Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Styrkir úr Forvarnarsjóði
Mikill og góður
samstarfsvilji
UM ÞESSAR mund-ir auglýsir For-varnarsjóður
Áfengis- og vímuvarnar-
áðs eftir umsóknum um
styrki úr sjóðnum sam-
kvæmt reglugerðum hins
opinbera. Umsóknarfrest-
urinn er til 31. þessa mán-
aðar. Forvarnir í vímu-
varnamálum eru jafnan
ofarlega á baugi í þjóðar-
umræðunni, ekki síst hin
seinni ár, er vímuefna-
neysla fer vaxandi frekar
en hitt. Formaður For-
varnarsjóðsins er Þórólfur
Þórlindsson, prófessor við
Háskóla Íslands, og spurði
Morgunblaðið hann nokk-
urra spurninga varðandi
sjóðinn og styrkina sem úr
honum eru veittir.
Hver er saga Forvarnarsjóðs-
ins, hvenær var hann stofnaður
og í hvaða tilgangi?
„Forvarnarsjóður var stofnað-
ur árið 1995. Sjóðurinn er skil-
greindur í lögum um gjald á
áfengi og í hann rennur 1% af inn-
heimtu áfengisgjaldi. Úr sjóðnum
eru veittir styrkir til forvarnar-
starfa á verkefnagrundvelli.“
Haft er fyrir satt að fíkniefna-
umhverfið hafi breyst hin seinni
ár, á hvaða hátt bregst Áfengis-
og vímuvarnaráð við því?
„Það er rétt, umhverfið sem við
erum að vinna í hefur breyst mik-
ið. Þjóðfélagið er orðið miklu opn-
ara en áður var. Við erum í vax-
andi mæli að vinna forvarnar-
starfið í alþjóðlegu samhengi.
Stefnur og straumar í nágranna-
löndum okkar hafa veruleg áhrif
á það sem gerist hér á landi. Sala
ólöglegra vímuefna er í veruleg-
um mæli skipulögð af alþjóðleg-
um hringum sem ráða yfir miklu
fjármagni og vinna á kerfisbund-
inn hátt að markaðssetningu og
dreifingu. Í Evrópu hefur fall
Berlínarmúrsins og afnám landa-
mæra breytt stöðu þessara
hringa og gert þeim auðveldara
að stunda þessa starfsemi. Þann-
ig streymir verulegt magn eitur-
lyfja frá Asíu, gegnum Tyrkland
til Austur-Evrópu þaðan sem því
er síðan dreift áfram til neytenda
í gegnum ákveðnar miðstöðvar í
Vestur-Evrópu.“
Hvaða áhrif hefur þetta
breytta umhverfi á forvarnar-
starfið?
„Ég tel að það breyti töluverðu.
Forvarnarstarf verður ekki rekið
með boðum og bönnum í sama
mæli og áður. Það byggist hins
vegar áfram, eins og áður en af
meiri þunga, á því að virkja al-
menning og frjáls félagasamtök,
fræða og upplýsa. Áfengis- og
vímuvarnaráð hefur valið að
leggja höfuðáherslu á forvarnar-
starf meðal barna og unglinga.
Við reynum að byggja á niður-
stöðum rannsókna og nýjustu fá-
anlegu upplýsingum um ástand
mála hverju sinni.
Það er ekki til nein töfraform-
úla um hvað virkar í
forvörnum. Það er
engin patentlausn til á
þessum vanda. Hins
vegar eru fjölmargar
rannsóknir, bæði inn-
lendar og erlendar, sem gefa okk-
ur mikilvægar vísbendingar. Við
vitum í dag heilmikið um helstu
áhættuþætti vímuefnaneyslu
meðal barna og unglinga.“
Hverjir fá styrki úr sjóðnum?
„Það er mjög fjölbreyttur hóp-
ur sem hefur hlotið styrki úr
sjóðnum undanfarin ár. Þar á
meðal eru bæði lærðir og leikir
sem starfa á vegum opinberra
stofnana og frjálsra félagasam-
taka, s.s. foreldrar, starfsfólk
skóla, heilsugæslu og lögreglu,
fólk og félagasamtök sem fást við
að skipuleggja tómstunda-,
íþrótta- og félagsstarf. Þá reyn-
um við að styðja samtök ungs
fólks sem vinna að forvarnar-
starfi, en það skiptir auðvitað
miklu að fá það til liðs við okkur.“
Úr hve miklum peningum er
spilað?
„Árið 2001 var um 40 milljón-
um króna deilt út til verkefna og
10 milljónum til áfangaheimila.“
Fá færri styrki en vilja?
„Já, það fá mun færri styrki en
vilja. Síðan Áfengis- og vímu-
varnaráð tók við sjóðnum árið
1999 hafa komið um 100 umsóknir
árlega og heildarupphæð um-
sóknanna hefur verið nálægt 150
milljónum. Við úthlutum hins
vegar 40 milljónum.“
Það er sagt að vímuefnaneysla
sé að aukast, skilar forvarnar-
starfið skila sínu?
„Það er oft erfitt að meta ár-
angur af svona starfi. Hins vegar
segja kannanir í efstu bekkjum
grunnskólanna undanfarin ár, að
heldur hafi dregið úr neyslu. Nið-
urstöður úr könnun meðal fram-
haldsskólanema síðastliðið ár
bendir til að ástandið þar sé ekki
eins slæmt og menn óttuðust.
Heildarumfang vandans er hins
vegar að aukast.“
Eru of margir aðilar að krukka
hver í sínu horni, þarf e.t.v. að
samræma aðgerðir betur?
