Morgunblaðið - 13.01.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Jón mundi passa vel inn í pólitísku myndina þar sem hann getur tekið
þátt í Harry Potter ársins á eigin skafti.
Kynningarmyndband um Austurland
Kaflaskil í
ferðamennsku
FYRIR nokkru komút kynningarmynd-band um Austur-
landsfjórðung. Ábyrgðar-
og umsjónarmaður mynd-
bandsins er Ásmundur
Gíslason, fyrir hönd Ferða-
málasamtaka Austurlands.
Umtalsverðar breytingar í
samgöngum til og frá land-
inu svo og nauðsyn þess að
halda opnum öllum valkost-
um í atvinnu- og byggða-
uppbyggingu í fjórðungin-
um hafa sett svæðið í
kastljósið. Morgunblaðið
lagði nokkrar spurningar
fyrir Ásmund í vikunni.
–Segðu okkur eitthvað
frá þessu myndbandi, tilurð
þess og vinnslu...
„Það er fljótgert að segja
frá vinnslunni. Það er unnið
hjá Plús film og var ekki lengi í
vinnslu, enda myndefnið allt til, en
það er héðan og þaðan. Þetta er
kynning á valkostum og möguleik-
um í ferðamennsku í fjórðungnum
sem nær frá Skeiðarársandi og til
Langaness. Tilurð myndbandsins
er hins vegar þau kaflaskil sem eru
að verða í ferðamennsku og þjón-
ustu á svæðinu með tilkomu LTU-
flugs milli meginlands Evrópu og
Egilsstaða, tilkomu nýrrar og
stærri ferju sem kemur í stað Nor-
rænu og siglir á milli Færeyja,
Hjaltalands, Danmerkur, Noregs
og Seyðisfjarðar. Þetta er þrefalt
stærri ferja heldur en sú gamla.
Svo má nefna tilkomu væntanlegs
Vatnajökulsþjóðgarðs sem er stór-
kostlegt tæki fyrir okkur til að
markaðssetja fjórðunginn með.
Þessir þættir allir saman eru að
veita okkur feikileg sóknarfæri í
ferðaþjónustu.“
–Það er greinilega mikill hugur í
ykkur eystra...
„Já, það er mikill hugur í okkur.
Samt eru hér alls ekki á ferðinni
óraunhæfar væntingar. Sterka
ferðaþjónustu er lengi verið að
byggja upp og það hefur mikil
grunnvinna verið innt af hendi síð-
ustu árin og hefur þar verið góð
samvinna milli Ferðamálasamtaka
Austurlands annars vegar og Þró-
unarstofu Austurlands á Egils-
stöðum og samtökum sveitarfélaga
á svæðinu hins vegar. Mikil aukn-
ing á gistirými í fjórðungnum hef-
ur orðið, ferðavefurinn okkar
East.is og youriceland.com hafa
verið styrktir og bættir og nefna
má annað sem dæmi, að stór svæði
í fjórðungnum hafa verið kortlögð
með fullkomnum göngukortum,
enda hafa gönguferðir notið sívax-
andi vinsælda á Austfjörðum og við
höfum verið að koma inn sem nýtt
svæði á eftir Hornströndum og
Laugaveginum.
Til marks um hvað þessi grunn-
vinna skiptir miklu máli þá má
nefna að LTU-flugið gerði könnun
á Austfjörðum fyrir nokkrum ár-
um með það fyrir augum að hefja
hingað flug. En það var fallið frá
því þar eð svæðið var
ekki í stakk búið að
taka við ferðamanna-
aukningunni. Núna var
hins vegar ekkert að
vanbúnaði.“
–Straumurinn hefur verið til
Reykjavíkur til þessa, af hverju
teljið þið að Egilsstaðir muni njóta
hylli?
„Til að byrja með verður að
segja að mjór er mikils vísir. Þetta
eru ekki nema 2.000 ferðamenn
fyrsta árið. En spurningin þín,
hvers vegna Egilsstaðir og Austur-
landið? Með því að Egilsstaðir eru
orðnir áfangastaður í millilanda-
flugi þá koma upp alveg ný viðhorf
til ferðamennsku í fjórðungnum.
Nýir möguleikar skapast. Ferða-
heildsalar fara að auglýsa nýjan
valkost og nýjungar eru alltaf mik-
ilvægar í þessari grein. Í seinni tíð
hafa ferðamenn lagt aukna áherslu
á styttri ferðir. Hingað til hefur
miðdepillinn verið Reykjavík og al-
gengt að ferðamennirnir fari þang-
að, búi þar, en skoði landið með
dagsferðum þaðan. Við heyrum
það utan að okkur að mjög margir
ferðamenn koma einmitt frá stór-
borgum og hafa takmarkaðan
áhuga á því að fara frá einni slíkri
til annarrar, sérstaklega þar sem
styttri ferðir færast í vöxt. Þá legg-
ur fólk meira upp úr því að komast
beint í snertingu við ró, kyrrð og
ósnortna náttúru. Að þessu leyti
geta Egilsstaðir orðið að góðu mót-
vægi við Reykjavík. Svo má alveg
koma fram, að fleiri aðilar sem
stunda leiguflug hafa lýst yfir
miklum áhuga á að koma upp áætl-
unarflugi til Egilsstaða.“
–Hvert er viðhorf ferðaþjón-
ustuaðila í fjórðungnum til hinna
umdeildu virkjunarmála, stóriðju
og sjókvíaeldis sem blasir við Aust-
firðingum?
