Morgunblaðið - 23.11.2001, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 63
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 296 Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8. Forsýnd kl.10.
HVER ER
CORKY
ROMANO?
Sýnd í sal-A kl. 6.
ÓHT. RÚV
HJ MBL
FRUMSÝNING FORSÝNING
kl.10.
Kvikmyndir.is
DV
Strik.is
Nýr og glæsilegur salur
betra en nýtt
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12.
Bardagasnillingurinn Jet Li fer hér á kostum í frábærri
hasarmynd sem
inniheldur stórkostlegar tæknibrellur og mögnuðustu
bardagaatriði sem sést hafa.
FRUMSÝNING
Eltingarleikurinn við hættulegasta
glæpamann alheimsins er hafinn.
KRAF
T
Sýnin
g
í THX
DIG
ITAL
Kl. 1
2.
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Lúði lúðanna með sítt að aftan, í snjóþvegnum gallabuxum og finnst
hann svalasti töffarinn...því miður er enginn sammála honum!
Endalaust fyndin mynd frá framleiðendum Big Daddy og Wedding
Singer og snillingurinn David Spade (Just Shoot Me) er súper-lúðinn!
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 10. Vit 296 Sýnd kl.6. Ísl. tal.
Kvikmyndir.com
Sýnd kl.8.
Kvikmyndir.is
DV
Strik.is
www.lordoftherings.net
Sýnd kl. 8 og 10.
„Stórskemmtileg kómedía“
H.Á.A. Kvikmyndir.com
JUSTIN CHAMBERS TIM ROTH MENA SUVARI
Sýnd kl. 5.45 og 8.
Ath textuð
Sýnd kl. 10.
Powersýnin
g
kl. 12 á m
iðnætti.
Á stærsta
THX
tjaldi lan
dsins
1/2
HL Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12 á miðnætti
Bardagasnillingurinn Jet Li fer hér á kostum í frábærri hasarmynd sem inniheldur
stórkostlegar tæknibrellur og mögnuðustu bardagaatriði sem sést hafa.
Eltingarleikurinn við hættulegasta glæpamann
alheimsins er hafinn
ÞAÐ eru tíðindi þetta haustið aðút eru komnir tveir íslenskirhipp-hopp/rappdiskar þar
sem einvörðungu er rappað á hinu yl-
hýra. Um er að ræða samnefndan
disk XXX Rottweilerhunda og svo
þann sem hér er til umfjöllunar,
Stormurinn á eftir logninu eftir Sesar
A.
Hann heitir Eyjólfur Eyvindsson,
maðurinn sem stendur á bakvið lista-
mannsnafnið Sesar A, og hefur hann
verið að semja rímur í um tíu ár. Á
þessu ári lét hann svo loks verða af
því að snara út hljómdiski þar sem
hann semur alla tónlist og texta sjálf-
ur. Honum til aðstoðar er DJ Galdur
og sér hann um skank eða plötuklór.
Sérlegir gestir plötunnar eru þeir U
Manden og Blazroca (sem er lista-
mannsnafn Erps Eyvindssonar, með-
lims Rottweilerhundanna, en þess má
geta að hann er yngri bróðir Eyjólfs).
Feginn
Eyjólfur gefur plötuna sjálfur út
undir merkjum BORIS og verður
platan gefin út á vínyl og geisladiski.
„Mig hefur auðvitað lengi langað til
að gefa eitthvað út,“ segir Eyjólfur.
„Þegar maður komst inn í þessa tón-
list fór maður fljótlega að skrifa texta,
það var svona upp úr ’91. Þegar ég
var búinn að skrifa á ensku í fjögur ár
fór ég svo að prófa að skrifa á ís-
lensku. Mér fannst það mjög erfitt en
ég gafst ekkert upp. Árið ’98 fór ég
svo alfarið að skrifa á íslensku.“
Eyjólfur segist mjög
feginn að platan sé loks
komin út.
„Þetta er búið að vera
mikil vinna og þetta hefur
dregist mikið á langinn.
Þetta er búið að reyna mjög
mikið á mann – ég er t.d. búinn
að vera ósofinn síðan á þriðjudag,
búinn að vera að klára textablað
fyrir vínylútgáfuna, skipuleggja út-
gáfutónleikana o.s.frv. o.s.frv. Þannig
að nú fyrst er logn að færast yfir eftir
þennan vinnustorm.“
Hvað íslenska rapptónlist varðar,
hefur mikið verið um það rætt hvaða
tungumál eigi að nota þegar menn
semja sína rímur. Eyjólfur, sem rapp-
ar á íslensku, segist þó ekkert vera í
neinni krossferð fyrir tungumálinu.
