Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.01.2002, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Miðasölusími: 551 1200. Miðasalan er opin kl. 13-18 mánudaga og þriðjudaga. Aðra daga kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is Stóra sviðið kl 20.00 MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI - Marie Jones Í kvöld sun. 6/1 uppselt, fim. 10/1 örfá sæti laus, fös. 11/1 nokkur sæti laus, sun. 20/1. Smíðaverkstæðið kl 20.00 Í dag sun. 6/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, kl.15:00 nokkur sæti laus, sun. 13/1 kl. 14:00, 15:00 og 16:00.. KARÍUS OG BAKTUS - Thorbjörn Egner HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? - Edward Albee Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin! Litla sviðið kl 20.00 Í kvöld sun. 6/1 örfá sæti laus, fim. 10/1, fös. 11/1. SYNGJANDI Í RIGNINGUNNI - Comden/Green/Brown og Freed lau 12/1 nokkur sæti laus, lau. 19/1. 6. sýn. mið. 9/1 örfá sæti laus, 7. sýn. sun. 13/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fös. 18/1 nokkur sæti laus, 9. sýn. fim. 24/1. CYRANO - SKOPLEGUR HETJULEIKUR - Edmond Rostand KARÍUS OG BAKTUS SÝNINGAR Í DAG! MEÐ SYKRI OG RJÓMA Söngur og dans á 105 ára afmæli LR Jóhanna Vigdís og Selma Björnsdóttir, dansarar úr Íslenska dansflokknum, hljómsveit Fö 11. jan kl. 20 - LAUS SÆTI FJANDMAÐUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen Su 13. jan - LAUS SÆTI Su 20. jan - LAUS SÆTI BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson Í dag kl. 14 - NOKKUR SÆTI Su 13. jan kl. 14 - LAUS SÆTI Su 20. jan kl. 14 - LAUS SÆTI KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI e. Halldór Laxness Lau 12. jan kl. 20 - LAUS SÆTI Fö 18. jan kl. 20 - SÍÐASTA SÝNING MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Lau 19. jan kl. 20 - LAUS SÆTI Lau 26. jan kl 20 - LAUS SÆTI FYRST ER AÐ FÆÐAST Fö 11. jan kl 20 frumsýning UPPSELT Fi 17. jan kl. 20 ÖRFÁ SÆTI BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett Lau 12. jan kl. 20 - LAUS SÆTI Fö 18. jan kl. 20 - LAUS SÆTI PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler Í kvöld kl. 20 - NOKKUR SÆTI Lau 12. jan kl. 20 - LAUS SÆTI Stóra svið 3. hæðin Nýja sviðið Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is „Eroica“ NOKKUR SÆTI LAUS Jón Ásgeirsson: Sjöstrengjaljóð Paul Hindemith: Der Schwanendreher, víólukonsert Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 3 Hljómsveitarstjóri: Alexander Anissimov Einleikari: Ásdís Valdimarsdóttir Sinfónían Háskólabíó við Hagatorg Sími 545 2500 sinfonia@sinfonia.is www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Gul áskriftaröð fimmtudaginn 10. janúar kl. 19:30 í Háskólabíói                      !     !          !  "  # $  !      %    #   !"! #!$ #         !     !           !  "  # $  !                   !"                                   ! "    #$  %#"#& "    # ' "()   *  + # $     %&'('")$*" " , -. /    ' )  0   1    '   2    .  3 "  &   #                #" $$   $       ! ' +  4    5   $,     $- , %&'('") * ! /    ' ! !  4 -  "  !