Morgunblaðið - 23.11.2001, Blaðsíða 26
ERLENT
26 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HINIR svokölluð „afgönsku arabar“
unnu sér aldrei inn neina hylli meðal
almennings í Afganistan, ef marka
má vitnisburð nágranna erlendra
liðsmanna al-Qaeda samtakanna í
borginni Jalalabad. Þvert á móti
hegðuðu hinir erlendu gestir sér
jafnan eins og yfirstétt og virtu ná-
granna sína að vettugi. Ýmis gögn
sem liðsmenn al-Qaeda skildu eftir
við flóttann frá Jalalabad og Kabúl í
síðustu viku varpa ennfremur ljósi á
það hvernig samtökin höguðu þjálf-
un sinni á hryðjuverkamönnum og
sýna þau svart á hvítu að Afganistan
var orðið að sannkölluðum höfuð-
stöðvum ýmissa róttækra íslams-
trúarhópa.
Talsverður fjöldi erlendra liðs-
manna al-Qaeda hreiðraði um sig í
Jalalabad á stjórnartíma talibana í
Afganistan. Komu þeir sér vel fyrir –
byggðu raunar heilu íbúðarhverfin
handa sér og fjölskyldum sínum með
tilheyrandi þjónustubyggingum – og
þeystu um á glænýjum jeppum á
meðan heimamenn máttu láta sér
nægja moldarkofa og allra frum-
stæðustu fararskjóta, s.s. asna.
Má segja að hryðjuverkamennirn-
ir hafi hagað sér eins og nýlendu-
herrar fyrri alda. Á daginn fóru þeir
ekki í vinnuna eins og venjulegir
launamenn, heldur heimsóttu æf-
ingabúðir al-Qaeda í útjaðri borgar-
innar. Þar lærðu þeir allt um það
hvernig skjóta skal af hríðskota-
byssum, hvernig útbúa skal sprengj-
ur og ýmislegt fleira þess háttar.
„Ég átti aldrei samtal við neinn
þeirra því þeir hleyptu Afgönum
aldrei nálægt sér,“ sagði Mohammed
Sharif, sem býr í næsta nágrenni við
íbúðarhverfi 60 liðsmanna al-Qaeda í
Jalalabad. „Þetta voru arabar, þeir
voru vellauðugir og þeir treystu eng-
um okkar,“ sagði hann.
Geta nágrannarnir líka rifjað upp
þegar rafmagn var tekið af þessum
borgarhluta Jalalabad en þá heim-
sóttu al-Qaeda liðsmennirnir einfald-
lega borgarmálayfirvöld og fengu
rafmagn sett á heimili sín á nýjan
leik. „Á meðan máttum við Afgan-
arnir þola rafmagnsleysi í eigin
landi,“ sagði Sharif.
Hurfu í humátt á eftir
talibönum í síðustu viku
Enginn heimamanna skipti sér af
þjálfunarbúðunum sjálfum. Sá eini,
sem heimsótti þær, heitir Rahim Gul
og útbjó hann hádegismat handa
svöngum hryðjuverkamönnum.
Þetta var eina vinnan sem hann gat
fundið. „Ég var ekki ánægður í þess-
ari vinnu,“ segir hann. „Þeir borguðu
ekkert sérstaklega vel og þeir
greindu mér aldrei frá því hvað þeir
ætluðust fyrir.“
Æfingabúðunum í Jalalabad var
lokað í kjölfar árásanna á Bandarík-
in 11. september sl. Og nú eru „afg-
önsku arabarnir“ á bak og burt, þeir
flúðu í humátt á eftir hermönnum
talibana, sem sáu ekki fram á að geta
varist áhlaupi Norðurbandalagsins.
Þeir tóku með sér konur sínar og
börn en skildu eftir vopnabúr sitt,
íbúðarhúsnæði og eiturefnabirgðir.
Nokkrir eru sagðir hafa flúið til Pak-
istans en aðrir upp í fjöllin í nágrenni
Jalalabad.