„Þetta varð bara ofan á,“ útskýrir
hann. „Ég byrjaði að skrifa á ensku
en það er nú bara vegna þess að tón-
listin sem var að móta mig var mest-
megnis á ensku. Einnig hef ég prófað
að skrifa á dönsku og þýsku en ég bjó
úti í Danmörku á sínum tíma. Íslensk-
an varð ofan á m.a. vegna þess að mér
finnst hún hreint og beint fallegra
tungumál en hin málin. Svo er ég auð-
vitað Íslendingur. Ég tjái mig á ís-
lensku og hugsa á íslensku og mér
finnst ég koma þeim hlutum sem ég
er að pæla í betur frá mér á íslensku.
En ég ber fulla virðingu fyrir þeim
sem velja að rappa á ensku, menn
eiga bara að rappa á því máli sem þeir
eru bestir á. Enska er ekkert
verra tungumál en íslenska.“
Eyjólfur segir það líka erfiðara
en fólk haldi að rappa á ensku. „Ís-
lenskan er í rauninni auðveldara
mál. Staðreyndin er sú að flestir
hérna kunna ekki ensku á sama
hátt og það fólk sem á það að móð-
urmáli. Enskan er flókið mál, mörg
orð þaðan eru úr latínu og það er
ekki eins gegnsætt og íslenskan.
Þróunin í hipp-hoppmenningunni í
Skandinavíu er líka þannig að þar er
það móðurmálið sem orðið hefur of-
an á. Ef þú ætlar að láta taka þig
alvarlega í rappheiminum í Dan-
mörku þá rappar þú á dönsku.“
Fönk
Eyjólfur segir að strax við upphaf
níunda áratugarins hafi hann kynnst
„breik“-dansinum, eða skrykkdansin-
um, og í gegnum það hafi hann komist
í kynni við hipp-hoppið. Þetta hafi
verið í Danmörku en þar bjó hann frá
1980 til ca. 1984-85. Um 1988 hafi
hann svo komist í kynni við hipp-hopp
og örlögin hafi þar með ráðist að ein-
hverjum hluta.
„Eldri systkini mín hlustuðu mikið
á fönk og slíkt og ég heyrði „The Mes-
sage“ (með Grandmaster Flash &
The Furious Five, almennt talið með
fyrstu rapplögum) þegar ég var sex
ára,“ segir Eyjólfur. „Ég varð svo fyr-
ir hálfgerðri opinberun er ég heyrði
lagið „Fight The Power“ með Public
Enemy. Svo fékk ég It Takes A Nat-
ion Of Millions To Hold Us Back með
sömu sveit í jólagjöf og það var eig-
inlega vendipunktur. Þar fylgdu text-
arnir með og ég hlustaði svo mikið á
plötuna á sínum tíma að hún er nærri
því dottin í sundur. Ég las textana og
lærði þá utan að. Svo keypti ég Fol-
low The Leader með Eric B & Rakim
en ég hafði séð myndbandið við tit-
illag þeirrar plötu. Ég og Erpur vor-
um inni í stofu hjá ömmu minni þegar
við sáum þetta myndband og okkur
fannst það algerlega ótrúlegt.“
Það verður gaman að sjá hvort
þessi frumburður Sesars, svo og plata
XXX Rottweilerhunda, verði til þess
að leysa unga og áhugasama rappara
úr læðingi. Hipp-hoppmenning hefur
staðið traustum fótum lengi vel í öðr-
um Skandinavíulöndum og því ætti
það sama ekki að gilda hér.
Útgáfutónleikar Sesars A verða
annars í Tjarnarbíói í kvöld og hefjast
kl. 21.00. Þeir sem hita upp eru Bent
og Sjöberg, Mezzías og Afkvæmi guð-
anna.
Á íslensku má
alltaf rappa svarið
Fimmtán árum eftir að rappbyltingin varð í Bandaríkjunum
virðist hún loks hafa náð almennilegri fótfestu hérlendis. Arnar
Eggert Thoroddsen spjallaði við Sesar A, sem er með fremstu
mönnum í nýrri íslenskri rappbylgju.
Sesar A heldur útgáfutónleika vegna fyrstu plötu sinnar, Stormurinn á eftir logninu
arnart@mbl.is
Mo
rgu
nbl
aði
ð/Á
rni
Sæ
ber
g