Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 11
á sig til að ná tökum á lífi sínu, gagn- stætt við það sem almenningur held- ur. Þeir eiga oft við flókin og langvinn vandamál að stríða, en margir þeirra hafa unnið þrekvirki, þótt þeir líti ef til vill ekki svo á sjálfir.“ Sálfræðingar þjálfaðir í íslenskum veruleika Hluti framtíðarsýnar Jóns Friðriks forstöðusálfræðings er aukið sam- starf við sálfræðiskor Háskóla Ís- lands. „Háskólinn er farinn að út- skrifa sálfræðinga með starfsréttindi, en áður þurftu Íslendingar að sækja sér þau réttindi til erlendra háskóla. Stór hluti þessara nemenda fær starfsþjálfun sína á geðsviði LSH og það er mjög gefandi fyrir okkur að hafa vel menntaða nema í þjálfun. Þeir búa að nýjustu þekkingu í fræð- unum og eru vel skólaðir í aðferða- fræði rannsókna.“ Aðspurður hvort ekki hafi einmitt verið kostur að sálfræðingar hafi sótt menntun sína í hina ýmsu háskóla er- lendis svarar Jón Friðrik að án efa muni hluti íslenskra sálfræðinga halda áfram að afla sér menntunar er- lendis, þótt nú sé boðið upp á nám til starfsréttinda hér. „Kostirnir við þetta fyrirkomulag eru miklu fleiri en gallarnir. Við erum að þjálfa sálfræð- inga til starfa í íslenskum veruleika, sem tryggir meiri samfellu milli náms og starfs.“ Jón Friðrik hefur ekki sagt skilið við réttarsálfræðina, þrátt fyrir að hafa tekið við starfi forstöðusálfræð- ings á geðsviði LSH, eins og sést af rannsóknarverkefnum hans. „Ég hef kennt réttarsálfræði við Háskólann og fundið fyrir vaxandi áhuga á fag- inu. Ég mun líka vinna áfram að dómsmálum, líkt og verið hefur.“ Af nýlegum dómsmálum má nefna að Jón Friðrik kom við sögu í máli fyrrum flugrekstrarstjóra Leiguflugs Ísleifs Ottesen, en verjandi mannsins fór fram á það nú rétt fyrir jól að fá að leggja fyrir dóminn sálfræðiskýrslu Jóns Friðriks þar sem lagt er mat á trúverðugleika vitnisburða farþega sem sögðust hafa verið um borð í TF- GTX í ágúst árið 2000. Flugrekstr- arstjórinn er ákærður fyrir að flytja 12 farþega í eitt skipti, í stað 10 eins og vélin er skráð fyrir. Jón Friðrik var m.a. beðinn um að leggja mat á hvort vitnin hafi haft getu til að greina í smáatriðum frá atvikum málsins svo löngu eftir að atburðir áttu sér stað og hvort fréttaflutningur og þjóðfélags- leg umfjöllun um málið sé líkleg til að hafa áhrif á vitnisburð þeirra. Hér- aðsdómari féllst ekki á að skýrslan yrði lögð fram, en sú niðurstaða hefur verið kærð til Hæstaréttar. Þá kom Jón að öðru máli, sem dæmt var í skömmu fyrir jól. Þá var konu veitt forræði yngri systur sinn- ar, á grundvelli umsagnar Jóns Frið- riks og annars sálfræðings. Unglingar og kynferðisleg misnotkun Jón Friðrik hefur einnig í nokkur ár verið ráðgefandi fyrir Barnavernd- arstofu við greiningu og meðferð ung- linga sem beita aðra kynferðislegu of- beldi og við meðferð unglinga með alvarleg geðræn vandamál og hegð- unarvandamál, sem vistaðir eru á meðferðarheimilum á vegum Barna- verndarstofu. Hann er einn stofn- félaga samtaka um greiningu og með- ferð á ungum kynferðisafbrotamönn- um, en samtökin voru stofnuð í Hollandi um áramótin 2000/2001. „Ekki eru nema tiltölulega fá ár lið- in síðan menn áttuðu sig á hve alvar- leg, kynferðisleg misnotkun finnst meðal unglinga. Unglingar, í nær öll- um tilvikum piltar, sem beita yngri börn kynferðislegu ofbeldi, nota oft grófar aðferðir og hótanir. Ef við get- um náð tökum á þessum vanda og hjálpað þessum unglingum eru minni líkur á að þeir brjóti af sér síðar. Það er vert að benda á að allt að helm- ingur dæmdra kynferðisafbrota- manna segist hafa byrjað feril sinn á unglingsárum og að milli 20–30% þeirra sem misnota ung börn eru yngri en 18 ára. Þetta virðist vera raunin hér á landi, rétt eins og í öðr- um löndum.