„Það verða aldrei of margir í
því að sinna forvörnum
á sviði vímuvarna. Það
er líka gott að hafa fjöl-
breyttar áherslur því
að mismunandi aðferð-
ir og sjónarmið höfða
til mismunandi hópa fólks í þjóð-
félaginu. Forvarnir þarf að vinna
á mörgum vígstöðvum í einu og
þeir sem þær stunda þurfa að
vera sveigjanlegir, tilbúnir að
samræma aðgerðir sínar og ann-
arra og að aðlaga vinnuaðferðir
sínar stað og tíma. Ég tel að það
sé mikill og góður samstarfsvilji
meðal þeirra sem vinna að for-
vörnum í dag.“
Þórólfur Þórlindsson
Þórólfur Þórlindsson lauk
stúdentsprófi frá Kennarahá-
skóla Íslands, BA-prófi í félags-
fræði frá Háskóla Íslands og
doktorsprófi í félagsfræði sem
aðalgrein og tölfræði og aðferð-
arfræði sem aukagrein frá há-
skólanum í Iowa í Bandaríkj-
unum árið 1977. Hann var lektor
við Háskóla Íslands frá 1976 til
1980 og prófessor frá þeim tíma.
Hann er að auki formaður For-
varnarsjóðs Áfengis- og vímu-
varnaráðs.
…það verða
aldrei
of margir
JÓLASÖFNUN Hjálparstarfs
kirkjunnar lýkur ekki fyrr en um
næstu mánaðamót og því enn hægt
að nálgast gíróseðla og fara með
söfnunarbaukana í bankann. Jóla-
söfnunin er aðalfjáröflun Hjálpar-
starfsins og er ágóði hennar not-
aður jafnt til innlendra sem
erlendra málefna sem starfið styð-
ur. Þegar hafa safnast um 7 millj-
ónir króna í jólasöfnuninni sem er
ívið minna en á sama tíma í fyrra,
að sögn Jónasar Þórissonar, fram-
kvæmdastjóra Hjálparstarfsins.
„Formlega lýkur söfnuninni í lok
janúar en auðvitað geta þeir sem
vilja komið framlögum til Hjálpar-
starfsins eftir það.“
Jónas segir fjármununum sem
safnast víða varið, t.d. til þróun-
araðstoðar, í neyðarsjóð og til inn-
anlands aðstoðar. Brýnustu ein-
stöku verkefnin í dag lúta að
hjálparstarfi í Afganistan að sögn
Jónasar. „Einnig vatnsverkefnið í
Mósambik sem við höfum sinnt síð-
an 1993 í samstarfi við Þróunar-
samvinnustofnun Íslands. Þar er á
ferðinni fyrirbyggjandi þróunar-
verkefni. Einnig sinnum við marg-
víslegum verkefnum á Indlandi sem
krefjast mikils af okkur, en hafa
gengið mjög vel, til dæmis hvað
varðar þrælabörnin sem við söfn-
uðum mikið fyrir. Verkefnið felur í
sér að leysa börn úr vinnuánauð og
koma þeim í skóla svo þau falli ekki
aftur í sömu gryfju. Þetta eru
stærstu verkefni okkar auk þess
sem við hjálpum til við neyðarað-
stoð þegar því er að skipta.“
Veita ráðgjöf
innanlands
Félagsráðgjafi hefur verið ráðinn
til starfa hjá Hjálparstarfinu og er
að mati Jónasar nauðsynlegur í inn-
anlandsstarfinu. Hann mun taka til
starfa 1. febrúar. „Með þessu vilj-
um við auka gæði innanlandsað-
stoðarinnar, veita margskonar ráð-
gjöf og meiri eftirfylgd með
skjólstæðingum okkar.“ Árlega
sækja hundruð manna aðstoð til
Hjálparstarfsins og í jólamánuðin-
um eru þar veittar matargjafir til
um 800 fjölskyldna. „Öryrkjar eru
um 60% þeirra sem leita hingað eft-
ir aðstoð og er það svipað hlutfall
og undanfarin ár.“
Í október og nóvember leituðu
fleiri sér aðstoðar en á sama tíma í
fyrra en í desember voru aftur ör-
lítið færri sem báðu um aðstoð en í
desember á síðasta ári.
Auk fjölmargra einstaklinga sem
láta sitt af hendi rakna til Hjálp-
arstarfsins ár hvert gefa fyrirtæki
mat og annað sem fer síðan til
skjólstæðinganna innanlands.
Fyrir jólin afhenti organistinn
Jörg Sondermann Hjálparstarfinu
100 þúsund krónur í jólasöfnunina í
Breiðholtskirkju. Þar hélt hann 19.
tónleika sína í röð 26 tónleika. Þetta
mun vera í fyrsta sinn sem öll org-
elverk Bachs eru flutt hér á landi af
einum organista en allur aðgangs-
eyrir tónleikanna rennur til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. Tónleikaröð-
inni lýkur næsta sumar.
Jólasöfnun Hjálpar-
starfsins stendur enn
Brýnustu verk-
efnin hjálparstarf
í Afganistan
UNGVIÐI gleður augu margra og
alltaf ríkir ákveðin eftirvænting
eftir fyrsta kálfi ársins í hverju
fjósi. Ekki spillir fyrir ef kálfurinn
er litfagur en margbreytileiki og
litaflóra einkennir íslenska kúa-
kynið og því eru möguleikarnir
margir.
Þessi litla grönótta kvíga fæddist
strax eftir áramótin og er því fyrsti
kálfurinn í Reykjahreppi á nýju ári.
Hún er ánægð að fá að leika lausum
hala á fóðurganginum fyrir framan
kýrnar en óvíst er að það verði
lengi því hún á að fara í stíu með
öðrum ásetningskvígum. Hver veit
nema hún verði farsæl mjólkurkýr
er tímar líða.
Fyrsti kálf-
ur ársins
Laxamýri. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon