Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 57 Ríta T Í S K U V E R S L U N ÚTSALA-ÚTSALA Bæjarlind 6 s. 554 7030 Opið í dag frá kl. 13-16 í báðum búðum. Eddufelli 2 s. 557 1730 AÐALSÖGUHETJAN í dans- og söngvamyndinni Regínu, er samnefnd stúlka sem hefur þann eiginleika að geta haft áhrif á fólk og breytt atburðarásinni með söng sínum. Tónlistin gegnir því lyk- ilhlutverki og fylgir ekki bara sögunni heldur er hluti af henni sjálfri. Höfundur tónlistarinnar, Margrét Örnólfs- dóttir, samdi einnig handritið að myndinni í samvinnu við Sjón, og því ekki að undra að samskeytin milli myndar og tónlistar eru svo að segja ósýnileg. Hér er að finna yfir 20 lög og lagstúfa, ýmist sungin eða leikin, sem eiga það sammerkt að vera fjörug og litrík og einkennast af fjölbreyttri og mjög skemmtilegri slagverksnotkun og lúðra- og trompetblæstri, sannkölluð skrúð- göngu- og garðveislumúsík. Strengjasveit flúrar síðan í kring- um fjörið og gefur heildinni spari- legri svip, sem minnir á gamlar dans- og söngvamyndir en hressi- legur söngur krakkanna heldur öllu saman niðri á jörðinni. Það er komið víða við og sótt í allskonar tónlistarstíla: skrúðgöngumarsa og sirkustónlist, Hawaii-stemmningu, tyrkneskt bazarandrúmsloft, rapp, auglýsingastef og hvaðeina en úr þessum hræringi verður bragð- mikil sólskinssúpa. Textarnir eru eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur (nema við tvö lög) og eru léttir og skemmtilegir og falla vel að lög- unum. Það er líka smellið þegar virðulegur hátíðleiki óperusöng- konu blandast saman við gleðilæt- in í lögum eins og „Tombóla“ og „Búðarlagið“. Einnig má finna ró- legri lög sem slaka aðeins á fjörinu eins og í „Frá Regínu til pabba“ svo litrófið spannar allan skalann. Þótt hér sé höfðað sérstaklega til barna er ekki fallið í þá gryfju að gera allt slétt og einfalt, heldur eru útsetningarnar fjölbreyttar og lifa af mikla endurspilun. Það eina sem finna má að er að stundum er tónlistin svo samtengd því sem er að gerast á tjaldinu að hún gegnir hlutverki leikhljóða og hermitón- listar, svipað og í teiknimyndum, og slíkt á erfitt með að standa sjálfstætt á diski sem þessum. Umslagið er eins og tónlistin sjálf, ákaflega litríkt og skemmti- legt, textarnir ekki endilega settir upp eftir beinum línum heldur rað- að upp í kringum ljósmyndir úr myndinni og litskrúðugar teikning- ar og þetta gerir krökkunum auð- velt að fylgja eftir gangi sögunnar og rifja upp kvikmyndina þegar þau fletta síðunum. Það skiptir heilmiklu máli þegar börn eru að hlusta á tónlist að umslagið fangi líka athygli þeirra og styðji við hlustunina og hér er nóg af efni til að skoða. Ég gat reyndar hvergi séð hver eigi heiðurinn af texta- bókinni en hér er vel að verki stað- ið. Hið sama má segja um tónlist- ina sjálfa, hún er ein stór skrúðgöngu- og rússibanaferð í sól og hita. Tónlist Rússibana- ferð með Regínu Margrét Örnólfsdóttir Regína – Tónlist úr kvikmynd Smekkleysa Tónlist eftir Margréti Örnólfsdóttur úr kvikmynd Maríu Sigurðardóttur. Söng- textar eru eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur nema tveir. Söngur Regínu: Sigurbjörg E. Ingólfsdóttir. Söngur Péturs: Benedikt Clausen. Einnig leggja til söngraddir Stefán Karl Stefánsson, K.K., Margrét Kristín Blöndal og Ásgerður Júníusdóttir, auk barnakórs. Margrét Örnólfsdóttir sér um útsetningar og upptökur og allan hljómborðsleik. Trommur og slagverk eru í höndum Kormáks Geirharðssonar, Sam- úel Jón Samuélsson leikur á básúnu, Kristinn Árnason á gítar, Eiríkur Orri Ólafsson á trompet, Szymon Kuran á fiðlu, auk strengjasveitar. Steinunn Haraldsdóttir Regína getur galdrað fólk til að gera hvað sem hana lystir með söng sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.