Morgunblaðið - 23.11.2001, Blaðsíða 2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isLeikjum frestað ef
ferðamáti bregst /C2
Sigfús valdi að fara
til Magdeburg /C1
4 SÍÐUR
Morgun-
blaðinu í dag
fylgir auglýs-
ingablað frá
Eddu – miðlun
og bókaút-
gáfu. „Jóla-
bækurnar
2001“.
Sérblöð í dag
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á FÖSTUDÖGUM
TÓNLISTARKENNARAR afhentu
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, formanni
stjórnar Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, undirskriftalista í gær á
degi tónlistar með um 2.800 áskor-
unum um að kjaradeila tónlistar-
kennara verði leyst.
Vilhjálmur veitti undirskriftalist-
unum viðtöku og sagðist mundu
leggja sitt af mörkum til að deilunni
lyki og sagðist vita til þess að hreyf-
ing væri komin á umræður. Hann
sagðist vona að deilan leystist sem
allra fyrst og hann myndi leggja sitt
af mörkum til að svo mætti verða.
Sigrún Grendal Jóhannesdóttir,
formaður Félags tónlistarskóla-
kennara, sagðist túlka þessi orð Vil-
hjálms sem yfirlýsingu um að við-
bótarfjármagn verði sett inn í
samningana en það væri skilyrði
fyrir því að samningar næðust. Að-
spurð sagðist Sigrún ekki vilja spá
um það hvort lausn deilunnar væri í
sjónmáli en það væri samningahug-
ur í hennar fólki. „Það er ekki gleði-
efni að vera í verkfalli en það sem er
jákvætt í þessari stöðu er að tónlist-
arkennarar finna fyrir svo miklum
stuðningi og samhug ,“ sagði Sigrún.
„Ég veit til þess að það er verið að
ræða málin núna og ég vona að sú
hreyfing sem nú er á málinu sé í já-
kvæða átt,“ sagði Vilhjálmur í sam-
tali við Morgunblaðið. Spurður
hvort þetta þýddi að aukið fjármagn
yrði sett inn í samningana sagðist
hann ekkert vilja segja til um það en
verið væri að ræða ýmis atriði sem
skiptu máli varðandi hugsanlegt
samkomulag.
Málamiðlunarsamningar
„Launanefndin hefur fullt traust
og trúnað okkar. Ef hún telur sig
hins vegar ekki komast lengra með
þetta mál þá er hægt að boða til
launamálaráðstefnu þar sem menn
gætu hist og rætt um stöðuna í mál-
inu. Ég geri ráð fyrir að sú ráð-
stefna verði haldin um mánaðamótin
en ég vona að deilan leysist áður.
Það er verið að ræða málin og mér
sýnist að það sé vilji til þess núna af
hálfu beggja aðila að ræða málin já-
kvætt og reyna til hins ýtrasta að
finna lausn á þessu,“ sagði Vilhjálm-
ur en benti á að það væri ljóst að
þegar samningar næðust yrðu þeir í
formi málamiðlunar þar sem báðir
deiluaðilar þyrftu að slá af kröfum
sínum.
Jákvæðara hljóð í
samningamönnum
Tónlistarkenn-
arar afhentu
áskorun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, formaður verkfallsstjórnar tónlistar-
kennara, afhenti Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni undirskriftalista með áskor-
unum um lausn kjaradeilunnar.
EIGENDUR fyrirtækisins Kötluvikurs ehf. hafa
uppi áform um vinnslu og útflutning á vikri af
Mýrdalssandi. Hreppsnefnd Mýrdalshrepps stóð
fyrir borgarafundi í fyrrakvöld um málið og þar
kom m.a. fram hjá Þóri Kjartanssyni, eins land-
eigenda Hjörleifshöfða, sem á aðild að fyrirtæk-
inu, að töluverð vinna hefur verið lögð í að at-
huga útflutninginn og notagildi vikursins.
Að sögn Þóris lofar verkefnið góðu og hafa
viðræður verið í gangi við nokkur erlend stór-
fyrirtæki. Áætlanir Kötluvikurs miða við allt að
200 þúsund tonna framleiðslu á ári, sem gæti
skapað 15–20 ný störf, auk atvinnu við námu-
vinnslu og flutninga. Velta er áætluð 1,8 til 2
milljarðar króna á öðru og þriðja rekstrarári.
Kötluvikur ehf. hyggst flytja vikurinn í verk-
smiðju, sem til stendur að reisa í nágrenni Víkur
í Mýrdal. Áætlaður kostnaður við að reisa verk-
smiðjuna er um 1 milljarður króna, miðað við 4
þúsund fermetra húsnæði og allan tækjabúnað.
Þar yrði vikurinn þaninn, eins og sagt er, en það
er sérstakur eiginleiki Kötluvikurs umfram ann-
an vikur. Við þensluna vex ummál hvers korns
tvö- eða þrefalt og til verður efni sem talið er
mjög einstakt, líkist helst þöndum perlusteini en
þó eðlisþyngra og dökkt á litinn. Þegar búið er
að vinna vikurinn á að flytja hann með flutn-
ingabílum og síðan skipum til væntanlegra kaup-
enda.
Með vottun frá Bretlandi
Að sögn Þóris má nota vikurinn í léttsteypu,
eldvarnir á stálgrindur, síun á vatni og fleira. Þá
hefur vikurinn fengið vottun hjá bresku vott-
unarstofunni sem efni fyrir lífræna ræktun. Vik-
urinn er einnig talinn athyglisverður vegna þess
hve auðvelt er að endurnýta hann þegar hann
hefur lokið hlutverki sínu, t.d. í vegi eða uppfyll-
ingar.