Hið sama var upp á teningunum í
Kabúl þar sem segja má að liðsmenn
al-Qaeda hafi hlaupið frá ókláruðum
kvöldmatnum. Húsakostur þeirra og
vopnabúr gefa vísbendingar um þá
þjálfun sem þeir hlutu, m.a. var þar
að finna flugskeyti, skotvopn og
sprengjuvíra. Þjálfunarbúðirnar
voru semsé ekki allar úti í eyðimörk-
inni – eins og Bandaríkjamenn töldu
– heldur oft inni í stórborgunum,
mitt í hringiðu mannlífsins.
Helstu samtök íslamskra öfga-
manna höfðust við í Afganistan
Gögnin, sem liðsmenn al-Qaeda
skildu eftir í Kabúl, telja m.a. upp þá
öfgahópa sem hreiðrað höfðu um sig
í Afganistan. Er þar að finna öll
helstu samtök róttækra íslamstrúar-
manna, frá Egyptalandi, Líbýu, Fil-
ippseyjum, Jórdaníu, Líbanon,
Tyrklandi og Pakistan, svo einhver
lönd séu nefnd. „Þessir hópar afg-
anskra araba aðstoða íbúa Afganist-
ans í baráttu þeirra gegn heiðingj-
unum,“ segir í bæklingnum. „Þeir
æskja engrar greiðslu fyrir fórn
sína. Markmið okkar er að hrekja
Bandaríkjamenn frá Persaflóanum.“
Handskrifaður minnismiði nýs
liðsmanns al-Qaeda lýsir því hvaða
verkefni hann mátti takast á við í
þjálfunarbúðunum. Kemur þar fram
að mest áhersla var lögð á notkun
léttra skotvopna, s.s. AK-47 árásar-
riffla, handsprengna og flugskeyta.
Einnig var kennt hvernig setja
skyldi saman ýmsar tegundir skot-
vopna og hvernig búa skyldi til
sprengjur. Loks var nýjum liðs-
mönnum al-Qaeda kennt að gera sig
skiljanlega án þess að hið talaða orð
kæmi til, þ.e. með notkun ýmissa
kenniorða og tákna.
Al-Qaeda-liðar í Jalalabad og Kabúl skildu eftir gögn er varpa ljósi á þjálfun hryðjuverkamanna
Höguðu sér
eins og ný-
lenduherrar
fyrri alda
Ljósmynd/Los Angeles Times
Afganskur stjórnarandstæðingur vaktar fyrrverandi hýbýli liðsmanna al-Qaeda í Jalalabad.
Jalalabad, Kabúl. The Los Angeles Times, The Washington Post.
’ Afganistan varorðið að höfuðstöðv-
um ýmissa róttækra
íslamstrúarhópa ‘
MARGT bendir til að erlendir liðs-
menn al-Qaeda hryðjuverka-
samtakanna, sem búsettir voru í
Afganistan, hafi stuðlað að því að
talibanastjórnin ákvað í mars sl. að
eyðileggja tvö þúsund ára gömul
Búddha-líkneski í Bamian-héraði í
Afganistan. Ákvörðun talibana
vakti á sínum tíma heimsathygli og
var víðast hvar fordæmd harka-
lega og henni lýst sem menning-
arlegu hryðjuverki.
Erlendir liðsmenn al-Qaeda
skildu eftir sig mikinn fjölda bóka,
handskrifaðra minnismiða, bækl-
inga og önnur gögn er þeir flúðu
fylgsni sín í Kabúl í síðustu viku.
Sýna sum þessara gagna, svo ekki
verður um villst, að al-Qaeda sam-
tökin höfðu umtalsverð áhrif á tal-
ibanastjórnina í Afganistan. Meðal
annars verður ekki annað ráðið en
að ákvörðunin um að eyðileggja
Búddha-líkneskin í Bamian hafi
verið tekin að undirlagi al-Qaeda,
en leiðtogum hreyfingarinnar
fannst þau and-íslömsk.