/ 0 "- # FÓLK Í FRÉTTUM BRESK NÝBYLGJA er velkynnt hér á landi, en því miðurer því ekki eins farið með álíkatónlist að vestan. Hingað ber- ast yfirleitt ekki fréttir af ferskri bandarískri tónlist eða plötur með henni nema í eina verslun, Hljóma- lind, og sú hefur verið í einskonar lamasessi alllengi. Fyrir vikið halda víst flestir að það leiða nu-metal sull sem Linkin Park, Creed, Our Lady Peace og álíka sveitir leika sé það helsta sem sé að hafa að vestan. Því er öðru nær, sem betur fer, vestan hafs er mikið á seyði og þá ekki bara í nýju sveitatónlistinni, alt-country, sadcore, slowcore eða emo; þar er mikið gróska í grípandi sýru og ber hátt starf sveita innan einskonar útgáfu- og tónsmíða- samsteypu sem kallast Elephant 6 Collective; Elephant 6 sambandið. Fjórir fræknir Elephant 6 sambandið rekur rætur til fjögurra félaga í smábænum Ru- ston í Louisiana-fylki. Allir höfðu þeir áhuga á tónlist og léku í ýmsum hljómsveitum, en tónlistarlega áttu þeir það helst sameiginlegt að hafa gaman af Beach Boys, Bítlunum, sýururokki og ýmislegri tilrauna- mennsku. Eftir að þeir héldu í fram- haldsnám slógust fleiri í hópinn og hljómsveitunum fjölgaði, Neutral Milk Hotel, Apples In Stereo, Olivia Tremor Control, Beulah, Chocolate USA, Elf Power, The Gerbils, The Music Tapes, Of Montreal, Great La- kes, Summer Hymns og svo má telja, en alls telst á fimmta tug sveita til- heyra félagsskapnum. Mjög tengjast sveitirnar innbyrðis og algengt að tón- listarmenn einnar leggi öðrum lið, ým- ist sem hljóðfæraleikarar, upp- tökustjórar eða lagasmiðir, en einnig hafa sumar hljómsveitir komist í fé- lagsskapinn fyrir það að einhver innan hans hefur viljað gefa viðkomandi út. Nærðist á bandarísku pönki Ein lykilsveitanna í Elephant 6 samsteypunni er Neutral Milk Hotel sem Jeff Mangum leiðir. Framan af var hann reyndar einn í sveitinni og þannig leikur hann á að segja öll hljóðfæri á fyrstu plötunni, On Avery Island. Mangum ólst upp í Louisiana og nærðist á bandarísku pönki níunda áratugarins, en inn á milli sótti hann innblástur í svo ólíkar áttir sem Ro- bert Wyatt, Charlie Parker, John Coltrane og búlgarska þjóðlaga- tónlist, en þess má geta að hann hef- ur hljóðritað slíka tónlist í Búlgaríu og gefið út. Eftir að hafa kynnst pönkinu ákvað Mangum að stofna pönksveit og fékk til liðs við sig Will Cullen Hart og ónefndan söngvara. Þeir kölluðu sig Maggot og stefndu að því leynt og ljóst að verða ógeðslegasta hljómsveit allra tíma að því er Mang- um segir. Næsta hljómsveit, Cran- berry Life Cycle, var meiri alvara og þegar þeir stofnuðu þriðju sveitina, Synthetic Flying Machine, voru þeir búnir að móta stefnu og hljóm sem átti eftir að skila sér í Olivia Tremor Control sem Hart stofnaði með Doss. Mangum lék nokkuð með Olivia Tremor Control og kemur meðal annars við sögu á meistarverki þeirr- ar sveitar, Music From The Unreali- zed Film Script, „Dusk At Cubist Castle“. Önnur hljómsveit sem hann lék með á þessum tíma, um miðjan síðasta áratug, var Apples in Stereo og þegar kom að því að taka upp fyrstu breiðskífu Neutral Milk Hotel leitað Mangum til leiðtoga Apples in Stereo, Robert Schneider, sem var æskuvinur hans líkt og Hart og reyndar Doss líka. Tekið upp í Pet Sounds Í kjölfar útgáfunnar á On Avery Island 1996 kynntist Jeff Mangum fjöllistamanninum Julian Koster sem hafði áður leikið með Chocolate USA. Hann bauð Mangum aðstöðu í kjallaranum hjá sér og kynnti hann fyrir öðrum tónlistarmönnum og áð- ur en varði var Neutral Milk Hotel orðin að hljómsveit. Eftir nokkra spilamennsku í New York, þar sem Koster bjó, fluttust þeir félagar allir til Athens í Georgíu-ríki og þar varð næsta breiðskífa, In The Aeroplane Over The Sea, til. Hún var tekin upp að mestu í Pet Sounds hljóðveri Schneiders í Denver 1997 og kom út snemma árs 1998. Það ár fór í tón- leikahald en í árslok leystist sveitin upp; menn fóru að sinna öðrum hugðarefnum, aðallega hljómsveit- unum Music Tapes, Gerbils og Babli- con, en Mangum vann með W. Cullen Hart að tilraunakenndri tónlist undir nafninu The Circulatory System, en Olivia