Morgunblaðið - 11.12.2001, Qupperneq 32
32 C ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
FROSTAFOLD Rúmgóð þriggja herbergja 81
fm íbúð ásamt bílskúr, í litlu fjölbýli, sérstaklega
vel staðsett í hverfinu. Áhv. Verð 11,2 millj.
ASPARFELL Rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 7.
hæð í góðu lyftuhúsi. Ný gólfefni. Flísalagt bað.
Snyrtilegar innréttingar. Þvottahús á hæðinni.
Verð 8,9 millj.
SKIPHOLT + BÍLASTÆÐI Glæsileg 2ja
herbergja herb. íbúð í nýlegu 6-býli. Mikil
lofthæð. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Suð-
ursvalir. Falleg sameign. Bílastæði bakvið hús
með aðgangi einungis f. íbúa. Verð 9,6 millj.
SPORÐAGRUNN Óvenju rúmgóð 2-3ja her-
bergja íbúð í lítið niðurgröfnum kjallara á góðu
fjórbýli. Endurnýjað bað og gólfefni. Góðar upp-
gerðar innréttingar. Ný ofnalögn, nýtt rafmagn,
tvöfalt verksmiðjugler og Danfoss hitastýring.
Sérinngangur og sérhiti. Verð 9 millj.
REYKÁS - LAUS Falleg, björt og ótrúlega
notadrjúg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í litlu
góðu fjölbýli. Mjög fallegt útsýni til norðurs og
austurs. Laus nú þegar. Verð 9,3 millj.
SEILUGRANDI Mjög rúmgóð og vel skipu-
lögð 2ja herb. 71 fm íbúð á jarðhæð með stórum
skjólsælum sérgarði. Góðar innréttingar. Áhv.
Verð 8,9 millj.
2 HERBERGI I
GRENIÁS - GARÐABÆR. Parhús sem
byggt er á 3 pöllum með innbyggðum bílskúr á
miðpalli. Skilast fullbúið að utan, múrað með
marmaráferð og hvítu þakjárni, fokhelt að innan.
Lóð er skilað grófjafnaðri Húsið er mjög vel
staðsett í hinu nýja Ásahverfi í Garðabænum.
Húsið er byggt í halla og þ.a.l. er mjög fallegt og
óheft útsýni yfir Hafnarfjörð, Álftasnesið og
Reykjanesið. Húsið er staðsett neðan við götu og
því má gera ráð fyrir að garður verði mjög skjól-
sæll og snýr til suðurs og vesturs. Verð 16,5 millj.
hvor hluti.
ÓLAFSGEISLI - EINBÝLI Óskað er eftir til-
boði í plötu undir glæsilegt 250 fm einbýli á
tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Verð-
launateikning Sigurðar Hallgrímssonar. Frábær
staðsetning.
LJÓSAVÍK - RAÐHÚS Skemmtileg einlyft
raðhús, 170 fm með 40 fm innb. bílskúr, í hjarta
Víkurhverfisins. Húsunum er skilað fokheldum að
innan en fullbúnum að utan á grófjafnaðri lóð. Stutt
í skóla og aðra þjónustu. VERÐ 13,9 -14,3 MILLJ.
Möguleiki á að fá afhent lengra komið.
KIRKJUSTÉTT Plata undir fallegt einbýlishús
á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.
Möguleiki á allt að 6 svefnherbergjum. Verð 7
millj. Teikningar á skrifstofu.
DALSHRAUN Til sölu eða leigu eru u.þ.b.
200 atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Húsnæðið er
bæði með innkeyrsludyrum og góðum verslunar-
gluggum og getur því hentað undir margskonar
atvinnurekstur. Hagkvæmt verð.
DUGGUVOGUR Í vel staðsettu húsnæði sem
snýr út að Sæbrautinni eru til sölu eða leigu
samtals 1.100 fm atvinnuhúsnæði sem skiptist
niður á 6 einingar á jarðhæð og 2. hæð. Getur
selst eða leigst í einu lagi eða smærri einingum.
Góð aðkoma og lofthæð. Hagstætt verð og
greiðsluskilmálar.
DRAGHÁLS Til sölu eða leigu er einstaklega
vel staðsett 720 fm endaeining í mjög góðu og
snyrtilegu atvinnuhúsnæði. Skiptist í 500 fm á
jarðhæð með góðri lofthæð og 200 fm skrifstofu-
hæð með sérinngangi og fallegu útsýni. Mjög
góð aðkoma, góð útiaðstaða og bílastæði.
ATVINNUHÚSNÆÐI
NÝBYGGINGAR
ÓLAFSGEISLI - LENGRA KOMIÐ. Bjóð-
um nú glæsilegar sérhæðir í suðurhlíðum Grafar-
holtsins lengra komnar. Stór sérhæð með bílskúr
tilbúin til innréttingar frá 19,9 millj. eða fullbúnar án
gólfefna og eldunartækja frá 22,9 millj. Öll húsin
eru fullfrágengin að utan. Frágengin bílaplön, að-
keyrslur og stéttir upphitaðar. Leitið frekari upplýs-
inga á skrifstofu okkar eða hjá sölumönnum.
