Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 15 Eins og ég nefndi í upphafi, þá getur aðild að myntbandalagi eða dollaravæðing haft í för með sér mjög víðtæk áhrif, sem ná langt út fyrir efnahagslífið. Þótt við ein- beitum okkur aðeins að því, er samt erfitt að meta kostina og gallana til hlítar. Það er athyglisvert, að Kanada- menn, sem eru með 80% viðskipta sinna við Bandaríkin, vilja samt sem áður halda í sinn gjaldeyri. Háttsettur hagfræðingur í seðla- banka Kanada segir í nýlegri grein, að það séu vissulega hags- munir Kanadamanna sjálfra að vera með sinn eigin gjaldeyri. Það virðist ljóst af niðurstöðum könnunar, sem nýsjálenski seðla- bankinn gerði í sambandi við Hol- mes/Grimes-rannsóknina, að í nýsjálensku atvinnulífi er góður meirihluti fyrir því að fara í mynt- bandalag með Ástralíu. Ég er ekki alveg viss um hvern- ig ber að skilja þennan mikla stuðning við myntbandalag með Ástralíu. Að sjálfsögðu er við- skipta- og atvinnulífið hlynnt minni gengisóvissu og ég býst líka við, að það sé hlynnt lægri skött- um, væri um það spurt. Spurn- ingin er þó ekki hvort minni gengisóvissa sé af hinu góða, held- ur hvort hún vegi upp ókostina við myntbandalagið, til dæmis meiri sveiflur í framleiðslu og verðbólgu. Svarið við þeirri spurningu liggur ekki í augum uppi. Ímyndum okkur, að verð á helstu útflutningsvörum Nýsjá- lendinga félli mikið. Værum við með okkar eigin gjaldmiðil yrðu afleiðingarnar þær, að gengi hans lækkaði eins og gerðist á síðara misseri 1997 og 1998. Áhrif geng- islækkunarinnar eru þau, að hún tekur mesta skellinn af útflytjend- um, í raun með því að dreifa áfall- inu á alla landsmenn, sem geta ekki keypt jafn mikið af innfluttri vöru og áður. Værum við ekki með okkar eigin gjaldmiðil er eins lík- legt, að verðfallið á útflutningsvör- unum hefði engin áhrif á gengi gjaldmiðilsins. Útflytjendur yrðu því að taka á sig allan skellinn og hugsanlega að draga úr fram- leiðslu og segja upp fólki. Það hefði að sjálfsögðu óbein áhrif á allt samfélagið en þeir, sem ekki eru nátengdir útflutningsgreinun- um, kynnu þó að sleppa. Þegar allt kemur til alls er valið á gengisskráningaraðferð val á eðli þeirra erfiðleika, sem við kjósum að mæta vegna óvæntra sviptinga á heimsmarkaði eða á alþjóðavett- vangi. Um það er hins vegar ekki að ræða að sleppa við þá. Lokaorð Það væri gaman að geta lokið þessum orðum með ákveðinni nið- urstöðu. Það ætla ég þó ekki að gera, að hluta til vegna þess, að ákvörðun um gengisskráningarfyr- irkomulag er hlutverk stjórnmála- mannanna, ekki seðlabankans, og að hluta vegna þess, að kostirnir og gallarnir benda ekki til einnar, skýrrar niðurstöðu. Þar fyrir utan gæti verið rétt að huga að fleiri kostum í stöðunni. Væri til dæmis unnt að ná víð- tækum fríverslunarsamningi við Bandaríkin og þá sem hluta af samningum um að við tækjum upp Bandaríkjadollara og gæfum eftir myntsláttuhagnaðinn? Það gæti verið þess virði að missa hann gegn hagstæðum fríverslunar- samningi. Fleira mætti nefna og víst er, að þessi mál munu verða mikið í um- ræðunni á næstunni. Ég tel, að seðlabankinn hafi nú þegar lagt mikið af mörkum til þeirrar um- ræðu með útgáfu á ýmsu, sem hana varðar. Eitt er þó alveg ljóst: Mynt- bandalag er engin töfralausn, sem leiðir strax til verulega aukins hagvaxtar í þessu landi. Það getur ekki komið í staðinn fyrir þá hag- stjórn innanlands, sem miðar að því að auka framleiðni og hagvöxt. Umfram allt megum við ekki hrapa að neinu í þessum málum og seðlabankinn mun ekki taka ákveðna afstöðu til þeirra. Verði einhver til að saka mig um að mæla með eða mæla gegn mynt- bandalagi, þá hefur sá hinn sami ekki lesið þessa ræðu! meistar inn. is GULL ER GJÖFIN www.plusferdir.is Söluskrifstofur Plúsferða: Faxafeni 5 • 108 Reykjavík og Hlíðasmára 15 • 200 Kópavogi Sími 535 2100 • Fax 535 2110 • Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is Borgarnes S: 437 1040 Ísafjörður S: 456 5111 Akureyri S: 585 4200 Selfoss S: 482 1666 Vestmannaeyjar S: 481 1450 Keflavík S: 585 4250 Grindavík S: 426 8060 Egilsstaðir S: 471 2000 Sumarhúsaeigendur á Spáni. Beint leiguflug til Alicante me› Fluglei›um. Ver›dæmi á mann m.v.tvo fullor›na og tvö börn: Sala er hafin á ód‡ru sumarfargjöldunum til Alicante. Takmarka› sætaframbo›. Flugdagar: 22. mars, 2. og 18. apríl, 22. maí og síðan alla miðvikudaga í sumar. fiökkum frábærar móttökur Dæmi: 25.000 punktar eru 13.750 kr innborgun. Verðdæmi flug 4 x 33.900 kr. = 135.600 kr. Barnaafsláttur 2-11 ára 2 x 8.000 kr. = - 16.000 kr. Öryggis- og tryggingagjald 4 x 900 kr. + flugvallarskattar 2 x 2.655 kr. + 2 x 1.970 kr. = 12.850 kr. Alls ferðakostnaður 132.450 kr. Fríkortspunktar -13.750 kr. Atlasávísanir 2x5.000 kr. -10.000 kr. Ferðakostnaður fyrir fjóra 108.700 kr. *Ferðakostnður á mann 23.960 kr. Frípunktar og Atlas ávísun lækka fer›akostna› kr. mann me› flugvallarsk.27.175 kr.mann* án flugvallarsk.*23.960 Súrefnisvörur Karin Herzog Oxygen face
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.