Umhverfismat á námusvæðinu er hafið en það
er á svokallaðri Háöldu við Hafursey. Stofnað
hefur verið hlutafélag um þetta verkefni, Kötlu-
vikur ehf. Eigendur eru Eignarhaldsfélagið
Katla, sem er í eigu landeigenda Hjörleifshöfða,
Höfðabrekku og Reynisbrekku, Hönnun hf.,
KPMG endurskoðun, KPMG Sinna, auk Einars
Elíassonar, sem hefur verið driffjöður þess rann-
sóknarferlis sem verkefnið byggist á. Rann-
sóknir á vikrinum hafa staðið yfir frá árinu 1997
og verið unnar af Mineral Solutions, rannsókn-
arstofu við háskólann í Manchester á Englandi.
Þar vinna færir vísindamenn að samskonar
verkefnum víðs vegar um heim.
Töf vegna kröfu
þjóðlendunefndar
Þórir Kjartansson segir að hugmyndirnar um
vinnsluna á vikrinum hafi allstaðar fengið mjög
jákvæða umfjöllun. Hið eina sem skyggi á sé
krafa þjóðlendunefndar í hluta þess lands sem
fyrirhugað er til námuvinnslunnar. Þórir segir
þetta hafa tafið verkefnið, allur efi um eignar-
rétt í sambandi við námuréttindi fari illa í er-
lendu fyrirtækin sem hyggjast fjárfesta í verk-
smiðjunni.
Viðræður við erlend stórfyrirtæki um vinnslu og sölu á vikri af Mýrdalssandi
Gæti skapað 15–20
ný störf í Mýrdalnum
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Þórir Kjartansson með Kötluvikur á Mýrdals-
sandi við tilvonandi vikurnámu.
Fagradal. Morgunblaðið.
SAMNINGAR tókust á tólfta tím-
anum í gærkvöldi milli Sjúkraliða-
félags Íslands og Reykjavíkurborgar
eftir að viðræður höfðu staðið yfir í
húsakynnum Ríkissáttasemjara frá
hádegi í gær.
Að sögn Kristínar Á. Guðmunds-
dóttur, formanns Sjúkraliðafélags-
ins, er samningurinn á svipuðum
nótum og sá er gerður var í fyrra-
kvöld við ríkið og sjálfseignarstofn-
anir, að því undanskildu að ekki er
um vinnustaðasamning að ræða
heldur miðlægan samning. Samning-
urinn við borgina nær til um 70
sjúkraliða sem starfa hjá Fé-
lagsþjónustunni. Kristín sagðist
vera mjög sátt við samninginn en
hann, auk samningsins við ríkið,
verður kynntur í kvöld kl. 18 á Grand
Hóteli í Reykjavík. Á næstu dögum
fer fram atkvæðagreiðsla og frekari
kynning um landið.
Sjúkraliðar eiga enn ósamið við
launanefnd sveitarfélaga og fleiri að-
ila, m.a. SÁÁ, auk þess sem eftir er
að gera vinnustaðasamninga við
nokkrar ríkisstofnanir.
Kristín sagði við Morgunblaðið í
gærdag, aðspurð um samninginn við
ríkið, að hann fæli í sér launahækkun
við undirritun og 3% hækkun við
hver áramót á samningstímabilinu
sem er til 30. nóvember 2004. Hún
sagði að í vinnustaðasamningunum
ætti eftir að raða fólki í launatöfluna.
Sjúkraliðar hitta launanefnd sveit-
arfélaga í dag og sagðist Kristín eiga
von á því að svipaðir samningar næð-
ust þar. „Það hefur verið auðheyrt á
þessum aðilum að þeir hafa talið sig
þurfa að bíða eftir hvað kæmi út hjá
ríkinu. Ég vona að tappinn sé kom-
inn úr flöskunni.“
Sjúkraliðar sömdu við borgina í gær
Enn ósamið
við önnur
sveitarfélög
FERÐ Haralds Arnar Ólafssonar til
Carstensz Pyramid, hæsta tinds
Eyjaálfu, er nú stefnt í tvísýnu vegna
óhapps sem þyrla indónesíska hers-
ins lenti í áður en hún átti að flytja
Harald og leiðangursmenn til Ti-
mika í grunnbúðir. Spaði hennar
eyðilagðist og hafa innlendir stjórn-
endur leiðangursins aflýst honum.
Haraldur Örn hefur þó ekki lagt
árar í bát heldur snúið sér til tveggja
Íslendinga sem búsettir eru í
Indónesíu, Sigurður Gíslasonar og
Páls Gústafssonar. Þeir vinna að því
að opna Haraldi Erni leið. Vonir
standa til að leyft verði að nota kláfa
„Free Port“-námunnar, sem er
stærsta koparnáma í heimi. Á árum
áður fóru leiðangrar á Carstensz
Pyramid með kláfunum, en undan-
farin misseri hafa leyfi ekki fengist
Tvísýnt um
leiðangur á
Carstensz
FJÖLDI tilkynninga til sam-
takanna Barnaheilla þar sem
grunur er um barnaklám á Net-
inu er kominn yfir 100 frá því
tekinn var í notkun tilkynn-
ingahnappur á nýjum vef sam-
takanna 30. október. Fyrstu
vikuna eftir opnun vefjarins
komu 40 tilkynningar.
Ekki hefur verið tilkynnt um
íslenskt efni. Sem fyrr eru aðal-
uppsprettur klámefnis í Aust-
ur-Evrópu en einnig í Banda-
ríkjunum. Tilkynningahnappur
vefjarins er þannig úr garði
gerður að unnt er að tilkynna
um vafasamt efni í skjóli nafn-
leyndar. Slóðin er www.barna-
heill.is.
Hundrað
tilkynning-
ar um klám
♦ ♦ ♦