Morgunblaðið - 23.11.2001, Blaðsíða 59
VEL heppnaðri vetrardagskrá
plötuverzlunarinnar Hljómalindar
er nýlokið. Hún var rétt farin að
volgna er inn á borð dægurmenn-
ingardeildar
blaðsins, þ.e.
Fólks í fréttum,
barst stórfrétt
mikil.
Áhugamenn um
gæðarokktónlist
geta nefnilega
farið að núa sam-
an höndum og
telja niður því á
leið hingað til
lands er kan-
adíska síðrokks-
sveitin Godspeed
you black emper-
or! og mun hún
halda tónleika
hinn 13. marz á
næsta ári.
Godspeed hefur
verið ein umtal-
aðasta neðanjarð-
arrokksveit síðustu fimm ára og
vakti fyrst athygli með plötu
sinni F# A# (Infinity) árið 1996.
Meðlimir eru huldir dularfullri
áru og eru fjölmiðlafælnir með
afbrigðum. Tónlistin er naum-
hyggjuleg og melódísk; hreint
ægifalleg og minnir á nokkurs
konar skítuga Sigur Rós. Stutt-
skífan Slow Riot for New Zero
Kanada varð síðan til þess að
vekja enn meiri athygli á sveit-
inni og tónlistartímarit voru farin
að hampa henni sem „síðustu
stórsveit aldarinnar“.
Breiðskífan Lift Your Skinny
Fists Like Antennas to Heaven
sem út kom síðasta haust treysti
Godspeed svo enn frekar í sessi.
Tvöföld plata, með fjórum
löngum lögum – mikið meist-
araverk sem lenti ofarlega í flest-
um ársuppgjörum þess árs.
„Já, samningar hafa náðst við
þessa kanadísku stórsveit,“ segir
Kiddi í Hljómalind og er að von-
um kampakátur.
„Þetta er níu manna sveit og
þeir sem til þekkja vita að von
verður á mikilli skrautsýningu.
Þetta er einn mesti hvalreki fyrir
íslenskt tónleikahald lengi en
þetta band hefur mikil heljartök
á mörgum hérna heima,“ segir
hann hlæjandi.
Þess má geta að Godspeed
komu fram sem leynigestir á
brezku tónlistarhátíðinni All To-
morrow’s Parties árið 2000 og
vöktu gríðarmikla athygli. Um
það leyti var sveitin á ferð um
Bretland og var íslenzka sveitin
Sigur Rós þá með í för, og sá um
upphitun. Vænta má frekari upp-
lýsinga í desember en þá er ráð-
gert að miðasala muni hefjast.
Fremsta síðrokks-
sveit samtímans
Godspeed you black emperor!:
Tónleikar á Íslandi í marz!
Godspeed you black emperor! til Íslands
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 59
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Sixties
í kvöldJólahlaðborð Cafe Bleu Kringlunni
Sími: 568 0098
Laugavegi 54, sími 552 5201
Peysur 2 fyrir 1
Opið til kl. 18 laugardag
Tilvaldar í jólagjöf
Ullarkápur
Kr. 12.990
Stærðir 36-46
JÓLABYRJUN Í FLASH
Laugavegi 46, sími 561 4465.
Villtar &
Vandlátar
Smart & sígilt
SEM ungur drengur lærði ég
meistaraverkið Dýrin í Hálsaskógi
utan að; orð fyrir orð og nótu fyrir
nótu. Bessi Bjarnason sem Mikki
refur og Árni Tryggvason í hlutverki
Lilla klifurmúsar eru ógleymanlegir
og sterkari í minningunni en flest
annað frá afþreyingarsamfélagi þess
tíma. Tónlistin úr Dýrunum eru ekki
síður eftirminnileg,
þrátt fyrir að ekki
sé hún stórvirki,
svona fræðilega
séð. Mörg laglínan
er þó afar grípandi
og „Vögguvísan“ úr
verkinu er til að
mynda ekki síðri en margt það sem
dægurtónskáldið W.A. Mozart lét frá
sér fara. Ekki orð um það meir.
Geislaplata sú sem hér er til um-
fjöllunar, inniheldur 15 tóndæmi sem
öll eru útsett og leikin af þeim Óskari
Guðjónssyni, Mattíasi Helmstock og
Eðvarð Lárussyni. Þessir herra-
menn eru allir afbragðsflytjendur
sem ýmislegt hafa leikið um dagana
og einkum hafa þeir verið atkvæða-
miklir í djassgeira hinnar íslensku
tónlistarflóru. Margur hefði því búist
við að platan sem hér um ræðir væri
einhvers konar Dýrin í Hálsaskógi í
djassbúningi. Því fer hins vegar
fjarri og væri kannski í besta falli
grófleg einföldun að halda slíku
fram.
