Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 38
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ SteingrímurHeiðar Stein- grímsson fæddist í Reykjavík 5. október 1937. Hann varð bráðkvaddur 24. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Steingrímur Steingrímsson, f. 4. október 1900, d. 25.janúar 1982, og Katrín Aðalheiður Aðalsteinsdóttir, f. 15. september 1910, d. 5. október 1937. Seinni kona föður hans var Sigríður Ólafsdóttir, f. 25. júní 1904, d. 30. desember 1969. Systkini Steingríms eru: 1) Aðalsteinn f. 28. mars 1927, d. 19. september 1990, ókvæntur og barnlaus. 2) Guðný, f. 17. mars 1931, maki: Óskar Þór Óskarsson, þau eiga þrjú börn. Hálfsystkini Steingríms eru: 3) Ólafía Guðrún (Stella), f. 27. október 1939, maki: Hrafn Ingvason, þau eiga þrjú börn. 4) Aðalheiður Sigríður, f. 5. janúar 1952, maki: Emil Sigur- jónsson, þau eiga fjögur börn. Hinn 25.október 1958 kvæntist Steingrímur Birnu Árnadóttur, f. 26. október 1938. Foreldrar henn- ar voru Árni Jóhann- esson, f. 11. septem- ber 1907, d. 26. nóvember 1995, og kona hans Ásdís Kristinsdóttir, f. 22. júlí 1912, d. 7. ágúst 1991. Börn þeirra eru: 1) Árni, f. 3. ágúst 1956, maki Maja Jill Einarsdótt- ir, þau eiga þrjú börn. 2) Jóhanna, f. 21. maí 1959, maki Stefán Árni Arn- grímsson, þau eiga þrjú börn, hún á eitt barn frá fyrra hjónabandi og eitt barnabarn. 3) Birna Steingríms- dóttir, f. 11. ágúst 1960, sambýlis- maður Hafþór Freyr Víðisson, hún á tvö börn. 4) Ásdís, f. 10. maí 1966, maki Gunnar Carl Zebitz, þau eiga tvö börn. 5) Sigríður, f. 22. október 1970, maki Hlynur Sveinbergsson, þau eiga tvö börn. Árið 1954 hóf Steingrímur störf hjá Eimskipafélagi Íslands og starfaði þar óslitið í 47 ár eða þar til hann lést. Útför Steingríms verður gerð frá Kópavogskirkju á morgun, mánudaginn 7. janúar, og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku Steini minn. Nú sit ég hér og reyni að koma minningunum á blað, en það er svo erfitt. Við vorum búin að eiga svo langt og hamingju- ríkt líf saman, frá því við hófum bú- skapinn um miðjan september 1957 að þú fluttir til mín. Manstu þegar við fórum til prestsins 25. október 1958 til að gifta okkur. Ég gleymdi brúðar- vendinum heima og Eva systir kom keyrandi á eftir okkur með hann, þá fór ég alveg í kleinu en prestshjónin sögðu að þetta merkti hamingju fyr- ir okkur. Eða þegar við löbbuðum með Jó- hönnu hálfs mánaðar gamla niður á Kársnesbraut til Péturs og Hallýar og þú keyrðir barnavagninn, að ég sagði við þig að þú værir eins og montinn hani. Eða þegar þú keyrðir mig á fæðingarheimilið á Hlíðarveg- inum og Jóhanna Hrafnfjörð bað þig að sækja aukarúmið í geymsl- una, sem þú auðvitað gerðir strax og svo varst þú ekki einu sinni kom- inn inn úr dyrunum heima þegar hringt var til að segja að fædd væri dóttir og mamma skilaði því til þín. Manstu hvað við vorum stolt þegar við borðuðum hér í eigin íbúð, dag- inn sem við fluttum, þó að það væru bara pylsur í matinn og hvað það var yndisleg tilfinning að eiga þetta allt sjálf og hafa byggt það með eig- in höndum. Ekki skemmdi það að sambýlisfólkið, Sverrir og Dúna og Tommi og Sóla, voru öll og eru per- sónulegir vinir okkar og höfðu byggt þetta hús með okkur. Eða all- ar útilegurnar sem við fórum í með börnin okkar, fyrst í „Kaffivagnin- um“, síðar á yngri og betri bílum, loks á liðnu sumri varð svo af því að við skoðuðum Kolugljúfrin saman og keyrðum hring í Vatnsdalnum, þar hafðir þú aldrei komið en ég að- eins einu sinni sem unglingur, með foreldrum mínum og systrum. Manstu, hvað við