LANGHOLTSVEGUR Mjög gott og vel um-
gengið raðhús á 3 hæðum með innbyggðum bíl-
skúr á jarðhæðinni. Húsið stendur í halla þannig að
á bakhlið er gengið beint út í garð af miðhæðinni.
Sólskáli út frá stofu. LAUST STRAX. Verð 19,4 millj.
28 myndir á mbl.is
HÁLSASEL Mjög gott raðhús á tveimur hæðum
ásamt óinnréttuðu risi og sambyggðum bílskúr.
Húsið er vandað og vel umgengið. Verð 19,8 millj.
SÉRBÝLI
LANGAGERÐI Fallegt mikið endurnýjað einbýli
ásamt rúmgóðum bílskúr á þessum eftirsótta stað í
Smáíbúðahverfinu. Stór viðbygging. Ný þakklæðn-
ing og nýjir gluggar. Verð 23,9 millj.
BRÚNASTAÐIR Mjög gott 141 fm endaraðhús
á einni hæð ásamt 22 fm bílskúr (möguleiki á milli-
lofti í skúr). Skjólsæll suðurgarður. Húsið er ekki
fullbúið en komið fallegt eldhús, innihurðir, fata-
skápar. Mikil lofthæð og mjög góð nýting. Áhv. 8
millj. Verð 17,9 millj.
SÓLHEIMAR - HÆÐ Mjög áhugaverð 123
fm 4-5 herbergja efsta hæð í góðu og vel stað-
settu 4-býli. Frábært útsýni yfir Reykjavík. Stór
sólskáli. Parket. Verð 14,9 millj. Sjá 22 myndir á
netinu.
ÞINGHOLTSSTRÆTI 115 fm efri hæð og ris,
nú skipt í tvær íbúðir, á þessum vinsæla stað í
hjarta Þingholtanna. Eignin þarfnast endurbóta
að innan. Verð 12,5 millj.
ESKIHLÍÐ Mjög góð 4ra herbergja íbúð á 4. og
efstu hæð í sérlega góðu fjölbýli efst í Eskihlíð-
inni. Húseignin og sameign hefur verið mikið
endurnýjuð. Skemmtileg íbúð með góðu ústýni.
Massíft eucalyptusparket. Verð 11,6 millj.
ÁLFHEIMAR 4ra herbergja íbúð í snyrtilegri
blokk rétt við Laugardalinn. Íbúðin hefur verið
endurnýjuð, gólfefni og baðherb. m.a. Allt um-
hverfi og utanhúss hefur verið endurnýjað ný-
lega. Áhv. 5,7 millj. í húsbréfum. Verð 11,9 millj.
ÁLFTAMÝRI Mjög góð 4ra herb. 100 fm íbúð
á 3ju hæð. Sérþvottahús. Nýtt parket. Suðursval-
ir. Fallegt útsýni. Laus strax. Áhv. 3,1 millj. Verð
12,9 millj. LAUS STRAX - 21 mynd á netinu.
MIKLABRAUT - REYKJAHLÍÐ Lítil 3ja
herbergja íbúð í kjallara á góðu húsi. Íbúðin snýr
öll að Reykjahlíð þ.a.l. engin truflun frá Mikl-
ubrautinni. Gott tvöfalt gler og gluggar. LAUS
STRAX. Verð 7,3 millj.
EYJABAKKI Góð 3ja herb. 78 fm mikið endur-
nýjuð íbúð . Nýl. parket og flísar, eldhúsinnrétting
og nýtt baðhergi. Húsið er klætt á 3 vegu. Áhv. 4,8
millj. Verð 9,9 millj.
BARÐASTAÐIR Mjög góð íbúð í nýlegu fjöl-
býli. Maghony innréttingar. Sérþvottahús og
mjög fallegt baðherbergi. Sérlega góð sameign.
Verð 10,9 millj.
3 HERBERGI
4 - 6 HERBERGJA NAUSTABRYGGJA - ÁLKLÆDD RAÐHÚS
Höfum í sölu einstaklega vel staðsett og
skemmtilega hönnuð 200-277 fm raðhús
með tvöföldum innbyggðum bílskúr í
Bryggjuhverfinu sem verður stöðugt vin-
sælla. Hverfið er hannað utan um smá-
bátahöfnina í Grafarvogi og eru húsin á
einum eftirsóttasta stað hverfisins við
hafnarbakkann. Byggðin er samsett af
raðhúsum og minni fjölbýlum auk þjón-
ustu-, skrifstofu- og verslunarhúsnæðis.
Góðar veg- og göngutengingar og ör-
stutt í skóla, leikskóla og aðra þjónustu. Fyrstu húsin eru tilbúin til afhendingar með
óborganlegt sjávarútsýni! Leitið frekari upplýsinga og/eða fáið sendan bækling og teikn-
ingar.
