Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 31
BÆKURNAR um Evu og Adam
hafa notið vinsælda um öll Norður-
lönd, ekki síður en myndasögurnar
um þau og sjónvarpsþættirnir. Nú er
víst búið að gera bíómynd um þetta
kærustupar sem vonandi á eftir að
koma til Íslands. Því þótt bækurnar
séu fínar finnst mér sjónvarpsþætt-
irnir skemmtilegri.
Þetta er sjötta bókin um skötuhjú,
en ég veit ekki alveg hvað þau eiga að
vera orðin gömul, um það segir ekk-
ert í bókinni. Ég giska á að þau eigi
að vera tólf eða þrettán ára gömul.
Líklega eru það aðeins yngri börn
sem lesa þessar bækur, enda finnst
börnum og unglingum venjulega
skemmtilegra að lesa um aðeins eldri
krakka en sjálfa sig, krakka sem hafa
lent í meiru og reyna sitthvað sem
enn bíður lesandans í spennandi
framtíðinni.
Adam og Eva eru skemmtilegar
persónur um leið og þau eru ósköp
venjulegir unglingar. Þau hafa verið
saman lengi, og dreymir um að vera
saman að eilífu, en af og til koma upp
aðstæður sem láta líta út fyrir að svo
verði ekki, og þá fara bæði Adam og
Eva á taugum. Núna er möguleiki á
að pabbi Adams fái vinnu í höfuð-
borginni og að hann þurfi því að
flytja. Hvað verður þá um samband
þeirra og vinskapinn?
Það sem er gaman við þessar bæk-
ur er að hún brúar bilið milli barna-
bókanna og unglingabókanna. Þegar
komið er að unglingabókum, fjalla
bækurnar yfirleitt um að þreifa sig
áfram í kynlífi, að lenda í vandræðum
þess vegna, eiga meiri háttar rifrildi
við foreldrana út af öllu mögulegu,
einnig við félagana, og jafnvel djúsa
smá og dópa. Hér er farið milliveginn
í öllu, Það er einsog hormónarnir séu
rétt byrjaðir að látakræla á sér, og
Adam og Eva rétt búin að fá fyrsta
fílapensilinn. Þau ganga ekki lengra
en að kyssast tvisvar blautum kossi
og tvisvar beint á munninn í allri bók-
inni. Þau hugsa engar kynferðislegar
hugsanir og eru meira fyrir að liggja
bara saman og halda í höndina á
hvort öðru á valdi rómantíkurinnar.
Eiginlega eru þau bara vinir í kær-
ustuparaleik. Einnig eru móðursýk-
isköstin heldur hógvær miðað við
venjulega unglinga. Þetta hentar
börnum sem eru að skríða á ung-
lingaskeiðið vel, sem eru á milli þess
að vera börn og unglingar. Skemmti-
leg bók og sniðug fyrir vissan aldur.
Saklaust stuð
Æskan gefur einnig út Partíbók
Evu og Adams sem er að vissu leyti
tengd ofannefndri bók, þar sem í
henni er haldið partí.
Þetta er ekki sögubók, heldur bók
þar sem góð ráð eru gefin þegar
halda skal unglingapartí og bókin er
stútfull af góðum hugmyndum. Hér
er allt að finna til að partíið heppnist
sem best. Rætt er allt frá hverjum á
að bjóða og hvernig á að viðhalda
stemmningu í partíi, en allir vita að
stundum getur hún orðið smá vand-
ræðaleg. Síðan má ekki vanmeta það
að þrífa upp á eftir, það getur orðið
mjög gaman að blaðra saman um allt
sem gerðist, hver kyssti hvern
o.s.frv.
Mörg ráðanna eru skemmtilegri
en önnur, einsog hvernig á að fá
stráka til að dansa, og er þá fjallað
um grundavallaratriði munarins að
vera strákur eða stelpa. Foreldrarnir
eru líka hluti af þessu öllu, og það
þarf að kunna að fá að halda partí.
Mataruppskriftir henta einnig ung-
lingum vel og eru alls ekki svo óholl-
ar. Einnig eru uppskriftir að óáfeng-
um bollum sem eru þrælsniðugar, en
unglingar eru jú alltaf í fullorðins-
leik. Já, það er einnig bent á að
gleyma ekki vangadansinum.