gengum mikið þarsíðasta sumar, þegar við fórum til Benidorm og uppgötvuðum er heim kom að við höfðum mælt allar götur þar nema tvær. Töluðum svo um að fara aftur og taka bíl á leigu og skoða miklu meira þar, svo ætl- uðum við líka að fara til Kanaríeyja þegar þú yrðir orðinn 67 ára. Þá ekki síður ferðirnar okkar í V-8- klúbbnum til Barcelona, siglinguna á Thames síðasta vor og sumarbú- staðarferðina í Skorradalinn í haust. Eða ferðirnar með Stellu og Krumma til Edinborgar, Dublin og ekki síst austur á Vopnafjörð til Öllu og Emma, síðast nú undir haust og þið karlmennirnir að smíða pallinn. Það er yndislegt fyrir mig, börnin okkar, tengdabörnin og alla okkar afkomendur að geta litið í sjóð minninganna, þú alltaf að gera eitthvað, því þú gast ekki verklaus verið. Þið Hlynur tengdasonur ætl- uðuð að fara að útbúa eitthvað þeg- ar fyrirtæki hans og vinar hans yrði komið á betri rekspöl. Svo ætluðum við, Sigga, Hlynur, Solla og Palli, að fara til Edinborgar saman, ég veit að þú myndir vilja að af því yrði, svo ef þau geta farið fer ég með þeim, það er alveg á hreinu. Við eigum alveg yndisleg börn, tengdabörn og barnabörn sem hjálpa mér á þessum dimmu dögum. Við héldum hefðinni að borða saman á gamlárskvöld og héldum líka fjöl- skyldujólaballið sem þú hlakkaðir svo mikið til, við vissum að þú værir með okkur þar. Ég ætla að reyna að halda öllu í horfinu eins og þú passaðir alltaf upp á og veit að ef ég þarf aðstoð hjálpa börnin og tengdabörnin mér, ég þarf aðeins að nefna það, þau eru alveg einstök. Elsku Steini minn, ég kveð þig í bili, ég veit að þú vakir yfir mér, alltaf. Þín Birna. Elsku pabbi minn. Mig langar svo að tala við þig núna. Þetta er svo erfitt og ótrúlegt að ég veit ekki hvernig ég á að vera. Ég trúi þessu varla enn þá. En því miður veit ég að það er satt. Þú sem áttir að vera hérna hjá okkur með mömmu á að- fangadagskvöld. En ég veit að þú hefur hlustað á mig þegar ég bað þig að koma samt. Ég á svo margar góðar minningar en það er erfitt að hugsa um þær allar núna. Auðvitað veit ég að þú ert á góðum stað og allt það, en ég vildi að þú værir hérna hjá okkur í staðinn. Ég var að skoða myndir af þér og sá þá mynd- ina sem við tókum eitt gamlárs- kvöldið þegar þú varst með hárkoll- una hans „Davíðs“ og auðvitað varstu skellihlæjandi því við skemmtum okkur svo vel. Það var svo gaman að hlusta á röflið og taut- ið í þér eins og þú lést stundum. Við gátum oft látið eins og fífl og alltaf var það jafn gaman. Nú sit ég hérna fyrir framan tölv- una mína og hugsa um það þegar þú varst að reyna að senda tölvupóst og lentir í vandræðum. Við systurn- ar sáum í sameiningu um að bjarga ykkur mömmu út úr smávandræð- um en ef þau urðu meiri þurftu strákarnir að koma til sögunnar og bjarga málunum en alltaf gekk það. Nú getum við ekki farið áfram yfir bókhaldið eða skoðað tölvuna en við mamma björgum því saman í stað- inn. Ég á fullt af skemmtilegum minn- ingum. Manstu til dæmis þegar við vorum í útilegunni í Skorradalnum og við systurnar duttum í ána? Þá kölluðum við í þig og aumingja þú komst hlaupandi á sokkaleistunum einum yfir stokka og steina til að bjarga okkur, en sem betur fer var allt í lagi með okkur og þú labbaðir varlega til baka enda með eindæm- um sárfættur, eða um daginn þegar við vorum að fara yfir bókhaldið og Sverrir var með okkur og ég hélt að þú værir að fara með vitleysu og þú varst viss um að ég væri að fara með vitleysu, við skellihlógum og svo þegar við komumst að því að við höfðum bæði rétt og rangt fyrir okkur hlógum við enn þá meira, ég held satt