„Við förum ekkert út í þau mál á
myndbandinu okkar eða í mark-
aðssetningunni. Það eina sem ég
vil segja um það mál er að ferða-
þjónusta, sama hvort hún er á
Austfjörðum eða annars staðar,
nærist á öflugu atvinnu-
stigi. Beinlínis grund-
vallast á því.“
–Hvað bjóða Austfirð-
ir upp á?
„Það er geysilega
margt. Ég nefndi áðan áhersluna á
ró, frið og ósnortna náttúru og
gönguleiðirnar sem verið er að
kortleggja með miklum og góðum
árangri. Það er ekki langt í að
menn geti gengið fjórðunginn á
enda eftir göngukortum. Það eru
bátasiglingar út í eyjar, kajaksigl-
ingar, hestamennska, fuglaskoðun,
steinasafn Petru á Stöðvarfirði,
veiðiskapur, jöklaferðir og fjöl-
margar menningar- og skemmti-
hátíðir um alla firði.“
Ásmundur Gíslason
Ásmundur Gíslason er fæddur
6. febrúar 1951 í Reykjavík.
Stúdent frá MH 1972 og lauk síð-
an kennaranámi. Fluttist til
Hornafjarðar 1975 og var fram-
kvæmdastjóri elli-, hjúkrunar-
og fæðingarheimilis Hafnar í
Hornafirði í 13 ár. 1995 fluttist
hann að Árnanesi í Nesjahverfi
og hefur stundað þar ferðaþjón-
ustu síðustu fimm árin, m.a. selt
gistingu og boðið hestaferðir.
Formaður Ferðamálasamtaka
Austurlands síðustu fimm árin.
Ásmundur er kvæntur Helgu Er-
lendsdóttur myndlistarmanni
sem rekur gallerí í Árnanesi.
Þau eiga samtals 7 börn.
…að góðu
mótvægi við
Reykjavík
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur nú
til umfjöllunar kæru Netskila hf., fyr-
irtækis sem sér m.a. um uppsetningu
rafrænna reikninga og skjala, á hend-
ur Reiknistofu bankanna vegna fyr-
irætlunar Reiknistofunnar um að
koma upp, ásamt Búnaðarbanka Ís-
lands, Landsbanka Íslands og Ís-
landsbanka, sameiginlegu kerfi til
rafrænnar birtingar reikninga.
Viktor Vigfússon, framkvæmda-
stjóri Netskila, segist í samtali við
Morgunblaðið sem minnst vilja tjá sig
um umrædda kæru. „Ég get þó sagt
að Netskil telja að samstarf um-
ræddra aðila á vettvangi rafrænnar
birtingar reikninga myndi takmarka
aðgengi annarra aðila að þeim mark-
aði.“ Kveðst hann vonast til þess að
úrskurður Samkeppnisstofnunar
lægi fyrir á næstu vikum. Í kæru Net-
skila er þess m.a. krafist að viðskipta-
bönkum og Reiknistofu bankanna
yrði með öllu bannað að hafa sam-
starf sín á milli um þróun og uppsetn-
ingu fyrrgreinds kerfis. Halda Net-
skil því fram í kærunni að slíkt
samstarf brjóti gegn ákvæðum 10. gr.
samkeppnislaga en þar segir m.a.:
„Allir samningar og samþykktir milli
fyrirtækja, hvort heldur þær eru
bindandi eða leiðbeinandi, og sam-
stilltar aðgerðir sem hafa að mark-
miði eða af þeim leiðir að komið sé í
veg fyrir samkeppni, hún sé takmörk-
uð eða henni raskað eru bannaðar.“
Þá er í kærunni vísað til 11. greinar
sömu laga þar sem segir m.a.: „Mis-
notkun eins eða fleiri fyrirtækja á
markaðsráðandi stöðu er bönnuð.“
Netskil hf. hafa kært
Reiknistofu bankanna
Endurvinnslufyrirtækið Hringrás
skipaði í vikunni út 3700 tonnum af
brotajárni til bræðslu á Spáni. Sam-
kvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu
er þetta ein stærsta útskipun í 50 ára
sögu þess og vonast stjórnendur
Hringrásar eftir því að þetta gefi
tóninn fyrir árið sem nú er nýhafið.
Hringrás hefur á þessari hálfu öld
flutt út um hálfa milljón tonna af
brotajárni. Fram kemur í tilkynn-
ingu frá fyrirtækinu að það sé nú bú-
ið hagkvæmum og góðum tækjakosti
sem geri það mögulegt að endur-
vinna og koma svo miklu magni í
skip á skömmum tíma.
Aukning á brotajárni og málmum
sem falla til hefur verið mikil und-
anfarið og segist fyrirtækið leggja
allt kapp á að flytja út sem mest af
málmum og járni og koma þannig í
veg fyrir uppsöfnum efnis á vinnslu-
svæðinu í Sundahöfn.
3.700 tonn
af brotajárni
flutt til
Spánar
♦ ♦ ♦