„Vangadans“ heitir hann auðvitað af
því að parið leggur vanga við vanga í
dansinum. Og þau þrýsta sér hvort
að öðru, og það heilan dans. Stórkost-
legt! (En stundum verður maður að
dansa þessi rólegu lög við einhvern
sem maður er ekkert hrifinn af. En
það er bara að þola það.)“ Einnig er
bent á að slíkur dans geti haft ým-
islegar afleiðingar!
Bráðsniðug bók sem hefur gott
samskiptalegt uppeldisgildi.
Í kærustuparaleik
BÆKUR
Barna- og unglingabækur
Texti eftir Måns Gahrton og myndir eftir
Johan Unenge.
Æskan 2001. 137 og 61 bls.
EVA & ADAM: SÍÐASTA NÁTTFATAPARTÍIÐ
– EVA & ADAM: PARTÍBÓKIN
Hildur Loftsdóttir
Tilvalið námskeið fyrir fólk á leiðinni út á vinnumarkaðinn eða
þá sem vilja styrkja stöðu sína með aukinni menntun. Námið
er 258 stundir. Næstu námskeið hefjast um miðjan janúar.
og tölvunám
Windows 98
Word 2000
Excel 2000
Power Point 2000
Internetið frá A-Ö
Lokaverkefni
Bókhald - Tölvubókhald
Verslunarreikningur
Sölutækni og þjónusta
Mannleg samskipti
Framkoma og framsögn
Almennt um tölvur
Tímastjórnun
Helstu námsgreinar
Skrifstofu
Upplýsingar og innritun:
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980
Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500
Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937
Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is
NTV Hafnarfirði - 555 4980
NTV Kópavogi - 544 4500
NTV Selfossi - 482 3937
n
t
v
.
is
nt
v.
is
n
tv
.i
s
K
la
p
p
a
ð
&
k
lá
rt
/
ij
25%-40% afsláttur af Herbalife
Viltu bæta heilsuna, fá meiri orku og losna við
aukakílóin? Kannaðu málið í síma 565-3034.
Gullið - Næringarvörur - Snyrtivörur
KVIKMYNDIN Í faðmi hafs-
ins var frumsýnd í kvik-
myndahúsum á Vestfjörðum
annan í jólum og verður hún
aðeins sýnd í kvikmyndahús-
um þar. Myndin lýsir örlaga-
sögu ungra hjóna í sjávar-
þorpi fyrir vestan og er tekin
á Flateyri, en annar leikstjór-
anna, Lýður Árnason, er
læknir þar. Að sögn Jóakims
Reynissonar, meðleikstjóra
Lýðs, tóku Vestfirðingar við-
burðinum fagnandi og sóttu
um 800 manns sýningar á
myndinni sem haldnar voru
milli jóla- og nýárs. „Sýnt var
í ýmsum stöðum; á Flateyri,
Bolungarvík, Suðureyri, Þing-
eyri og Ísafirði og mikil
stemmning ríkti við frumsýn-
ingu myndarinnar í gamla
bíóhúsinu á Flateyri,“ segir
Jóakim. „Húsið tekur bara
100 manns og var það fyllt
tvisvar.
Alls voru það um 800 manns
sem komu á sýningar þessa
daga og við töldum það bara
nokkuð gott á þessu svæði,“
bætir hann við.
Í faðmi hafsins er fyrsta
kvikmyndaverkefni þeirra
Jóakims og Lýðs, en handritið
skrifuðu þeir ásamt Hildi Jó-
hannesdóttur, eiginkonu þess
fyrrnefnda. Aðspurður um
hvort vestfirskir kvikmynda-
gestir hafi verið ánægðir með
útkomuna segist hann telja að
menn hafi almennt verið
ánægðir „Við fengum víða
mjög góð viðbrögð og voru
allir sammála um að sýning-
arnar á hinum ýmsu stöðum á
Vestfjörðum hafi verið mjög
vel heppnað framtak. Í mörg-
um húsanna hafði ekki verið
sýnd kvikmynd í háa herrans
tíð.“ Að lokum bendir Jóakim
á að myndin verði sýnd áfram
í Ísafjarðarbíói og um næstu
páska muni Sjónvarpið taka
hana til sýningar.
Í faðmi hafsins
Góð við-
brögð fyr-
ir vestan