Morgunblaðið - 13.01.2002, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 23
leið, að mér finnst ég standa
álengdar við steininn og engin hús
eru þar kringum, einungis grænir
balar og lækurinn til hliðar og
sýndist mér hann meiri en hann er
í dag.
Fyrir framan steininn krjúpa
margir menn, sem ég veit í
draumnum að eru franskir sjómenn
að biðjast fyrir. Þetta var svo skýrt
og ljóslifandi að ég hrekk upp og
gat ekki sofnað meir. Þá skildi ég
allt, ég var látin gleyma frásögninni
mold um 50 kg í hvern. Sagt var að
dreifa ætti moldinni yfir Dunkirk
áður en farið var að byggja hana
upp. Ég veit ekki til þess að neitt
sé skráð hér um það.
Árið 1991 var ég beðin um að
taka á móti rútu með frönskum
ferðamönnum frá Ferðaskrifstofu
Íslands, fararstjóri var Ragna
Sveinsdóttir. Átti ég að sýna þeim
bæinn og segja frá því,sem mark-
vert var. Hafði ég mikla ánægju af
því. Bað ég Gunnar Jónasson á
Grund að slást í hópinn hvað hann
gerði fúslega. Hann bauð fólkinu að
skoða húsið. En af hæversku kvaðst
fólkið ekki geta þegið það vegna
þess hversu margt það væri. Gunn-
ar sagði þá sögu hússins fyrir fram-
an það en þar var sjúkraskýli eins
og áður er sagt.
Ráðhúsið var því næst skoðað og
fleira og enduðum við á Krossum.
Þar sagði ég söguna af moldinni og
vakti það nokkra athygli. Gunnar
staðfesti þetta en hann hafði verið
bílstjóri hjá föður mínum og ekið
moldinni inn á bryggju.
Þetta var ljómandi dagur en um
kvöldið hrökk ég við, ég hafði
gleymt að segja frá steininum.
Steinninn stendur í miðju þorpinu
og var málaður á hann svartur
kross og má enn sjá móta fyrir
krossinum. Frakkar notuðu stein-
inn sem innsiglingarmerki. Það var
ekki farið innar í fjörðinn en á móts
við steininn.
Þessi gleymska mín angraði mig
nokkuð. Nokkur tími leið og þá
dreymir mig draum sem var á þá
af steininum eins og ég vissi hana
besta því að það var bara hálfur
sannleikur.
Philippe Bovel, franskur blaða-
maður sem var hjá mér til gistingar
og varð svo hrifinn af Fáskrúðsfirði
að hann er búinn að koma í fjögur
sumur og hefur ýmislegt gott látið
af sér leiða, sagðist hafa heyrt um
svona steina og nefndi dæmi um
það í Frakklandi.
Þessir blessaðir sjómenn komu í
land eftir erfiða og langa útiveru.
Þeir áttu þar helga stund, krupu og
báðust fyrir, þökkuðu guði góðum
fyrir það sem hann gaf. Þarna hafa
þeir sennilega þvegið föt sín og bað-
að sig því að foss var í læknum og
hylur undir. Þetta er allt svo aug-
ljóst og þar sem ég er mjög ber-
dreymin efaðist ég ekki um að þetta
gæti verið rétt.
Ég tók til minna ráða og nú er
þessi steinn minnismerki um
frönsku sjómennina og var steinn-
inn afhjúpaður á frönskum dögum
1997 af þáverandi forseta Íslands,
Vigdísi Finnbogadóttur.
Að endingu vil ég beina orðum
mínum til sveitunga minna að leggj-
ast nú á eitt og stuðla að frekari
uppbyggingu sögulegrar menningar
í heimabyggð.
Vilji er allt sem þarf.
Höfundur er fyrrverandi kennari og
ábyrgðarmaður Spítalafélagsins.
Franski kirkjugarðurinn
Franski kirkjugarðurinn á Krossum er
snyrtilegur og var girt í kringum hann
1988. Það gerðu hjónin Þóra Krist-
jánsdóttir og Hermann Steinsson á
eigin kostnað. Það er ánægjulegt til
þess að vita að sl. sumar var vegurinn
að garðinum lagfærður svo að þar er
gott aðgengi fyrir alla.
Grund
Íbúðarhúsið Grund er glæsilegt og vel við haldið.
Það var sjúkraskýli sem Frakkar reistu 1897. Áfast
við sjúkraskýlið var kapella sem síðar var rifin og
byggð upp aftur sem íbúðarhús og stendur það
enn.
Franski spítalinn
Þetta væntanlega safn er franski spítalinn.
Hann var fluttur út í Hafnarnes árið 1940, sem
að mínu áliti voru mikil mistök. Þá þótti þetta
góð lausn. Þar var hundrað manna samfélag
og vantaði skóla og húsnæði fyrir nokkrar
barnmargar fjölskyldur. Þetta glæsilega hús er
búið að standa autt í rúm 30 ár og vindar og
válynd veður hafa leikið um það. Það má
muna sinn fífil fegri og er lítið augnayndi.
Stoðir og burðarvirki eru að mestu heil og
ekkert er ómögulegt!
Fyrir fjórum árum var stofnaður félagsskapur,
Spítalafélagið, um uppbyggingu franska spít-
alans og er mikill hluti bæjarbúa hlynntur þeirri framkvæmd. Ætlunin er að byggja grunn nálægt staðnum þar sem spítalinn
var og flytja hann síðan þangað. Mun þetta safn verða hin mesta prýði og stolt komandi kynslóða ef rétt er að staðið.
Læknisbústaðurinn
Læknisbústaðurinn er að rísa úr öskustónni og er ráðhús í dag. Frakk-
ar byggðu bústaðinn fyrir lækni sinn og konsúl, Georg Georgsson.
Enn vantar nokkuð á að húsið sé komið í það ástand sem því sæmir.
Þar eru geymdir munir og myndir sem verða síðan á væntanlegu
safni, sem vonandi rís í framtíðinni.
Enn má sjá móta fyrir svarta krossinum á steininum,
sem stendur í miðju þorpinu.
Glæsilegir
brúðarkjólar
nýkomnir
Allar stærðir.
Einnig allir fylgihlutir.
Allt fyrir herra.
Landsins mesta
úrval af
samkvæmisfatnaði
fyrir dömur og herra.
Efnalaug og
fataleiga
Garðabæjar,
Garðatorgi 3, sími 565 6680.