Sú tónlistarlega nálgun sem þeir
félagar beita á plötunni hef ég kosið
að flokka undir „geðrænu“, en sú
skilgreining mun fyrst hafa birst á
prenti í ritdómi mínum um ágæta
Jarðhörpusálma Lárusar Sigurðs-
sonar, snemma á þessu ári: „það orð
notast yfir tónlist sem er ljóðræn og
opin en er umfram allt spunnin beint
frá tilfinningu mannsins, óháð
ríkjandi hefðum og „reglum“ í tón-
og hljómfræði hinna akademísku
stétta. Það má segja að í geðrænu
taki undirmeðvitundin yfir hina mót-
uðu meðvitund.“ Tilvitnun í sjálfan
mig lýkur.
Vissulega eru ákveðin djassein-
kenni á Dýrunum; en það má allt eins
heyra tilvísanir í blústónlist, reggí,
rokk og austurlenskan seið. Ef hér
væri einvörðungu um djass að ræða
þá hefði útkoman að öllum líkindum
orðið einhæfari og þrengri en raunin
er. Sú tónlist er nefnilega ekki jafn
frjáls og laus við lögmál og margur
hefði haldið.
Þessi geðræna plata er ósungin,
þ.e. „instrumental“, og hefst á hinum
mögnuðu „Refavísum“. Það má segja
að ef þær hefðu verið sungnar, þá
hefði Tom Waits verið kjörinn til
starfans. Andi Waits svífur þar
óneitanlega yfir vötnum og tónninn í
saxófónleik Óskars er alls ekki ólíkur
strigabarkanum magnaða. Myrkur
gítarleikur Eðvarðs er vel við hæfi
og leggur grunninn að þeirri
stemmningu sem helst nær óslitið
plötuna á enda. Eðvarð á reyndar
sérdeilis góðan leik á Dýrunum. Í
„Piparkökusöngnum“ og „Þvottavís-
um fyrir Bangsa litla“ á hann hreint
stórkostlega sólóa, sem vert væri að
nota sem kennsluefni. Jafnframt ætti
þó að banna öllum að læra þá og
herma eftir. Geðræna skal vera til
innblásturs, ekki endurtekningar.
Ekki eru þeir síðri á Dýrunum,
Óskar og Mattías. Óskar á stórleik í
afar mikilli hugmyndaauðgi og blæ-
brigðadýpt þótt reyndar sé hann
hógværari í leik sínum en oft áður.
Nótunum fer fækkandi hjá honum
með hverju misserinu og alltaf
hljómar það betur og betur. Óskar á
ekki marga sólóa á Dýrunum en leik-
ur feykivel heilt yfir. Vert er að geta
sérstaklega spilamennskunnar í hin-
um blússkotnu „Vísum um refinn“.
Frábær listamaður, Óskar.
Mattías er í hinu vanmetna hlut-
verki á bakvið trommusettið og skil-
ar sínu af miklu öryggi. Hann er
hryneinherji hér, því sveitin er jú án
bassaleikara. Það kemur bara vel út,
sem og áður þegar slíkt hefur verið
reynt. Við bassaleysið myndast
ákveðið rými í hljóðmynd sem oft er
fallegt ófyllt, en getur einnig gefið
dýpri trommum meira vægi. Þrátt
fyrir að vera í hálfvegis bundnu
hrynhlutverki þá á Mattías hér góðar
geðrænustundir; einkum í „Græn-
metisvísunum“.
Erfitt er að taka út einstök lög sem
fremri eru öðrum á plötunni. Víðast
hvar eru útsetningarnar frábærar og
einkum er tónlistarlegt rabb gítars
og saxófóns aðdáunarvert.
Hljómur á plötunni er til mikillar
fyrirmyndar; heimilislegur, hlýr og
tilgerðarlaus. Frá tæknilegu sjónar-
miði er hann þó ekki hágæða; en hver
vill svoleiðis fyrir listsköpun eins og
þessa. Hinn dauðhreinsaði „gæða-
hljómur“ sem einkennir svo margar
vinsælar plötur samtímans hefði
sennilega dregið úr þeirri tónlistar-
legu kyngi sem hér er á ferðinni.
Hvað getur maður annað sagt en
ferfalt húrra fyrir Óskari og fé-
lögum. Þeir hafa hér gert eina af
bestu plötum ársins.
Tónlist
Geðræn dýr
DÝRIN Í HÁLSASKÓGI
Láttekkieinsoðúsértekkiðanna
ÓMI JAZZ
Geislaplata með lögum úr söng- og gleði-
leik þeirra Thorbjörns Egners og Christ-
ian Hartman um Dýrin í Hálsaskógi. Ósk-
ar Guðjónsson leikur á saxófóna
ýmiskonar, Eðvarð Lárusson á rafgítar og
magnara og Mattías M.D. Helmstock á
trommur og gjöll. Pétur Grétarsson hljóð-
ritaði. Útgefandi er Ómi Jazz.
Orri Harðarson
Morgunblaðið/Sverrir
Óskar Guðjónsson er „frábær listamaður“ að mati Orra Harðarsonar
sem segir Láttekkieinsoðúsértekkiðanna eina af bestu plötum ársins.