Morgunblaðið - 13.01.2002, Blaðsíða 6
PLÚSINN, félag þar sem þátttak-
endur eiga möguleika á verðlaun-
um fyrir að svara auglýsingum í
gegnum myndrænan tölvupóst auk
annarrar umbunar, er að hefja
starfsemi. Plúsinn er gagnvirkur
miðill sem myndar milliliðalaust
samband milli neytenda og auglýs-
enda sem fá svörun við auglýsing-
um sínum samstundis. Hann hefur
verið í þróun í rúmlega ár og er í
eigu fyrirtækisins íPlús ehf. Þróun-
arsvið Nýherja, Klak ehf. stendur
þar að baki ásamt einstaklingum úr
upplýsinga- og markaðsgeiranum.
Rakel Sveindóttir var ráðin til að
leiða af stað starfsemi Plússins og
mun leggja línurnar fyrstu starfs-
mánuðina. Rakel er framkvæmda-
stjóri Lotus-Hljóðsetningar, sem
varð til er hljóðversdeild Leik-
félags Íslands var seld síðasta
haust. Hún var áður sölustjóri
Morgunblaðsins og mbl.is í nokkur
ár og síðar auglýsingastjóri Norð-
urljósa. Hún segir Plúsinn vera
samskiptatæki fólks og fyrirtækja
þar sem báðir hagnast. „Það er
sem er nýtt við Plúsinn er þetta
milliliðalausa samband neytanda og
auglýsanda,“ segir hún. „Við sem
neytendur fáum ótal skilaboð úr
öllum áttum á hverjum degi. Um-
hverfið er hins vegar að breytast í
þá átt að fólk er farið að vilja geta
valið í auknum mæli þær upplýs-
ingar sem það fær.“
Umbun þátttakenda
Ávinningur þátttakenda er
margvíslegur að sögn Rakelar.
Fyrst nefnir hún að þeir geta feng-
ið greitt fyrir að taka þátt í auglýs-
ingum, en að minnsta kosti þrír
þátttakendur í hverri auglýsingu fá
peningaverðlaun. „Með þátttöku
getur fólk haft áhrif, til dæmis á
hvernig umbúðir um ákveðna vöru
koma til með að líta út, hvaða tilboð
verða í ákveðnum verslunum og
svo mætti áfram
telja.“ Plúsfélögum
býðst að auki fjöldi til-
boða sem tengjast
þeirra áhugasviði. Þá
geta þeir haft áhrif á
hvaða góðgerðarmál
Plúsinn muni styrkja,
en 1% af sölutekjum
hans mun renna til
góðgerðarmála.
Áhersla á
samskipti
Þátttakendur þurfa
aðeins að skrá sig í
Plúsinn í gegnum
tölvupóst eða heima-
síðu Plússins á Netinu
á slóðinni www.plus.is og er þegar
hægt að skrá sig til þátttöku. Þar
skráir viðkomandi grunnupplýsing-
ar um sjálfan sig, en fyllsta öryggis
er gætt og kennitölu er ekki hægt
að rekja til viðkomandi á neinn
hátt. Samskipin eiga sér stað í
gegnum tölvupóst, en þegar gagn-
virkt sjónvarp verður að veruleika
mun Plúsinn færa sig inn á það
svið.
Auglýsingarnar og allar upplýs-
ingar frá Plúsnum berast svo fé-
lögum í gegnum tölvupóst þar sem
þeir svara á einfaldan hátt og eiga
þar með möguleika á að fá greitt
fyrir þátttökuna. Þegar fólk svarar
auglýsingum fær fyrirtækið sam-
stundis birtar niðurstöður sem
hægt er að flokka eftir aldri, bú-
setu, kyni og fleiru. Í þessum sam-
skiptum neytenda og auglýsenda
felst gagnvirknin.
Tæknivædd og fámenn þjóð
Plúsinn er að sögn Rakelar
frumkvöðull á þessum vettvangi, þó
að gagnvirkni sé ekki ný af nálinni.
„Við vitum ekki til þess að fé-
lagsskapur sé til annars staðar í
sambærilegri mynd og Plúsinn,“
segir hún. „Íslending-
ar eru fámenn þjóð en
mjög tæknivædd og
því er Ísland spenn-
andi vettvangur til að
prófa þá hugmynda-
fræði sem liggur
Plúsnum til grundvall-
ar. Hugmyndin er að
sjá hvernig Íslending-
ar bregðast við, en
markmiðið er að Plús-
inn þróist seinna meir
einnig í öðrum lönd-
um.“ Af hverju ætti
fólk að samþykkja að
fá sendar auglýsingar
þegar mörgum finnst
þegar nóg um? „Aug-
lýsingar hafa gert margt fyrir
neytandann, til dæmis niðugreiða
þær áskriftarverð fjölmiðla sem
afla tekna með auglýsingum. Í
Plúsnum fær neytandinn hins veg-
ar greitt um leið. Plúsfélagar geta
einnig valið um að láta þær
greiðslur, sem kunna að koma í
þeirra hlut fyrir þátttöku, renna til
góðgerðarmála og látið þar með
gott af sér leiða.“
Gagnvirkni er framtíðin
„Plúsinn er kominn til að vera.
