Morgunblaðið - 13.01.2002, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 53
DAGBÓK
BRIDSSKÓLINN
Námskeið á vorönn
Byrjendur: Hefst þriðdaginn 22. janúar.
Framhald: Hefst fimmtudaginn 24. janúar.
Byrjendanámskeið: Það geta allir lært að spila brids, en
það tekur svolítinn tíma að ná tökum á grundvallarreglum
Standard-sagnkerfisins. Á byrjendanámskeiði Bridsskólans
er ekki gert ráð fyrir neinni kunnáttu og ekki er nauðsynlegt
að hafa með sér spilafélaga. Það er fólk á öllum aldri og af
báðum kynjum sem sækir skólann. Láttu slag standa!
Tíu þriðjudagskvld frá kl. 20-23.
Framhaldsnámskeið: Standard-sagnkerfið verður skoðað í
smáatriðum, en auk þess verður mikil áhersla lögð á varnarsam-
starfið og spilamennsku sagnhafa. Bókin Nútíma brids eftir
Guðmund Pál Arnarson verður lögð til grundvallar. Kjörið fyrir
þá sem vilja tileinka sér nútímalegar aðferðir og taka stórstígum
framförum. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga.
Tíu fimmtudagskvöld frá kl. 20-23.
Nánari upplýsingar og innritun
í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga.
Bæði námskeiðin eru haldin í
félagsheimili Sjálfsbjargar í Hátúni 12 í Reykjavík.
Hef opnað tannlæknastofu
á Laugavegi 18a 4h,
Tímapantanir alla virka daga frá kl. 9–17
í síma 551 7011.
INGIBJÖRG S. BENEDIKTSDÓTTIR,
tannlæknir.
UM síðustu helgi fór fram
mikil bridshátíð í Borgar-
nesi, bæði sveitakeppni og
tvímenningur. Sveit Páls
Valdimarssonar vann
sveitakeppnina, en með hon-
um spiluðu Eiríkur Jónsson,
Þröstur Ingimarsson og
Þórður Björnsson. Spilaðar
voru 8 umferðir af 8 spila
leikjum og raðað eftir Mon-
rad-kerfi. Ísak Örn Sigurðs-
son og Ómar Olgeirsson
unnu tvímenninginn, en spil-
aðar voru tvær umferðir af
24 spilum. Þeir Ísak og Óm-
ar náðu góðri forystu í fyrri
umferðinni og héldu sjó í
þeirri síðari. Þar kom þetta
spil upp:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ G9
♥ ÁDG102
♦ 8653
♣D4
Vestur Austur
♠ Á8543 ♠ KD72
♥ 653 ♥ K97
♦ 4 ♦ 972
♣ÁG63 ♣K109
Suður
♠ 106
♥ 84
♦ ÁKDG10
♣8752
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass Pass 1 tígull
Pass 1 hjarta Pass 2 tígull
Pass 3 tíglar Pass Pass
Pass
Ísak og Ómar voru með
spil NS. Ómar passaði í upp-
hafi og Ísak vakti létt í
þriðju hendi á einum tígli.
Vestri leist ekki á að koma
inn á spaðasögn á hættunni
með þetta lélegan lit og fyrir
vikið „stálu“ NS samningn-
um í þremur tíglum.
Þrír tíglar ættu að
óbreyttu að fara einn niður,
en vörnin missteig sig og
spilaði þrisvar spaða í upp-
hafi. Ísak trompaði heima og
henti laufi úr borði. Tók svo
tvisvar tromp og spilaði
hjarta á drottningu og kóng
austurs. En nú var einn
laufslagur varnarinnar far-
inn fyrir lítið. NS fengu nán-
ast topp fyrir +110, en það
hefði líka gefið góða skor að
fara einn niður, því það má
vinna fjóra spaða í AV.
Ísak og Ómar eru mjög
heitir þessa dagana, en þeir
unnu annan riðilinn í jóla-
móti Bridgefélags Hafnar-
fjarðar, sem fram fór milli
jóla og nýárs.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð glöggskyggn og
eigið ekki í vandræðum með
að koma fyrir ykkur orði
hvernig sem á stendur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Stundum er eina ráðið að
halda að sér höndum og bíða
færis. Látið ekki óþolinmæði
hafa yfirhöndina heldur bíðið
róleg uns tækifærið gefst.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er notalegt að eiga stund
með nánum vini og gott að
geta deilt áhyggjunum með
einhverjum sem maður
treystir. Hláturinn lengir líf-
ið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er í mörg horn að líta í
vinnunni og ykkur finnst þið
ekki hafa tíma til annars. Það
er rangt því þið þurfið svo
mjög að dreifa huganum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef þið leggið spilin á borðið
þurfið þið ekki að óttast and-
stöðu heldur munu sam-
starfsmenn ykkar sjá kosti
ráðagerða ykkar og láta
sannfærast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þið eruð með ýmsar vanga-
veltur í sambandi við ákveðna
samstarfsmenn. Gefið þeim
tækifæri og þá mun koma í
ljós hvorum megin þeir
standa.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það eru nokkur mál sem þið
þurfið að að íhuga vandlega
og þegar niðurstöður eru
fengnar verðið þið að láta til
skarar skríða tafarlaust.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er kominn tími til þess að
þið setjð hugsanir ykkar nið-
ur á blað og veitið öðrum hlut-
deild í þeim sannindum sem
þið teljið ykkur hafa fundið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þið fáið hverja hugmyndina
annarri betri en getið ekki
gert upp á milli þeirra. Legg-
ið þær í dóm trausts vinar og
látið svo verkin tala.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þið eruð eins og milli steins
og sleggju í ákveðnu máli.