“ Verkefni forstöðusálfræðingsins eru ærin, en hann hlakkar til að tak- ast á við þau. „Það er mjög gefandi að aðstoða fólk við að takast á við erfið, geðræn vandamál og sérstaklega hvetjandi þegar góður árangur næst,“ segir Jón Friðrik Sigurðsson. rsv@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 11 AFRÍKURÍKIÐ Zimb-abwe virtist vera á leiðtil bjartrar framtíðar,miklar framfarir voru áýmsum sviðum, efna- hagurinn betri en í flestum grann- löndunum og sambúð blökkumanna og hvíta minnihlutans viðunandi. En nú er allt á vonarvöl. Atvinnuleysið er um 50% og óðaverðbólga herjar, bensín er skammtað, þjóðarfram- leiðsla hefur minnkað í nokkur ár í röð. Ofbeldi og önnur lögleysa hafa ásamt tjóni af völdum veðurfars valdið því að skortur er á mat og hætta á að hálf milljón manna muni senn svelta. Nær 40 manns féllu í pólitískum óeirðum á árinu sem var að líða. Kirkjunnar menn í Zimbabwe skömmuðu nýlega einn af stuðn- ingsmönnum Roberts Mugabe for- seta fyrir að líkja leiðtoganum við Krist og þorri landsmanna á erfitt með að skynja í hverju hjálpræði Mugabe til handa þjóð sinni er fólg- ið. Hann hefur brugðið á það ráð að gera hvíta bændur að blórabögglum og minnir á syndir nýlendutímans. Forsetinn nýtir sér neyð fátæklinga til að reyna að endurheimta hylli al- mennings sem hann naut þegar hann varð fyrsti svarti leiðtogi landsins 1980. Ástandið verður æ ískyggilegra. Fjöldi Zimbabwe-manna hefur hrakist til Suður-Afríku í atvinnuleit en þar saka þeir sem fyrir eru þá um að taka vinnu frá innfæddum. Ráð- ist var á hreysi þeirra norðan við Jó- hannesarborg í október og um 100 kofar brenndir, að sögn BBC. Stjórn Mugabe hefur ýtt undir og beinlínis stjórnað bak við tjöldin of- beldisaðgerðum gegn hvítum bænd- um og einnig svörtum andstæðing- um sínum. Til sveita herja vopnaðir flokkar ræningja og óbótamanna, meira eða minna með vitund og vilja ráðamanna. Stjórnvöld ógna fjöl- miðlum og dómstólum ef þeir reyna að sporna við ofríkinu. Eitt sinn „yndislegt land“ „Fyrir fjórum árum var Zimb- abwe yndislegt land,“ segir Tarc- isius Zimbiti, framkvæmdastjóri kaþólsku réttlætis- og friðarnefnd- arinnar. „Núna er þar helvíti á jörð.“ Gert er ráð fyrir að forseta- kosningar verði í mars og Zimbiti álítur eins og fleiri að Mugabe muni ekki fara frá hljóðalaust ef hann tapi. Þess vegna sé ef til vill eina friðarvonin að hann nái endurkjöri. Aðrir eru ósammála og segja að ef Mugabe og menn hans misbeiti enn valdi sína og falsi úrslit kosninganna muni ekki takast að hafa hemil á reiði almennings. Talsmenn mannréttindasamtaka, stjórnarandstöðuleiðtogar og er- lendir stjórnarerindrekar í Zim- babwe segja að upplausnin sem nú ríkir sé búin til af ásettu ráði af stjórnarliðum og markmið þeirra sé að tryggja þannig Mugabe endur- kjör en vinsældir hans hafa minnkað hratt síðustu árin. Og Zambiti hefur heldur ekki mikla trú á lýðræðis- hneigð Mugabe. „Það er pólitískt tafl í gangi,“ segir Zambiti. „Útilok- að er að halda frjálsar og heiðarleg- ar kosningar vegna allra hótananna sem nú er beitt.