Hann er fyrir alla þá sem hafa
gaman af því að fylgjast með því
sem er að gerast og vilja hafa
áhrif,“ segir Rakel. „Gagnvirknin
er þegar orðin að veruleika. Eins
og oft áður með tækninýjungar
tekur tíma að aðlagast þeim, en að
lokum verða þær hluti af daglegu
lífi, ég nefni sem dæmi farsíma.
Það mun koma að því einn daginn
að við verðum öll farin að nota
sjónvarpið sem gagnvirkan miðil.
Núna er góður tími fyrir fyrirtæki
að læra að nýta sér þessa nýju
tækni. Þess vegna er Plúsinn
skemmtilegur valkostur,“ sagði
Rakel.
Plúsinn er gagnvirkur miðill sem kemur á milli-
liðalausu sambandi milli fólks og fyrirtækja
„Fyrir þá sem vilja fylgj-
ast með og hafa áhrif“
Dæmi um auglýsingar sem þátttakendur í Plúsnum gætu verið beðnir um að svara. Á hverri auglýsingu kemur
fram hversu há verðlaunaupphæðin er og grunnupplýsingar um þá sem fengu verðlaunin fyrir síðustu auglýsingu.
Rakel
Sveinsdóttir
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 6/1 – 12/1
ERLENT
INNLENT
ÞRÍR létust í umferð-
arslysum á þjóðvegum
landsins. Maður lést er
jeppi hans rakst á flutn-
ingabíl ofarlega í Norður-
árdal í Borgarfirði á
fimmtudagskvöld. Á
föstudagskvöld urðu tvö
banaslys. Maður lést er
fólksbíll hans lenti í
árekstri við jeppa á Kís-
ilvegi og farþegi í fram-
sæti fólksbíls lést í
árekstri þriggja bíla í
Kömbunum.
ÍSLENSK kona lést á
Kanaríeyjum eftir fall af
svölum. Maður er í haldi
lögreglu á Las Palmas
vegna málsins.
HALD var lagt á um
300 kannabisplöntur í
Reykjavík á mánudag.
Einnig lagði fíkniefna-
lögreglan hald á nokkurt
magn kannabisefna og
tækja sem notuð voru við
ræktunina.
SAGT hefur verið upp
25 manns á ýmsum deild-
um sem tilheyra yfir-
stjórn Landspítala – há-
skólasjúkrahúss. Forstjóri
spítalans segir að grípa
verði til uppsagna á öllum
deildum vegna 800 millj-
óna króna samdráttar á
þessu ári.
FYRRVERANDI fram-
kvæmdastjóri Heyrnar-
og talmeinastöðvar Ís-
lands er gagnrýndur í
greinargerð Ríkisend-
urskoðunar fyrir við-
skiptahætti. Er talið að
hann hafi ekki virt starfs-
skyldur sínar né ákvæði
laga um tolla og bókhald
við kaup og innflutning
heyrnartækja.
Stærsta útboð
Vegagerðarinnar
STÆRSTA útboð Vegagerðarinnar til
þessa stendur nú fyrir dyrum, annars
vegar jarðgöng milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar og hins vegar milli
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Gert er
ráð fyrir að fyrsta skref í útboðsferli sé
forval verktaka í mars. Gert er ráð fyr-
ir að framkvæmdum ljúki 2008. Kostn-
aður er áætlaður 9–10 milljarðar
króna. Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra gerir ráð fyrir að unnið verði
að mestu á öðrum staðnum í einu en þó
yrði að einhverju leyti unnið samtímis.
ÍE sækir inn á
lyfjamarkað
MÓÐURFÉLAG Íslenskrar erfða-
greiningar hefur keypt bandarískt
lyfjaþróunarfyrirtæki, MediChem
Life Sciences, fyrir sem svarar um 8,4
milljarða króna. Kári Stefánsson, for-
stjóri ÍE, segir kaupin góða viðbót við
starfsemina og sé ÍE nú komið á fulla
ferð í lyfjaþróun. Hann segir nauðsyn-
legt að byggja upp aðstöðu fyrir 200 til
300 störf til að ÍE geti nýtt sér efna-
fræðiþekkingu MediChem. Kvaðst
hann vonast til að hægt yrði að byggja
það starf upp hérlendis.
Efna til leiðtoga-
prófkjörs
STJÓRN Varðar, fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík, hefur
ákveðið að óska eftir breytingum á
prófkjörsreglum flokksins til að unnt
verði að efna til leiðtogaprófkjörs
vegna uppstillingar lista fyrir borgar-
stjórnarkosningar næsta vor. Kjör-
nefnd mun að öðru leyti stilla upp lista.
