Morgunblaðið - 23.11.2001, Blaðsíða 55
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 55
• Kynnum nýjan Ástundarhnakk
25% afmælisafsláttur.
• Kynnum dýrasta hnakk á
Íslandi
Afmælisútgáfa í örfáum
eintökum
Háaleitisbraut 68,
sími 568 4240
Náttúrulegur lífsstíll 25% afsláttur af öllum vörum
auk fjölmargra sértilboða
• Einungis er 25% afsláttur af
nýja Ástundarhnakknum en
ekki af öðrum Ástundar-
hnökkum
• Gildir aðeins 22.-24. nóv.,
eða á meðan birgðir endast.
Kaffiveitingar
Verið velkomin
ÁSTUND 25 ÁRA
Afmælisveisla í Ástund dagana 22.-24. nóv.
Allar vörur með 25% afslætti ásamt fjölmörgum sértilboðum
LAGERSALAN TUNGUHÁLSI 7
HELDUR ÁFRAM
Opið föstud. frá kl. 11-18, laugard. og sunnud. 11-17.
Tökum bæði debet- og kreditkort.
Tunguháls 7 er fyrir aftan Sælgætisgerðina Kólus.
Sími okkar er 567 1210
HEILDVERSLUN MEÐ JÓLA- OG GJAFAVÖRUR Í 35 ÁR
auðgast á þennan að mínu mati
óverðuga hátt!
Af áðurnefndri grein Kristins
Péturssonar og því sem skeð hefur
undanfarna daga tel ég að álykta
megi eftirfarandi:
1) Hafró veður í villu og svíma í
nánast öllu sínu starfi og ráðgjöfin
er í samræmi við það og vottar ekki
fyrir nokkru sem kalla mætti heil-
brigða skynsemi.
2) Fiskveiðistjórnarkerfið er
ónýtt og leggur augljóslega stein í
götu flestra, hvetur til brottkasts
o.fl. og eyðileggur siðferðiskennd
sjómanna – er siðspillandi! Kerfið
er af sama meiði og einkaeign olíu-
fursta víðsvegar um heim á olíu-
lindum sem ættu að vera í þjóð-
areign en eru í höndum siðspilltra
manna sem aðeins hugsa um eigin
hag!
Jón Sigurðsson skrifaði í Mbl. 23.
september s.l. og sagði að gefa ætti
strandveiðiflotanum algeran for-
gang til veiða á grunnslóð með línu
og handfærum – og jafnvel án afla-
takmarkana! Þetta eru tillögur að
mínu skapi og mér finnst þær end-
urspegla heilbrigða skynsemi þess
er þær flytur. Krókaveiðar hljóta
að vera „vistvænar“ miðað við að
nota risaháfa sem hirða upp allt
kvikt sem fyrir verður og eyði-
leggja auk þess hafsbotninn. Það
má meira að segja benda á að með
þessu móti mætti bjarga einhverj-
um þeirra kóralrifa sem sennilega
finnast – eða fundust – við landið
og sem botnvörpurnar eyðileggja
gersamlega!
Jón Baldvin sagði í sjónvarps-
þætti fyrir nokkru að Jón Sigurðs-
son væri heiðarlegur og skarp-
greindur maður og ráð hans væru
góð! Því í ósköpunum virðir þá eng-
inn manninn viðlits – greinunum
hans eða Kristins er ekki svarað
einu orði! Er það rangt að króka-
veiðar séu vistvænni en hitt og er
það rangt og óskynsamlegt að
heimila frjálsar veiðar þessara smá-
báta á landgrunninu? Á að leggja af
byggð í Grímsey út af óæskilegri og
óvæntri ýsugengd á miðunum þar?
Á frekar að hlusta á íslenska dokt-
orinn frá Ameríku sem sagði í út-
varpið að það mundi bjarga sjávar-
útvegnum á Íslandi ef kvótinn væri
í eigu svona 3 útgerðarfyrirtækja?
Mundi það bjarga Grímseyingum?
RAGNAR EIRÍKSSON,
Lindargötu 15, Sauðárkróki.