“ Helsta stjórnarandstöðuaflið er Hreyfing lýðræðislegra breytinga, MDC, en fyrir henni fer Morgan Tsvangirai. Hann gagnrýndi á föstudag framferði herflokka of- beldismanna, sem þjálfaðir væru af stjórninni og flokki hennar, ZANU- PF og sagði þá hafa myrt fjóra liðs- menn MDC síðustu daga. Vaxandi hætta væri á því að átök sem minntu helst á borgarastyrjöld hæfust í landinu. Talsmenn ZANU-PF saka á hinn bóginn félaga í MDC um að hafa ráðist á stuðningsmenn stjórn- arinnar. Óvænt áfall árið 2000 Ofbeldið hófst fljótlega eftir að þjóðin felldi óvænt í þjóðaratkvæða- greiðslu árið 2000 tillögu um að Mugabe fengi aukin völd með breyt- ingu á stjórnarskránni. Þúsundir vopnaðra flokka úr röðum stuðn- ingsmanna forsetans hófu nú að leggja undir sig bújarðir hvítra. Liðsmenn flokkanna voru margir uppgjafahermenn úr stríðinu sem svartir háðu í mörg ár gegn hvíta minnihlutanum en því lauk um 1980 með því að blökkumenn, sem eru um 99% landsmanna, fengu kosninga- rétt og hafa síðan farið með völdin. Bestu jarðirnar voru yfirleitt á hendi hvítra og höfðu verið síðan landið var bresk nýlenda. Herflokk- arnir kröfðust þess nú að jörðunum yrði skipt milli fátækra blökku- manna. Mannréttindasinnar full- yrtu að með stuðningi sínum við herflokkana væru stjórnvöld fremur að reyna að hræða andstæðinga sína meðal jafnt hvítra sem svartra en þingkosningar voru fyrirhugaðar í júní sama ár. Kosningarnar fóru fram og MDC hlaut nær helming þingsætanna, þrátt fyrir ógnanir stjórnarliða. Mugabe setti nú fram tillögur um eignarnám á bújörðum hvítra en hæstiréttur komst að þeirri niður- stöðu að hugmyndirnar væru í and- stöðu við stjórnarskrána. Nokkur hundruð æsingamenn úr röðum ZANU-PF ruddust þá inn í húsa- kynni réttarins, dönsuðu um bekk- ina og hrópuðu slagorð stjórnar- flokksins. Lögregla skipti sér ekki af þeim og enginn var handtekinn vegna málsins. Forseti hæstaréttar- ins, Anthony Gubbay, sagði að opinber for- dæming Mugabe á dómstólum sýndi „um- búðalausa og svívirði- lega“ fyrirlitningu for- setans á stjórnarskránni. Stjórnin þvingaði Gubbay til að víkja í fyrra, fjórir nýir dóm- arar, hliðhollir Mug- abe, voru skipaðir. Fjallað var aftur um tillögurnar um eignarnám og þær nú samþykktar. Gert er ráð fyrir að um 100.000 manns fái úthlutað alls um 95% alls jarðnæðis sem verið hefur í eigu hvítra, í sumum tilvikum hafa þeir og forfeður þeirra átt það í meira en öld. En Mugabe bendir á að þá hafi einnig verið beitt valdi til að reka blökkumenn á brott til þess að hægt væri að stofna nútímalega búgarða. Vandinn er að þegar hvítu bænd- urnir fara tekur oftast við stjórn- leysi eða vanhæfir eigendur án reynslu af rekstri stórbýla og þeir láta allt drabbast niður. Áveitur eru eyðilagðar og efnahagur landsins versnar, allir tapa í reynd. Þetta vissi Mugabe er hann tók við fyrir rúmum tveim áratugum eftir blóðugt stríð gegn stjórn hvítra. Hann var marxisti en hét hvítum að eignir þeirra yrðu látnar í friði. Nú hefur kalt mat vikið fyrir stundarhagsmunum forsetans. All- margir hvítir bændur hafa þegar verið reknir af jörðum sínum og blökkumenn tekið þær yfir. Hvítu bændurnir eru um fjögur þúsund og rækta einkum tóbak sem er aðal- útflutningsvara Zimbabwe en íbúar landsins eru alls 14–15 