Þá hefur verið samþykkt að fulltrúa-
ráðsmenn verði beðnir að stinga uppá
2–4 nöfnum sem þeir vilja sjá ofarlega
á lista flokksins. Yrðu þeir ekki úr hópi
sex núverandi borgarfulltrúa.
Allt upp í loft í
Miðausturlöndum
ÍSRAELSKIR hermenn fóru með
þungavinnuvélar og skriðdreka inn á
Gaza-svæðið á föstudag og hófu vinnu
við að eyðileggja flugbraut á alþjóða-
flugvelli Palestínumanna á Gazaströnd-
inni. Á fimmtudag höfðu þeir jafnað 60
hús við jörðu í flóttamannabúðum í Raf-
ah á Gaza. Gerðu þeir það til að hefna
dauða fjögurra félaga sinna í árás
tveggja Hamas-liða á miðvikudag.
Spenna hefur nú aukist til muna á
nýjan leik í Miðausturlöndum, m.a. í
kjölfar þess að Ísraelar stöðvuðu skip
fullt af vopnum á Rauðahafi. Yasser
Arafat, forseti heimastjórnar Palest-
ínumanna, fyrirskipaði rannsókn í mál-
inu á mánudag en Ísraelsstjórn fullyrti
að vopnin hefðu verið ætluð Palestínu-
mönnum og að Arafat hefði lagt blessun
sína yfir vopnasmyglið.
Bandaríkjamaðurinn Anthony Zinni
yfirgaf Miðausturlönd í vikunni og
kvaðst þá sæmilega bjartsýnn á að
koma mætti á viðræðum að nýju milli
Ísraelsstjórnar og Palestínumanna en
hætt er við að heldur hafi dregið úr
þeirri bjartsýni við síðustu atburði.
Minni spenna milli
Indverja og Pakistana
HELDUR dró úr spennu milli Indverja
og Pakistana í vikunni en samskipti
þjóðanna hafa verið stirð eftir sjálfs-
morðsárás múslimskra öfgamanna í
Nýju-Dehlí í desember. Pervez Mush-
arraf, forseti Pakistans, fordæmdi öll
hryðjuverk og tilkynnti aðgerðir sem
eiga sér það markmið að ráða niðurlög-
um öfgahópa, sem hafast við í Pakistan.
Hefur það einmitt verið meginkrafa
indverskra stjórnvalda að Pakistanar
láti af stuðningi sínum við þessa hópa.
Hermenn Pakistans og Indlands
standa þó enn gráir fyrir járnum hverj-
ir andspænis öðrum við landamæri
ríkjanna í Kasmír.
ÁTÖK blossuðu upp á
miðvikudag milli ungra
mótmælenda og kaþólikka
nálægt kaþólskum
stúlknaskóla í Ardoyne-
hverfinu í norðurhluta
Belfast á Norður-Írlandi.
Köstuðu báðar fylkingar
grjóti og flöskum á lög-
reglumenn sem sendir
voru á staðinn til að stilla
til friðar.
BANDARÍSK herflugvél
hrapaði á fjall í Pakistan á
miðvikudag með þeim af-
leiðingum að sjö létust. Á
fimmtudag sendi George
W. Bush Bandaríkjaforseti
stjórnvöldum í Íran þau
skilaboð að þau yrðu að
framselja alla liðsmenn al-
Qaeda-samtakanna sem
kynnu að leita þar at-
hvarfs.
MART Laar, forsætis-
ráðherra Eistlands, sagði
af sér á þriðjudag vegna
klofnings sem upp virtist
kominn meðal stjórn-
arflokkanna.
RENATO Ruggiero
sagði af sér sem utanrík-
isráðherra Ítalíu og til-
kynnti Silvio Berlusconi
forsætisráðherra að hann
hygðist sjálfur sinna utan-
ríkismálum fyrst um sinn.
Líklegt þykir þó að Gian-
franco Fini aðstoðar-
forsætisráðherra setjist
um síðir í stólinn.
GÖRAN Persson, for-
sætisráðherra Svíþjóðar,
vill efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um upp-
töku evrunnar vorið 2003.
Danska stjórnin hefur
einnig í hyggju að vísa
þessu máli í dóm kjósenda
á næsta ári.
ÞEIR gáfu sér tíma til að
spjalla, karlarnir á einni
bryggjunni í Hafnarfirði.
Ekki fór nákvæmum sögum
af því hver verkefni þeirra
eru. Eitthvað tengt sjó og
skipum, löndun, viðgerðum
eða bryggjusmíði? Það er í
það minnsta ágætt að
staldra við og gefa sér tíma
til að ræða landsins gagn og
nauðsynjar. Morgunblaðið/Kristinn
Ræða
landsins
gagn og
nauð-
synjar