Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 30
LISTIR 30 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ * Spennandi jazzballett-og freestyle-námskeið fyrir 4ra-6 ára 7-9 ára 10-12 ára 13-15 ára *Krefjandi og skemmtilegt jazzballettnámskeið fyrir eldri og lengra komna. Dugguvogi 12     JAZZBALLETT JAZZBALLETT Gleðilegt nýtt ár (Leið 4 stoppar stutt frá) Innritun í síma 553 0786 og 659 0786 eftir kl. 14.00. Börnin syngja nefnist ný vísna- og söngbók. Þar er að finna yfir 200 kunn barnalög auk fjölmargra annarra laga. Valdís Erlendsdóttir leikskóla- kennari valdi vísur og söngva. Mel- korka Helgadóttir myndskreytti. Í kynningu segir m.a.: „Með hjálp foreldra og annarra uppalenda er bók- inni ætlað að örva sönggleði barna og auðvelda þeim að taka lagið, ein og sér, eða fleiri saman.“ Í bókinni er efninu skipt upp í fimm kafla: vor og sumar, líkaminn, dýr og jól. Útg. er Hana-nú. Verð: 1.990 kr. Börn KONA flugmannsins er eftir Anitu Shreve í þýðingu Ásdísar Ívarsdóttur. Kathryn Lyons er vakin upp um miðja nótt. Stór farþegaflugvél hefur farist út af strönd Írlands. Flugmað- urinn er eiginmaður hennar. Talað er um hryðjuverk. Jafnvel að flugmað- urinn sjálfur hafi sprengt. Ekkjan trúir ekki þessum orðrómi en hversu vel þekkti hún eiginmann sinn í raun? Útgefandi er Bókaútgáfan Hólar. Bókin er 264 bls., prentuð í Lett- landi. Verð: 3.480 kr. Spenna HÚN lætur ekki mikið yfir sér sýn- ing Sigurdísar Hörpu Arnardóttur í versluninni Dýrinu, Laugavegi 47 í Reykjavík. Ekki einungis eru verkin smá í sniðum heldur hefur listakonan valið þeim stað á bakvið fataslá þann- ig að þau eru varla sýnileg fyrr en við- skiptavinir fara að blaða í gegnum flíkurnar. Verkin eru átján talsins og er þeim komið fyrir í augnhæð í láréttri röð eftir endilöngum ómáluðum stein- vegg. Litlar dúkkur sem hver og ein er staðsett í sinni einkaveröld, í augn- skuggaboxum, leika aðalhlutverkið á sýningunni. Augnskuggaboxið snýr þannig að dúkkurnar standa ofaní litnum og gegnt speglinum. Með þessa tvo föstu punkta til að vinna með gefur listamaðurinn hugmynda- fluginu lausan tauminn og setur brúð- urnar í ýmsar ólíkar aðstæður. Stund- um er brúðan að dást að eigin spegilmynd eins og Narcissus sem varð . . . . sjálfsdýrkuninni að bráð en annars staðar er hún að vefja sér gull- kjól, mála málverk, klippa af sér mik- ið dökkt hárið eða hefur fest á sig leð- urblökuvængi og skoðar sig í speglinum, eins og demón. Hún talar við páfagauk, sem væntanlega apar allt eftir henni, og stillir sér upp með ávöxtum. Listakonan brýtur upp sýn- inguna með því að láta eina dúkku horfast í augu við áhorfendur en sú er ljóshærð og ofaní meikdollunni fyrir framan hana stendur skrifað Gleym mér ei, sem hægt er að skilja sem ákall um frelsun, frelsun úr þeirri tak- mörkuðu sjálfsdýrkunarveröld sem dúkkan lifir í. Í fljótu bragði er ekki hægt að sjá eitt ákveðið þema út úr verkunum átján þó að klárlega megi skoða verk- in sem ádeilu eða innlegg í umræðuna um stöðu konunnar og kvenímyndar- innar, en smástelpuímyndin þar sem gert er út á kynþokka, bert hold og kynlíf grasserar nú sem aldrei fyrr í tónlistarmyndböndum og glanstíma- ritum. Er konan hugsanlega orðin fangi þessarar nýju ímyndar, smá- stelpugervisins? Eins og sjálf Eva í aldingarðinum Eden er dúkkan ávallt nakin nema að klof hennar er skreytt blómamynstri sem ýtir undir sakleysisímyndina. á einni myndinni glennir hún klofið í átt að áhorfendum en gerir það á þann hátt að það verður ekki klámfengið heldur meira eins og leikur. Engar upplýsingar er að finna um sýninguna í búðinni, hvorki um hvað verkin heita, hvað listakonan heitir, hvort verkin eru til sölu eða hvort þetta sé yfirleitt myndlistarsýning. Þessu þarf að kippa í liðinn því listin