Morgunblaðið - 23.11.2001, Blaðsíða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 23
fiú safnar hjá okkur...
Nánari uppl‡singar áwww.frikort.is
Lífi› á sínu gó›u
punkta. fia› er
spennandi a› safna.
STYKKISHÓLMSBÆR auglýsti í haust
útboð á sorphirðu í Stykkishólmi og rekst-
ur gámastöðvar. Alls bárust sjö tilboð í
verkið og var samið við Íslenska gáma-
félagið sem átti lægsta tilboðið.
Í tilboðinu felst að sjá um sorphirðingu í
Stykkishólmi, leggja til á öll heimili í bæn-
um sorptunnur, sem verða eign Stykkis-
hólmsbæjar að fjórum árum liðnum,
byggja upp gámaflokkunarstöð fyrir ann-
an úrgang en heimilissorp og annast
rekstur gámastöðvarinnar næstu 4 árin.“
Íslenska gámafélagið tók við sorp-
hirðunni 1. nóvember sl. og fer allt heim-
ilissorp til förgunar að Fíflholtum á Mýr-
um. Verið er að byggja upp gáma-
flokkunarstöð við gamla flugvöllinn og
verður hún tekin í notkun um miðjan des-
ember og verður þá gömlu öskuhaugun-
um við Ögur endanlega lokað.
Þessa dagana er verið að skipta út
sorptunnum. Hingað til hefur hver hús-
eigandi þurft að útvega sína ruslatunnu,
en nú verður þeim skipt út og húseigend-
ur fá í staðinn nýjar plasttunnur. Nýju
tunnurnar eru stærri og verða losaðar á
10 daga fresti í stað vikulega áður. Einn
fastur starfsmaður hefur verið ráðinn af
hálfu Íslenska gámafélagsins til að hafa
umsjón með sorphirðunni í Stykkishólmi
og heitir hann Þorgrímur Kristinsson.
Sorphirða í Stykkishólmi
tekur miklum breytingum
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Það er talsvert verk að skipta út
sorptunnum í heilu bæjarfélagi. Ís-
lenska gámafélagið hefur tekið að
sér að sjá um sorpförgun fyrir
Hólmara. Á myndinni eru þeir Þor-
grímur Kristinsson, Auðunn Pálsson
og Jón Frantsson að dreifa nýjum
plasttunnum á hjólum til bæjarbúa.
Stykkishólmur
NÝTT vikublað, Austurglugginn,
hefur göngu sína á Austurlandi fyrir
jól. Stofnað hefur verið Útgáfufélag
Austurlands, sem verður þó ekki
skráð fyrr en nægu hlutafé hefur
verið safnað. Útgáfufélagið leitar nú
eftir ritstjóra og blaðamanni til
starfa, en bækistöð blaðsins verður í
Neskaupstað. Í farvatninu er einnig
að vinna samhliða netmiðil eða
fréttasíðu á vefnum.
Prentun blaðsins verður boðin út,
en þó er stefnt að því að það verði
unnið á Austurlandi. Blaðið verður
selt í áskrift.
Að undirbúningi Austurgluggans
vinna aðilar sem komu að útgáfu
fréttablaðanna Austurlands í Nes-
kaupstað og Austra á Egilsstöðum,
auk annarra. Hnappast þar saman
gamlir alþýðubandalagsmenn, fram-
sóknarmenn og einnig sjálfstæðis-
menn og vænta þess að pólitísk
hreppamörk verði yfirstigin í
byggðapólitísku fréttablaði fyrir all-
an fjórðunginn.
Í undirbúningsnefnd sitja Smári
Geirsson, forseti bæjarstjórnar í
Fjarðabyggð, Ingi Már Aðalsteins-
son, kaupfélagsstjóri KHB, Valþór
Hlöðversson hjá Athygli, Einar Már
Sigurðarson alþingismaður og Hilm-
ar Gunnlaugsson lögmaður.
Austur-
glugginn
kemur út
fyrir jól
Egilsstaðir
Nýtt vikublað
á Austurlandi