SÁ er ábyrgur gagnvarthúsfélagi fyrir hlutdeild ísameiginlegum kostnaði,s.s. vegna viðhalds og við-
gerða, sem er þinglýstur eigandi á
hverjum tíma. Þannig liggur
greiðsluskyldan gagnvart húsfélag-
inu yfirleitt nokkuð ljóst fyrir.
Hins vegar er oft erfiðara að
leiða í ljós hver greiðir á endanum,
kaupandi eða seljandi. Það þarf
ekki að vera samasemmerki á milli
ábyrgðarinnar gagnvart húsfélag-
inu og réttar kaupanda og selj-
anda.
Aðstaðan getur verið sú að
kaupandi hefur þurft að greiða
húsfélaginu vegna sameiginlegs
kostnaðar sem hann á endurkröfu
á hendur seljandanum, svo fram-
arlega sem kaupsamningur hafi
ekki að geyma ákvæði um annað.
Þegar leysa skal úr því hvort
kaupandi eða seljandi skuli bera
hlutdeild í sameiginlegum kostnaði
er það tímamark sem hér skiptir
máli afhendingardagurinn.
Meginreglan er sú að hlutdeild
eignarinnar í sameiginlegum
kostnaði, sem viðkemur tímabilinu
fyrir afhendingardaginn, skuli selj-
andi bera, en kaupandi eftir af-
hendingardaginn. Hér skiptir ekki
máli hvenær einstakar greiðslur
gjaldfalla. Hér verður þó að greina
á milli venjulegra og óvenjulegra
kostnaðarliða.
Það má segja að um venjulegan
kostnað sé að ræða ef um fram-
kvæmd er að ræða með stuttu
millibili eða ef hlutdeild eignar er
óveruleg fjárhæð. Verulegar end-
urbætur og viðhaldsframkvæmdir
teljast óvenjulegar framkvæmdir í
flestum tilvikum.
Þá má einnig hafa hliðsjón af
því hvort samþykki aukins meiri-
hluta þurfi til að samþykkja fram-
kvæmd, þannig að ef aukinn meiri-
hluti er tilskilinn eru líkur á því að
framkvæmd teljist óvenjuleg.
Skipting venjulegra útgjalda
milli seljanda og kaupanda, s.s.
greiðslur á hita, hefur almennt
ekki nein vandamál í för með sér.
Það er fyrst og fremst skipting
kostnaðar vegna óvenjulegra fram-
kvæmda sem vill skapa vandamál
og ég ætla að reyna að gera nán-
ari grein fyrir.
Inneign í hússjóði
og endurgreiðsla VSK
Hvað varðar inneign í hússjóði
verður að líta svo á, sé ekki um
annað samið, að kaupandinn yf-
irtaki hlutdeild eignarinnar í hús-
sjóði. Þannig getur seljandi ekki
krafist þess að fá greiðslur sem
hann hefur innt af hendi í hússjóð
til baka. Ef um miklar fjárhæðir
er að ræða er því tryggast að
semja sérstaklega um slíka inn-
eign til að koma í veg fyrir deilur
síðar.
Telja verður að hið sama gildi
um endurgreiðslu virðisaukaskatts
vegna framkvæmda sem seljandi
hefur greitt. Sé ekki um annað
samið gengur greiðslan í hússjóð-
inn, sem kemur kaupanda til góða.
Vandamál geta risið vegna hlut-
deildar eignarinnar í óvenjulegum
útgjöldum, sem ekki er óyggjandi
hægt að heimfæra á tímabilið fyrir
eða eftir eigendaskiptin. Sem
dæmi má taka ákvörðun sem er
tekin á húsfundi um að klæða hús-
ið og útgjöldin eiga að greiðast
síðar. Ef eigendaskipti verða í
millitíðinni rís sú spurning hvort
það sé kaupandi eða seljandi sem
eigi að bera kostnað vegna klæðn-
ingarinnar. Það má líka hugsa sér
að við sölu liggi aðeins fyrir sam-
þykkt húsfundar, en verkið er
óunnið.
Í þessu tilviki blandast í raun
uppgjörssjónarmið og vanefnd-
asjónarmið og ekki eru alltaf
skörp skil þarna á milli. Það verð-
ur að segjast eins og er að það er
langt frá því að
tekin hafi verið afstaða til þessa
í dómaframkvæmd og fræðum.
Verk unnið fyrir
kaupsamningsgerð
Hafi verk verið unnið fyrir
kaupsamningsgerð er það meg-
inregla að seljandi ber kostnað
vegna þess verks. Kaupandinn hef-
Ábyrgð á sameiginlegum kostnaði
Hús og lög
eftir Elísabetu Sigurðardóttur,
hdl, lögfræðing Húseigenda-
félagsins/huso2@islandia.is