nær aldrei að blómstra ef enginn veit af henni, og vegvísar eru aldrei til vansa. Þetta er skemmtileg sýning sem er vel þess virði að skoða og velta fyrir sér á leið sinni niður Laugaveginn. Dúkkuveröld MYNDLIST Dýrið Opið á verslunartíma til 8. janúar. BLÖNDUÐ TÆKNI SIGURDÍS HARPA ARNARDÓTTIR Þóroddur Bjarnason Dúkka beinir byssu að spegilmynd sinni í verki Sigurdísar Hörpu. NÝLISTASAFNIÐ auglýsir eftir umsóknum frá myndlistarmönnum sem áhuga hafa á þátttöku í sýning- unni Grasrót 2002. Grasrót er árleg sýning í Nýlistasafninu þar sem ungir upprennandi myndlist- armenn sýna verk sín. Umsóknum skal fylgja mappa með myndum eft- ir viðkomandi listamann. Umsókn- arfrestur er til 15. janúar 2002. Auglýst eftir mynd- listarmönnum RITLISTARHÓPUR Kópavogs hefur staðið fyrir bókmenntakynn- ingum og gefið úr safnrit með ljóð- um félaga. Sköpun er þriðja safnið. Áður eru út komin Gluggi (1996) og LjósMál (1997). Tuttugu og fjögur skáld eiga ljóð í bók þessari. Tutt- ugu og þrjú eru talin í efnisskrá. Nafn Steinþórs Jóhannssonar, for- mælanda hópsins, hefur fallið nið- ur. Höfundar mynda eru litlu fleiri. Tvennt er strax hægt að segja um bók þessa. Hún er smekkleg útlits. Og hún er vönduð að efni. Að leiða saman ljóðlist og myndlist er ekki nýtt. Modernismi í ljóðlist átti frá upphafi samleið með formbyltingu í myndlistinni. Þess er getið í inn- gangi að »ýmist fæddist ljóðið fyrst eða mynd — annað verkið rataði til hins …« Ekki er alltaf auðvelt að geta sér til hvort varð til á undan og hvort á eftir. Að giska á það má vera prýðis dægradvöl. Sum skáldin eru þjóðkunn, önn- ur lítið þekkt. Þar á meðal eru skáld sem starfað hafa innan hóps- ins en ekki gefið mikið út að öðru leyti. Ekki verða höfundar ljóða og mynda taldir upp hér. Nema hvað þess má geta að sjálfur bæjarstjór- inn, Sigurður Geirdal, á ljóð í bók- inni. Ekki ónýtt fyrir samtökin að hafa innan sinna raða manninn sem heldur utan um kassann! Algengt er að skáld, sem aðhyll- ast sömu stefnu, komi fram sem hópur. Jónas naut stuðnings af öðrum Fjölnismönnum. Verðandi- menn stóðu saman að kynningu realismans. Rauðir pennar var samheiti fyrir hóp skálda og rithöf- unda. Einhuga og harðsnúinn hóp- ur stóð á bak við Birting. Hitt er sjaldgæfara að skáld kynni sig í nafni tiltekins svæðis eða staðar. Það er þó hvergi nýtt. Þingeysk ljóð voru gefin út á fimmta áratug liðinnar aldar. Upp úr því fóru flest sýslufélögin að dæmi Þingeyinga. Markmiðið var að koma á framfæri hinu besta í ís- lenskum alþýðukveðskap. Ritlist- arhópur Kópavogs er annars eðlis, hefur fremur á sér snið akademíu. Þar sem skáldin, sem eiga ljóð í Sköpun, eru á ýmsum aldri og hafa mismunandi bakgrunn er síst að furða þó margra grasa kenni í bók- inni. Hún er þó býsna samstæð þegar öllu er á botninn hvolft. Sum ljóðin eru rímuð, önnur ekki. Sum eru afar stutt, önnur lengri. Sum eru ort með ljóðstöfum og reglu- bundinni hrynjandi. Önnur búa yfir dulúð modernismans, fjarri ljóð- rænni hrynjandi. En þau forms- einkenni, sem hér hafa verið nefnd, marka ekki óhjákvæmilega svip- mót ljóðs né flokka það undir merki einhverrar stefnu. Ljóða- flokkurinn, Tíminn og vatnið, var bæði rímaður og stuðlaður. Samt var litið á þessi ljóð Steins sem brot á þjóðlegri kveðskaparhefð. Ljóðin í Sköpun falla ekki öll undir heiti modernismans. En þau eru öll nútímaljóð í orðsins fyllsta skiln- ingi. Skáldin virðast öll hafa sett sér þá höfuðreglu að marka sér ekki áberandi sérstöðu né ganga hart fram undir merkjum einhverr- ar kennisetningar en halda sig við það sem almennt er talið gott og gilt í ljóðlist um þessar mundir, hvaða ljóðlistarstefnu sem menn aðhyllast að öðru leyti. Gildir þetta jafnt um þá, sem yrkja hefðbundið eins og hina sem hallast að öðrum viðmiðum. Og þeir eru fleiri. Um myndirnar má segja hið sama. Abstraktmálverkið eða »hin hreina myndbygging« er ekki liðið undir lok. Áhrifa þess mun lengi gæta. Hitt er augljóst að íslensk náttúra er enn sem fyrr afar sterk- ur þáttur í myndlistinni. Þar er að sjálfsögðu við rótgróna hefð að styðjast. Fram undir miðja nýliðna öld var landslagsmálverkið næst- um allsráðandi. Listamennirnir í Sköpun – þeir sem sækja myndefni til náttúrunnar – líkja ekki eftir Kjarval og Ásgrími, fjarri því. Þeir eru öðruvísi. Listumhverfið er líka allt annað. Eigi að síður horfa þeir til hins hreina og óspillta, allt eins og gömlu meistararnir. Athygli vekur hversu fuglar eru t.d. áber- andi í myndum þeirra. Fugl á flugi er líka gömul táknmynd í ljóðlist- inni, ímynd hins óhefta hugarflugs. Ennfremur ímynd ástarinnar sem kemst yfir allar hindranir eins og fuglinn frjáls. Þó sumir höfundarnir í Sköpun séu svo kunnir að þeir þurfi ekki beinlínis á stuðningi að halda gildir enn sem fyrr að samkennd og hvatning eykur hverjum og einum áræði en vekur jafnframt athygli á listinni sem slíkri. Með bók þessa í höndum er hægt að skoða og skyggna, bera saman, draga álykt- anir og átta sig á hvar ljóðlistin er á vegi stödd nú í byrjun aldar. Þar að auki er Sköpun svo vönd- uð og falleg bók – jafnt hið ytra sem hið innra – að hún megnar vonandi að fjölga ljóðalesendum sem eru allt of fáir. En fleiri samt en margur hyggur! Ljóð og mynd BÆKUR Ljóð Ljóð og myndir skálda og myndlist- armanna úr Kópavogi. 63 bls. Útg. Rit- listarhópur Kópavogs. Prentun: Ásprent/ Pob. 2001. SKÖPUN Erlendur Jónsson DANSKI kammerkórinn Ars nova syngur á tónleikum í Salnum ann- aðkvöld kl. 20. Ars nova er einn þekktasti kammerkór á Norður- löndum en hann syngur einkum verk frá endurreisnartímanum og kórverk samin eftir 1950. Efnis- skrá kórsins að þessu sinni sam- anstendur af nýrri norrænni kór- tónlist frá öllum Norðurlöndum, en kórinn er á tónleikaferð um löndin sex. Meðal verkanna sem kórinn syngur er Magnificat eftir Mist Þorkelsdóttur, Ludus verbalis eftir Einojuhani Rautavaara, Gimli eftir Áskel Másson, Mytisk Morgen eft- ir Per Nørgård, Det muntre Nord eftir Sunleif Rasmussen og Es ist genug eftir Sven-David Sand- ström. Kórstjóri Ars nova er Ta- más Vetö. Norrænt í Salnum Kammerkórinn Ars nova. ÆFINGAR hefjast að nýju eftir jólafrí hjá Söngsveitinni Fílharm- óníu mánudaginn 7. janúar í Mela- skóla við Hagatorg og eru enn nokkur pláss laus í kórnum. Þá verður tekið til við Messu heilagrar Sesselju eftir Josef Ha- ydn. Hún er samin árið 1766 fyrir fjóra einsöngvara, kór og hljóm- sveit um það leyti sem Haydn flutti með Nicholas Esterhazy prinsi í hina nýju höll Esterhazy í Ungverjalandi. Hún er lengsta messa Haydns og mun lengri en hefðbundin messa og því ólíklega verið flutt við hefðbundið messu- hald. Lengd og gerð messunnar fellur í sama flokk og C-moll- messa Mozarts og H-moll-messa Bachs. Verkið er fyrsta stóra söngverk Haydns í starfi hjá Esterhazy og er afar margslungið, enda samein- ast þar eldri form, t.d. hæga fúgan í Gratias og tónmál óperunnar t.d. í Domine Deus, auk nýrra hug- mynda Haydns í tónmáli sem birt- ist í mótífum fyrir pákur og trompeta í Gloria in excelsis Deo. Messan verður flutt á tónleik- um í Langholtskirkju 17. og 19. mars næstkomandi. Stjórnandi Söngsveitarinnar er Bernharður Wilkinson, aðstoðarhljómsveitar- stjóri Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands, píanóleikari Guðríður St. Sigurðardóttir en raddþjálfun annast Elísabet Erlingsdóttir. Formaður kórsins er Lilja Árna- dóttir. Heimasíða Söngsveitarinn- ar er á slóðinni www.filharmon- ia.mi.is. Söngsveitin Fílharmónía Messa heilagrar Sesselju flutt í mars
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.