Reynið að ná heildarsýn til
þess að þið getið vegið og
metið aðstæður svo vit sé í.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ykkur finnst að ykkur sótt úr
öllum áttum. Leitið ráða til
þess að verja ykkur og sinnið
aðeins því sem hugir ykkar
standa til. Þolinmæði er
dyggð.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þið hafið ráð undir rifi hverju
og getið komið ýmsu í verk ef
þið leggið ykkur fram um að
leita samstarfsaðila. Stað-
reyndirnar tala sínu máli.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ykkur finnst einhvern veginn
allt rekast hvað á annars
horn. Gefið ykkur tíma til að
greiða úr flækjunni og þá
leysast allir hlutir auðveld-
lega.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ATVINNA mbl.is
LJÓÐABROT
ALLRA FLAGÐA ÞULA
Líttu upp, leikbróðir,
og láttu fólk þegja,
meðan eg nefni
níutigi trölla.
Öll skuluð þér standa
sem við stjaka bundin,
unz eg hef út kveðið
allra flagða þulu.
Fyrst situr Ysja
og Arinnefja,
Flegða, Flauma
og Flotsokka,
Skrukka, Skinnbrók
og Skitinkjafta,
Buppa, Blátanna
og Belgiygla.
– – –
Hrærist heimar,
hristist steinar,
vötn við leysist,
villist dísir.
Öll ódæmi
æri þursa.
Helveg troði
heimskar tröllkonur.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
Rc3 e6 5. e3 Rbd7 6. Bd3
dxc4 7. Bxc4 b5 8. Bd3 b4 9.
Re4 Be7 10. Rxf6+ Rxf6 11.
e4 Bb7 12. Be3 O-O 13. e5
Rd5 14. Bd2 Db6 15. De2 c5
16. dxc5 Dxc5 17. h4 Rb6 18.
Hc1 Dd5 19. Hc7 Bd8
Það er ekki bara á Íslandi
sem einvígi milli valin-
kunnra stórmeistara fer
fram. Fyrir skömmu lauk
einvígi Ivans Sokolovs
(2658) og skærustu
stjörnu Spánverja,
Fransisco Pons
Vallejo (2630). Í
stöðunni hafði
Bosníumaðurinn
grimmi hvítt gegn
ungstirninu. 20.
Rg5! Dxg2 21.
Bxh7+ Kh8 22.
Dh5 Dxh1+ 23.
Ke2 Bxg5 24. Be4+
Bh6 25. Bxh1 Bxh1
26. Bxh6 Rd5 27.
Hc4 Hfc8 28. Bg5+
Kg8 29. Dg4 Hxc4
30. Dxc4 a5 31. f3
a4 32. Kf2 a3 33. b3 Ha7 34.
Dc1 Hc7 35. Dxh1 f6 36.
exf6 gxf6 37. Bh6 Hc2+ 38.
Kg3 Rc3 39. h5 Hxa2 40.
Kh4 Re2 og svartur gafst
upp. Vasklega teflt hjá hvít-
um enda vantar sjaldan fjör-
ið í skákir Ivans. Einvíginu
lauk með bræðrabyltu, 4
vinningum gegn 4. Síðasta
seinvígisskák Hannesar
Hlífars Stefánssonar og
Nigels Shorts fer fram í dag
í Ráðhúsi Reykjavíkur. Tafl-
ið hefst kl. 13.00 og eru allir
skákáhugamenn hvattir til
að mæta og styðja við bakið
á sínum manni!
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 14. janúar, er fimmtug
Guðrún Kristín Magnús-
dóttir, Vesturbergi 8,
Reykjavík. Hún er að heim-
an á afmælisdaginn.
Ljósmynd/Bragi Þór
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. ágúst sl. í Bessa-
staðakirkju af sr. Friðriki J.
Hjartar Hekla Guðmunds-
dóttir og Ómar Hilmarsson.
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. nóvember sl. í
Kópavogskirkju af sr. Braga
Skúlasyni Jóhanna Bóel
Magnúsdóttir og Guðjón
Bergmann.
Ljósmynd/Sissa
BRÚÐKAUP. Gefin
voru saman 1. sept-
ember sl. í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði af
sr. Einari Eyjólfs-
syni Silja Rún
Gunnlaugsdóttir og
Friðrik Sturluson.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót. Fólk
getur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma 569-
1329, eða sent á netfangið
ritstj@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík