekur átök og
flokkadrætti af hispursleysi og
innsæi hins lífsreynda baráttu-
manns, enda kemur hér margt fram
sem ekki hefur verið á vitorði
margra. Inn í þessa líflegu sögu flétt-
ar Halldór síðan áhrifamikla en lát-
lausa frásögn af einkalífi sínu, sorg-
um og sigrum.“
Björn Ingi Hrafnsson nam sagn-
fræði við Háskóla Íslands. Und-
anfarin ár hefur Björn Ingi starfað við
Morgunblaðið.
Útgefandi er Mál og menning. Bók-
in er 280 bls., prentuð í Odda hf.
Auglýsingastofan Skaparinn hannaði
kápu. Einar Falur tók mynd á kápu.
Verð: 4.490 kr.
Endurminningar
Súfistinn Bókmenntaupplestur kl.
20 á vegum Vísis.is í bókakaffi Máls
og menningar, Laugavegi.
Ágúst Borgþór Sverrisson les úr
smásagnasafninu Sumarið 1970 og
er hann jafnframt kynnir. Hlín Agn-
arsdóttir les úr skáldsögu sinni Hátt
uppi við Norðurbrún. Óskar Árni
Óskarsson les úr smáprósasafninu
Lakkrísgerðin. Bragi Ólafsson les úr
skáldsögunni Gæludýrin. Gunnar
Randversson les eigin ljóð og þýð-
ingar sínar á ljóðum eftir sænska
kvikmyndaleikstjórann Lukas
Moodyson; sú bók ber heitið Hjarta
þitt er stjarna sem skín í heila mín-
um.
12 Tónar, Skólavörðustíg 15 Dýr-
in í Hálsaskógi halda tónleika kl. 17
og kynna nýja geisladiskinn
láttuekkeinsoðúsértekkiðanna. Dýr-
in eru Óskar Guðjónsson, Eðvarð
Lárusson, Matthías M.D. Hemstock
og Pétur Grétarsson.
Njarðvíkurkirkja Lögreglukór
Reykjavíkur og Karlakór Keflavíkur
verða með sameiginlega tónleika kl.
20. Flutt verða létt lög ásamt þekkt-
um karlakóralögum. Stjórnandi
Karlakórs Keflavíkur er Smári Óla-
son og undirleikari þeirra er Ester
Ólafsdóttir. Stjórnandi Lög-
reglukórsins er Guðlaugur Vikt-
orsson og undirleikari Bjarni Jón-
atansson.
Catalín, Hamraborg 11, Kópavogi
Ljóðalestur verður kl. 20. Höfundar
ljóðabókarinnar Sköpunar lesa upp
úr verki sínu. Í bókinni eru 24 ljóð
eftir jafnmarga rithöfunda, félaga í
Ritlistarhópi Kópavogs, ásamt
myndverkum eftir jafnmarga lista-
menn úr Kópavogi.
Í DAG
Hafnarfjarðarleikhúsið
Englabörn
Síðustu sýningar á Englabörnum
eftir Hávar Sigurjónsson, verða í
kvöld og annað kvöld, kl. 20. Leik-
ritið fjallar um þrjár kynslóðir
sömu fjölskyldu sem allar hafa bú-
ið við hræðilega atburði er allir
hafa gerst í skjóli við kunnuglegan
hversdagsleika. M.a. er tekið á
kynferðislegu ofbeldi og sifjaspelli.
Aðalhlutverk leika Nína Dögg
Filippusdóttir, Björn Hlynur Har-
aldsson, Margrét Ólafsdóttir,
Björk Jakobsdóttir, Erling Jó-
hannesson og Gunnar Helgason.
Borgarleikhúsið
Dauðadansinn
Síðustu sýningar á Dauðadans-
inum eftir August Strindberg
verða á Litla sviði Borgarleikhúss-
ins á laugardag og laugardaginn 1.
desember næstkomandi.
Sýningin fjallar jafnt um þær
harmrænu og skoplegu hliðar sem
koma upp í hjónabandi þar sem
sundurlyndi og valdabarátta ríkir.
Leikarar í sýningunni í Borgarleik-
húsinu eru Erlingur Gíslason,
Helga E. Jónsdóttir, Sigurður
Karlsson og Jóna Guðrún Jóns-
dóttir.
Síðustu sýningar
MARGIR sagnfræðingar hafa velt
fyrir sér ýmsu sérkennilegu varð-
andi tónsnillinginn Johannes
Brahms. Leitað hefur verið skýringa
í uppvaxtarárum hans í hafnarborg-
inni Hamborg, hræðslu hans við kon-
ur, sem hann þó leitaði félagsskapar
við, og hversu óöruggur hann var
með tónskáldskap sinn, vitandi þó að
fáir voru jafningjar hans á píanó.
Hann var rómantískt tónskáld en
klassískur í hugsun, einfari sem var
ásakaður um tilfinningaleysi og að
ofgera í tæknilegum vinnubrögðum,
þ.e. úthugsa verk sín á kostnað til-
finninga og dramatískrar túlkunar.
Það er langt síðan þessum skoðunum
gagnrýnenda hefur verið hafnað.
Bent hefur verið á að góð tónlist
þurfi langan tíma og sannast það á
Brahms, sem nú er boðið til sætis
með meisturunum Beethoven og J.S.
Bach.
Á rómantíska tímanum voru
glæsilegt yfirbragð, blæbrigði og
stemmning mikilvægir þættir og því
var þungbrýnn og flókinn tónvefn-
aðurinn hjá Brahms talinn forkast-
anlegur. Svo vitnað sé í gagnrýni
sem Hugo Wolf ritaði, að „eitt sim-
balahögg hjá Franz Liszt hefur
meira listrænt gildi en heil sinfónía
eftir Brahms“. Þegar Tsjajkovskí
reyndi að leika píanóverk eftir
Brahms gafst hann upp og sagði:
„Þetta er nú meiri vitleysan.“
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í gærkvöldi hófust á öðrum
píanókonsertinum eftir Brahms op.
83, glæsilegu listaverki, í raun sin-
fóníu fyrir píanó og hljómsveit. Phil-
ippe Bianconi lék á píanóið með
miklum glæsibrag en þó á mjög yf-
irvegaðan máta og að því leyti til féll
leikur hans vel að ágætum leik
hljómsveitarinnar undir stjórn
Gregors Bühl. Eitt af einkennum í
rithætti hjá Brahms er mikil notkun
áttunda og hættir mörgum til að
hamra þær en hjá Bianconi voru þær
mjúkar en skýrar. Kadensurnar
voru sérlega fallega fluttar og
nokkrir kaflar í fyrsta og síðasta
þættinum, sem eru sérlega erfiðir,
eins og reyndar verkið í heild, voru
leiknir áreynslulaust en þrungnir af
músík. Hægi þátturinn, sem hefst á
undurfallegu sellósólói, sem Bryndis
Halla Gylfadóttir lék sérlega fallega,
var og mjög fallega mótaður af Bian-
coni. Allt féll þarna að einu, stórkost-
leg tónlist, frábær einleikur hjá
Bianconi og sérlega góður leikur
Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem
Gregor Bühl stjórnaði af öryggi.
Seinna viðfangsefni tónleikanna
var sinfónía nr. 2 eftir Brahms, ynd-
islegt verk, sem þó endar á miklum
fyrirgangi. Víða í verkinu getur að
heyra stefsnilli meistarans, eins t.d.
A-dúr aukastefið í fyrsta kaflanum,
upphafsstefið í þriðja þætti og A-dúr
aukastefið í lokaþættinum. Það kem-
ur sem sé oft fyrir í sinfóníum meist-
arans, eins og hann nemi staðar um
stund og þá birtist eitt af þeim stefj-
um sem syngja sig inn í sál manns. Í
heild var sinfónían vel flutt en nið-
urlag fjórða þáttar, sem er nokkuð
langdregið, var allt of hljómbólgið og
ekki hugað að hljómrænu jafnvægi,
t.d. á milli strengja og blásara. Það
hefði mátt geyma fullan styrk þar til
í 13 síðustu töktunum. Þrátt fyrir
þetta var margt fallega mótað af
stjórnandanum Gregor Bühl og
mátti merkja að áheyrendur dá
Brahms því að það var fullt hús og
einleikara, stjórnanda og hljómsveit
vel fagnað.
„Philippe Bianconi lék á píanóið með miklum glæsibrag.“
Dáir þú
Brahms?
TÓNLIST
Háskólabíó
Flutt voru tvö verk eftir Johannes
Brahms, píanókonsert nr. 2 og sinfónía
nr. 2. Einleikari: Philippe Bianconi.
Stjórnandi: Gregor Bühl. Fimmtudag-
urinn 22. nóvember, 2001.
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
NÚ stendur yfir í Húsi málar-
ans samsýning annars og þriðja
árs nemenda í myndlistar- og
hönnunardeild Listaháskóla Ís-
lands.
Uppsetning sýningarinnar
er afrakstur nemenda á nám-
skeiðinu Listsýningar og list-
kerfi, sem Halldór Björn Run-
ólfsson listfræðingur og mynd-
listargagnrýnandi kennir.
Sýningin stendur fram yfir
jól.
Nemendasýn-
ing í Húsi
málarans