Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 21
ættum að þekkja afleiðingarnar. Hámark greinar Hannesar Hólm- steins eru þessi orð: „Það er furðu- legt að þeir örfáu ungu menn sem glæptust til þess á Íslandi á fjórða áratug að lýsa yfir stuðningi við Adólf Hitler, hafa verið fordæmdir hástöfum, en lítið sem ekkert hefur verið sagt um þá sem gengu til liðs við Stalín.“ Ég fullyrði að enginn þessara aðdáenda Hitlers varð fyrir neinu verulegu aðkasti. Stundum kom þó fyrir að kallað var eftir þeim á götu: nasistasvín! Þessir menn störfuðu að liststörfum, í skátahreyfingunni, öldrunarrmálum, leiklistarstarf- semi, gerðust síldarsaltendur o.fl. Og Heimdallur og Sjálfstæðisflokk- urinn tók við þeim öllum og þeir fengu fagrar afmælisgreinar og hjartnæmar minningagreinar í þessu blaði eftir því hvernig líf þeirra gekk fram. Aðeins einn þess- ara ungu manna varð fyrir aðkasti og það var sá sem Norðmenn dæmdu fyrir hlutdeild í mann- drápum á hernámsárum Þjóðverja í Noregi. Annar maður, íslenskur, lét skrifa heila bók um það hvernig þessi maður hefði stolið helft úr lífi hans með framferði sínu í þjónustu þýskra nasista úti í Noregi á stríðs- árunum. Íslenskir „stuðningsmenn“ Stalíns frömdu aldrei neina glæpi. Hverjir hafa mest haldið á lofti manndrápum Hitlers og brugðið hulu yfir það sama hjá Stalín? Það eru fyrst og fremst auðugir Gyð- ingar í Bandaríkjunum og Ísrael sem margir eru afkomendur rúss- neskra Gyðinga sem flúðu ofsóknir keisarastjórnanna í Rússlandi á sín- um tíma. Sömuleiðis þeir sem sjálf- viljugir fengu að fara frá Sovétríkj- unum til Ísraels á tímum „glasnost“ Gorbasjovs. Auk þess nýtur Stalín þess að vera meðal sigurvegara á nasismanum í heimsstyrjöldinni síð- ari. Íslenskir „stuðningsmenn“ Stal- íns voru þeir menn sem allra manna mest auðguðu mannlíf þessarar þjóðar á öllum sviðum á síðustu öld og reyndu að koma henni út úr ör- birgð. Ekkert af gjörðum þeirra var fengið frá Sovétríkjum Stalíns. Ég gæti nefnt með nafni fjölda þessara góðu Íslendinga. Nefni þó bara einn. Ég var 13 ár blaðamaður við mest lesna tímarit landsins á sínum tíma, Heima er best. Starfi þessu fylgdu ferðalög um landið til að hafa tal af fólki, aðallega bændum. Margt var skrafað yfir góðum mat eða kaffi. Eitt sinn barst það í tal hver hefði verið mesti velgjörð- armaður íslenskra bænda á 20. öld. Ég hélt í fyrstunni að nú yrðu nefndir ýmsir forustumenn Fram- sóknarflokksins eða Ingólfur á Hellu. Nei! Það var kommúnistinn Björn Sigurðsson á Keldum sem kom með bóluefnið við mæðiveik- inni. Og ég hef heyrt fleiri bændur um allt land segja þetta sama. Og svo eru til menn hér á landi sem hafa hugsað sér að hafa af því lífs- viðurværi að hafa látna róttæklinga undir tönnunum fyrir það eitt að þeir játuðu að hafa haft rangt fyrir sér með Sovétríkin og Stalín. Ég minntist hér í byrjun á drengileg orð Matthíasar Johann- essen um Halldór Laxness. En hvar er nú það pennaglaða fólk sem sótti að Gljúfrasteini eins og flugur kringum heita ljósaperu og þóttist sækja sér visku og gyllingu að vera í návist Nóbelsskáldsins og njóta gestrisni „ambáttarinnar“ konu hans? Skáldið þarf nú liðsinnis við til að fá að vera í friði í gröfinni fyrir strákum sem kunna ekki þá sjálf- sögu íslensku mannasiði, og hið kristilega ritúal, að hinir látnu skulu hvíla í friði. Höfundur er fyrrverandi prentari og blaðamaður. ’ Skáldið þarf nú liðsinnis við til að fá aðvera í friði í gröfinni fyrir strákum sem kunna ekki þá sjálfsögðu íslensku manna- siði, og hið kristilega ritúal, að hinir látnu skulu hvíla í friði. ‘ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 21 TILBOÐ ÓSKAST Í Dodge Ram 2500 HD árgerð 1997 vél 5,9 l. (m/bensínvél) og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 8. janúar kl. 12-15. VÖRUBIFREIÐ OG TJÓNABIFREIÐ Tilboð óskast í Renault Midliner M 210 vörubifreið árgerð 1994 (ekinn 90 þús km.) og Ford Thunderbird tjónabifreið árgerð 1994. SKÓLARÚTA Tilboð óskast í I.H.C. 36 farþega skólarútu árgerð 1984 Model 1800. VÉLSLEÐI Ennfremur óskast tilboð í Polaris Indy LX Wide trak vélsleða árgerð 1999 (ekinn 1200 mílur). Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA SALA VARNARLIÐSEIGNA Hlutverk sölumanns Vefurinn sem sölutæki Tölvupóstur og Internetið Mannleg samskipti Sölu- og viðskiptakerfi Verslunarreikningur Windows - Word - Excel - Power Point Tímastjórnun Markaðsfræði Sölutækni Auglýsingatækni Myndvinnsla og gerð kynningarefnis Lokaverkefni Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980 Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500 Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937 Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is n t v . is nt v. is n t v .i s Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þjálfun í sölumennsku og notkun tölvutækninnar á þeim vettvangi. -Sölu og tölvunám „Eftir að hafa kynnt okkur vandlega hvað væri í boði ákváðum við að endurmennta sölumenn okkar á Sölu- og tölvunámi hjá NTV. Á þessu námskeiði var farið í einstaka þætti í söluferlinu, markaðsfræði, og sam- skipti við viðskiptavini. Að nám- skeiðinu loknu náðu þeir að nýta sér tölvur betur við sölustörf sín og þar með bæta þjónustu okkar við viðskiptavini. Námið var hnitmiðað og hefur m.a. skilað sér í vandaðri vinnubrögðum og betri árangri. Helstu námsgreinar Námskeiðið er 264 kennslustundir og hefst 8. janúar. Uppl. og innritun í síma 544 4500 og á ntv.is Ævar Guðmundsson Frkv.stj. Freyju ehf. Innritun er hafin og fer fram daglega virka daga kl. 14:00 til 17:00 í skólanum, Síðumúla 17, sími: 588-3730, fax: 588-3731, tölvupóstur: ol-gaukur@islandia.is. Á þessari önn verða í boði þau nám- skeið sem talin eru upp hér að neðan, miðað við næga þátttöku. Nánari upplýsingar í innritunar- síma á innritunartíma og einnig sendum við ítarlegan bækling um skólann til þeirra sem þess óska. LÉTTUR UNDIRLEIKUR Hægt að fá leigða HEIMAGÍTARA kr. 2500 á önn Sendum vandaðan upplýsinga- bækling HEFÐBUNDINN GÍTARLEIKUR ÖNNUR NÁMSKEIÐ 1. FORÞREP FULLORÐINNA Byrjendakennsla, undirstaða, léttur undirleikur við alþekkt lög. Geisla- diskur með æfingum fylgir. 2. FORÞREP UNGLINGA Byrjendakennsla, sama og Forþrep fullorðinna. Geislad. m. æfingum fylgir. 3. LÍTIÐ FORÞREP Spennandi, styttra, ódýrara námskeið fyrir börn að 10 ára aldri. Geisladiskur með æfingum fylgir. 4. FRAMHALDS-FORÞREP Nýtt, skemmtilegt námskeið í beinu framhaldi af Forþrepi. Geisladiskur með æfingum fylgir. 5. PLOKK Beint framhald Forþreps – meiri undir- leikur með áherslu á svonefnt „plokk“. 6. ÞVERGRIP Beint framhald Forþreps – dægurlög undanfarinna áratuga og áhersla á þvergrip. 7. BÍTLATÍMINN Aðeins lög frá Bítlatímabilinu, t.d. lög Bítlanna sjálfra, Rolling Stones, vinsæl íslensk lög o.fl. Fyrir þá sem lokið hafa Forþrepi/kunna fáein grip. 8. PRESLEYTÍMINN Einkum lög sem Elvis Presley gerði fræg um alla heimsbyggðina ásamt alþekktum lögum íslenskra og erlendra höfunda frá sama tíma. Afbragðs þjálfun fyrir þá sem lokið hafa Forþrepi/kunna fáein grip. 9. TÓMSTUNDAGÍTAR Byrjendakennsla (sama og Forþrep fullorðinna, en styttra) fyrir 16 ára og eldri í samvinnu við Tómstundaskólann. 10. FYRSTA ÞREP Undirstöðuatriði nótnalesturs fyrir byrjendur lærð með því að leika léttar laglínur á gítarinn o.m.fl. Forstig tónfræði. Próf. 11. ANNAÐ ÞREP Framhald Fyrsta þreps, leikin þekkt smálög eftir nótum, framhald tón- fræði- og tónheyrnarkennslu. Próf. 12. ÞRIÐJA ÞREP Beint framhald Annars þreps. Verk- efnin þyngjast smátt og smátt. Framhald tónfræði- og tónheyrnar- kennslu. Próf. 13. FJÓRÐA ÞREP Beint framhald Þriðja þreps. Bæði smálög og hefðbundið gítarkennslu- efni eftir þekkt tónskáld. Tónfræði, tónheyrn, tekur tvær annir. Próf. 14. FIMMTA ÞREP Beint framhald Fjórða þreps. Leikið námsefni verður fjölbreyttara. Tónfræði, tónheyrn. Tekur tvær annir. Próf. 15. JAZZ-POPP I Þvergrip, hljómauppbygging, tónstigar, hljómsveitarleikur o.m.fl. Einhver nótnakunnátta áskilin. 16. JAZZ-POPP II/III Spuni, tónstigar, hljómfræði, nótnalestur, tónsmíð, útsetning. 17. TÓNSMÍÐAR I/II Byrjunarkennsla á hagnýtum atriðum varðandi tónsmíðar. Einhver undirstaða nauðsynleg. 18. TÓNFRÆÐI – TÓNHEYRN I/II Innifalin í námi. 19. TÓNFRÆÐI – TÓNHEYRN FYRIR ÁHUGAFÓLK Fyrir þá sem langar að kynna sér hið einfalda en fullkomna kerfi nótnanna til þess m.a. að geta sungið/leikið eftir nótum. 20. KASSETTUNÁMSKEIÐ Námskeið fyrir byrjendur á tveim kassettum og bók, tilvalið fyrir þá sem vegna búsetu eða af öðrum ástæðum geta ekki sótt tíma í skólanum en langar að kynnast gítarnum. Sent í póstkröfu. INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17 588-3730
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.