milljónir. Stuðningsmenn verðlaunaðir Á föstudag var birtur fyrsti list- inn með nöfnum hinna heppnu sem fá jarðnæði og voru meðal þeirra þingmenn og ákafir stuðningsmenn Mugabe. Einn þeirra var Joseph Chinotimba, foringi vopnaðs flokks sem hertekið hefur marga búgarða hvítra. „Ég á þetta skilið,“ sagði hann en Chinotimba fékk jörð rétt hjá höfuðborginni Harare. Lögreglan hefur oft ráðist á fjöl- miðla sem ekki lúta vilja stjórnvalda og aðgerðir hennar verið fordæmd- ar í Bretlandi og fleiri vestrænum ríkjum. Erlendum fréttamönnum er oft meinað að koma til landsins, þar á meðal frá AP-fréttastofunni og BBC. Þingið hefur nú til umfjöll- unar ný lög sem myndu takmarka mjög tjáningarfrelsið. Hefur auk þess verið skýrt frá því að erlendum eftirlits- mönnum verði meinað að fylgjast með vænt- anlegum forsetakosn- ingum í mars og fram- kvæmd þeirra. Sextánda nóvember gerðu hryðjuverka- menn árás á aðalstöðv- ar MDC í Bulawayo, kveikt var í húsinu og flokksmenn sakaðir um að hafa myrt liðs- mann stjórnarflokks- ins. Lögreglan hand- tók starfsmenn skrifstofunnar. Bul- awayo er næst-stærsta borg lands- ins og hefur verið aðalvígi MCD í landinu. „Menn eru búnir að varpa grím- unni,“ sagði David Coltart, talsmað- ur flokksins. „Örvænting og ofsókn- aræði færast í aukana meðal ráðamanna.“ Talsmenn stjórnvalda eru farnir að kalla andstæðinga sína hryðjuverkamenn og í ríkissjón- varpi Zimbabwe eru aðgerðir gegn stjórnarandstöðunni nefndar Stríðið gegn hryðjuverkum. Afrískir leiðtogar ókyrrast Bandaríski þingmaðurinn Ed Royce, sem vill að Bandaríkin beiti refsiaðgerðum gegn stjórn Mugabe, segir að ásakanirnar um hermdar- verk stjórnarandstæðinga séu fá- ránlegar og hann hrósaði Tsvangirai og mönnum hans fyrir að gjalda ekki ofbeldið í sömu mynt. Royce vill að hætt verði að lána Zimbabwe fé og einnig að opinberar skuldir landsins verði ekki felldar niður. Evrópusambandið hefur lagt til svipaðar refsiaðgerðir. En áhrifin yrðu vart mikil þar sem slíkri aðstoð hefur þegar að mestu verið hætt síð- ustu árin. Ef til vill skiptir afstaða leiðtoga í helstu grannríkjum Zimbabwe meira máli. Yfirleitt forðast afrískir ráðamenn af ýmsum ástæðum að finna að gerðum starfsbræðra sinna annars staðar í álfunni en í nóvem- ber gagnrýndi Festus Mogae, for- seti Botswana, hins vegar Mugabe fyrir að stöðva ekki ofbeldið. Thabo Mbeki, forseti Suður-Afríku, lýsti harmi sínum vegna ástandsins. Einnig hefur hann varað við því að borgarastyrjöld geti brotist út ef reynt verði að hagræða úrslitum kosninganna. Slíkar yfirlýsingar munu þó varla nægja til að tryggja frið og stöðugleika og víða um heim fylgjast menn vel með því sem ger- ist af ótta við að allt fari í bál og brand og Zimbabwe verði enn eitt landið þar sem alþjóðasamfélagið þurfi að stilla til friðar. Á barmi örvæntingar Zimbabwe var um árabil eins og tákn þess að sam- búð blökkumanna og hvítra í Afríkulöndum gæti gengið vel. Í grein Kristjáns Jóns- sonar kemur fram að syrt hefur í álinn, efnahagurinn er í lamasessi og Mugabe forseti hyggst halda í völd- in, hvað sem það kostar. Reuters                                               ! "#$%&  kjon@mbl.is Robert Mugabe Lögreglumenn í brynvörðum vagni í Harare í nóvember. Stöðvuð voru mótmæli gegn tillögu Mugabe um að breyta kosningareglum, sér í hag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.