Tremor Control lagði upp laupana um líkt leyti. Plöturnar á Netinu Plötur Elephant 6 sveitanna er ekki auðvelt að komast yfir hér á landi. Allar er hægt að kaupa á Net- inu, þægilegt að gera það í gegnum Amazon, en einnig er gaman að kíkja á vefsetur útgáfanna, til að mynda Merge (Neutral Milk Hotel og einnig fullt af öðru góðu dóti, til að mynda Stephin Merritt sveitirnar The 6ths, Future Bible Heroes, Gothic Archies og The Magnetic Fields), www.mer- gerecords.com, Orange Twin (Ger- bils, Neutral Milk Hotel / Jeff Mang- um, Elf Power, Great Lakes og Summer Hymns), www.orangetw- in.com, Kindercore Records (Great Lakes, Of Montreal), www.kinder- core.com, Cloud Recordings (Circ- ulatory System), www.cloudrecor- dings.com, og Cooking Vinyl (The Apples in Stereo), www.cookingvin- yl.com. Miklar upplýsingar um Elephant 6 sambandið er að finna á vefsetrinu www.elephant6.com/. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Elephant 6 sambandið Neutral Milk Hotel, Jeff Mangum er annar frá hægri. Apples in Stereo Í Bandaríkjunum hefur verið mikil gerjun í ný- bylgjunni og koma þar hljómsveitirnar í Elephant 6 sambandinu mjög við sögu. LYKILPLÖTUR Elephant 6 sam- steypunnar eru býsna margar, enda sveitirnar á sjötta tug sem getið er, en þessar eru helstar og gott að kynnast hreyfingunni með því að hlusta á þær: Neutral Milk Hotel-In the Aeroplane over the Sea Plata sem fólk ýmist hatar eða elskar, enda er hún svo tilfinningaþrungin að erfitt getur verið að hlusta. Meðal annars syngur Mangum um Önnu Frank, kynlíf og ást á átakanlegan hátt. The Olivia Tremor Control- Dusk at Cubist Castle Ótrúlega bítlaleg plata og mjög sýrð. Einnig er vert að skoða Black Foliage: Animation Music sem kom út í fyrra. Apples in Stereo-Fun Trick Noisemaker/Tone Soul Evolution Hér á landi hefur fengist platan The Discovery of a World Inside the Moone sem kom út á síðasta ári og er einnig prýðileg, enda Ro- bert Schneider afbragðs lagasmið- ur. Of Montreal-Coquelicot Asleep in the Poppies: A Variety of Whimsical Verse Nafnið sérkenni- lega er þannig til komið að kan- adísk stúlka hryggbraut Kevin Barnes sem er forsprakki sveit- arinnar. Gott safn sveitarinnar, sem er með þeim sérkennilegri og betri innan samsteypunnar, er Horse & Elephant Eatery (No Elephants Allowed): The Singles & Songles Album. Með sveitinni hafa leikið Bryan Poole úr Elf Po- wer, Andy Gonzales úr The Music Tapes, Julian Koster úr Neutral Milk Hotel og The Music Tapes, Scott Spillane úr The Gerbils og Neutral Milk Hotel, Peter Erchick og John Fernandes úr Olivia Tremor Control svo fáeinir séu nefndir, og í einu lagi koma við sögu liðsmenn The Olivia Tremor Control, Neutral Milk Hotel, Elf Power, The Late B.P. Helium, The Gerbils, fablefactory, Calvin, Don’t Jump! og The Music Tapes. Music Tapes-First Imaginary Symphony for Nomad Einkenni- lega heillandi plata sem tekin er upp á vaxrúllur og stálþráð. Will Cullen Hart úr Olivia Tremor Control kemur við sögu, en höf- uðpaur Music Tapes er Julian Kos- ter sem lék á ýmis hljóðfæri með Neutral Milk Hotel. Beulah-When Your Heart- strings Break Beulah er seinni tíma viðbót við samsteypuna og leikur aðgengilegri tónlist en þær flestar. Elf Power-Dream in Sound Elf Power er í annarri bylgju Elephant 6 sveita, en engu sýrðari en þær sem á undan komu. Great Lakes-Great Lakes Plata frá síðasta sumri sem er áþekk þeim sem á undan eru taldar; fyr- irtaks sýrð bandarísk nýbylgja. Robert Schneider úr Apples in Stereo sá um hljóðblöndun. Lykilplötur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.