Morgunblaðið - 13.01.2002, Page 19
leggur áherslu á orð sín. Hún segir
okkur stolt að allir kennararnir séu
menntaðir en 65% þeirra bjuggu áður
í þorpunum. Menntun kennaranna er
grundvallaratriði við rekstur skól-
anna til þess að þeir séu viðurkenndir
af indverskum stjórnvöldum.
Tíbetar trúir sinni sannfæringu
Um framtíðarsýn Tíbeta segir
Pema eftir nokkra umhugsun að þeir
haldi í vonina og trúna á það að þeir
fái aftur að búa í eigin landi sem full-
gildir þjóðfélagsþegnar. Hún leggur
einnig áherslu á mikilvægi þess að
baráttan sé háð á friðsamlegan hátt.
Erfitt sé hins vegar að áætla um
hvort það gangi betur með nýja rík-
isstjórn í Kína. Kínverjar verða að sjá
hag sinn í því að veita Tíbetum aftur
sjálfstæði sitt. Þeir séu í raun miklir
efnishyggjumenn og í Tíbet eru nám-
ur fullar af gulli og úraníum. Hún
segir einnig ljóst að Kínverjar horfi
enn mikið til Rússlands og því gæti
það farið eftir afstöðu Rússa ásamt
fleiri þjóðum á komandi árum hver
örlög Tíbeta verða. Tíbetar trúi hins
vegar sinni eigin sannfæringu og
fólkið fer eftir leiðtoga sínum Dalai
Lama og trú hans á hið jákvæða. Með
opnara Kína og væntanlegum Ól-
ympíuleikum séu einnig ýmsir mögu-
leikar sem ekki er hægt að horfa
fram hjá.
Nú eru þrjú ár síðan formlegar við-
ræður fóru fram um stöðu Tíbet. Á
þeim tíma lagði Dalai Lama ekki
fram beiðni um sjálfstæði Tíbeta
heldur aðeins að þeir fengju eigin
ákvörðunarrétt. Kínverjar voru ekki
tilbúnir til þess að verða við þeirri
ósk. Árið 1980 var Pema boðið til
Kína ásamt nefnd á vegum Dalai
Lama til þess að sjá ummerki og áhrif
yfirtöku Kínverja í Tíbet. Hún sagð-
ist ekki hafa séð neitt gott í þeirri ferð
og var undrandi á þeim jákvæðu um-
mælum sem Kínverjar stilltu fram í
heimsfréttunum. Hins vegar sér hún
fram á það að snúa til baka einn góð-
an veðurdag og segir að einnig sé
lögð áhersla á það við börnin. Hún
hugsar sig um og minnist sextán ára
stúlku sem var ákveðin í því að snúa
tilbaka til foreldra sinna að skóla-
göngu lokinni, stúlkan átti styrktar-
foreldri í einhverju Norðurlandanna
sem sendi henni pening til heimferð-
arinnar og greiddi þar með götu
hennar að miklu leyti. Hins vegar eru
dæmi um fólk sem hefur snúið tilbaka
og lent í yfirheyrslum og fangelsi.
Að lokum nefnir Pema þá stað-
reynd að í dag eru öll börnin í TCV
með svart hár. Mörg þeirra hafa samt
komið brúnhærð frá Tíbet vegna
næringarskorts. Svarti liturinn er
merki um heilbrigði og það er von
hennar að heilbrigðum börnum verði
skilað aftur til Tíbet. Þá er mikilvægt
að hafa viðhaldið menningunni og
tungunni til þess að geta tekið hana
með sér.
Jetsun Pema skilar innilegu þakk-
læti til þeirra fjölmörgu Íslendinga
sem styrkja börn í tíbesku barna-
þorpunum og gera þeim þannig kleift
að öðlast mannsæmandi líf.
Eftir að hafa hitt þessa hlýju og
góðu manneskju geng ég út í haust-
loftið í Osló, mér verður hugsað til
dætra minna heima, sú yngsta aðeins
4 ára. En hún er nú ekkert uppi í fjöll-
um ein á rölti, heldur á hlýjum og
öruggum stað. Öll börn ættu að vera
á öruggum stað.
Ljósmynd/Katja Snozzi
Búddamunkur ásamt tíbesku barni í Gopalpur á Norður-Indlandi.
Ljósmynd/Katja Snozzi
Höfundur er kynningarfulltrúi SOS-
barnaþorpa á Íslandi.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 19
www.yogastudio.is
Yoga Studio – Halur og sprund ehf.,
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 864 1445.
Umboðsaðili fyrir Custom
Craftworks nuddbekki og
Oshadhi ilmkjarnaolíur o.fl.
Opnir jógatímar á vorönn — Hatha-yoga stöður, öndun og slökun.
Mánudaga og miðvikudaga kl. 12.00 (Hlín), 16.25 (Einar), 17.25 (Lísa) og 20.00 (Daníel).
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.00 (Ingibjörg) og 18.00 (Anna).
Föstudaga kl. 17.25 (Ásmundur) og laugardaga kl. 9.00 (kennarar skiptast á).
Næsta grunnnámskeið hefst mánud. 21. janúar. Mán. og mið. kl. 18.30 í 4 vikur.
Vilt þú verða jógakennari?
Í febrúar hefst ný jógakennaraþjálfun. Kennari er sem fyrr Ásmundur Gunnlaugsson, þekktur
fyrir námskeiðið „jóga geng kvíða“. Þjálfunin er yfirgripsmikil og fyllilega sambærileg við það
besta sem í boði er erlendis. Þetta er tækifæri til að nema af kennara með mikla reynslu og
þekkingu á íslenskum starfsvettvangi. Þjálfunin er ekki aðeins fyrir þá sem vilja gerast
jógakennarar heldur einnig öflugt sjálfsþekkingar- og þroskanámskeið. Hún hentar t.d. öllum
sem eru í einshvers konar vinnu með einstaklinga eða hópa og/eða vilja gera breytingar á
lífsháttum sínum.
Ekki er krafist mikillar reynslu og ástundunar af jóga, mikilvægast er áhugi og jákvætt hugarfar.
Einhver grundvallarþekking á jóga er þó æskileg.
Ásmundur heldur kynningarfund laugardaginn 19. janúar kl. 17–18. Lokafrestur til að
staðfesta þátttöku og ganga frá greiðslu er þriðjudagurinn 29. janúar.
Þjálfunin er alls 6 helgar (auk mætingar í jógatíma):
1.-3. febúar, 8.-10. mars, 26.-28. apríl, 24.-26. maí, 30. ág.-1. sept. og 18.-20. október.
Kennt er föstud. kl.20-22, laugard. og sunnud. kl. 9-15.
Ásmundur
Lísa
Einar Hlín Daníel IngibjörgAnna