Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 53 DAGBÓK Námskeið á vorönn Byrjendur: Hefst 22. janúar og stendur yfir í 10 þriðjudagskvöld, þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20—23. Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er ekki gert ráð fyrir neinni kunáttu og ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Það geta allir lært að spila brids, en það tekur svolítinn tíma að ná tökum á grundvallarreglum Standard-sagnkerfisins. Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum sem sækir skólann. Kennslubók fylgir námskeiðinu. Framhald: Hefst 24. janúar og stendur yfir í 10 fimmtudagskvöld, þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23. Standardsagnkerfið verður skoðað í smáatriðum, en auk þess verður mikil áhersla lögð á varnarsamstarfið og spilamennsku sagnhafa. Kjörið fyrir þá, sem vilja tileinka sér nútímalegar aðferðir og taka stórstígum framförum. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Öll námsgögn fylgja og gert er ráð fyrir nokkru heimanámi. Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga. Bæði námskeiðin eru haldin í félagsheimili Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12 í Reykjavík. BRIDSSKÓLINN 6 vikna uppbyggjandi námskeið þar sem kennd verða grunnatriði í hugleiðslu og gerðar hugleiðsluæfingar. Hugleiðsla getur verið mjög gagnleg í baráttunni við hraða, spennu, streitu og kvíða. Nánari upplýsingar og skráning hjá Gyðu Dröfn í síma 697 4545. Kyrrð – slökun - jafnvægi HUGLEIÐSLUNÁMSKEIÐ 4ra i yggjandi námskeið þar sem kennd verða grunnatriði í hugleiðslu og gerðar hugleiðsluæfingar. Hugleiðsla getur verið mjö gagnleg í baráttunni við hraða, spennu, streitu og kvíða. Nánari upplýsingar og skráning hjá Gyðu Dröfn í síma 697 4545. Kyrrð – Slöku - Jafnv gi Jógakennsla hefst að nýju í Grafarvogi 8. janúar. Meginþættir jóga: Teygjur, öndun og slökun. Kennt verður í Fjölnishúsinu í Dalhúsum 2. Byrjendanámskeið þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18.45. Opnir tímar, framhald, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.30. Allar nánari upplýsingar í síma 896 2097, Brynhildur og Þórður. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake STEINGEIT Afmælisbörn dagsins: Þú nýtur virðingar vegna tryggðar þinnar og áreið- anleika. Á nýju ári ættirðu að leggja áherslu á fjöl- skyldu og einkalíf. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ættir að slappa af í dag. Enginn getur unnið hvíldar- laust án þess að tapa áttum og týna lífssýn sinni. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þrátt fyrir að þú hafir þörf fyrir að taka til í kringum þig hentar dagurinn best til hvíldar og skemmtunar. Njóttu þess að fá þér eitthvað virkilega gott að borða. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Reyndu að njóta samvista við börn í dag. Allt of margir átta sig ekki á því fyrr en börnin eru vaxin úr grasi hvað þeir hefðu getað gert með þeim. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þrátt fyrir þá ímynd sem dregin er upp í tímaritum, kvikmyndum og sjónvarpi skiptir fjölskyldan mestu máli. Hringdu í einhvern sem þér þykir vænt um. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert önnum kafinn við að koma hlutunum í rétt horf en ættir samt að reyna að finna tíma til að slaka á og lesa. Þú þarft að flýja yfir í annan heim til að koma huga þínum á flug. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Farðu í skemmtiferð eða nýttu þér kvikmyndir, mynd- bönd og íþróttir til að gera daginn ánægjulegan. Gott líf byggist ekki bara á vinnu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ert viðkvæmari fyrir um- hverfi þínu en fólk í öðrum stjörnumerkjum. Leggðu aukna áherslu á að bæta heimili þitt. Prófaðu að mála, veggfóðra eða endurraða húsgögnum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Hvort sem þú telur þig trúað- an eða ekki þá hefurðu trúar- legan grunn. Kjarni allra trúarbragða er að auka góð- vild og samkennd. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bjartsýni er mikilvægur þátt- ur í lífssýn þinni. Taktu þér frí frá fréttunum og minntu þig á hversu dásamlegt líf þitt er. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Reyndu að verja tíma með foreldrum þínum eða öðrum sem veita þér öryggiskennd. Við þörfnumst öll uppörvunar ástríkra lærimeistara. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Samskiptaplánetan Merkúr er í stjörnumerki þínu og því hefurðu ríka þörf fyrir að tjá þig. Hittu vini þína og njóttu þess að tala við þá í trúnaði. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hópleikir, sérstaklega keppnisíþróttir, gætu létt lund þína í dag. Þú hefur þörf fyrir að vera hluti af hópnum, finna til samkenndar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Flestir „bókmenntaðir“ spil- arar þekkja þessa perlu Frakkans Henris Szwarcs. En það er skilgreiningarat- riði á perlum að þær þola margar birtingar: Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ 106 ♥ 64 ♦ G76 ♣ÁKG1065 Vestur Austur ♠ 7 ♠ KDG9542 ♥ 98 ♥ 732 ♦ D1098432 ♦ – ♣743 ♣D92 Suður ♠ Á83 ♥ ÁKDG105 ♦ ÁK5 ♣8 Vestur Norður Austur Suður – – 3 spaðar Dobl Pass 5 lauf Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Útspil: Spaðasjöa. Ef lesandinn er að sjá þetta spil í fyrsta sinn er ekki hægt að svipta hann þeirri ánægju að reyna að finna einu leiðina að tólf slögum. Taktu þér góðan tíma. Nú, jæja. Szwarc drap á spaðaás og aftrompaði vörn- ina í þremur umferðum. Lagði svo niður tígulás og sá leguna í þeim lit. Brids snýst um það að telja upp á þrett- án. Austur er upptalinn á þessu stigi málsins – hann á sjölit í spaða, þrjú hjörtu og engan tígul. Þar með þrjú lauf. Svíning fyrir laufdrottn- ingu er vissulega góður möguleiki, en Szwarc fann betri leið sem tryggði hon- um vinning hvorum megin sem laufdrottningin lá. Hann tók ÁK í laufi og henti tígulkóngi heima! Trompaði síðan lauf og spilaði tígli að gosa blinds. Vestur á ekkert nema tíg- ul eftir og verður að spila blindum inn á gosann þar sem frílaufin bíða þess eins að vera notuð. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 60 ÁRA afmæli. Sextuger í dag, sunnudag- inn 6. janúar, Guðrún Árna- dóttir, Seilugranda 2, Reykjavík. Þeim, sem lang- ar til að gleðja hana á þess- um tímamótum, er bent á Foreldra- og vinafélag Kópavogshælis, reikningur nr. 1135-26-1109 í Sparisjóði Kópavogs. Hún verður með börnum sínum í dag. 1. Rf3 d5 2. c4 e6 3. g3 Rf6 4. Bg2 c6 5. Dc2 dxc4 6. Dxc4 b5 7. Dc2 Bb7 8. a4 a6 9. O-O Rbd7 10. d3 Hc8 11. Rbd2 Be7 12. Rb3 c5 13. axb5 axb5 14. Bd2 Dc7 15. Bf4 Db6 16. Ra5 Ba8 17. b4 O-O 18. bxc5 Bxc5 19. Db1 Hfe8 20. e4 e5 21. Bd2 Rg4 22. Be1 Rf8 23. Rb3 Bd6 24. Ba5 Db8 25. Bh3 h5 26. Rh4 Rh7 27. Bd2 Be7 28. Rf5 Bg5 29. Bb4 g6 30. Rd6 Be7 31. Rxc8 Bxb4 32. Hxa8 Dxa8 33. Rb6 Dd8 34. Rd5 Bd6 35. Rd2 b4 36. Rc4 Bc5 37. Bxg4 hxg4 38. Kg2 Rf6 39. Rce3 Bxe3 40. Rxe3 Dd6 41. Rc4 Dc5 42. Db2 Staðan kom upp í einvígi um gríska meistaratitilinn. Stelios Halkias (2519) hafði svart gegn Hristos Banikas (2526). 42... Rxe4! Þrátt fyrir að hvítum takist að ná peð- inu til baka verður staða hans vonlaus sökum frípeðs svarts á b-línunni. 43. Re3 Rf6 44. Hc1 Db5 45. Hc4 b3 46. Rxg4 Rxg4 47. Hxg4 Hc8 48. He4 f6 49. He2 Dxd3 50. Hd2 De4+ 51. f3 Dc2 52. Kf1 Dxb2 53. Hxb2 Hc3 54. Ke2 g5 55. Hd2 Kf7 56. Hd3 Hxd3 57. Kxd3 g4! og hvítur gafst upp. Þrátt fyrir þetta tap sigraði Bani- kas í einvíginu og varð þar með grískur meistari annað árið í röð. Skákþing Reykja- víkur hefst í dag, 6. janúar, kl. 14.00 í húsakynnum Tafl- félags Reykjavíkur í Faxa- feni 12. Keppnisfyrirkomu- lag er með hefðbundnu sniði og er öllum frjálst að vera með. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. LJÓÐABROT STÖKUR 21. desember 1844 Enginn grætur Íslending einan sér og dáinn. Þegar allt er komið í kring, kyssir torfa náinn. Mér er þetta mátulegt, mátti vel til haga, hefði ég betur hana þekkt, sem harma ég alla daga. Lifðu sæl við glaum og glys, gangi þér allt í haginn. Í öngum mínum erlendis yrki ég skemmsta daginn. Sólin heim úr suðri snýr, sumri lofar hlýju. Ó, að ég væri orðinn nýr og ynni þér að nýju. Jónas Hallgrímsson BRÚÐKAUP. Gefin voru saman á skráningarstofu Kensington- og Chelsea- umdæmis í London 25. ágúst sl. Geir Sævarsson og Jing Qin prinsessa. Heimili þeirra er í London. Ljósmynd/Svipmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 28. júlí sl. í Bessa- staðakirkju af sr. Bjarna Karlssyni Margrét Jóns- dóttir og Einar S. Helgason. Heimili þeirra er að Kletta- stíg 4H, Akureyri. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í hjónaband 17. nóv. sl. í Gautaborg Arngrímur Bjarnason listdansari og Susanne Isaksson vefhönn- uður. Heimili þeirra er í Gautaborg. Með á myndinni eru börn Susanne, Amanda og Anton. MORGUNBLAÐIÐ birt- ir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ættar- mót og fleira lesendum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569- 1329, eða sent á netfang- ið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík     
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.