Búddha-líkneskin „bara
venjulegir grjóthnullungar“
Á minnismiðum, sem fundist
hafa í Kabúl, er rakið að sendi-
nefnd al-Qaeda gekk á fund talib-
ana og lýsti þeirri skoðun sinni að
eyðileggja bæri stytturnar. Sú
ákvörðun myndi vekja mikla
ánægju í múslimaheiminum. „Þrátt
fyrir að á fundinum hafi verið
komist að þeirri niðurstöðu að
flókið mál væri að eyðileggja stytt-
urnar í Bamian, þar sem þær eru
utan í klettahlíðum miklum, og af-
ar gamlar, þá eru þær bara úr
steini og drullu, og okkur er alveg
sama um þær,“ sagði í minn-
ispunktunum.
Sagði ennfremur að á fundinum
hefði verið tekin fyrir beiðni frá
sendiherra Ítalíu í Pakistan, um að
styttunum yrði hlíft. Forystumenn
al-Qaeda höfnuðu hins vegar
beiðninni enda væru stytturnar
„bara venjulegir grjóthnullungar“.
Fundur þessi milli talibana og
al-Qaeda átti sér stað aðeins
nokkrum dögum áður en talibanar
hófust handa við að eyðileggja
stytturnar í Bamian. Undruðust
það margir á sínum tíma að Mo-
hammed Omar, andlegur leiðtogi
talibana, léti svo skyndilega til
skarar skríða, enda hafði hann áð-
ur sagt að stytturnar væru hinar
merkilegustu.
Bendir þetta til að samband tal-
ibana og al-Qaeda hafi verið flókið
og gagnvirkt, þ.e. að al-Qaeda hafi
haft umtalsverð áhrif á ákvarðanir
talibana og jafnvel stuðlað að því
að talibanastjórnin hneigðist til
enn róttækari íslamstrúar en hún
ella hefði gert.
Stuðluðu að eyði-
leggingu Búddha-
líkneskjanna
Kabúl. The Washington Post.
Reuters
Svona leit annað Búddha-líkneskjanna út, en talibanar eyðilögðu það
fyrr á þessu ári. Líkneskið er 55 metra hátt.
ÁÆTLAÐ er að 360 manns, sem
eru grunaðir um aðild að al-Qaeda-
samtökum Osama bin Ladens, séu í
haldi í 50 löndum vegna tilmæla frá
bandarísku leyniþjónustunni CIA,
að því er greint var frá í dag-
blaðinu The Washington Post í
gær. Fram kom að fulltrúar CIA
hafa lagt hart að fulltrúum stjórn-
valda í fjölmörgum löndum um að
miðla upplýsingum um þá sem
grunaðir eru um aðild að samtök-
um Osama bin Ladens.
Fulltrúar CIA eru jafnframt
sagðir hafa brotist inn í byggingu á
erlendum vettvangi til þess að afla
sér upplýsinga um mann sem lá
undir grun í kjölfar þess að yf-
irvöld í viðkomandi landi neituðu
Bandaríkjamönnum um upplýsing-
ar. Segir að CIA hafi haft uppi á
viðkomandi innan 12 klukkustunda
frá innbrotinu og að lögregla í
landinu hafi í framhaldinu hand-
tekið manninn.
Auk einstaklinganna 360 hefur
óþekktur fjöldi grunaðra hryðju-
verkamanna verið handtekinn að
undirlagi bandarísku alríkislög-
reglunnar, FBI. Er talið að yfir
100 manns séu í haldi í ríkjum Evr-
ópu, yfir 100 í Miðausturlöndum,
30 í Suður-Ameríku og 20 í Afríku.
Þá hafa stjórnvöld í Bandaríkj-
unum tekið 1.100 manns höndum í
tengslum við hryðjuverkin þar í
landi 11. september síðastliðinn.
Grunaðir
liðsmenn al-
Qaeda í haldi
í 50 löndum
Washington. AFP, The Washington Post.