að segja að Sverri hafi ekkert litist á blikuna! Það var svo gaman að því hversu mikill sælgætisgrís þú varst, öll barnabörnin og fullt af öðrum börn- um lærðu að standa fyrir framan búrdyrnar og segja: Afi, nammi! Og alltaf áttirðu nammi handa þeim. Verst að Guðmundur minn litli kem- ur aldrei til með að segja þessi orð. En nú ætla ég að kveðja þig, pabbi minn, og ég veit að þú ert kominn þangað sem gott er að vera, en þó verð ég að segja þér eitt að lokum. Manstu eftir því þegar þú hringdir í mig laugardaginn 22. des. þegar við vorum á fullu að kaupa gjafirnar fyrir þig, þá sagðirðu mér að þig hefði dreymt Guðmund litla og ég sagði þér að það væri ein- göngu góðs viti fyrir hann, en þegar við fórum að hugsa betur út í það eftir á þá áttuðum við okkur á því að nafnið Guðmundur þýðir Hönd Guðs og þess vegna er ég viss um að þú ert í hans höndum, hann var að láta þig vita, við áttuðum okkur bara ekki á því fyrr en eftir á. Þú veist að þú átt stórt pláss í hjarta okkar allra; mínu, Gunna, Ásdísar og Guðmundar og í vor þegar ég loks útskrifast hefði ég svo sann- arlega viljað hafa þig hjá mér, en ég veit að þú yrðir stoltur og að þú fylgist örugglega með mér þá. Ég kveð þig með sorg í hjarta en minn- ingarnar lifa. Takk fyrir allt. Þín Ásdís. Elsku pabbi. Ég gleymdi að þakka þér fyrir dálítið á Þorláks- messukvöld, leit á klukkuna, hana vantaði tuttugu mínútur í tólf og mér fannst of seint að hringja þá. Hálftíma seinna varstu látinn. Ég á þér svo margt að þakka. Þú varst kletturinn sem aldrei haggaðist, sama hvað gekk á. Þú hafðir allt það sem þarf til að prýða góðan mann, snyrtimenni mikið og rómaður fyrir heiðarleika. Alltaf var hægt að leita til þín, sama hvað vandamálið var stórt, þú leystir það með sóma. Þú varst félagslyndur og hrókur alls fagnaðar í margmenni. Ég á ynd- islegar minningar um þig, elsku pabbi minn, minningar sem ég mun varðveita í hjarta mínu um ókomna framtíð. Elsku pabbi, ég þakka þér fyrir að hjálpa mér og styðja mig á erfiðum tímum í lífi mínu. Ég sakna þín og mun alltaf elska þig. Þín dóttir Birna (Bidda). Elsku Steini. Mig langar að skrifa til þín nokkur orð og vonandi ná þau til þín þar sem þú ert. Núna ertu kominn til mömmu, pabba og allra hinna ástvina okkar sem ekki eru lengur á meðal vor. Þú fórst samt alltof fljótt, Steini minn, og ég veit að þú hefðir kosið að vera lengur hérna hjá okkur. Það er svo óraun- verulegt að hugsa til þess að ég eigi ekki eftir að sjá þig aftur, finna stóra arma þína taka utan um mig og heyra þig kalla mig „litla systir“. Elsku bróðir, þú varst svo stór og glæsilegur og það er mikið skarð sem hefur myndast í veröld mína við fráfall þitt, engum mun takast að fylla það skarð. Þú sást alltaf vel um þig og þína og ég efast ekkert um að þú munir halda því áfram frá STEINGRÍMUR HEIÐAR STEINGRÍMSSON                      !  " #$                      !  "  #$$  % &!'% ( )  %* ! &! +* ) ,  !-&! +* +*  ./  0 + ) 1 + 2&! +* +*   3  !4   +* &                               !   ! "       #     $    !   ! %&!&'!   !"##$ % & '%%   #'%%   % ()##$ !"  ##$ * +,#% #'%%  - . $# /0% .%1*$ # $!!!"/                          ! " #     $%     &'  (  &) )'   !" ##$$ %&'(&##$$ &'%&'(&##$$  )!$ *+ $& &'(&#+  $  ,#$$ -- +--- !                          !  !  " # "  "#$" %  &'( $)%*                   !  *+ $# ,$  - .% / $" * !", 0$ $# ,$  !! $# * 1*1                                           !   "   # $ %             ! "# $  %& '# (   " $  $  # )  ) & $(  $  *  $  & & )  "# $( $'+ $"#,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.